Morgunblaðið - 31.12.1959, Síða 16
16
MORCVIS fíT, 4 T) IV
Fimmtudagur 31. des. 1959
Aramótamessur
Dómkirkjan:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
(. Séra Óskar J. Þorláksson.
Xýársdagur: Messa kl. 11 f.h.
Herra Sigurbjörn Einansson bisk
uip prédikar, séra Jón Auðuns
dómprófastur þjónar fyrir altari.
Messa kl. 5, séra Óskar J. Þorláks
son. —
Þýzk jólaguðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni. — Þýzka sendiráðið
hér á landi gengst fyrir þýzkri
jólaguðsþjónustu í Dómkirkj-
unni sunnudaginn 3. janúar n. k.
Hefst hún kl. 2 e.h. Séra Jón Auð
uns dómprófastur prédikar en
dr. Páll ísólfsson leikur á orgelið.
Dómkirkjukórinn syngur. Sungn
ir verða þýzkir jólasálmar. Ailir
eru velkomnir til guðsþjónust-
unnar.
Elliheimilið:
Gamlársdagur: Messa kl. 2 e. h.
— Séra Þorsteinn Björnsson,
Fríkirk j uprestur.
Nýjársdagur: — Messa kl. 10
f. h. — Heimilispresturinn.
Neskirkja:
Gamlárskvöld: — Aftansöngur
klukkan 6.
Nýársdag: Mess.a kl. 2. (Séra
Bjarni Jónsson, vígslubiskup).
Sunnudagur, 3. jan.. — Barna-
gúðsþjónusta kl. 10,30. — Séra
Jón Thorarensen.
Hallgrímskirkja:
Gamlárskvöld: — Aftansöngur
kl. 6.' Séra Lárus Halldórsson.
Nýársdag: Messa kl. 11. Séra
Sigurjón Árnason.
Sunnudagur 3. janúar: Messa
| kl. 11, séra Lárus Halldórsson.
Háteigsprestakall:
Gamlársdag: Aftansöngur kl. 6.
Nýársdag: Messa kl. 2,30. —
Séra Jón Þorvarðsson.
Laugarneskirkja:
Gamlársdag. — Aftansöngur kl
6 e.h. Séra Jóhann Hannesson,
prófessor prédikar.
Nýársdag: Messa kl. 2,30 e. h.
Sera Garðar Svavarsson.
Langholtsprestakall:
Gamlársdag: Aftansöngur kl. 6
í Safnaðarheimilinu við Sólheima
Nýársdag: Messa kl. 2 í Safn-*
aðarheimilinu við Sólheima. —
Séra Árelíus Níelsson.
Bústaðaprestakall:
Gamlársdag: — Aftansöngur í
Háagerðisskóla kl. 6.
Nýársdagur: Messa í Kópavogs
skóla kl. 2. —
Sunnudagur 3. januar: Barna-
samkoma í Félagsheimili Kópa-
vogs kl. 10,30. — Séra Gunnar
Arnason.
Fríkirkjan:
Gamlársdag: Aftansöngur kl. 6.
Nýársdagur: Messa kl. 2.
Sunnudagur 3. jan. Messa kl. 2.
Þorsteinn Björnsson.
Oháði söfnuðurinn:
Gamlárskvöld: Áramótasálmur
kl. 11,50 e.h. ög klukknahringing
á miðnætti.
Nýársdagur: Messa kl. 3,30 e.h.
Séra Emil Björnsson.
Kaþólska kirkjan:
Nýársdagur: Lágmessur kl. 8
og kl. 10 f.h. Kvöldmessa og préd
ikun kl. 6 síðdegis.
Sunnudagur 3. jan.: Lágmessa
kl. 8,30 árdegis og Hámessa og
prédikun kl. 10 árdegis.
Hafnarf jarðarkirkja:
Gamlárskvöld: — Aftansöng-
ur kl. 6 e.h.
Nýársdagur: — Messa kl. 2 e.'h.
Bessastaðir: Gamlárskvöld: —
Aftansöngur kl. 8.
Kálfatjörn: Nýársd., messa kl.
4. — Séra Garðar Þorsteinsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði:
Gamlárskvöld: — Aftansöngur
klukkan 6. —
Nýársdagur: Messa kl. 2. Séra
Ingólfur Þorvaldsson frá Ólafs-
firði prédikar. — Séra Kristinn
Stefánsson.
Aðventkirkjan:
f Aðventskirkýunni verður ára
mótaguðsþjónusta kl. 23,30 á
gamlársdag. Nýársdag verður
messað kl. 5 s.d. og 2. janúar kl.
11 f.h.
Fíladelfía:
Fíladelfía: Á nýársdag: Guðs-
þjónusta kl. 8,30. Sunnudag, 3.
jan.: Guðsþjónusta kl. 8,30. —
Ásmundur Eiríksson.
Fíladelfía, Keflavik: Guðsþjón-
usta á nýársdag kl. 4. og sunnud.
3. jan. kl. 4. — Har. Guðjónsson.
Reynivallaprestakall:
Messa að Reynivöllum Nýárs-
dag kl. 2. Að Saurbæ sunnudag
inn 3. jan. kl. 2.
Grindavík. Gamlársdag aftan-
söngur kl. 6. — Nýársdag messa
kl. 5 e.h.
Hafnir. Messa nýársdag kl. 2 e.h.
Keflavíkiurprestakall. Gamlárs-
kvöld Ytri-Njarðvík, aftansöng-
ur kl. 6.
Keflavíkurkirkja aftansöngur
kl. 8,30.
Nýársdagur. Ytri-Njarðvík, ára
mótaguðþjónusta kl. 2 e.h. Nýárs
dag kl. 5 í Keflavíkurkirkju. —r
Sr. Ólafur Skúlason.
Útskálaprestakall:
Gamlárskvöld: Aftansöngur kl.
6 að Hválsnesi kl. 8 og að Út-
skálum kl. 8.
Nýársdagur: Messa að Útskál-
um kl. 2 og að Hvalsnesi kl. 5.
— Sóknarprastur.
Aðalfurtdur
Samlaka um
vestræna
samvinnu
SAMTÖK um vestræna sam-
vinnu halda aðalfund í Naustinu
(uppi) mándaginn 4. janúar kl. 5
e.h. Á dagskrá verða skýrsla
framkvæmdastjórnar, stjórnár-
kosning og önnur mál. Félags-
menn og aðrir sem hafa áhuga á
að taka þátt í störfum samtak-
anna eru hvattir til að koma á
þennan fund.
R 0 Ð (J L L
Aramófafagnaður
31 _ 12 - ‘59
★
Ilaukur Morthens
og hljómsveit
Árna Elfars skemmta
★
Ath.: Borðpöntunum veitt móttaka
Gamlársdag frá kl. 13. — Sími 15327
Ókeypis aðgangur R Ö Ð U L L
2
LESBÓK BARNANNA
LESBÓK BAHNANNA
3
GALDUR
FÁÐU þér sel-
garnsspotta ca. 50
cm. langan. Bittu
endana saman, og
legðu síðan spott-
ann niður á borð-
p 1 ö t u nákvæm-
lega eins og sýnt
er á myndinni. Þá
kemur fram talan
tí með hring um-
hverfis. Láttu nú
félaga þinn styðja
vísifingri þar sem
merkið x er, haltu
sjálfur í bandið
við hnútinn og
dragðu síðan segl-
garnið burt, án þess að
það vefjist utan um fing-
urinn. Láttu svo fleiri
reyna að leika þetta eftir
, þér, — þeir munu aðeins
geta það, ef þeir hafa tek-
ið mjög nákvæmlega eft-
ir, hvernig seglgarnið var
lagt niður.
roynd af Glettu með fol-
aldið sitt, sem nú hefur
fengið nafn, og er kall-
að Gletting. Finnst ykk-
ur þaer ekki fallegar?
Kannske verður Gletting
litla einhvern tíma eins
dugleg á skeiðvellinum og
mamma hennar, en meira
get ég ekki sagt frá henni
að sinni.
Þuriður Sigurðardóttir
10 ára, Reykjavik.
Kæra Lesbók!
Ég sendi þér hérna
tvær gátur:
1. Á fjórum stend eg
fótum hér,
fangi sný að sveinum.
Háir og lágir lúta mér,
eg lýt þó aldrei nein-
um.
2. Á heiði gengu hÖldar
tveir
og hvatlega létu.
Báru á sínu baki þeir,
það báðir hétu.
Trausti Jónsson,
8 ára, oBrgarnesi.
Viltu skrifa mér?
Jóhanna Jónsdóttir, ósk
ar að skrifast á við pilt
eða stúlku 15—16 ára,
Anna Sigríður Guðmunds
dóttir, 11—12 ára og
Rúna Björg Jónsdóttir,
12—13 ára. Heimilisfang
þeirra allra er: Núpi, V-
Eyjafjöllum, Rangárvaila
sýslu.
Ráðningor
Krossgáta í blaði nr. 24:
1 (lóðrétt) sól, 2 (lárétt)
jól.
★
RÁÐNINGAR
ÚR JÓLABLAÐI:
Talnakarlinn er 70 ára.
Stjarnan er sett saman
eins og sýnt er á mynd-
inni.
Krossgátan: Lárétt: 1
Jól 3 Ló 4 Kaus 8 Af 9
Fá 10 Bentu 11 Kærust-
urnar 12 Ar 13 Gá 14 At
15 RN 16 Nú 17 FÁ 18 An
19 Að 20 RÍ 21 Lán 23 Ói
24 Hellissúti 29 Óa 30 Á1
31 Aða 32 Æra. — Lóð-
rétt: 1 Jakana 2 Ófær-
una 3 Lása 4 Kertasníkir
5 Ann 6 Útarfar 7 Súrn-
aði 9 Fuglamálið 10 Búa
21 LL 22 Ný 23 Ós 24 Hóa
25 EA 26 Sá 27 Tá 28 111.
Ljálu mér
vængi
Ur fyrstu sogu
flugsins
7. Fyrstu mennirnir, sem
tókst að fljúga, voru tveir
Frakkar. Það var haustið
1783. Þeir gátu haldið sér
á lofti í 20 mínútur sam-
fleytt og ekkert óhapp
vildi til í sambandi við
flugferðina. Tilraunir
með loftbelgi færuðust nú
ört í vöxt. Félög áhuga-
roanna um flug með loft-
skipum voru stofnuð víða
um heim.
Stundum lá við slysum,
þegar belgirnir bárust
með vindinum út yfir sjó
og tóku síðan að hrapa
niður. Flugmennirnir
urðu að kasta öllu laus-
legu fyrir borð til að létta
þá, jafnvel yfirhöfnum
sínum, svo að þeir gætu
haldíð sér á lofti þar til
belgina bar aftur inn yfir
land.
★
8. Skömmu fyrir aldamót-
in 1900 lögðu þrír sænsk-
ir vísindamenn, þeir
Andree, Strindberg og
Frænkel, upp í fyrsta
norðurpólsflugið með loft
skipi.
Farkostur þeirra hét
„Örninn“. Með segli og
langri dráttartaug var
hægt að stýra þessu loft-
skipi ofurlítið, en að
mestu leyti barst það þó
með vindinum. Þremur
dögum eftir að þeir lögðu
af stað frá Spitsbergen,
sigu þeir niður á ísinn,
280 km. frá staðnum, þar
sem þeir hófu ferðina.
Mennirnir urðu að snúa
við og ganga þessa leið
yfir ísbreiðuna. Eftir
næstum þrjá mánuði
komust þeir til eyjar,
sem heitir Hvítey. Þar
settust þeir að, en dóu
þar allir.
Það var fyrst 33 árum
síðar, að áhöfnin á norsku
selveiðiskipi fann þá. í
dagbókum Svíanna var
skýrt frá því, sem við bar
á ferð þeirra. Filman, sem
var í myndavélinni, var
framkölluð, og í ljós
komu myndir, sem m. a.
sýndu, hvar loftbelgurinn
lá á ísnum og hvernig
bækistöð þeirra hafði litið
út.