Morgunblaðið - 20.11.1959, Qupperneq 24
VEÐRIÐ
NA-stinningskaldi. Skýjaff.
Hiti um frostmark.
Erlendir viðburðir
Sjá bls. 13.
259. tbl. — Föstudagur 20. nóvember 1959
< Hinir nýkjömu borgarstjórar og fráfarandi borgarstjóri. — Myndin er tekin að loknum.
. bæjarstjórnarfundinum í gær. (Ljósm. Öl. K. M.)
(
Ge/r Hallgrímsson og Audur
Auðuns borgarstjór-
ar í Reykjavík
í LOK bæjarstjórnarfundar í
gær kvaddi Gunnar Thorodd-
sen borgarstjóri sér hljóðs og
óskaði eftir leyfi frá borgar-
stjórastörfum fyrst um sinn,
þar eð fyrirhugað væri að
hann tæki nú sæti í ríkis-
stjórn. Var tillaga þessa efnis
lögð fyrir fundinn og sam-
þykkt samhljóða og í fram-
haldi þeirrar samþykktar var
lögð fram eftirfarandi tillaga:
Bæjarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkir, skv. heimild í 6. mgr. 30.
gr. 1. nr. 81/1936, um sveitar-
stjórnarkosningar, að settir skuli
tveir borgarstjórar fyrst um sinn.
Skal annar þeirra settur til að
fara með fjármál bæjarins og
verklegar framkvæmdir, en hinn
skal settur til að fara með
menntamál, heilbrigðismál og fé-
lagsmál.
Verkaskipting borgarstjóranna
skal vera sem hér segir:
Vi Borgarstjóri fjármála
' og verklegra framkvæmda
' 1. Fjármál bæjarins, þar á með
al tekjustofnar, innheimta bæjar-
gjalda og sjóðir. — 2. Bókhald,
endurskoðun, hagsýsluskrifstofa.
— 3. Bæjarstarfsmenn, réttindi
og skyldur. — 4. Skipulagsmál,
byggingarnefndarmál. — 5. Verk
legar framkvæmdir, þar á meðal
gatna- og holræsagerð, bygging-
ar skóla, íbúðarhúsa og sjúkra-
húsa, lóðamál, umferðarmál. —
6. Fasteignamál. — 7. Vatnsveita.
— 8. Hitaveita. — 9. Rafmagns-
veita. — 10. Bæjarútgerð. — 11.
Reykjavíkurhöfn. — 12. Inn-
Ikaupastofnun bæjarins. — 13.
Málefni, er varða bæjarfélagið í
heild að því leyti, sem þau eru
ekki sérstaklega falin borgar-
stjóra menntamála, félagsmála og
heilbrigðismála.
V Borgarstjóri menntamála,
heilbrigðismála og félagsmála
1. Fræðslumál. — 2. Söfn, list-
ir, íþróttamál, skemmtigarðar og
leikvellir. — 3. Framkvæmd heil-
brigðismála. — 4. Hreinlætismál.
— 5. Sjúkrahús og heilsuvernd.
— 6. Félagsmál, þar með talin
hjúkrunar- og líknarmál, barna-
og vistheimili, vinnumiðlun, al-
mannatryggingar og framfærslu-
mál. — 7. Húsnæðismál, önnur
en íbúðabyggingar. — 8. Hag-
fræðideild, manntalsskrifstofa,
kosningar. — 9. Brunamál. — 10.
Húsatryggingar bæjarins. — 11.
Strætisvagnar Reykjavíkur.
Var tillaga þessi samþykkt sam
hljóða og fór þessu næst kosning
tveggja borgarstjóra. Var Geir
Hallgrímsson kjörinn borgar-
stjóri fjármála- og verklegra
framkvæmda, en frú Auður Auð-
uns var kjörin borgarstjóri
menntamála, heilbrigðismála og
félagsmála.
Að kosningu lokinni færði
Gunnar Thoroddsen bæjarfulltrú
um þakkir og flutti hinum ný-
kjörnu borgarstjórum einlægar
árnaðaróskir, en Geir Hallgríms-
son þakkaði fyrir þeirra hönd.
Þá fór fram kosning forseta
bæjarstjórnar. Var Gunnar Thor-
oddsen kjörinn. Fyrri varafor-
seti var kjörinn Guðmundur H.
Guðmundsson en Gísli Halldórs-
son síðari varaforseti.
Varðarfundur um
stjórnarskiptin
Ólafur Thors frummælandi
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður heldur fund f
Sjálfstæðishúsinu í kvöld. Umræðuefni þessa fundar
verður: Stjórnarskiptin og ný viðhorf. — Frummæl-
andi verður Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Allt Sjálfstæðisfólk er velkomið á fundinn meðan
húsrúrn leyfir. Funaurinn hefst kl. 8,30.
Norðlendingur strand■
ar í Fœreyjum
TOGARINN Norðlendingur
strandaði í myrkri á miðviku-
dagskvöld í Trangisvogi á Suður-
ey. Var togarinn á leið þangað
inn til að sækja 10 sjómenn sem
ráðnir höfðu verið á togarann.
Var hann kominn hálfa leið inn í
fjörðinn, er hann strandaði að
sunnanverðu við hann. Skip
komu Norðlendingi brátt til
hjálpar og tókst að ná togaranum
út aftur þegar í fyrrinótt og fór
harm inn til Trangisvogs.
Reiknivél stolið
í FYRRINÓTT var framið inn-
brot í skrifstofu Félagsbókbands
ins í Ingólfsstræti 9. Var þar stol-
ið vandaðri reiknivél 7—8000 kr.
virði. Ennfremur var skjalatösku
stolið og sprengt upp skrifborð.
Þessa sömu nótt hefur verið
framið innbrot í búð í Vestur-
bænum. Engu var stolið þar, en
þjófurinn hefur brotið þar og
bramlað.
Albingi kemur saman i dag
L
REGLULEGT Alþingi 1959
kemur saman til fundar í dag.
Er það fyrsta Alþingi, sem
kosið er til samkvæmt hinni
nýju kjördæmaskipun, er lög-
fest var á aukaþinginu í sum-
ar. Fleiri þingmenn taka nú
sæti á Alþingi en nokkru
sinni fyrr, eða 60 alls. —
Sautján þeirra áttu ekki sæti
á síðasta þingi.
Setningarathöfnin í dag hefst
með því, að forseti íslands og
alþingismenn koma saman í and-.
dyri Alþingishússins kl. 1,15. —
Þaðan verður svo gengið til Dóm
kirkjunnar og hlýtt guðsþjón-
ustu samkvæmt venju, áður en
Alþingi er sett. Séra Garðar
Þorsteinsson, prófastur í Hafnar-
firði, prédikar.
Að lokinni guðsþjónustu verð-
ur gengið til þinghússins að nýju,
að þá setur forseti íslands þing-
ið í sal neðri deildar. Að ræðu
hans lokinni tekur aldursforseti,
sem nú er Gísli Jónsson, 1. þm.
Vestfjarða, við fundarstjórn. Þá
mun hinn nýi forsætisráðherra,
Ólafur Thors, kynna ríkisstjórn-
ina, en að því loknu verður tek-
in fyrir rannsókn kjörbréfa.
Seytján þingmenn, er ekki sátu
á síðasta þingi, taka nú sæti á
Alþingi. Eru það þessir: Frá
Sjálfstæðisflokknum frú Auður
Auðuns, Alfreð Gíslason, Birgir
Kjaran, Bjartmar Guðmundsson,
Jónas Pétursson, Pétur Sigurðs-
son og Ólafur Björnsson. Frá
Alþýðuflokknum Birgir Finns-
son, Benedikt Gröndal, Jón Þor-
steinsson og Sigurður Ingimund-
arson. — Frá Framsóknarflokkn-
um Garðar Halldórsson, Jón
Skaftason og Sigurvin Einars-
son. — Frá Alþýðubandalaginu
Alfreð Gíslason, Eðvarð Sigurðs-
son og Geir Gunnarsson.
Slæmt veður var þar í gær, en
þá var fenginn kafari til að
kanna skemmdirnar á botni tog-
arans. Fann kafarinn þrjár rifur
á honum. Lekinn er þó ekki svo
alvarlegur að dælurnar hafi ekki
undan. Til taks eru á bryggjunni
kraftmiklar brunadælur, ef á
þarf að halda. Olíuskip mun dæla
olíu af geymum skipsins, en einn
þeirra hefur rifnað við strandið.
Síðan verður Norðlendingur
dreginn inn til Þórshafnar til við
gerðar. Skipshöfninni líður vel.
Fjölgun þingmanna hefur
gert nauðsynlegt að fjölga
sætum í deildum Alþingis.
Þessi mynd er tekin í sal
neðri deildar og sameinaðs
þings og sýnir nýsmíðina,
er þar hefur verið gjörð.
Reistur hefur verið nýr for-
setastóll, mjög upphækkað-
ur. iEr hann gjörður úr
ljósri eik, hinum bezta viði.
Frammi fyrir forsetastóln-
um hefur verið smíðaður
ræðustóll úr sama efni. —
Framan á ræðustólnum er
útskorinn skjöldur úr teak-
viði, er Sveinn Ólafsson
myndskeri hefur gert. Eru
landvættirnir skornir á
skjöldinn. Þá hefur einnig
sætaröð verið bætt í þennan
sal innan þeirra, er fyrir
voru. Ræðustóllinn og for-
setastóllinn eru smíðaðir
hjá Friðrik Þorsteinssyni,
húsgagnasmiðameistara.