Morgunblaðið - 14.01.1960, Side 15

Morgunblaðið - 14.01.1960, Side 15
Fimmtudagur 14. jan. 1960 M f)Jt CTrNfíLAÐlÐ 15 Endurskoðun iðnaðarlaga — fræðsla iðnverkafólks fslenzkur verksmiðjuiðnaður býr í dag við yfir 30 ára gömul og að mörgu leyti úrelt laga- ákvæði. Þegar lögin voru sett höfðu iðnaðarmenn þegar hasl- að sér myndarlega völl í at- vinnulífi þjóðarinnar. Var lög- gjöfin um iðju og iðnað sett fyrir atbeina þeirra og fyrst og fremst við það miðuð að tryggja fag- lærðum iðnaðarmönnum viss réttindi í grein þeirra. Ákvæði þessi eru þó einnig sett til þess að almenningur, sem nýtur þjónustu' iðnaðarmanna, geti treyst því, að þau séu faglega af hendi leyst. Þegar lögin voru sett átti verksmiðjuiðnaðurinn engin samtök hliðstæð samtökum iðn- aðarmanna og gætti sjónarmiða hans því lítið við setningu lag- anna, enda verksmiðjuiðnaður- inn þá á bernskuskeiði. Síðan hafa orðið geysimiklar framfarir og þróun bæði í verksmiðjuiðn- aði og hjá iðnaðarmönnum, sem æ meira taka vélvæðingu í þjón- ustu sína. Verksmiðjuiðnaðurinn byggist á fjöldaframleiðslu fyrir óþekktan markað, en einnig á sérhæfni og kunnáttu starfs- mánna sinna, iðnverkafólks. Nú- verandi iðnaðarlöggjöf stendur framþróun í verksmiðjuiðnaði að ýmsu leyti fyrir þrifum. Fyrir rúmum áratug var löggjöfin endurskoðuð og var frumvarp til nýrra iðnaðarlaga lagt fyrir Alþingi árið 1952. Samkomulag náðist þá ekki um málið, m. a. vegna ágreinings milli verk- smiðjuiðnaðarins og iðnaðar- manna um ýmis ákvæði þess. Hjá því verður ekki komizt að taka mál þessi upp að nýju og leysa þau á þann hátt að báðir aðilar megi vel við una. Á und- anförnum árum hafa stöðug málaferli staðið um takmörk verksmiðju- og handiðnaðar öll- um aðilum til ama en engum til góðs. Þá þarf löggjafinn einnig að taka til athugunar fræðslu iðn- verkafólks og menntun verk- stjóra í verksmiðjuiðnaði. Slík fræðsla myndi auka afköstin í iðnaðinum og bæta gæði fram- leiðslunnar, vera neytendunum til hagsbóta og auka á sam- keppnishæfni iðnaðarins. Hagnýting náttúruauðæfa — stóriðnaður Undanfarin ár hefur mikið verið rætt og ritað um nauðsyn þess að gera atvinnulíf þjóðar- innar fjölbreyttara og efnahags- afkomuna þar . með öruggari. Hefur í þessu sambandi einkum verið rætt um hagnýtingu ónot- aðra náttúruauðæfa landsins, sem fyrst og fremst eru orku- möguleikar í formi vatnsafls og jarðhita. Ýmsar vísindalegar at- huganir og rannsóknir hafa verið gerðar, en minna hefur orðið úr framkvæmdum en skyldi. Augu manna hafa þó æ betur opnazt fyrir þeirri staðreynd að ótryggi- legt er að byggja lífsafkomu þjóðarinnar í eins ríkum mæli og verið hefur á atvinnuvegum, sem svo mjög eru háðir duttlungum náttúruaflanna. Við verðum á hinn bóginn að gera okkur Ijóst að verulegt átak á sviði stóriðn- aðar verður ekki gert nema með aðstoð erlends fjármagns og þarf að vinda bráðan bug að því að setja löggjöf, sem gerir það kleift, að erlent einkafjármgan fáist hér til framkvæmda og atvinnuuppbyggingar. Áætlað er, að nú séu virkjuð um 3% af virkjanlegu vatnsafli á Islandi og svipaður hundraðshluti hagnýtt- ur af jarðhitanum, enda þótt mjög erfitt sé að gera áætlanir þar um. Undir skynsamlegri hag- nýtingu þessara virkjunarmögu- leika er það ef til vill komið, hvort íslendingar geta orðið hlutgengir aðilar að efnahags- samstarfi V-Evrópuþjóðanna í framtíðinni, en verði ekki ölm- usuþjóð á framfæri þeirra af hernaðarástæðum. Lokaorff Nú standa fyrr dyrum róttæk- ar ráðstafanir í efnahagsmálum þjóðarinnar. I sambandi við þær ráðstafanir er mikilsvert að tek- ið verði tillit til iðnaðarins og honum gefið svigrúm til þess að laga sig að breyttum aðstæðum jafnframt því, að gerðar verði sérstakar ráðstafanir til eflingar hans með auknum lánamöguleik- um og með lagfæringu á þeim málum, sem standa í vegi fyrir framþróun hans. íslenzka þjóðin er fátæk af fjármagni. Það er þess vegna mjög mikilvægt að fjármagni því, sem þjóðin sparar saman til fjárfestingar eða fær lánað í því skyni sé varið á hinn hagkvæm- aeta hátt fyrir þjóðarheildina. Hér á landi hafa stjórnvöldin róðið meiru um það en í flestum lýðræðislöndum í hvaða farvegi fjárfestingin hefur fallið. Þetta vald hefur ekki verið notað af nægilegri framsýni og víðsýni. Þess vegna ber að stefna að meira frelsi í efnahagslífinu, en bæta jafnframt fyrir misgerðir fyrri ára. Mesta hagsmunamál þjóðarinn ar í dag er, að eínahagslífinu verði komið í skynsamlegt horf og síðan hafizt handa um hag- nýtingu á náttúruauðæfum lands ins og framkvæmdirnar miðaðar við það eitt hvaða möguleika þær bera í skauti sínu til bættra lífskjara fyrir þjóðarheildina. Ef þetta verður gert þarf engu að kvíða um framtíð iðnaðarins. Soffía Jónsdóttir Minningarorð SOFFÍA Guðrún Jónsdóttir, var fædd 7. júlí 1873, að Syðri-Ey á 'Skagaströnd. Hún lézt að heimili sínu, Flókagötu 6, fimmtudaginn 7. þ. m. Soffía var dóttir hins þekkta atorkumanns, Jóns Jasonarsonar, sem bjó á Syðri-Ey og víðar, en lengst var veitingamaður á Borð- eyri, og fyrstu konu hans, Ás:,u Maríu Ólafsdóttur frá Vatns- enda. Hún dó á bezta aldri, fra 4 börnum og var Soffía þá að eins 5 ára gömul. Eftir andlát móður sinnar fór Soffia, ásamt yngsta bróður sínum í fóstur að Gilsstöðum í Vatnsdal, til föður- systur sinnar og manns hennar, Magnúsar Steindórssonar, sem síðar bjuggu stórbúi að Hnausum. Ólst hún upp að mestu leyti hjá þeim hjónum, Guðrúnu og Magn- úsi, en var þó um tíma hjá vina- fólki í Rúfeyjum á Breiðafirði. Þrettán ára gömul fór Soffía aft- ur heim til föður síns, sem þá var orðinn veitingamaður á Borð- eyri. Var hún þar á eftir á veg- um föður síns, sem lét sér mjög annt um hina gáfuðu og glæsilegu dóttur, sem og öll börn sín. Voru miklir kærleikar með Soffíu og föður hennar. Hún fékk mein menntun en þá var algengt, og var t. d. í skólum, í Ytri-Ey, hjá frú Elínu Briem og síðan í Kvennaskólanum hér í Reykja- vík og lauk þaðan prófi með prýði. Árið 1897 giftist hún ágætis- manninum Sigurbjarna Jóhann- essyni, sem um allmörg ár var verzlunarstjóri á Hvammstanga, en til Reykjavíkur fluttu þau hjón árið 1910, og síðan hefur heimili Soffíu verið í Reykjavík. Sigurbjarni dó 1947. Þau hjónin eignuðust 3 börn, sem öll eru á lífi. Auk þess ólu þau upp dótt- ur dóttur sína, sem'sitt eigið barn og dóttur dóttur dóttir ólst upp á heimili hennar. Voru þessar súlkur augasteinar ömmu, sem lét sér annt um þær, sem sín eigin börn. Sonarbörn hennar voru henni einnig mjög kær, enda þótt þau ælust ekki upp á heim- ili hennar. Loks skal þess getið* að Soffía og Sigurbjarni höfðu ofl á heimili sínu, um lengri og skemmri tíma, vini og vanda- lausa, sem hjálpar þurftu, og vat þeim veitt sartia umönnun og atlæti, sem heimafólki. Eins og sjá má af þessu stutta yfirliti, ól Soffía barns- og þroska árin í stórbrotinni náttúru en einnig fagurri og blíðri. Finnst mér Soffía hafa hlotið að erfðum þessi einkenni, enda unni húrt æskustöðvunum til hinztu stund- ar. Þó að Soffía nyti ekki sinnar góðu móður, nema stutta stund, naut hún samt mikils ástríkU fósturforeldra sinna, Guðrúnár og Magnúsar, og einnig var hún borin á vinahöndum í Rúfeyjum. Framhald á bls. 23. 4 LESBÓK BARNANNA Njáishrennu og hefnd Kára 91. Ifvorugur þeirra félaga varð sár á fundinum, en þeir voru allir sárir, er undan komust. Hlupu þeir þá á hesta sína og hleyptu út á Skaftá, sem mest máttu þeir, og urðu svo hræddir, að þeir komu hvergi til bæja, og hvergi þorðu þeir að segja tíðindin. Þeir Kári æptu að þeim, er þeir hleyptu undan. Þegar þeir komu til Svína- fells, var Flosi ekki heima. öllum þótti þeirra ferð in svívirðilegasta. 92. Kári spurði Björn* „Hvað skulum við nú til ráða taka?“ Björn svaraðí: „Hvort þyk- ir þér undir því mest, að við séum seni vitrastir?" „Já“, sagði Kári, „svo er víst“. „Þá er skjótt til ráða að taka“, segir Björn, „við skul- um ginna þá alla sem þursa, og skulum við láta sem við munum ríða norður á fjall, en þegar leiti ber á milli, þá skuium við snúa ofan me® Skaftá og felast þar, sem okk- ur þykir vænlegast, meðan leitin er seni áköfust, ef þeir ríða eftir“. Kári mælti: „Svo munum við gera, og hafði ég þetta ætlað áður“. 93. Þeir Kári riðu nú ofan með Skaftá og léttu eigi fyrr en þeir komu í Mcðalland og á mýri þá, er Kringlumýri heitir, þar er hraun allt um- hverfis. Björn gætti hestanna, en Kári lagðist niður og svaf allskamma stund, áður en Björn vakti hann. Björn mælti: „Allmjög þarft þú þó mín við. Myndi sá nú hafa hlaupist í braul frá þér, er eigi væri jafn vel hugaður sem ég er, því að nú ríða liér óvinir þínir að þér, Og skalt þú svo við búast“. Kári gekk þá undir hamra- skúta nokkurn. Björn mælti: „Hvar skal ég nú standa?“ Kári svarar: „Tveir eru nú kostir fyrir höndum. Sá er annar, að þú standir að baki mér og hafir skjöldinn að hlífa þér með, ef þér kcmur hann að nokkru gagnl. Ifinn er annar, að þú stígir á hest þinn og ríðir undan, sem þú mátt mest“. „Það vil ég eigi“, sagðl Björn. „Vera kann, að nokkr- ar skæðar tungur taki svo til orða, að ég renni frá þér fyrir hugleysi, ef eg ríð á braut. Vil eg þvi heldur standa hjá þér og verjast með þér“. 4. árg. ★ Ritstjóri: Kristján 3. Gunnarsson ★ 14. jan. 1960. Rautt Ijós Loksins var hann þó kom inn alla leið og það var sannarlega á síðustu stundu. Lestin brunaði nær og nær og ljós henn- ar urðu stærri og stærri, þar til honum fannst þau ætla að blinda sig. í skyndi losaði hann af sér rauðu treyjuna og sveipaði henni yfir sterkt ijósið í luktunni. Hann fann hvernig honum hitn aði af gleði og nýrri von, þegar hann sá, að ljósið varð rautt. Hann hafði búið til rautt ljós —, hættumerki —, stöðvun- arljós fyrir járnbrautar- lestir. — Nú hafði hann gert allt sem í hans valdi stóð, og hann beið milli vonar og ótta. Skelfingin nísti hann, þeger lestin þaut framhjá, án þess séð yrði, að hún hægði nokkuð á ferðinni. Honum fannst hann dofna upp, hann gat varla haldið sér uppi í staurnum lengur og tárin fóru að brjótast fram. Svo var athygli hans aftur vakin og hann hlust aði af öllum lífs og sálar kröftum. Var það blekk- ing —, eða hvað? Hægði lestin á sér? Og svo —, allt í einu kváðu við sker andi hemlahljóð, lestin hafði stöðvast. Gleðin gagntók hann, gleði og ósegjanlegur létt ir. Á svipstundu renndi hann sér niður staurinn án þess að hirða um skrámur og fleiður. Rauðu treyjuna skildi hann eftir í flýtinum. Hugurinn bar hann hálfa leið, þegar hann hljóp eftir brautarspor- inu, til lestarinnar og bílsins. Hann langaði til að steypa sér kollhnís af tómri gleði, er hann sá, að lestin hafði numið staðar, aðeins sex til tíu metra frá bílnum. Skömmu síðar voru all ar sorgir gleymdar, kvið- inn og hræðslan rekin á flótta. Föður hans hafði verið bjargað út úr bíln- um og sem betur fór var hann ekki meira meiddur en svo, að hann gat haltr- ast fram og aftur meðart bíllinn hans var réttur við. Bíllinn var að vísu dálítið skemmdur, en auff velt var að lagfæra það. Egill fór dálítið hjá sér, þegar lestarstjórinn gekk til hans og skrifaði hjá sér nafn hans og heimilisfang. „Það eru fleiri en faðir þinn, sem þú Kefur bjarg að úr bráðri hættu í dag, drengur minn“, sagði hann um leið og hann stakk minnisbókinni í vasann. „Þú færð áreiðanlega viðurkenningu frá járn- brautarfélaginu áður en langt um líður“, bætti hann við. Og svo stóð þá pabbi hans fyrir framan hann og rétti fram hendina. „Þakka þér fyrir, Egill, I ég vissi, að þú mundir j ekki bregðast“, sagði i hann. Það var eitthvað í svip hans og handtaki, sem varð til þess, að Egill fékk kökk í hálsinn. „Ég vissi, að ég mátti ekki bregðast“, sagði hann lágt og þrýsti hönd föður síns. Knud Múrer.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.