Morgunblaðið - 31.12.1959, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 31.12.1959, Qupperneq 12
12 MORGTJKBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. des. 1959 XJtg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands. í lausasölu kr. 2.00 eintakið Á TÍMAMÓTUM r ARIÐ 1959 er senn liðið. Nýtt ár og nýr áratugur er að renna upp. Á slík- um tímamótum fer þjóðum eins og einstaklingum. Þær svipast um farinn veg og reyna jafn- framt að skyggnast inn í fram- tíðina. Árið 1959 var íslenzku þjóð- inni að ýmsu leyti hagkvæml. Grasspretta var yfirleitt mikil, og enda þótt óþurrkar yllu bændum í einstökum landshlut- um, verulegum erfiðleikum, má yfirleitt segja að heyfengur hafi verið mikill og víða mjög góður á sl. sumri. Búfénaður gekk vel fram sl. vor, og haustið hefur verið mjög snjólétt og fén- aður því ekki fóðurfrekur. Við sjávarsíðuna má segja að afkoman hafi verið góð hjá vél- bátaflotanum. Síldveiðin fyrir Norðurlandi var í betra lagi og í haust hefur síldveiðin fyrir Suð-Vesturlandi einnig verið sæmileg. Hafa tilraunir með ný síldveiðitæki tekizt svo vel að ekki virðist óvarlegt að gera sér vonir um miklar framfarir á sviði síldveiðitækni. Afkoma togaranna hefur hins vegar í ár orðið yfirleitt mun lakari en á árinu 1958. Hámarksframleiðsla Heildarframleiðsla sjávarút- vegsins hefur orðið nokkru meiri en á árinu 1958 og meiri en nokkru sinni fyrr. Má gera ráð fyrir að heildarsjávaraflinn á þessu ári muni nema um 550 þús. tonnum. Á sl. ári nam heildar fiskaflinn 505 þús. tonnum. Verð- ur hann þannig um 45 þús. tonn- um meiri í ár en í fyrra. Er hér um að ræða mjög mikla aukn- ingu framleiðslunnar. Byggist þessi framleiðsluaukning sjávar- útvegsins fyrst og fremst á auk- inni síldveiði á sl. sumri. Af öðr- um fiski en síld mun heildarafl- inn vera nokkru minni en í fyrra. í þessu sambandi má benda á það, að árið 1949 var heildar- fiskaflinn 337 þús. tonn. Á sl. áratug hefur fiskaflinn þannig aukizt um rúmlega 200 þús. tn. Er hér um gífurlega framleiðslu- aukningu að ræða, sem auðvitað sprettur fyrst og fremst af því, að þjóðin hefur eignazt betri og stórvirkari framleiðslutæki, bæði skip og vinnslustöðvar til þess að nýta afla þeirra. Verðmæti útflutningsins til nóvemberloka þessa árs nemur um 942 millj. kr. Er það 14 miilj. kr. minna en á sama tíma í fyrra. Óhætt er þó að gera ráð fyrir að heildarverðmæti útflutn- ingsins á öllu þessu ári, muni verða svipað eða jafnvel meira heldur en á sl. ári. Birgðir af óútfluttum afurðum munu nú nema um 100 millj. kr. meira að verðmæti heldur en á sama tíma í fyrra. Merkilegt tímabil Áratugurinn frá 1950—-1960, hefur verið merkilegt framfara og uppbyggingar-tímabil í ís- lenzku þjóðlífi. Á þessu tímabili hefur þjóðin haldið áfram að byggja bjargræðisvegi sína upp og auka framleiðslu sína. Fiski- skipafloti þjóðarinnar hefur t. d. á þessum áratug stækkað um 9000 tonn. Er hann nú rúml'jga 60 þús. smálestir. Samtals er nú allur skipafloti íslendinga um 118 þús. smálestir, en var rúm- lega 91 þús. smálestir árið 1950. Bifreiðum Islendinga hefur fjölgað úr 10608 árið 1949 í 18807 i árslok 1958. Framleiðsla Iandbúnaðarins hefur aukizt stórkostlega á þess- um áratug. Þannig hefur t. d. mjólkurframleiðslan aukizt úr 64 þús. smálestum árið 1949 í 98 þús. smálestir í árslok 1958. Framleiðsla kindakjöts hefur auk izt úr 6546 tonnum haustið 1949 í 11420 tonn haustið 1958. Sauð- fé hefur fjölgað úr 402 þús. í 775 þús. í árslok 1958. Naut- gripum hefur fjölgað úr rúmi. 43 þús. í árslok 1949 í 48 þús. i árslok 1958. Töðufallið hefur auk- izt úr 1 millj. og 505 þús. hest- burðum árið 1949 í 2 millj. 750 þús. hestburði árið 1958. Hefur töðufallið þannig nær tvöfaldazt á þessum eina áratug. Þessar tölur sýna greinilega hversu geysileg framleiðsluaukn- ing hefur orðið hjá hinum tveimur gömlu atvinnuvegum þjóðarinnar. Á sviði iðnaðarins hafa einnig orðið stórkostlegar framfarir. Stóriðnaður er risinn í landinu með byggingu og rekstri Áburðarverksmiðju og Sementsverksmiðju. Stórfelldar raforkuframkvæmdir hafa verið unnar í öllum landshlutum. Ástæða til að gleðjast Yfir öllu þessu er vissulega ástæða til þess að gleðjast á þessum tímamótum. En hitt verð- ur þá einnig að viðurkennast að hin mikla verðbólga og jafn- vægisleysi sem ógnar nú afkomu þjóðarinnar og rekstri bjargræð- isvega hennar, er fyrst og fremst afleiðing þess að í áhuga sínum fyrir uppbyggingu og framförum hefur þjóðin ekki gætt þess sem skyldi, að tryggja grundvöll fram leiðslutækja sinna. Hún hefur þvert á móti gert pf miklar kröf- ur á hendur þeim. Við höfum eytt meiru en við höfum aflað á þessu mikla framkvæmda og framfaratímabili. Þetta verða íslendingar að vera menn til að játa fyrir sjálfum sér á þessum tímamótum. En það væri hinn mesti misskilningur ef við drægjum þá ályktun af efna- hagserfiðleikum okkar nú, að lífsnauðsynlegar viðreisnarráð- stafanir hljóti endilega að binda þjóð okkar í báða skó og hindra framfarir og uppbyggingar í landi hennar um langan aldur. íslenzka þjóðin er þess alráð- in að halda áfram að nema land sitt og hagnýta auðlindir þess. Næsti áratugur í lífi hennar, hinn 7. áratugur hinnar tuttugustu aldar, á ekki að verða tímabil kyrrstöðu og báginda á íslandi. Sá áratugur sem nú er að hefj- ast, á þvert á móti að verða tímabil glæsilegri framfara og umbóta en nokkru sinni fyrr i íslenzku þjóðlífi. Um þetta áform á íslenzka þjóðin að sameinast í dag. — Hún á að mæta nýju ári og nýjum áratug hinnar tuttug- ustu aldar, raunsæ, bjartsýn og áræðin. Morgunblaðið árnar Iesend- um sínum og öllum íslend- ingum gleðilegs árs. Þannig lítur ein af listagyðjum Parísaróperunnar út. Hún er svo illa farin af „steinkrabba“, að henni verður vart bjargað héðan af. Er því gert ráð fyrir, að hún verði höggvin niður innan skamms og ný gerð í staðinn. ,Sfe/n- krabbinn' eyðileggur listaverk í Paris MÖRG fögur og ómetanleg listaverk í París eru í hættu. Þau eru að smá-eyðast og tærast upp, og fyrir þeim virðist ekki liggja annað en eyðilegging. — Það er „stein- krabbinn“ svonefndi, sem hér er að verki. — Nú nýlega hafa menn t. d. uppgötvað, að gyðjumyndir og aðrar skreyt- ingar á byggingu Parísar- óperunnar hafa orðið fyrir verulegum skemmdum af þessum sökum. — w — Það, sem veldur „steinkrabb- anum“ eru ýmsar eitraðar reyk og gastegundir, sem metta loftið í sótrborginni; þær koma t.d. frá útblástursrörum bifreiða, frá kyndingarækjum borgaranna og frá . stóriðjufyrirtækjunum í borginni og nágrenni hennar. O Hættulegar gyðjur Hin „kemisku“ úrgangsefni, sem berast um með loftinu, ganga í samband við steininn og tæra hann — gera hann gljúpann allt ryk- og reykögnum loftsins, og þannig berast þær niður til jarð- ar. Heilbrigðisyfirvöldin hafa sannreynt, að dauðsföllum fjölg- ar verulega, er þoka leggst yfir borgina — og tveim dögum eftir að þokunni léttir nær tala látinna hámarki. O Krabbameinsvaldur Lögreguluþj ónar, hefir nýlega leitt 1 Ijós, að I hálsi og lungum fjölmargra þeirra, er farast í umferðarslys- um, hafa setzt að efni, sem vitað er, að valdið geta krabbameini. — ★ — Talið er, að hér sé fyrst og fremst um að ræða „eitrun" frá bifreiðum borgarinnar. — I París eru allt um 300 þúsund bíl- ' ar — en hinn minnsti bílmótor strætisvagna Rismyndirnar á múrbrúnum byggingarinnar eru einnig mjög tærðar orðnar. Handleggir og fætur gyðjumyndanna brotna af og falla niður á götuua og valda mikilli hættu fyrir vegfarendur. að 4 cm. inn úr yfirborði. — Síð- an sjá regn og vindar um að reka smiðshöggið á eyðilegginguna. — Og eitraðar reyk- og gastegundir, sem metta loftið, eru stórhcettulegar íbúum borgarinnar Miklu fé og vinnu hefir verið var ið til þess að gera við skreyt- ingar óperuhússins, sem eitt sinn voru svo fagrar — en varanlegum árar.gri verður auðvitað ekki náð á meðan orsök eyðileggingarinn- ar er enn til staðar í svo ríkum mæli sem nú er. — Gyðjumynd- ir óperunnar eru nú stórhættu- legar vegfarendum, því að smám saman brotna fætur þeirra og hendur af, fyrirvaralaust, og falla niður á hinar fjölförnu göt- ur í kring. • „Dauðaþoka“. Þar sem hið óhreina Parísar- loft hefir slík áhrif á harðan stein inn, er sannarlega von að menn spyrji með kvíða í huga: Hvað þá um fólk með holdi og blóði — alla þá, sem eiga að lifa í þessu umhverfi og anda að sér slíku lofti? — Sérfræðingar hafa reikn- að út, að yfir París svífi stöðugt reyk- og rykský í 900—1200 m. hæð, og sé það að jafnaði um það bil 20 km. í þvermál. — Þeg- ar þoku gerir, mettast hún af og leigúbílstjórar og aðrir, sem dveljast mestan hluta dagsins á götum úti, verða oft fyrir lítils háttar kolsýringseitrun. — í einni götu Parísar, hinni gömlu og þröngu Rue Mogador, hefir mælzt svo mikill kolsýringur í loftinu, að það er á mörkum þess, sem talið er banvænt. Stjórnarvöldin hafa fyrir nokkru skipað sérstaka nefnd, sem nú vinnur að því öllum árum að draga úr þeirri miklu hættu, sem stafar af eitrun loftsins í París. — Það er til dæmis um, hve mikil alvara hér er á ferð- um, ekki aðeins fyrir listaverk borgarinnar, held^r fyrst og fremst fyrir íbúana, að rannsókn N Ú H A F A hegrarnir þyrpzt til Japan, en þar er þeirra óskaland á þess um tíma árs. Þangað leita þeir, þegar vetrar — og elskast. Hér eru myndir af heitum hegrakossi — og þau virðast s’annarlega kunna að elskast, þessi tvö, eftir myndunum að dæma. Skyldu „kossasér- fræðingarnir“ 1 Holly- wood kunna betur sitt „fag“? „framleiðir" hvorki meira né minna en sex teningsmetra af kolsýringi hverja l.lukkustund, sem ekið er.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.