Morgunblaðið - 13.12.1959, Side 24

Morgunblaðið - 13.12.1959, Side 24
24 MORGUNBLAÐIfí Sunnudagur 13. des. 1959 > Abraham Lincoln — ævisaga í þessari bók er greint frá ævi Abrahams Lincolns, baráttu hans og örlögum. Þar er ekki aðeins vikið að æsku Lincolns og uppvexti, sagt frá þætti hans í borgarastyrjöldinni, einkalífi og loks hinum válegu örlögum, er biðu hans, heldur er og varpað ljósi á mannvin- inn Lincoln, ræðusnillinginn og rithöfundinn. Höfundur bókarinnar, Thorolf Smith, fréttamaður við Ríkisútvarpið, er óefað sá íslending- ur, sem bezt hefur kynnt sér sögu Abrahams Lincolns. Um 18 ára skeið hefur hann kynnt sér allar þær bækur, er hann mátti. Honum hefur og gefizt kostur á að ferðast um slóðir Lincolns og kanna bréf hans og skjöl í söfnum vestan hafs. Bókin er yfir 300 bls. með 60 sérprentuðum myndum. Landhelgisbókin Frásögnin hefst, er hinir fyrstu erlendu menn koma hingað til fisk- veiða, en þeir fóru síðan oft með yfirgangi og ofríki á hendur lands- mönnum til lands og sjávar. Síðari hlutinn hefst, þegar varðskipa- floti íslendinga leggur úr höfn til þess að verja hina nýju 12 mílna landhelgislínu. Gunnar M. Magnúss tók bókina saman. Hann hefur áður sannað með „Virkinu í norðri“ o. fl. sögulegum ritum, að hon- um er sérstaklega lagið að vinna slík ritverk. — í bókinni, sem er prentuð á mjög vandaðan pappír, eru 160 myndir efninu til skýr- ingar, ýmsar þeirra stórsögulegar, frá fyrri tímum fram á þennan dag. Landhelgisbókin er ramíslenzkt bók um ramíslenzkt efni. Kappflugið umhverfis jörðina er spennandi drengjabók, sem segir frá kappflugi margra flug- véla kringum nnöttinn. Þetta er efni, sem tápmiklir unglingar hafa gaman af að lesa um: flug- vélar, flugmenn og ekki sízt hið spennandi kappflug umhverfis jörðina. Freysteinn Gunnarsson íslenzkaði. Strákar í stórræðum er ný drengjabók eftir Böðvar frá Hnífsdal. Þetta er framhald bók- anna „Strákarnir sem struku" og „Ævintýralegt jólafrí“. Maggi, Kalli og félagar þeirra komast í ýmis ævintýri á hafi úti og á heimaslóðum. Þetta er ný og afar skemmtileg drengjabók eftir Böð- var frá Hnífsdal. Anna Fía er skólasaga um heilbrigðar og tápmiklar stúlkur. Bækurnar um Önnu Fíu eru löngu kunnar fyrir það, hve skemmiilegar þær eru. Hér er fyrsta bókin: Anna Fía, — en hinar tvær, sem koma út á næsta ári, heita: Anna Fía í höf- uöstaönum“, og „Anna Fía gift- ist“. íslenzkað hefur Freysteinn Gunnarsson. Heiða, Pétur og Klara eftir Jóhönnu Spyri er framhald bókarinnar „Heiða og Pétur“, er kom út síðastliðið haust. Nú kem- ur Klara í heimsókn til Heiðu litlu og afa gamla á f jallinu. Telp- umar una sér vel í fjallaloftinu, og þegar amma kemur, þarf Klara ekki lengur að sitja í hjóla- stólnum. Falleg bók að efni og myndum. Einn á fleka William Willis er einn þeirra manna, sem sleppur frá hinum háskalegustu ævintýrum, — ævintýraþráin er honum í blóð borin. — 1 baráttu við stórsjó og náttúru- hamfarir tekst honum að sigla á balsafleka 9700 kíló- metra leið á 115 sólarhringum. Þetta er karlmannleg bók — sannkölluð sjómannabók. Dýrkeyptur sigur Söguhetjunni, Joe Lampton, er aðeins eitt í huga — að brjóta sér frama til hinnar björtu veraldar f jármuna og valda. Hann er föngulegur, dugandi, ungur maður, svo að fögur dóttir efnaðs manns verður brátt ástfangin af honum. Eitt er honum þó fjötur um íót: Hann elskar aðra konu. En hann hefur þó aldrei misst auga á loka takmarkinu. Þegar Joe hugleiðir, hvernig komið er fyr- ir honum, gerir hann sér grein fyrir, að honum hefur tekizt allt, sem hann ætlaði sér, — en það varð dýr- keyptur sigur. SETBERG

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.