Morgunblaðið - 14.01.1960, Síða 21
Fimmtudagur 14. jan. 1960
MORCUNRLAÐIÐ
21
Hjálparbeiðni
MAÐUR, sem gengið hefur undir
hættulegan lungnaskurð og orðið
fyrir mjög mikilli lömun fyrir
brjósti, og þolir því ekki gang,
þarf mjög að eignast bifreið ti!
að geta stundað sér heppilega at-
vinnu.
Hann vantar herzlumuninn til
að geta greitt fyrir bíl, sem hann
hefur fengið leyfi fyrir.
Mundu nú ekki einhverjir vilja
ieggja eitthvað af mörkum handa
honum og tryggja þannig fjöl-
skyldu þessari bjartari og örugg-
ari framtíð.
Árelios Níelsson.
Fæðir nú
sitt fyrsta barn
TOKÝÓ, 12. jan. — Michiko prins
essa, eiginkona Akihito prins,
mun leggjast í sjúkrahús á morg-
un til að fæða fyrsta barn sitt.
— Þau hjón voru, sem kunnugt
er, gefin saman í hjónaband á ár-
inu, sem leið og vakti það óskipta
athygli um heim allan. Hafði það
ekki gerzt þá í 2000 ár, að japansk
ur prins gengi að eiga stúlku af
borgaralegum ættum.
— Fiskeldi
Framh. af bls 11
sviði fiskeldis og fiskiræktar í
vötnum og glata þar með stór-
kostlegum verðmætum, verður
þegar í stað að hefjast handa um
að koma þessari tilraunastöð fyrir
fiskeldi upp. Hefur veiðimála-
stjóri í því sambandi lagt til við
ríkisstjórnina, að hún notaði
heimild í laxveiðilögunum tii
þess að ríkið reisi tilraunaeldis-
stöð, sem komið verðí upp fyrir
árslok 1963. Hún mun að stofn-
kostnaði til að sjálfsögðu verða
nokkuð dýr, en þegar fram líða
stundir verður að gera ráð fyrir
að hún beri sig fjárhagslega. Hér
er um svo mikið hagsmunamal
að ræða fyrir þá er hag hafa að
fiskeldi og veiðum og raunar
þjóðarheildina að ekki má skella
við skollaeyrum lengur, segir
veiðimálastjóri að lokum.
vig.
ALL.T 1 RAFKERFIÐ
Bílaraftækjaverzlun
Halldórs Ólaf; sonar
Rauðarárstig 20. — Sími 14775.
Ráðskona óskast
Dugleg ráðskona óskast 1. febr. að stóru mötuneyti.
Upplýsingar um fyrri störí, sendist afgr. Mbl. fyrir
20. þ.m. merkt: „8036“.
Skrifstofustarf óskast
Ungur maður vanur skrifstofustörfum óskar eftir
atvinnu. Enskúkunnátta. — Tilboð merkt: „Áhuga-
samur — 8153“, sendist cifgr. Mbl. fyrir annað kvöld.
Bifreið til sölu
Tilboð óskast í Dodge ’50 (ákeyrður). Til sýnis milli
kl. 1—3 í dag í Bifreiðaverkstæðinu Drekinn við
Síðumúla. — Tilboðin afhendist til Kjartans Guð-
mundssonar verkstjóra, Drekanum, fyrir kl. 5 í
dag. — Nauðsynlegt að símanúmer sé á tilboðinu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 92., 93. og 94. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1959 á Vá húseigninni nr. 87 A, (neðri
hæðinni), við Suðurlandsbraut, hér í bænum, þingl.
eign Steinólfs Jóhannessonar, fer fram eftir kröfu
Landsbanka Islands á eigninni sjálfri, mánudaginn
18. janúar 1960, kl. 3,30 síðd.
Borgarfógetinn í Reykjavík
SÆNSKIR
GISLAVED
hjólbarðar
nýkomnir
í eftirtöldum
stærðum:
670x15
710x15
700x20
750x20
825x20
900x20
1000x20
1100x20
Bilabúð SÍS
Skritstotustúlka
óskast
Bifreiðastöð Steindórs
UddI. milli 5—7. Sími 1-85-85
Afgreiðslumaður
getur fengið atvinnu við þekkta byggingarvöruverzl-
un hér í bænum. — Umsóknir sendist afgr. Mbl.
fyrir 31. jan., með upplýsingum um fyrri störf og
aldur, merkt: „8148“.
Heima- og Vogabúar athugið
Skóverzlun og Skóvinnustofa Gísla Ferdinandssonar,
Heimaveri, Álfheimum 6, mun framvegis annast
móttöku á skyrtum fyrir okkur.
Leggjum áherzlu á vandaðan frágang og örugga
afgreiðslu.
r^SKYRTAN
Höfðatúni 2 — Sími 24866
Vörubílsfjórafélagið
ÞRÓTTUR
allsherjarutkvæðagreiðsla
um kosningu stjórnar, trúnaðarmannaráðs og vara-
manna, fer fram í húsi félagsins og hefst laugard.
16. þ.m. kl. 1 e.h. og stendur yfir þann dag til kl. 9
e.h. og sunnudag. 17. þ.m. frá kl. 1 e.h. til kl. 9
e.h. og er þá kosningu lokið. Kjörskrá liggur frami
í skrifstofu félagsins.
Kjörstjórnin
Viðskiptaskráin 1960
er nú í undirbúningi.
Fyrirtæki og einstaklingar,
sem reka viðskipti í einhverri
mynd, eru beðin að láta vita, séu
þau ekki þegar skráð í bókinni, eða
sé um einhverjar breytingar að
ræða hjá þegar skráðum fyrirtækj-
um.
Félög og stofnanir,
sem eru ekki þegar skráð, eru
einnig beðin að gefa sig fram og
láta í té upplýsingar um stjórn, til-
gang o. fl. Þeir, sem fengið hafa til
leiðréttingar úrklippur, og hafa
ekki þegar endursent þær, eru vin-
samlega beðnir að láta það ekki
dragast lengur.
Enginn, sem vill láta sín getið í viðskipta-
lífi landsins, má láta sig vanta í
Viðskiptaskrána.
Allar upplýsingar eru gefnar í síma 17016
Viðskiptaskráin
Símar 17016 & 11174 — Tiarnargötu 4