Morgunblaðið - 20.11.1959, Síða 12
12
MORGVNBI4Ð1Ð
Föstudagur 20. nóv. 1959
ifttfrliiMí
Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Axni Óla, %ími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands.
í lausasölu kr. 2.00 eintakið.
NÝTT ALÞINGI - NÝ RÍKISSTJÓRN
IDAG kemur Alþingi sam-
an til fyrsta fundar eftir
að kosið hefur verið eftir
hinni nýju kjördæmaskipun. Það
er nú skipað í meira saniræmi við
þjóðarviljann en nokkru sinni
fyrr, síðan ísland varð fullvalda
ríki. Samkoma Alþingis í dag er
því sögulegur viðburður. Það er
áreiðanlega ósk og von allra á-
byrgra fslendinga, að það reyn-
ist fært um að leysa þau fjöl-
þættu vandamál, sem framundan
bíða. Er þar fyrst og fremst um
að ræða verðbólguna og afleið-
ingar hennar fyrir íslenzkt efna-
hagslíf.
Samstjórn Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðu-
flokksins
Á því Alþingi, sem sett verð-
ur í dag, kemur ný ríkisstjórn
fram fyrir þing og þjóð. Sjálf-
Stæðisflokkurinn og Alþýðuflokk
urinn hafa gengið til samstarfs
um myndun samsteypustjórnar
þessara flokka. Þarf sú stjórnar-
samvinna ekki að koma neinum á
óvart. Síðan vinstri stjórnin rofn-
aði hafa þessir flokkar tekið hönd
um saman um bráðabirgðaráð-
Stafanir til þess að stöðva verð-
bólguna. Það hefur að verulegu
leyti tekizt, og voða hinnar nýju
verðbólguöldu, sem vinstri stjórn
in skapaði verið bægt frá dyrum
þjóðarinnar í bili. En það hefur
aðeins verið gert með bráða-
birgðaráðstöfunum. Raunveruleg
lækning verðbólgumeinsins hefur
ekki átt sér stað.
Enginn þarf heldur að gera
sér í hugarlund að hún verði
framkvæmd í einu vetfangi
með tilkomu nýrrar ríkis-
stjórnar. Xil þess að skapa
jafnvægi i íslenzkum efnahags
málum þarf víðtækar og marg
víslegar ráðstafanir, sem sum-
ar hverjar ná ekki tilgangi
sínum nema á löngum tíma.
Þáttur almennings
Til þess að jákvæður og var-
anlegur árangur náist af við-
reisnarviðleitni þeirrar ríkis-
stjórnar, sem nú er verið að
mynda, þarf hún og ráðstafanir
hennar að njóta skilnings og vel-
vi'ldar almennings. íslendingum
er það nú lífs nauðsynlegt að
láta ábyrgðartilfinningu móta af-
stöðu sína gagnvart óhjákvæmi-
legum aðgerðum til þess að
tryggja heilbrigðan grundvöll að
þjóðarbúskap sínum. Sú stað-
reynd verður ekki umflúin, að
V-stjórnin sökkti meginhluta alls
atvinnurekstrar í landinu í bóla-
kaf taps og halíareksturs. Þessa
staðreynd var síðan reynt að dul-
búa með stórfelldum skattaálög-
um á almenning og víðtæku
styrkja- og uppbótakerfi. Þannig
var hið sjúka efnahagsástand fal-
ið fyrir þjóðinni, sem þó fann
þunga hinna opinberu gjalda stöð
ugt þyngjast á baki sínu.
Þessum sviksamlega fehi-
leik gagnvart almenningi er
þýðingarlaust að halda áfram.
verkefni sitt vel og giftusam-
Sú ríkisstjóra, sem þorir ekki
að segja þjóðinni sannleikann
um þýðingarmestu mál henn-
ar, getur aldrei notið trausts
hennar til lengdar. Hún mun
heldur ekki verða þess megn-
ug að leysa nokkum vanda.
Þetta sannaðist áþreifanlega á
vinstri stjóminni. Hún hrökklað-
ist frá völdum á miðju kjör-
tímabili. Hún reyndi að leyna
þjóðina í lengstu lög sannleikan-
um um það, hvernig komið var
fyrir henni. Niðurstaðan varð svo
sú, að stjórnin féll á úrræðaleysi
sínu og stefnuleysi.
Víti til að varast
Dæmi vinstri stjórnarinnar er
þannig vissulega víti til að var-
ast. Þjóðin veit nú, hver úrræði
hennar voru. Það er nokkurs
virði. En mestu máli skiptir, að
hin nýja ríkisstjórn, sem við völd
um tekur í dag, reynist samhent-
ari og dugmeiri. Það er einlæg
von og vissa Sjálfstæðismanna að
svo muni reynast. Flokkur þeirra
er hið sameinandi afl þessarar
þjóðar. Innan vébanda hans mæt-
ast allar stéttir hins íslenzka þjóð
félags í sameiginlegri trú á sam-
starf þeirra og möguleikana tii
þess að sameina krafta sína í bar-
áttunni fyrir velferð alþjóðar. Ó-
hætt er að fullyrða, að þessi flokk
ur, sem nær 40% þjóðarinnar
fyllir, sé færastur um það að
veita henni forystu á erfiðum og
viðsjálum tímum.
Sjálfstæðismenn ganga til
stjór'narsamstarfsins við Alþýðu-
flokkinn með heilum hug og
drengilegum ásetningi um að
verða þjóð sinni að liði. Hinn
mikli fjöldi fólks, sem fyllir Sjálf
stæðisflokkinn í öllum byggðar-
lögum landsins mun veita hinni
nýju ríkisstjórn brautargengi til
þess að ráða vel og réttlátlega
fram úr vandamálunum. Á sama
hátt má gera ráð fyrir að Alþýðu-
flokkurinn standi heill og óskipt-
ur að baki hinnar nýju stjórnar,
og muni leggja sig fram um, að
stuðla að sem beztum árangri af
störfum hennar.
Enda þótt gera megi ráð fyrir
harðskeyttri stjórnarandstöðu af
hálfu Framsóknarflokksins og
kommúnista, er þó óhætt að full-
yrða, að einnig innan raða þeirra
flokka muni margir góðviljaðir
og ábyrgir menn óska þess að
hinni nýju ríkisstjórn takist að
ráða fram úr sem flestum erfið-
leikum, sem að þjóðinni steðja.
Þróun og uppbygging
Enda þótt það hljóti að verða
meginviðfangsefni hinnar nýju
ríkisstjórnar að framkvæma efna
hagslega viðreisn í landinu, hlýt-
ur hún þó jafnframt að beita sér
fyrir áframhaldandi uppbygg-
ingu og þróun bjargræðisvega
þjóðarinnar. Henni ber að leggja
megináherzlu á öflun nýrra og
fullkominna framleiðslutækja
um leið og hún hefur forystu um
að skapa þeim heilbrigðan rekstr
argrundvöll.
Allir góðviljaðir og ábyrgir
íslendingar hljóta að óska
þess, að hinni nýju ríkisstjórn
takist að leysa þetta tvíþætta
lega af hendi.
UTAN UR HEIMI
GtlM-
MESS
- stærstu ölverk-
smiðjur heims-
ins 200 ára
jyj Á T T U R auglýsinganna
getur verið mikill, enda
verja flest þau fyrirtæki, sem
nokkurs mega sín, stórfé til
auglýsinga — í þeirri vissu,
að það komi margfalt til baka.
☆
Stofnandinn,
Arthur Guinness
— En auglýsingar eru mis-
jafnlega vel gerðar og snjall-
ar, eins og önnur mannanna
verk — og bera því misjafnan
árangur. — Einn snjallasti
auglýsandi Bretaveldis — og
þótt víðar væri leitað — þyk-
ir ölfirmað „Guinness“.
— ★ —
„Gunness is good for you“ —
þessi einföldu auglýsingaslagorð
eru þekkt um jarðarkringluna
þvera og endilanga, jafnvel þar,
sem það heyrir til undantekninga
að fá flösku af Guinness-öli upp
í hendurnar. — Þessar frægu,
brezku ölverksmiðjur, sem lengi
hafa verið hinar stærstu í heimi,
eru 200 ára um þessar mundir.
• 100 punda stofnfé
Haustið 1759 fékk írinn Arthur
Guinness óvænt 100 sterlings-
pund upp í hendurnar. — Dr.
Arthur Price, erkibiskup af
Hér er mynd af einni frægustu
auglýsingu Guinness-verksmiðj-
anna.
Cashel, arfleiddi Guinness að
þessari upphæð, en faðir hans sál
ugi hafði lengi þjónað biskup-
inum af trúmennsku — og mun
það hafa verið ástæðan til þess,
að þessi 100 pund féllu í hendur
sonarins. — Arthur Guinness
noitaði upphæðina til þess að
stofna ölgerð þá, sem æ síðan
hefir haft aðalsetur við St. James
Gate í Dublin.
Guinness byrjaði ekki „stórt'-
— 10.000 tunnur af öli fyrsta ár-
Og hér er sýnt, hve sterkir menn verða af því að neyta hins fræga
öls.
ið. En fyrirtækið tók fljótt að
sækja á. — Árið 1914 var fram-
leiðslan komin upp í 3 millj.
tunnur — og þar með höfðu
Guinness-verksmiðjurnar skotið
öllum ölframleiðendum heims-
ins aftur fyrir sig.
• Aðlaður — fyrir brugg?
Þó að margt hafi gerzt í sögu
fyrirtækisins á tveim öldum, sem
vænta má, og margs konar um-
breytingar átt sér stað, hefir það
aldrei gengið úr Guinness-ætt-
inni. — Á árunum 1868—1927
veitti Edward C. Guinness fyrir-
tækinu forstöðu. Hann var aðl-
aður — útnefndur hinn fyrsti
jarl af Iveagh. — 1 meira en öld
voru verksmiðjurnar algert einka
fyrirtæki Guinness-fjölskyldunn-
ar, en fyrrnefndur Edward stofn-
Hinar skemmti
legu Guinness-
auglýsingar
eru frægar víða
um lönd
aði hlutafélag um reksturinn ár-
ið 1886, með 6 millj. punda höfuð-
stól. Stjórn fyrirtækisins var þó
áfram í hans höndum. Núverandi
framkvæmdastjóri, annar jarl-
inn af Iveagh, missti einkason
sinn í stríðinu og mun því stjórn
fyrirtækisins um sinn lenda í
höndum konu, a. m. k. að nafn-
inu til — einnar af þremur dætr-
um hans, lafði Patriciu Guinness.
En enginn ástæða mun til að
örvænta um framtíð fyrirtækis-
ins. þótt kona vilji sem minnst
nálægt rekstrinum koma, því að
eiginmaður hennar mun vera
mörgum færari til þess að sjórna
stóru fyrirtæki.
— ★ —
Patrica Guinness er nefnilega
gift hinum 55 ára gamla og
reynda stjórnmálamanni Alan
Tindel Lennox Boyd, en hann
hefir einnig staðgóða reynslu á
viðskiptasviðinu. Hann lét af
störfum sem nýlendumálaráð-
herra í stjórn. Macmillans fyrir
nokkrum vikum, og gekk þ*
í þjónustu Guinness-fyrirtæk-
isins. Er það mál manna, að hann
muni áður en langt líður taka
við rekstri þess — ásamt kon-
unni.
• Ókeypis auglýslngar
Eins og fyrr er á minnzt, era
Guinness-auglýsingarnar frægar
víða um lönd, en þær einkennast
fyrst og fremst af því, hve slag-
orðin eru einföld og vel valin og
teikningarnar, sem fylgja,
skemmtilegar og fyndnar. — Þar
sern segja má, að Guinness hafi
„skrifað" sérstakan kapítula í
sögu auglýsinganna, má það
undarlegt heita, að þetta gamla
fyrirtæki byrjaði ekki að nota
auglýsingar að neinu ráði fyrr
en árið 1929. — En þess er líka að
gæta, að fyrirtækið fékk löngu
fyrir þann tíma hinar ágætustu
auglýsingar — ókeypis. Guinness
ölið er neínilega nefnt víða í
hinum marglesnu verkum Dick-
ens, Thackerays og Roberts Lou-
is Stevensons —- og betri aug-
lýsingar hefir líklega tæpast ver-
ið um að gera á þeim tíma. —
En hinar „klassísku“ auglýsing-
ar, „Guinness is good for you“,
„My Goodness — my Guinness'*
o. s. frv., byrjuðu sem sagt fyrir
aðeins 30 árum.
Heimsþekkt vörumerki
Franska atómsprengjan
sprengd ofanjarðar
PARÍS, 17. nóv. (Reuter). —
Francis Perrin, yfirmaður kjarn-
orkustofnunar Frakklands, sagði
í dag, að fyrsta kjarnasprengja
Frakka yrði sprengd í lofti ■—
ekki neðanjarðar. — Hann var að
svara spurningum fréttamanna
um fyrirhugaða sprengjutilraun
Frakka, eftir ræðu, sem hann
flutti í miðdegisverðarboði. —
Hann vék sér undan að svara því,
hvenær sprengingin yrði fram-
kvæmd.
Perrin sagði, að allar hugsan-
legar ráðstafanir hefðu verið
gerðar til þess, að ekkert mein
hlytist af sprengingunni. — Sú
hætta, sem henni fylgdi, væri
hverfandi — og t.d. alls ekkl sam-
bærileg við þær hættur, sem staf-
að hefði af sprengjutilraunum
Bandaríkjamanna í Nevadaeyði-
mörkinni. — Aukning geislunar
í andrúmsloftinu af völdum
sprengingarinnar mun varla
verða greind, sagði Perrin. —
Þess vegng er sú gagnrýni, sem
fram hefir komið vegna þess-
arar fyrirhuguðu tilraunar, aug-
ljóslega af pólitískum rótum
runnin, bætti hann við.
Perrin tók ekki frarh, hvort
sprengjunni yrði varpað úr flug-
vél, eða hún yrði sprengd uppi
á háum turni — en hið síðar-
nefnda er talið líklegra.