Morgunblaðið - 13.12.1959, Síða 23

Morgunblaðið - 13.12.1959, Síða 23
Sunnudagur 13. des: 1959 23 MORGVlSBLAÐlÐ Sœmundur Sigurðsson og fjölskylda að Elliða ÞEGAR ég sem barn, man fyrst eftir mér í kirkju að StaðastaS í Staðarsveit, og mín barnslega þrá var að skoða og skilja allt sem fyrir augu og eyru bar. Yar þar einn maður úr miklum fjölda fólks, sem heillaði svo huga minn, að hann hefir æ síðan lifað mér í minni, þótt margt annað hafi gleymzt. Þessi maður var Sæmundur Sigurðsson, hreppstjóri á Elliða í Staðarsveit. Hann var fæddur 13. ds. 1859, dáinn 8. maí 1910 og eru því nú 100 ár síðan þessi maður leit fyrst dagsins ljós. En minningarnar hjá okkur, sem einhvern spöl ævinnar átt- um því láni að fagna að njóta samfylgdar hans, geta ekki geymizt meðan minnið varir. Sæmundur var hár maður vexti, mjög glæsilegur og bar höfuð hátt og vakti hvers manns eftirtekt hvar í fylkingu manna hann stóð. Sæmundur var framúrskarandi söngmaður, og minnist ég þess er hann stjórnaði söng í Staðar- kirkju, að þótt margir styddu sönginn, fannst mér ég ekki heyra nema hans rödd, svo þróttmikil og djúp var hún, en þó hrein og fögur. Sem fullorðinn maður, naut ég þeirrar ánægju að kynnast nánar Sæmundi og heimili hans að Ell. iða, sú kynning staðfesti og full- komnaði það álit sem ég í bernsku hafði myndað mér, að þarna hefði náttúran sameinað glæsileik, hæfni og fórnfýsi í sama manni. Þessi kynni mín við Elliðaheim ilið var um og eftir síðustu alda- mót, og var þá þetta heimili talið í fremstu röð þar í sveitum, og þangað þótti öllum gott að koma og vera. Sæmundur Sigurðsson og Stef- anía Jónsdóttir kona hans (glæsi- leg og gáfuð kona) munu hafa byrjað búskap á Elliða á síðustu tugum 19. aldarinnar efnalítil eða efnalaus. Ómegð hlóðst fljótt og mikil á þau, en það þunga sorgar ský grúfði yfir að þau misstu 4 börn sín í bernsku, en 5 komust til fullorðinsára, en nú eru aðeins tækifæri að fá sér út í kaffið þar sem erfiðasti hjalli leiðarinnar var að baki (fjallagarðurinn), mynduðust þá oft fjörugar sam- ræður , og lyfti þá jafnan hinn mælski og fróði húsbóndi hugum gesta sinna á hærra stig, og oft bar það við að hann brá upp sinni miklu og fögrú rödd ög urðu þá allir að taka undir. En þess skal getið að Sæmundur var mikill reglumaður þótt hann væri alltaf með þar sem gleði var á ferðum, og minnist ég þess ekki að hafa' séð hann undir áhrifum víns. Á þessum árum mun það hafa verið færri dagar ársins sem engan gest bar að garði á Elliða, þar var öllum veitt eftir beztu getu, þreyttir fengu hvíld, kaldir hlýju, svangir saðningu, en síðast en ekki síst var þetta heimili vel til þess fallið að lyfta andlegum þroska manna á hærra stig og glæða vonir, þrek og bjartsýni samtíðar sinnar sem átti við þröng og erfið skilyrði að búa á þessum tímum. Eðlileg spurning væri. Lifði heimilið á greiðasölu, eða leyfðu efni þetta? Gjald fyrir greiða á þessum stað kom aldrei í huga nokkurs manns, hvorki veitanda eða þyggjanda, enda móðgun við veitanda þótt boðið hefði verið. Meðalbústærð var rekin sem allrar orku krafðist til að láta gjöld og tekjur mætast. En Elliðahjónin voru rík af andans auð mannkærleika og fórnfýsi. Sæmundur var vel menntaður og lesinn af þeirra tíma alþýðu- mönnum að vera, enda var hann um langt árabil forustumaður allra félagsmála sinnar sveitar, og fórst það vel og eyddi í það niiklum tíma frá sínu heimili til að leysa þau störf sem bezt úr hendi. Samleiðar minnar og kynn ingar með Sæmundi og fjölskyldu hans minnist ég ávallt með þökk og virðingu. Gísli Þórðarson, Ölkeldu Staðarsveit. - Bókaþáttur Framh. af bls. 14. ins. Það er gott til þess að vita, að Fornólfskver skuli vera kom- ið út að nýju í listilegum bún- ingi og vel frá því gengið á alla lund. Forlagið á þakkir skilið fyrir það tiltak og svo aðrir þeir, er þar lögðu hönd að verki. Allur frágangur er hinn smekk legasti og bókin verður veglegt minnismerki um þetta mæta skáld. Auk myndanna úr fyrri útgáf- unni, eftir Björn Björnsson, hef- ur Halldór Pétursson teiknað nokkrar nýjar myndir. Kópavogsbúar Athugið! Efnalaug Kópavogs, Kársnesbraut 49, sími 18580 mun framvegis annast mót- töku á skyrtum fyrir okkur í Kópavogi og munu þeir sækja og senda, ef óskað er. Þær skyrtur, sem koma í móttökuna fyrir þriðjudagskvöld, verða tilbúnar á laugardagsmorgni, en þær, sem koma fyrir föstudagskvöld, verða tilbúnar á 2 þeirra á lífi, Oddfriður frú í Reykjavík og Sigurður verkstjóri í Reykjavík, hin sem upp komust en eru nú dáin voru: Guðmund- ur klæðskeri, Aðalheiður frú og Jóhann læknir og prófessor, öll í Reykjavík. Öll þessi börn þekkti é'g vel, og sá að þau höfðu í ríkum mæli tekið hinn dýrmæta arf frá for- eldrum sínum, gáfur," góðvild og fórnfýsi og áreiðanlega hafa þau miðlað þessum arfi til fjölda sam- tíðarmanna sinna, þótt Jóhann hafi orðið þar þekktastur vegna stöðu sinnar í mannfélaginu. Á sama hátt nutum við eldri kyn- slóðin foreldranna og minnumst þess með þökk og virðingu. Elliði stendur undir háu fjalli, og var áfangastaður allra þeirra, sem að vestan komu og leið áttu í kaupstaðinn í Stykkishólmi, og þeir voru margir. Þá voru manna og hestafæturnir farartækin sem sjálfsagt var að hvíla á Elliða áður enn lagt var á fjallið, og þegar komið var af því aftur. Ég lifi í anda þessar hvíldar_ stundir sem fjöldinn naut þarna, án tillits til hverjir á ferð voru. Væri húsbóndinn heima, kom hann á móti gestunum með lif- andi fjöri og atorku að losa skepn unar við byrgðar sínar, veita þeim sínar þarfir, en leiða gesti í bæinn. Þar tók á móti þeim hin göfuga húsmóðir með sinni bros- mildu ró, sem engin utanaðkom- andi áhrif virtust megna að raska meðan lífið entist. Á borð var borið iyrir gestina allt það bezta sem heimilið átti, og hin hugkvæma húsmóðir vissi að þeir þöfnuðust og ekki létu sitt eftir liggja hin siðfáguðu börn þeirra hjóna, sem alltaf voru reiðubúnir þjónar ferðamannsins. Mjög oft í þessum ferðalögum þeirra tíma höfðu ferðamenn vín pela í vasanum, ekki sízt þegar úr kaupstað var komið, var þá glæst miðvikudögum. Sérstök áherzla verður lögð á vandaðan frágang og örugga afgreiðslu. ^SKYRTAN Höfðatúni 2 — Sími 2-48-66 Athugið látið ekki happ úr hendi sleppa „Linde“ Fjölbreytt vöruval til jólagjafa: Leikföng — Snyrtivörur Sokkar — Plastvörur .. Lakk og málning. Raf magnsdeildin: Allskonar heimilistæki: Riksugur, hringofnar, brauðristar, hitarar o. fl. Ennfremur höfum við frá hinu þekkta vestur-þýzka 30 ára Kæliskápa-firma T .TNDE KÆLISKÁPA, fyrirliggj- andi, 6,5 cu. ft. Einkaumboð fyrir „Linde“ Radió & raftækjaverzlun Arna Olafssonur Sólvallagötu 27 — Reykjavík — Sími 12409 Amerískir greiðslusloppar Bezta úrval í bænum Ameriskur undirfatnaður mjög vanduður, m. a.: Baby-Doll náttföt, náttkjólar, undirkjólar og margt fleira. Helena Rubinstein gjafakassar Fronsk ilmvotn mikið úrvai Skartgripir fallegt úrval Domutdskur mjög fallegar Seðlaveski margar gerðir Blundusjol glæsilegt úrval Hanzkar yfir 20 litir Franskir hálsklútar mikið úrval Regnhlífar mjög fallegar Samkvæmistoskur Kristalsvorur m. a. mikið af fallegum vínglösum Borðdukar o. m. fl. Látið okkur pakka inn jólagjöfunum MHMIIimiH LAUGAVEGI 89

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.