Morgunblaðið - 17.01.1960, Síða 11
Sunnudagur 17. jan. 1956
MOR CTINBLAÐIÐ
11
Elín Pétursdóttir
HINN 11. þessa mánaðar andaðist
hér í Reykjavík á Farsóttahúsinu
Eiín Pétursdóttir fyrrv. Ijósmóð-
ir í Jökuldal og húsfreyja á
Eiríksstöðum.
Með henni er fallinn göfug
kona og ástsasl af öllum er höfðu
af henni kynni.
Elín var fædd í Stað í Grunna-
vík h. 9. sept. 1886. Voru foreldrar
hennar Pétur Þorsteinsson
Maach; prestur á Stað, og kona
hans Vigdís Einarsdóttir, bónda
á Stakavík í Aðalvík. Pétur prest
ur drukknaði á Staðarvíkinni á
heimleið úr ísafjarðarkaupstað,
ásamt fleiri mönnum h. 8. sept.
1892, daginn áður en Elín varð
6 ára. Voru systkinin þá orð.i.n
fimm og Elín elzt. Var hér mikill
og hörmulegur atburður orðinn.
Voru systkinin, auk Elínar, Pétur
skipstjóri, sem fórst ásamt syni
sínum, Pétri, á togaranum Max
Pemberton, Bryndís, gift Jóni
gullsmiði Eyjólfssyni, Áslaug,
gift Þorsteini kaupmanni Páls-
syni frá Tungu í Fáskrúðsfirði,
nú látin, og María yfirhjúkrunar-
kona í Reykjavík. Vigdís reisti bú
á öðrum bæ í sveitinni og hélt
hópnum saman um stund, en 12
ára að aldri fór Elín til föður-
systur sinnar, Sigríðar Þorstems-
dóttur, er lengst bjó á Víðivöllum
í Fljótsdal í Norður-Múlasýslu og
dvaldi hjá henni, á miklu rausn-
ar og myndarheimili, þar sem
hún naut góðs uppeldis og marg-
víslegrar menningar á bæ og af.
H. 6. september 1908 giftist
Elín Vilhjálmi Gunnlaugssyni,
Snædal, á Eiríksstöðum á Jökul-
dal og hófu þau búskap þar á
parti af jörðinni móti Steinunni
Vilhjálmsdóttur, móður Vii-
hjálms og síðari manni hennar,
Einari hreppstjóra, Eiríkssyni.
Var Eiríksstaðaheimili gamalgró-
ið efna- og virðingarheimili, eins
og þau gerðust bezt á 19. öld, og
jörðin ættaróðal dugmikilla
manna frá því á 17. öld, þótt lang-
an tíma væri hún kirkjueign, eða
þangað til Guðrún Gunnlaugs-
dóttir, föðurmóðir Vilhjálms, hin
mest skörungs, ráðdeildar og
gáfukona, keypti hana um 1880.
Þótti ungu stúlkunni, prestsdótt-
urinni frá Stað, ekki í kot vísað
er um slíka staðfestu var að ræða,
enda héldu þau veizlu sína, svo
víðfrægt varð um Austurland, og
enn minnzt, þótt nú fækki þeim,
sem þar sátu að borði.
Vorið 1910 tóku þau hjón
prestssetrið Hofteig til ábúðar og
bjuggu þar til vors, 1916, að þau
fluttu aftur í Eirxksstaði og höfða
hálflenduna til ábúðar. Nokkrum
árum síðar hóf Jón bróðir Vil-
hjálms búskap á Eiríksstöðum, en.
þau Einar og Steinunn fluttust til
Reykjavíkur til sonar síns Gunn-
laugs læknis. Bjuggu þeir nú
bræður tveir á Eiríksstöðum, við
mikinn myndarbrag og rausn,
Eiríksstaðaheimili varð rómað
víða um land, sem fram hefur
komið í máli margra hinna merk-
ustu manna er þessa hafa getxð,
er þeir komu í Eiríksstaði. Voru
þeir bræður miklir gleðimenn og
Jón mesti organleikari á sinni tíð
á Austurlandi og kenndi organ-
slátt um skeið í ýrr^sum stöðum
Og á heimili sínu. Vilhjálmur var
aftur einn hinn mesti húmoristi,
sem um gat verið að ræða, svo
það var von að líflegt þætti að
koma , Eiríksstaði. Hlutur hús-
freyjunnar lá heldur ekki eftir í
þessu skemmtilega heimilishaldi,
en Jón átti Stefaníu Karlsdóttur,
kaupmanns á Stöðvarfirði. Voru
þær, Elín, svo samrýmdar í cví-
býlinu, að því líkast var, sem um
systur væri að ræða. Leið svo
tíminn’til 1931, að Jón dó, og var
það satt áð nokkuð hljóðnaði yfir
Eiríksstaðaheimili við fráfall
hans. Bjó ekkja Jóns áfram á Ei-
ríksstöðum og öllu var haldið
í horfi,, encja uxu börn þeirra
bræðra og urðu mikið þroska-
"ólk. Var stórbúskapur á Eiríks-
Snædal
stöðum um og eftir 1940, sem
víðast í Jökuldal. Árið 1946 létu
þau hjón, Vilhjálmur og Elín
jörð sína í hendur Gunnlaugi
syni sínum, og fluttust til Reykja-
víkur, þar sem þau dvöldu síðan.
Héldu þau sitt eigið heimili. Var
þar enn eins og að koma á Eiríks
staði, og sá sem þetta ritar þótt-
ist hálfan Jökuldal hafa í heirn-
sókn hjá þessum ágætu hjónum.
Hinn 2. febrúar 1958 andaðist Vil-
hjálmur og dvaldi Elín eftir það
hjá Steinunni dóttur sinni og
manni hennar, Björgvin Sigurðs-
syni, héraðsdómslögmanni í
Reykjavík.
1919 gerðist Elín ljósmóðir í
Jökuldalshreppi, en hann er alira
hreppa víðlendastur í þessu
landi því honum fylgja Heiði og
Fjöll, hin efri. í þessu starfi varð
Elín svo ástsæl, að hún varð ó-
krýnd drottning dalsins. Skyldu-
rækni hennar og göfuglyndx
hreif alla. í hinni víðlendu sveix
þurfti jafnan að sækja yfirsetu-
konuna alllöngu fyrir fæðingu og
gat þá komið fyrir að hún sæti
svo vikum skipti í bið. Elín taidi
það aldrei eftir sér, og kaus jafn-
an að sá háttur væri hafður á,
frekar en hún væri ekki sótt fyrr
en á síðustu stundu. Af þessu
kynntist hún betur bæjunum og
fylgdist betur með konunum en
annars hefði orðið, enda barst
konum aldrei á í höndum hennar.
Lagði hún miklar fórnir á sig og
sitt heimili, með þessu en öðru
vísi vildi hún ekki gegna starfi
sínu.
Þeim, er þetta ritar, er minn-
isstæðar dvalir Elípar á heimili
hans. Var hún svo fróð kona um
svo marga hluti að furðu gegndi.
Mátti segja að hún fylgdist svo
vel með lífinu í landirxu, að lík-
legra hefði verið, að hún heíði
verið þar í miðdepli, frekar en á
einum efsta bæ á Jökuldal.
Minni hennar var svo mikið og
heitt að þvílíkast var, sem aldrei
gleymdi hún neinu af því, sem
hún hafði keypt um dagana og
eftir því var dómgreind hennar
á bæði því og öðru. Hún var ætt-
vís með afbrigðum og sjálfstæð
í skoðunum, og hélt á þeim með
hárfínni kurteisi svo ekki var
annað hægt en hrífast af. Hélt
hún ljósmóðurstörfunum í 20 ár
Það er erfitt að tala um það, se.m
maður reyndi bezt af Elínu, en
mannkostir hennar og öll gjörð
mun seint gleymast þeim, er að
fullu kynntust henni. Það eru
fleiri en Jökuldælingar, sem nú
renna þakklátum huga að minn-
ingu hennar, en það eru þeir, sem
mest eiga að þakka, og fyrir
þeirra hönd er henni flutt hinzta
kveðja og þakklæti þeirra allra
með þessum línum.
Þrjú börn þeirra hjóna kom-
ust á þroskaaldur og auk þeirra,
sem talin hafa verið, Þorsteirxn,
bóndi og oddviti á Skjöldólfsstöð-
um í Jökuidal.
Minning þeirra Eiríksstaða-
hjóna, Vilhjálms og Elínaf,--er
nú hafa með stuttu miliibili safn-
ast til feðra sinna, sum iengi varc
og bezt í þeirra sveit, sem þax
unnu um aðrar byggðir fram, o;
áttu svo mikinn þátt í að ge:
mérkilega og minnisstæða, þei
sem kynntust. Far þú í friði Elín,
svo sem þú ætíð fórst um þina
byggð. Blessun fylgdi þér æ, og
öllu þínu starfi.
Elín verður jarðsett á morg-
un frá Fossvogskapellu.
Benedikt Gíslason
frá Hofteigi.
★
ÉG ÆTLA ekki að skrifa um
þessa heiðurskonu neina ævi-
minningu, enda það vonandi
gert af öðrum, sem betur er til
þess fær, vegna lengri kynna af
henni og þeim hjónum báðum,
Vilhjálmi Snædal og Elínu, með-
an þau stunduðu sitt rausnarbú
á Eiríksstöðum í Jökuldal
eystra, en þá var heimili þeirra
rómað að ágætum fyrir rausn og
myndarskap, gestrisni og glæsi-
brag.
Ég get aðeins ekki látið ógert
að senda að moldum þessarar
merku konu fáein þakklætis- og ■
kveðjuorð vegna þeirra góðu
kynna, sem við hjón og böm
okkar og tengdabörn höfðum af
henni, eftir að hún varð tengda-
móðir eins sonar okkar. Elín var
ein þeirra ágætu kvenna, sem
alltaf lýsti og vermdi umhverfi
sitt með glaðlyndi sínu, góðleik,
háttprýði og fróðleik um ættir
manna, því hún kunni góð skil
á mörgum mönnum og málefn-
um, enda minnið gott og greind-
in glögg. Skapgerðin var mild og
hlý, framkoman mótuð kvenlegri
háttprýði og kurteisi, þess vegna
var öllum fengur að því að
blanda geði við hana. Hún var
vönduð sál, sem vafalaust gekk
á guðsvegum. Ég kveð þessa
sómakonu með virðingu og þökk
okkar hjóna, barna okkar,
tengdabarna og barnabarna. —
Því er spáð fyrir hreinhjörtuðum
að þeir munu guð sjá, og svo
mun henni fara.
Sig. Á. Björnsson
frá Veðramóti.
★
ELlNU sá ég fyrst í silíurbrúð-
kaupi Þórunnar og Jóns í Möðru-
dal.
Elín faðmaði mig að sér og
minntist frændsemi okkar, mér
hlýnaði um hjartaræturnar og |
ég fann strax að þarna átti ég
góða og mikilhæfa frændkonu,
sem mér var sómi að. Þrem ár-
um síðar fórum við Ragnhildur
stjúpdóttir mín í kynnisferð að
Eiríksstöðum. Kynntist ég þá af
eigin raun því annálaða myndar
heimili.
A Eiríksstöðum bjuggu í raun
og veru tvær fjölskyldur, hús-
bændurnir bræður og húsfreyj-
urnar voru eins og systur, þess
varð vart við fyrstu kynni, þess-
vegna höfðu þeir, sem þangað •
komu það á tilfinningunni, að í j
raun og veru væri þetta eitt heim
ili, — eitt stórt kærleiks heimili.
A Eiríksstöðum var mér fagn- ■
að af svo mikilli alúð og inni-
leik, að koma mín þangað J
gleymist aldrei.
Elín var stórlynd, en að sama
skapi drenglynd, hún var hvergi
hálf, heldur öll, þar sem hún fór.
Heyrt hef ég konur af Jökul-
dal róma dugnað og áræði Elín-
ar við ljósmóðurstörfin, hún var
kjarkmikil að eðlisfari og skyldu
rækin, jafnt innan heimilis, sem
utan og ljósmóður störfin leysti
hún af hendi með svo mikilli nær
gætni og velvild að hún ávann
sér ást' og virðingu allra þeirra,
er til hennar leituðu.
Elín var víðlesin, fróð og stál-
minnug, kunni frá mörgu að
segja og gott til hennar ráða og
upplýsinga að leita.
Eftir að Elín fluttist til Reykja-
víkur, átti hún mikinn og góð-
an þátt í félagsskap Austfirskra
kvenna. Við fráfall hennar á fé-
lagið margs að minnast og mikils
að sakna.
Allir þeir, sem henni kynntust
"xg með henni störfuðu kveðj
íana á hinstu stund, með virf
ígu, þakklæti og sárum söki:
ði.
Halldóra Sigfúsdóttir
Hjólbarðaviðgerðir
opin öll kvöld og helgar
Laugardaga frá kl. 13 til 23 e.h.
Sunnudaga frá kl. 10 til 23 e.h.
Á kvöldin frá kl. 19 til 23 e.h.
Hjólbarðaviðgerðin
Bræðraborgarstíg 21 — Sími 13921
Árshátíð
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verður haldinn í Lido laugardaginn 30. jan. n.k.
Miðapantanir í V.R., Vonarstræti 4, sími 15293.
Félagsmenn eru sérstakleg# áminntir um að panta
miða sem fyrst.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
AðaSfundur
Slysavarnardeildin Ingólfur
deildarinnar verður haldin miðvikud. 20. janúar 1960
í fundarsal S.V.F.Í. Grófin 1 kl. 20,30
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á landsþing.
STJÓRNIN
Verkamannafélagið Dagsbrúi
Fétagsfundur
verður haldinn í Iðnó þriðjudaginn 19. þ.m. kl.
8,30 síðdegis.
Fundarefni :
STJÓRNARKJÖRIÐ
Félagsmenn sýni skírteini við innganginn.
STJÓRNIN
Allt á sama stað
Hjólbarlíar og slongur
520x12
560x13
640x13
670x13
520x14
560x14
500x15
550x15
560x15
590x15
600x15
710x15
760x15
500x16
600x16
650x16
550x17
550x18
165x400
650x20
825x20
900x20
Snjóbarðar
670x13
560x15
640x15
Egill Vilhjálmsson h.f.
Sími 2-22-40