Morgunblaðið - 31.12.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 31.12.1959, Blaðsíða 24
nýar ! ( 291. tbl. — Fimmtudagur 31. desember 1959 Guðmundur Jörundsson leigir hraðfrystihúsið á Kirkjusandi af S/S. Eignast 1000 smálesta togara 7 marzmánuði GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON útgerðarmaður frá Akureyri, hefur nýlega gengið frá samningum við Samband ísl. samvinnufélaga um leigu á hraðfrystihúsi þess á Kirkjusandi hér í Reykjavík. Er hann nýfluttur frá Akureyri hingað til Reykjavíkur með útgerð sína og atvinnurekstur. Hyggst hann hagnýta hraðfrystihúsið fyrst og fremst til þess að vinna þar afia hins nýja togara síns, sem verið er að smíða fyrir hann í Vestur-Þýzkalandi. Verður þessi togari flotsettur um miðjan janúar n. k. og fullsmíðaður í marz. Togarinn verður um 1000 tonn að stærð. Guðmundur Jörundsson skýrði Morgunblaðinu frá þessu í gær, cr það leitaði frétta hjá honum í tilefni af flutningi hans hing- að suður. — Útfærslan skaðar ekki íslenzka togara. Guðmundur Jörundsson útgerð togarans. Er það mjög mikils virði fyrir nýtingu aflans. Jafnframt hefi ég átt viðræður við aðra togaraeigendur hér í Reykjavík, sem ekki eiga hrað- frystihús, um samvinnu við fryst- ingu fisks frá þeirra skipum. Vantar dráttarbraut á Norður- landi. Hvers vegna fluttuð þér frá Akureyri hingað til Reykjavík- ur? Til þess liggja ýmsar ástæð- ur. Með siglingum á hin nýju og fjarlægari mið varð erfiðara að stunda togaraútgerð frá Ak- ureyri. Tveir til þrír dagar töp- uðust á mánuði hverjum vegna þess, hve sigling þangað norð- ur var lengri. í öðru lagi er hag- nýting aflans og afgreiðsla skip- anna orðin einhver hin bezta a landinu, hér í Reykjavík. í þriðja lagi töldu svo toppskip- stjórarnir sig eiga óhægari að- stöðu í samkepninni um aflabrögð með búsetu fyrir norðan en hér. Þessi breyting til óhagræðis fyrir togaraútgerðina varð sér- staklega áberandi eftir að afli fór að minnka hér við Norð- Vesturlandið. Meðan hann hélzt voru aflamöguleikarnir mjög svip aðir fyrir sunnan og norðan. Ennfremur er það til mikils óhagræðis fyrir togaraútgerðina tyrir norðan að dráttarbraut fyrir togara hefur ekki ennþá fengizt v á NorðurlandL J Framtið togaranna. - En hvað viljið þér segja um Teljið þér að íslenzku togar- arnir hafi aflað mikið minna á heimamiðum eftir að fiskveiði- takmörkin voru færð út í 12 míl- ur? Það er mín persónulega skoðun, segir Guðmundur Jör- undsson, að þessi útfærsla fisk veiðitakmarkanna hafi haft fremur lítil áhrifíþá átt, aðrýra aflamagn íslenzku togaranna, þar sem vitað er að þeir hafa stundað veiðar það djúpt, að útfærslan kemur í flestum til- fellum lítið við þá. S. Bj. Togarinn Þorsteinn Ingólfsson kom af veiðum i gær. Hann verður síðasti togarinn inn á þessu ári. Á snæviþaktri bryggjunni stóð lítill drengur, sem kominn var til þess að fagna föður sínum komnum af hafi, Pétri skipstjóra Þorbjörnssyni. — Sjá frásögn af komu togarans á bls. 3. 21 tíma villtir á jökli en lögðust rólegir út af og hvildu sig KRISTINN Jónsson, bóndi á Dröngum í Arneshreppi, sem óttazt var um á ferð yfir Drang- jökul s.l. sunndagskvöld, kom í fyrrakvöld til ísafjarðar og not- aði fréttaritari blaðsins á staðn- m tækifærið til að hafa tal af honum. Kristinn, sem er maður á bezta aldri, innan við fimmtugt, lét lítið yfir hrakningum þeirra feðga, en með honum var 15 ára gamall sonur hans, Jón. Sagði hann að þó þeir hefðu verið 21 tíma á ferð á jöklinum, þá hefðu þeir hvílt sig oft og jafnvel lagzt út af. Hefðu þeir farið hægt yfir, þar eð hann vildi ekki þreyta óhamaðan unglinginn. Þeir feðgar lögðu upp frá Dröngum kl. 7 á sunndagsmorg- un og ætluðu þvert yfir Dranga- jökul niður að Skjaldfönn í Naut eyrarhreppi. Er það undir venju legum kringumstæðum 7 tíma ferð. Var aðalerindi þeirra að koma Jóni, syni Kristins í hér- aðsskólann í Reykjanesi. Vindáttin breyttist Er þeir lögðu af stað, var norð austanátt, en hann snerist hægt í austur og varð það til þess að villa Kristin. Fóru þeir því norð ar en þeir ætluðu. Er upp kom á jökulinn var komið muggu- kafald, en Kristinn kvaðst ekki hafa haft neinar áhyggjur af því, enda uppalinn þarna norðurfrá og öllu vanur. Þeir feðgarnir komu niður á jökulbrúnina við Kaldalón, þar sem heitir Votubjörg. Þar er mjög bratt niður af jöklinum og gerðu þeir þrjár tilranir til að komast niður, en tókst ekki. Fóru þeir þá nokkru norðar og reyndu að komast niður skriðjökulssporð inn, en fyrir þeim varð jökul- sprunga, svo að þeir sneru aftur við upp á jökulinn. Héldu þeir enn norður eftir jöklinum og kom ust loks niður í Kaldaiónið. Voru þeir þá komnir að sjónum og gátu haldið eftir veginum að Ar- rnúla. Komu þeir í Armúla eftir 21 tíma ferð. Sagði Kristinn, að þá hefðu þeir verið alveg óþreytt ir, enda farið sér hægt. Bað Kristinn fréttamanninn um að skila kveðju og þakklæti til allra þeirra sem voru farnir að gera ráðstafanir til að leita þeirra feðga, en hann kvað ekki ástæðu til að óttast um sig fyrsta sólarhringinn, því hann væri van ur löngum leiðum og væri oft lengi á ferðum. Óvíffa betra að búa Kristinn Jónsson býr á Dröng- um, sem nú er nyrsti bær á Ströndum, síðan Reykjafjörður lagðist í eyði í haust. Vitavörð- ur er þó í Látravík. Þangað flutt- ist hann árið 1953 frá Seljanesi, sem er sunnar í sama hreppi. Hann segir að þarna sé gott að búa. Mikil hlunnindi fylgja jörð- inni, reki, selveiði og dúntekja, ög það er ágæt sauðajörð. Hefur Kristinn 200 fjár og fjórar kýr. Heimili hans er stórt, 13—14 manns í heimili á veturna, en börnin eru 9, og 20 manns á sumr- in. — Næsti bær fyrir sunnan Dranga er Ófeigsfjörður, en þangað er 6—8 tíma gangur. Á trillu tekur ferðin aðeins tvær stundir. Kveðst Kristinn helzt þurfa að ná sér í betri og öruggari bát. Að öðru leyti sé sér ekkert að van- búnaði. Hann kveðst alls ekki hugsa til flutnings. Óvíða sé betra að vera. Hann búi að vísu af- skekkt, en það hafi aftur á móti fjölmarga kosti að búa þarna norð ur á Ströndunum. Eldur borinn að brennunum kl, 17 UM KLUKKAN 11 mun slá rauðum bjarma á loftið yfir Reykjavík, því þá verða kveiktar árámótabrennurnar hér í bænum. Stærstu brenn- urnar verða á Klambratúni og við Laugardalsvöllinn. Alls verða milli 60—70 brennur hér í bænum í kvöld, svo víst er *) að slá mun eldbjarma á loftið. Engum getum verður að því leitt, hve mörgum flugeldum verður skotið í kvöld hér í bænum, en margir voru með fleiri eða færri flugelda undir hendinni, er þeir héldu heim frá vinnu í gærkvöldi. Til 1362. Til hve langs tíma hafið þér leigt hraðfrystihús SÍS á Kirkju- sandi? Ráðgert er að ég taki við rekstri frystihússins hinn 1. júlí. Hef ég tekið það á leigu til ársins 1962 með forgangsleigurétti áfram eft- ir þann tíma. Það er ætlun mín að reká frystihúsið í sambandi við framtíð togaraútgerðarinnar? Ég vil aðeins um hana segja það, að ég tel nauðsynlegt að end umýja togaraflota okkar. Það er staðreynd, að við getum ekki án togaranna verið. Þeir afla nær helmings af aflamagni okkar. Það er líka búið að byggja svo stórar vinnslustöðvar í landinu að við getum ekki matað þær án togara, sem sótt geta afla á fjarlæg mið. Ennfremur er það skoðun mín að við verðum að stækka togar- ana með tilliti til hinna fjarlæg- ari miða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.