Morgunblaðið - 14.01.1960, Síða 9
Fimmtudagur 14. jan. 1960
MOKCIllSm.AÐlÐ
9
Frú Kristrún Ketils-
dóttir frá Hausthúsum
KRISTRÚN Ketilsdóttir var
fædd að Höfða í Hnappadals-
sýslu 20. marz 1869, dóttir hjón-
anna Ingibjargar Jónsdóttur,
hreppstjóra frá Hlíð í Hörðudal,
og Ketils Jónssonar frá Vörðu-
felli á Skógarströnd.
Með foreldrum sínum fluttist
Kristrún að Hausthúsum í sömu
sveit. Þaðan fór hún ung að ár-
um „suður“, sem kallað var og
var t. d. þrjú ár á Bessastöðum
hjá Grími Thomsen. Þá var hún
og víðar og hefur þetta áreiðan-
lega verið gáfaðri, ungri stúlku
þá góður skóli, þó ekki væri um
aðra skólagöngu að ræða en
skóla starfsins, en sá skóli á góð-
um heimilum varð líka margri
ungri stúlku gott veganesti út í
lífið, enda oft margt að sjá í
nýju umhverfi.
Eftir nokkurra ára dvöl hér
syðra hverfur Kristrún aftur
heim til foreldra sinna og tekur
iitlu síðar við búsforráðum á
heimili sínu ásamt manni sínum,
Jóni Þórðarsyni frá Mýrdal í
Kolbeinsstaðahreppi, en upp frá
því hefst saga Kristrúnar í
Hausthúsum og þeirra ágætu
hjóna.
Þó að þessi fáu kveðjuorð séu
skrifuð fyrst og fremst vegna
minninganna um hana, þá er svo
erfitt að aðskilja þau hjón, svo
samvalin voru þau bæði í gest-
risni, rausn og hjálpsemi við ná-
ungann og yfirleitt um búsýslu
alla og myndarbrag, því höfð-
ingslund beggja var mikil.
Hvers vegna var sjálfsagt að
þau hjálpuðu þar sem þess þurfti
með? T. d. að Kristrún færi á
bæi og aðstoðaði vegna veikinda
eða erfiðleika? En eitt slíkt
dæmi er mér nú ríkast í huga
þó af nógu sé að taka. Það var
vegna þess að það þurfti ekki að
biðja um greiðann, hann var
bará boðinn, og því sjálfsagt að
aðstoð væri veitt.
Svo eðlileg var gestrisni Krist-
rúnar að ég held að engum sem
að garði bar hafi fundizt hann
vera gestur eftir að húsfreyjan
var komin til dyra og hafði heils-
að. Þá var ekki síður skemmti-
legt er inn var kbmíð, svo lif-
andi og glöð var hún í öllum
samræðum, enda gáfuð vel og
fróð í bezta lagi. Kristrún var
sköruleg og stjórnsöm húsmóðir,
enda bar allt útlit og húshald
gott vitni húsmóðurinni. í sam-
tölum átti hún hægt með að láta
skoðanir sínar í ljós á þeim mál-
um er hún taldi nokkru skipta,
en framkoma hennar öll mótaðist
af einurð, látleysi og hjartahlýju.
Ekki man ég fyrr eftir mér en
mér þótti vænt um Hausthúsa-
heimilið. En með því fyrsta sem
ég man eftir var að þar átti ég
systir, en þó kom þar fleira til;
ég man hve foreldrum mínum
þótti vænt um þetta heimili, en
alveg sérstaklega minnist ég þess
hvað móðir mín talaði af mikilli
vináttu og með virðingu um hin
góðu nágrannahjón foreldra
sinna, Ingibjörgu og Ketil, en á
milli Hausthúsa- og Skógarness-
heimilanna ríkti mikil vinátta.
Þá var og gagnkvæm vinátta
barna þessara heimila, sem hélzt
óbreytt æ síðan.
Það var því ekki að ófyrir-
sinju þegar þannig stóð á hjá
foreldrum mínum, að þau þurftu
að koma nýfæddri dóttur sinni í
fóstur, að móðir mín og þau leit-
uðust eftir því við Kristrúnu og
Jón að þau gerðust foreldrar
telpunnar.
Máltækið segir: „Fáir sem fað-
ir, engin sem móðir“. Eg held að
Kristrún í Hausthúsum hafi
alveg afsannað þessi orð.
Ekki er ég viss að ég muni hve
mörg fósturbörn þeirra hjóna
voru, en þrjú komu til þeirra
ung, tvö nýfædd, en eitt fjögra
ára. Þá voru og systurbörn Krist-
rúnar, er misstu ung móður sína,
hjá þeim, og er það víst að svo
mikinn móðurkærleika sýndi hún
þessum fósturbörnum sínum, að
þau áttu hana öll í hjarta sínu
sem sanna móður. Þó voru allar
mæður þessara barna ágætiskon-
ur, enda er mér málið skilt þar
sem móðir mín var móðir eins
fósturbarnsins. Þá get ég ekki
komið tölu á öll þau börn og
ungmenni er þau Hausthúsahjón
höfðu að meira eða minna leyti
í sumarfóstri og oft lengri tíma,
og öllum sem.hjá þeim voru hef-
ur verið það sameiginlegt, að líta
á þau ýmist sem foreldra sína
eða sína beztu vini frá bernsku-
og æskudögum sínum, og Ketill,
eina barn þeirra hjóna, hefur
alltaf verið sannur bróðir fóstur-
systkina sinna, en Ketill bjó með
foreldrum sínum, þar til fyrir
11 árum, að fjölskyldan fluttist1
hingað til Reykjavíkur.
Þær voru margar ferðimar
sem við systkinin áttum bæði á
leið okkar að Skógarnesi, til afa
og ömmu, til Miklaholtskirkju og
svo að Hausthúsum, bara til að
leika við unglingana. Alltaf var
nóg pláss fyrir fleiri börn þar,
og ekki sakast við okkur þó við
þyrftum stundum meira húsnæði
en fullorðna fólkið — til þess
voru þau hjón of barngóð.
Þó að Kristrún og Jón hafi
ásamt syni sínum flutt til Reykja
víkur, þá hafa þau samt aldrei
sagt skilið við sveitina sína, svo
náið samband hefur æ síðan ver-
ið með þeim og vinunum „heima“
og gestkvæmt hjá þeim bæði af
ferðamönnum og okkur öllum er
höfum alltaf haft þörf fyrir gest-
risni, vináttu og skemmtilegar
stundir með Hausthúsafjölskyld-
unni.
Af fósturbörnum Hausthúsa-
hjónanna eru aðeins tvö á lífi,
Þóra Árnadóttir, gift Eymundi
Magnússyni skipstjóra og Ing-
ólfur Kristjánsson rithöfundur,
kvæntur Hildu Hinriks.
Á níutíu ára afmæli sínu fyrir
tæpu ári var Kristrún frísk,
glöð og kát meðal góðra vina er
fjölmenntu til hennar, en síðla
sl. sumars veiktist hún af þeim
sjúkdómi er ekki varð við ráðið,
en þjáðist þó ekki til muna og
hélt andlegu þreki sínu óskertu
fram á síðustu stund. „Þetta
batnar bráðum", sagði hún fyrir
nokkru og kvaddi vini sína og
venzlafólk róleg og æðrulaus, en
hún andaðist í Landsspítalanum
7. þ. m.
Kæra vina! Lítil er kveðjan,
en mikið er að þakka, og þakkir
eru þér hér færðar frá okkur öll-
um systkinunum frá Stóra-1
hrauni og fjölskyldum okkar,
börnin okkar sakna þín, allir
sem þekktu þig sakna þín.
Sigurður Árnason.
Jörð á Snœfellsnesi
til leigu er jörð á sunnanverðu Snæfells-
nesi. Vel byggt. Rafstöð. í þjóðbraut.
Upplýsingar í síma 18285.
Skrífstofustúlka
óskast strax. Verzlunarskólamenntun æskileg. Til-
boð sendist afgr. Mbl. merkt: Atvinna — 185—8163
fyrir mánudagskvöld.
i Reykjavík
Freyjugötn 41 (Inngangur frá Mímisvegí)
Nýjar barnadeildir eru
að taka til starfa.
Kennslugrelnar
Teikning, meðferð lita,
bastvinna, Ieirmótun o. fl.
Innritun í dag kl. 6—7 og
8—10 e.h. — Sími 1-19-90
AMERÍSK
Delisious epli
Red Roma epli
— Ný sending —
Vanur matsveinn
karl eða kona óskast strax.
Mjög góðutr vinnutími
Silfurtunglið
Sími 19611 og 11378
Vörubifreið
Chevrolet 59 af stærri gerð, sem ný
til sölu.
Bílamiðstöðin VAGN
Antmannsstíg 2 C
Sími 16289 og 23757.
Almenn farmiðasala — Ökeypis upplýsingar og fyrir-
greiðsla. — Sparið gjaldeyri og tíma. Leitið til ferða-
skrifstofu og fáið upplýsingar um hagkvæmast fyrir-
komulag ferðalaga. Skipuleggjum ferðir fyrir hópa og
einstaklinga.
Sól og sumar langt í suíri..
KAIMARIEY JAR
Við bjóðum m.a. orlofsferð úr
skammdeginu til
„EYJA HINS EILlFA VORS“
Sannkallað sólskinsfrí í tæru
sjávarlofti og dýrlegri náttúru-
fegurð.
25 daga ferð með viðkomu í
Kaupmannahöfn og Casablanca
á Afríkuströnd. Brottför: 24.
febrúar. Aðeins örfá sæti ennþá
laus.