Morgunblaðið - 13.12.1959, Síða 21

Morgunblaðið - 13.12.1959, Síða 21
Sunnudagur 13. des. 1959 MORCiryBLAÐIÐ 21 „Hersveit hinna fordæmdu" hefur allsstaðar vakið feikna athygli og umtal. Höfundinum er líkt við Hemingway og Remarque, og jafnvel talið, að þeirra frásagnir séu barnamatur á við hans. Þetta er engin sykurleðja, og höfundur gerir engar yfirborðskenndar gælur við hlutina. Við kynnumst miskunnarleysi og kvalsýki fanga- búðaböðlanna beggja megin. Við kynnumst ómennskum þjáningum hermannanna, sem reknir voru áfram harðri hendi. Við kynnumst æðislegum drykkjuskap og ofsa- fengnu kvennafari. Við kynnumst strákapörum og gáska, sem undr- un sæta. Við kynnumst hóflausum ólifnaði yfirstéttar Berlínar, og mörgu fleiru. Á hverri blaðsíðu er eitthvað að gerast, sem of langt yrði upp að telja. Þessi bók er talin sterkasta stríðsbók, sem skrifuð hefur verið, og við hvetjum alla hugsandi menn til þess að lesa þessa bók. Hersveit hinna fordæmdu „Að sigra eða deyja“ er spennandi frásögn af einni hrikalegustu sjóorrustu, sem sagan greinir. Höfundurinn leiðir lesandann með sér allt frá því, er öflugasti vígdreki allra tíma, ,,Bismarck“, lagði frá landi í Kiel í sína örlagaríku för, þar til hann, flakandi í sárum, sökk með fánann við hún. Á þessari leið gerist margt, sem heldur huga manns föngnum. Hood springur í tætlur. Bismarck týnist æ ofan í æ, en fyrir herfileg mis- tök finnst hann alltaf aftur. Allur heimaflotinn brezki, nærfellt 50 skip, tekur þátt í eltingarleiknum. Fjöldi flugvéla var sendur á vettvang, og það voru þær, sem örlögum réðu í þessum hrikaleik. Lesandinn kynnist líka mönnunum, sem vamar- lausir biðu þess, er koma skyldi, langt niðri í iðrum stálrisans. Einkunnarorðin voru: að sigra eða deyja. Allir. vissu, að það var aðeins annar kosturinn fyrir hendi. 2400 manns vissu örlög sín og biðu þeirra dægrum saman. Norskur ritdómari sagði: .— Það er blátt áfram ekki hægt að komast hjá því að fylgja Bismarck á feigðarför hans um Atlants- haf, og maður stendur á öndinni af spenningi, enda þótt maður viti fyrirfram, hvernig fer að lokum. Þetta er hrífandi bók, sem allir ættu að lesa. Hersveit hinna fordæmdu Með þessum höndum Að sigra eða deyja Læknakandídatinn Að sigra eða deyja - a Allar þessar bækur hafa hlotið einróma viðurkenningu, hver sínu sviði. — Athugið þær, og þér hafið fundið gjafabækurnar Með bók sinni 08.15 vann Hans Hellmut Kirst sér heimsfrægð. Þessi hin nýja bók hans Með þessura höndum, er ekki síðri að dómi flestra. Hans Hellmut Kirst er prýddur þeim höfuð-kosti góðra rithöfunda að geta fléttað saman mannvit og skemmtan í frá- sögninni. Frú Golder er orðin fullorðin, þegar sagan hefst, en börn hennar eru ung og hin fornu kynni hennar og hr. Siegerts verksmiðjustjóra og eiganda, endur- taka sig nú hjá börnum þeirra. Frú Golder tekur á vandamálum fjölskyldu sinnar af þeirri festu og því viti, sem aðeins stórvitur kona getur gert. Konur — Þið fáið ekki skemmtilegri lesningu en frásögnina af þessari stórbrotnu konu. I\leð þessum hóndum Richard Gordon er þegar mjög þekktur höfundur hérlendis. Það hafa nú verið þýddar eftir hann tvær bækur, Læknir til sjós og nú Læknakandídatinn. Læknakandídatinn er talinn hans skemmtilegasta bók til þessa, og hefur verið gefin út 37 sinnum í heimalandi höfundar. Kvikmynd af bókinni hefur einnig náð feikna vinsældum meðal annars hér á landi, þar sem hún var sýnd við metaðsókn. Vinsældir Gordons liggja vafalaust í því, að hann sameinar létta kímni all-snarpri ádeilu á fúsk við kennslu lækna og í störfum sumra þeirra. Öllu gamni fylgir jafna nokkur alvara. Það mun eiga við Gordon. Hann segir þessa sögu sína í fyrstu persónu, og við hlægjum dátt að óförum kempunn- ar fyrst eftir að hann kemur í læknaskólann og ekki síður þegar hann fær til meðferðar fyrsta kvensjúklinginn. Þetta er hörku-spennandi frásögn fjörleg og lif- andi og það leiðist engum um jólin þau, sem hann hefur bók Richard Gordon, Læknakandídatinn 1 höndunum. Læknaliandídatinn Ægisúfgáfan — Bókaútgáfa Ásgeirs & Jóhannesar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.