Morgunblaðið - 14.01.1960, Blaðsíða 16
16
MORCVN niiÐlÐ
Fimmtudagur 14. jan. 1960
MÁLFLUTNINGSSTOFA Einar B. Guðmundsson . Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Pétursson Aðalstræti 6, IIL hæð. Símar 12002 — 13202 — 13602.
TÓNLISTARFÉLAGIÐ Ameríska söngkonan Betty Allen heldur tónleika í Austurbæjarbíói annað kvöld kl. 7. Kelley Wyatt aðstoðar. Síðasta sinn. Aðgöngumiðar seldir , Austurbæjarbíói. Pípulagningamenn Fræðsluerindið er kl. 8,30 í kvöld — Ekki kl. 9,30. Nefndin
Císli Einarsson héraðsdómslögmaður. Málf/utningsstofa. Laugavegi 20B. — Simi 19631.
^
10 hjóla trukkur Til sölu er 10 hjóla trukkur með palli (International) Bíllinn er með ónýtri vél, en að öðru leyti í góðu lagi. Með bílnum fylgir spil, gálgi og ýmsir varahlutir. Upplýsingar á olíustöð okkar í Skerjafirði. Sími 11425. Olíufélacgið Skeljungur hf.
Skrifstofustúlka Stórt fyrirtæki hér í bænum, óskar eftir að ráða skrifstofustúlku til símagæzlu, bréfaskrifta og al- mennra skrifstofustarfa. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt: „Skrifstofustúlka — 4356“,
ÖRN CLAUSEN héraðsdómslögmaður Málf'utningsskrifstofa. Bankastræti 12. — Sími 18499.
Hörður Ólafsson lögfræðiskrifstofa, skjalaþýðandi og dómtúlkur í ensku. Austurstræti 14.
HAPPDRÆTT! HÁSKÓLA ÍSLANDS
Á morgun verður dregið í I. flokki
M eða I v i n n i n g a er anna r aðalvinningur ársins;
h áI f mi11 jón krónur
í dag eru seinustu forvöð að endurnýja
Happdrœtti Háskófa íslands
2
LESBÓK BARNANNA
LESBÓK BARNANNA
3
EF 1>IG langar til að
sanna með tilraun,
hvernig loftþyngdin
breytist, geturðu búið
þér til loftvog úr tómri
niðursuðudós, gúmmí-
blöðru, sogröri, segl-
garnsspotta, eldspýtu og
limbandL
Jafnaðu opið á dósinni
með því að slá hvassar
brúnir niður, klipptu
munnstykkið af blöðr-
unni og bittu hana yfir
dósina. Gættu þess að
strengja gúmmíið vel og
binda fast, svo að dósin
verði loftþétt. Yddaðu
eldspýtuna og stingdu
henni í annan endann á
sogrörinu, límdu síðan
sogrörið fast með lím-
bandinu á miðjuna á
gúmmíinu.
Settu pappaspjald á
veginn, þannig að vísir-
inn (eldspýtan) bendi á
þið mitt, þegar staða loft-
vogarinnar er eðlileg.
Settu þar strik á spjaldið.
Yísirinn mun síðan
hækka eða lækka eftir
því, sem loftþyngdin vex
eða minnkar. Ef hann
hækkar lítur út fyrir gott
veður, falli hann má bú-
ast við veðurbreytingu
til hins verra.
Krossgátc
Lárétt: 1. Fylgihnött-
ur jarðar, 4. Hæð, 5.
Heyvinnuverkfærin, 7.
Skel, 8. Það sem kornið
vex á.
Lóðrétt: 1. Eldiviður,
2. Huldar vættir, 3.
Spyrja, 4. Sokkur, 3.
Straumkast.
♦
Skrítlur
Sjúklingurinn: Má ég
svo biðja um reikninginn,
læknir?
Læknirinn: Ekki strax,
ekki strax, þér verðið að
safna kröftum áður.
★
Tveir gamlir vinir,
Sammi og Tommi, gerð-
ust vinnumenn á stórum
búgarði.
Fyrsta morguninn, þeg-
ar þeir sátu við að
mjólka, spurði Tommi
ailt í einu:
— Af hverju mjólkar
þú ekkert, Sammi? Ég er
bráðum búinn með mina
kú. *
— Ég er nú enginn
asni, svaraði Sammi, —
ég bíð bara þangað til kýr
in fær hiksta @g svo heid
ég fast um spenana.
Ráðningar
Ráðuingar á gátum í
26. tbl. 1959: 1 Stóllinn,
2. Páll.
Ljáðu mér
vængi
Ur fyrstu sögu
flugsins
9. Á meðan ekki voru
gerðar aðrar kröfur, en
að geta svifið upp í loftið
og til jarðar aftur, voru
loftbelgirnir nægilega
góðir. Aftur á móti voru
þeir næstum óhæfir til að
ferðast með þeim, af því
að þeir bárust stjórnlaust
með vindinum.
Margir reyndu að leysa
þann vanda, hvernig stýra
ætti loftskipunum og
knýja þau áfram. Sumir
töldu að það mætti gera
með árum og seglum, aðr-
ir töluðu um að spenna
stóra fugla fyrir farkost-
inn og enn aðrir vildu
nota loftskrúfur.
10. Hugmyndin um loft-
skrúfurnar var sú snjall-
asta. f>ar var bara einn
hængur á, skrúfurnar
gátu aldrei snúizt nógu
hratt, af því það varð að
knýja þær áfram meó
handafli.
f raun og veru var ekki
hægt að búa til flugtæki,
sem hægt væri að stýra,
fyrr en gufuvélin var
fundin upp (skömmu eft-
ir 1800). Fyrstu gufuvél-
arnar voru þó of þungar
til þess að hægt væri að
nota þær í loftbelgjum, en
frönskum vélfræðingi
tókst að smíða litla gufu-
vél, sem hann hengdi
neðan í aflangan loftbelg.
Þá var hægt að stýra hon-
um dálítið, en hraðinn var
aðeins 11 km. á klukku-
stund.
Síðar reyndu aðrir að
nota gashreyfla og raf-
magnsmótora, en það var
samt fyrst, þegar hinir
litlu benzínhreyflar komu
til sögunnar, að verulegar
framfarir urðu í smiði
loftskipanna.
o—□—o
Skrítla
Addi spurði Pésa, hvort
hann yrði með á bió i
kvöld.
— Get það því miður
ekki.
— Hvers vegna?
— Ég þarf að hjálpa
pabba að reikna heima-
dæmin mín.