Morgunblaðið - 31.12.1959, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 31.12.1959, Qupperneq 1
40 síður <og Lesbók 46. árgangtu 291. tbl. — Fimmtudagur 31. desember 1959 Prentsmiðja Morgunblaðsins CIeðiIegt nýtt árl Krúsjeff samþykkir: Fundur austUrs oa vesturs verði 16 maí ,Vélhjarta' j Moskvu og London, 30. des. — NTB-Reuter. — SÍÐDEGIS í dag gekk Andrei Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, á fund sendi- herra Vesturveldanna í Moskvu, Bandaríkjanna, Bret- lands og Frakklands, og af- henti þeim bréf frá sovét- stjórninni til svars við uppá- stungu Vesturveldanna frá því í gær um fundardag rík- O--------------□ JHov^unblabiíi kemur nœst út sunnud. 3. janúar □--------------□ isleiðtoga austurs og vesturs. — Samkvæmt svari sovét- stjórnarinnar til hinna þriggja vestrænu stjórna, sem mun vera samhljóða, hefir Krúsjeff samþykkt tillöguna um það, að „toppfundurinn“ hefjist hinn 16. maí n. k. i París. — ★ — Áður en þetta gerðist, hafði Krúsjeff þegar tjáð sig reiðubú- inn til þess að hitta ríkisleiðtoga Vesturveldanna í París — og var ekki ágreiningur um neitt — nema fundardaginn. Nú er einn- ig það mál til lykta leitt. — Fyrst kallaði Gromyko banda- ríska sendiherrann, Llewellyn Thompson, á sinn fund, síðan franska sendiherrann, Maurice Dejean, hláfri klst. síðar — og loks gekk Sir Patrick Reilly, brezki sendiherrann, á fund Krúsjeffs til þess að veita orð- sendingu hans viðtöku. Bréf Krúsjeffs er sagt stutt og laggott — og vinsamlegt. — Það mun væntanlega verða birt á morgun. — Fréttin um hið já- kvæða svar Krúsjeffs hefir vak- ið ánægju á Vesturlöndum, ef BONN, Þýzkalandi, 30. des. (Reut er). — Forseti Ríkisflokksins í Vestur-Þýzkalandi, WilhelmMein berg, sagði á blaðamannafundi í dag, að flokkurinn bæri enga ábyrgð á atferli mannanna tveggja, sem vanhelguðu sam- kunduhús Gyðinga í Köln á jóla- nótt. Hann sagði, að þessir tveir „kjánar“ hefðu unnið hinn fyrir- litlega verknað sinn „á eigin ábyrgð“. Og þar sem vitað væri að þeir hefðu nýlega dvalizt í A- , Þýzkalandi mætti búast við, að dæma má af fyrstu fréttum. — Það er sama hvort litið er til Bonn, Parísar, Lundúna eða Washington — alls staðar er svari Krúsjeffs mjög fagnað og það talið sönnun þess, að Sovét- ríkin séu nú fúsari til samninga en nokkru sinni fyrr. hér væri á ferðinni kommúnískt; samsæri. — Hann kvað flokk [ sinn vilja, að allir landsmenn nytu jafnréítis, hvaða trú, sem þeir játuðu. Saurgun Gyðingahússins í Köln virðist hins vegar ætla að draga dilk á eftir sér, því að í gærkvöldi áttu sér stað hliðstæð atvik. — Samkvæmt frásögn þýzku frétta- stofunnar D.P.A. voru þá málað- ir rauðir hakakrossar á minnis- merki, sem stendur í útborg Framhald á bls. 23. SVENSKA Dagbladet segir frá því, samkvæmt fréttaskeyti Associated Press frá Banda- ríkjunum, að tveim vísinda- mönnum, bræðrunum William og Francis Fry, sem báðir starfa við rannsóknarstofnun Illinois-háskólans, hafi tekizt að búa til „vélhjarta". Gera bræðurnir sér vonir um, að uppfinning þeirra geti í fram- tíðinni orðið til þess að lengja mjög líf þeirra, sem þjást af hj artasj úkdómum. Blaðið kveðst hafa borið fréttina undir sænska sérfræð- inga, og hafi þeir sagt, að það ætti ekki að vera óleysanlegt vandamál að gera „vélhjarta", er starfhæft gæti orðið í lík- ama manna — og að uppfinn- ing hinna tveggja Bandaríkja- mannanna sé merkur áfangi. — Hingað til hafa vísinda- mennirnir aðeins reynt upp- finningu sína á hundum, en þeir eru mjög bjartsýnir á, að takast megi að gera stærra 1 og nákvæmara tæki af þessu tagi, er koma mætti fyrir í brjóstholi manna sem eins konar „hjálparvél“ fyrir sjúkt eða veiklað hjarta. Fleiri hakakrossar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.