Morgunblaðið - 31.12.1959, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 31.12.1959, Qupperneq 9
Flmmtudagur 31. des. 1959 MORCTlNfíLAÐIÐ 9 öllu var útilokað að þeír gætu gert þeim nokkur skil. Enda var *vo komið þá, að allir sem gátu leituðu til annarra lækna eí nokk uð var í húfi. Hvernig þetta er nú þar í landi veit ég ekki, en það var annað vandamál, sem þeir áttu við að stríða þá, og eiga enn og oft kem ur fram í læknaritum. Og það er ekki sérstakt fyrir Þýzkaland, þó mest hafi verið skrifað um það þar, væntanlega af því að trygg- ingar eru þar gamlar, heldur stingur þetta fyrirbrigði allsstað- ar upp kollinum, þar sem trygg- ingar eru. Það er sem sé stað- reynd, að þeim batnar yfirleitt seinna og batnar ver, sem eru tryggðir en hinum sem ekki eru það, þó báðir flokkarnir fái sömu þjónustu og sérstaklega gildir þetta um þá, sem fá dagpeninga á meðan þeir eru að jafna sig af veikindum eða slysum. Mann- fólkið er nú einu sinni svo gert, að það vill fá nokkuð fyrir sinn snúð. Það er ósjaldan að fóik segir: „Ég er búinn að borga í tryggingarnar árum saman og hefi aldrei tekið neitt út úr þeim, svo ég held að það sé ekki nema rétt að ég reyni að fá það sem ég get. Rangt hugarfar Þetta er rangt hugarfar. í stað þess að gleðjast yfir því, að þuría ekki á tryggingunum að haida, þá litur þetta fólk á iðgjöld sin Sem innstæðu ,sem það eigi að fá aftur og ríflega. Tryggingar eru ekki banki, sem skilar hverjum því, sem hann hefir lagt inn. Þvert á móti, þær byggjast á því, að fáir verði fyrir tjóni og það jafnist niður á hina mörgu, annars væru það ekki tryggingar heldur sparisjóð ur. í þessu sambandi vil ég geta þess, að mörg sjúkrasamlög á Is- landi eru alltof lítil, víðast hvar hver hreppur samlag fyrir sig. Ef svo einn af íbúum hreppsins þarf aS liggja í spítala 2—-3 mánuði, þá er samlagið komið í greiðslu- þrot, einfaldlega af því að tjónið kemur á alltof fáa. Minnsta ein- ing fyrir samlag, sem vit er í, er sýsla. Þegar almannatryggingar voru leiddar í lög hér á landi var for- ystumönnum þeirra bent á reynslu annarra og ráðið til að fara með löndum fyrst. Tryggja skurðaðgerðir, spítalavist og lang vinna sjúkdóma svo og lífsnauð- synleg lyf, sem ekki voru mörg þá, því þessum kostnaði gætu fá- ir staðið undir. En þeim ráðum var ekki sinnt. Þó maður fái hálsbólgu eða kvef og þurfi að vitja læknis einu sinni eða tvisvar, þá veltir það engum fjárhagslega. Aspirin er eitt bezta lyf sinnar tegundar, sem búið hefir verið til og þeir eru fáir, sem aldrei hafa tekið það, en ég held að hinir séu færri, sem ekki geta borgað sjálf ir það, sem þeir borða af þvL Iögjöldin. Hitt skiptir öllu máli, að mega verða fyrir alvarlegum skakka- föllum og geta staðið jafnréttur eftir. Ég gat þess áðan að sumum þætti tryggingágjöldin há, en þeir, sem eru það komnir til ára sinna að þeir muna tímann fyr- ir tryggingar, þegar þeir þurftu sjálfir að standa straum af veik- indum sínum og sinna, þeim finnst iðgjöldin vera hlægilega lág, enda duga þau hvergi nærri til þess að standa undir heil- brigðisþj ónustunni. Ef ég á að lokum að draga saman í örfá orð álit mitt á tryggingum er það þetta: Til þess að geta veitt öllum landslýð þá læknisþjónustu sem bezt er á hverjum tíma, verða að vera tryggingar í einhverri mynd. Að veita sem bezta þjónustu Til þess að tryggingar komi að fullu gagni mega þær hafa það eitt sjónarmið í huga að veita fólkinu það sem bezt er. Þarf þá stundum að horfa nokkuð fram á veginn þegar áætlanir eru gerð- ar ,t.d. má í því sambandi geta þess, að frá því að ungur maður lýkur stúdentsprófi og þar til hann er fullgildur læknir, líða tíu ár og lengra ef hann leggur stund á sérgrein. Tryggja á fólk fyrir alvarleg- um skakkaföllum, borga spítala- vist, skurðaðgerðir, lífsnauðsyn- leg lyf og standa undir kostnaði við langvarandi sjúkdóma. Smá- munina á fólkið að borga sjálft og væri þá væntanlega hægt að standa sómasamlega straum af hinu með núverandi iðgjöldum, en þau hrökkva ekki nærri til að borga það, sem tryggingunum er lagt á hei’ðar nú. Heilbriigffii fólksins verður ekki metin til fjár, hvorki þjóðarinn- ar í faeild, né hvers einstaklings. Það er ekki hægt að spyrja hvað megi kosta að lækna Jón Jónsson, það verður að lækna hann, ef þess er nokkur knstur og þá er sama hvort það kostar 100 krómur eða 100 þúsund. Byrja aftur að kenna Frönsku — Þýzku — Ensku Sérstök áþerzla lögð á talæfingar. — Undirbúning- ur undir sérhvert próf. — Uppl. í síma 34404 kl. 12 2. Dr. Melitta Urbancic Deutscher Weihnachtsgottesdienst am Sonntag, dem 3. januar 1960, um 14 Uhr in der Domkirche in Reykjavik. Die Weihnachtsandacht h'Slt Dompropst Jón Auduns. — An der Orgel Dr. Páll Isólfsson. — Der chor der Domkirche singt deutsche Weihnachtslieder. Der Gottesdienst wird nicht im Rundfunk úbertragen. Alle sind herzlich eingeladen. H.—R. Hirschfeld Botschafter der Bundesrepublik Deutschland Nýr Ford Falcon ’60 model, til solu Bifreiðasalan Ingólfsstrœti 9 Símar: 18966 og 19092 Hinn leyndi fjársjóður Parísarborgar LANCÖME le parfumeur Je Paris slongur frá Sovétríkjunum ÍJtvegum innflytjendum flestar stærðir af Hjólbörðum og slöngum fyrir bifreiðar og landbúnaðar- vélar. M4R5 TRADING COMPANY H.F. K,»PP«»sin 2« _ Suni 1-73-73 Silfurtunglid hinar vinsælu almennu jólatrésskemmt- anir verða haldnar dagana 2., 3. og 4. janúar kl. 3. e.h. Kertasníkir kemur í heimsókn. Verð aðgöngumiða aðeins kr. 30. Tryggið ykkur rniða timanlega — Sími 19611. Silfurtunglið Ingólfscafé Cömlu dansarnir nýársdag kl. 9 s.d. Dansstjóri Þórir Sigurbjörnsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8 — Sími 12826. Cömlu dansarnir annan nýársdag kl. 9. Aðgöngumiðasala frá kl. 5 — Sími 12826. INGÓLFSCAFE Skrifstofuherbergi í Austurstræti er 1 skrfstofuherbergi laust til Ieigu. Uppl. í síma 24054. IsEenzkur heimilisiðnaður óskar viðskiptavinum sínum farsæls komandi ára, þakkar samstarf og viðskipti á liðnu ári. Verzlunarstarf Vantar karl eða konu til afgreiðslustarfa í verzlun mína á Langholtsvegi 147. Ennfremur komu til hreingerninga. Uppl. á staðnum. ** r Arni Feroyingafélagið heldur jólaskemtan fyri börn mánadagin 4. januar kl. 3 í Framsóknai'húsinu. TRETTANDA-skemmtan félagsins verður friggja- dagin 8. januar kl. 21 í Framsóknarhúsinu. Mötið væl og stundislega. STJÓRNIN. Crímudansleikur í Skátaheimilinu 7. jan. kl. 9. Skemmtiatriði og verðlaun. (Ath. Notið fridagana til undirbúnings, því aðeins grímuklæddir fá aðgang). Þjóðdansafélag Reykjavíkur. Frá sundhöllinni Sundhöll Reykjavikur verður lokuð nýársdag, en í dag gamlársdag, er hún opin til kl. 12 á hádegi. Ræsting Sundhallarinnar hefst á mánudag. 4. jan. en 2. og 3. jan verður hún opin eins og venjulega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.