Morgunblaðið - 24.01.1960, Síða 22

Morgunblaðið - 24.01.1960, Síða 22
22 Moncnisnr.A\ðið Sunnudagur 24. jan. 1960 1,1 SKÁK 1,1 SKÁKSAMBAND fslands hefur hrundið af stað umfangsmestu skákkeppni sem háð hefur verið á íslandi til þessa, en þá á ég við „Firmakeppnina" svonefndu. Fyr ir þessa framtakssemi á stjórn S. S. í. þakkir skildar, því þessi keppni á áreiðanlega eftir að verða þess valdandi að skáklist- inni bætist ný stórmeistaraefni, svo ekki sé sleppt að minnast á ánægjuna sem þátttakendur verða aðnjótandi við að taka þátt í keppninni. Hvað fyrirkomulag keppninnar snertir, hefði mér fundizt heppi- legra að láta sveitirnar tefla í einum flokki 9—11 umferðir eft- ir Svissneska kerfinu, og beita venjulegri Ólympíumótaaðferð við útreikning á vinningum sveit anna, en slík aðferð tekur vita- skuld öllum öðrum fram. Sjálf- sagt hefur húsnæðisskortur tor- veldað fyrra atriðið er ég gat um, en þegar reynsla fæst í þess- ari keppni, þá er vitaskuld mun auðveldara að finna heppi- legt fyrirkomulag. ★ Erlendar skákfréttir: Frá Bel- grad berast þær fregnir að B. Ivkov hafi sigað í skákkeppni þar í borg með 9 v. af 11 v. fyrir ofan Dr. Nedeljkovic, Kara- klajec og S. Vukovic 6%. Helsingi: Ojanen varð skák- meistari Finna og hlaut 8 v. af 9, Ridala 7y2, 3. Kanko, Koskinen Og Solin 6%. Leningrad: 27. meistaramót Rússa hefst þann 24. jan. meðal keppenda verða Smyslov, Keres, Petrosjan, Geller, Taimanof, Kortschnoj og Averbach. Riga: B. Spassky sigraði á al- þjóðamótinu og hlaut IIV2, 2. Mikenas 11, 3. Toulus 9%, Tal 9!, 5.—7. Teschner, Giplis og Sliw 7. ★ Rúmenar hafa náð fótfestu á meðal beztu skákþjóða heimsins, þó þeir eigi ekki á að skipa jafn- ingjum Friðriks Ólafssonar, vegna hinna ungu og upprenn- andi meistara sem þjóðin hefur nú á að skipa hefur hún náð príðilegum árangri á Ólympíu- mótinu í Moskvu. Hér kemur skák frá meistaramóti Rúmena. Sá sem stýrir hvítu mönnunum, vakti verulega á sér athygli 1954 á svæðakeppninni í Prag. Hvítt: Ciocaltea. Svart: Radulescu. Sikileyjar-vörn. 1. e4, c5; 2. Rf3, Rc6; 3. d4, cxd4; 4. Rxd4, d5; Aron Nimzowich var þungur á metaskálinni þegar um nýjar byrjanir, eða afbrigði var að ræða. Þennan leik rannsakaði hann fyrstur manna og beirti honum í kappteflum. 5. Bb5 Pach mann álítur 5. Rxc6 öflugra á- framhald, en það er hvergi nærri fullreynt. 5. — dxe4; 6. 0-0 Önn- ur leið er hér 6. Rxc6, Dxdl; 7. Kxdl, a6; 8. Ba4, Bb7; 9. Rc3, Bxc6; 6. — Bd7; 7. Rxc6, bxc6; 8. Ba4, Rf6; 9. Rc3, e6; 10. De2, Da5; 11. Bb3, Df5; Svartur leggur áherzlö á að halda peðinu á e4, en gefur hvítum þess í stað tæki- færi að ljúka við að staðsetja menn sína til sóknar, áður en svartur er búinn að þroska stöðu sína nægilega til þess að vera við öllu viðbúinn. Skákin er því ákjósanlegt dæmi um peðsfléttu í byrjun tafls og fá í staðin for- skot í liðskipun. 12. f3, Bc5f 13. Khl, exf3; 14. Hxf3, Dh5; 15. Bf4, 0-0; 16. Re4, Be7; Erfið- leikarnir, sem ávallt eru sam- fara vamartafli eru þegar famir að gera vart við sig hjá svörtum. Betra var 16. — Rxe4; 17. Rg3, Da5; 18. Be5, Rg4; 19. Bc3, Bb4; 20. Bxb4, Dxb4; 21. Hafl, Rh6; 22. Rh5, Db5! Hættulegt var 22. — Dg4; 23. Rf6!f gxf6; 24. Hg3 23. Hd3!, Had8; 24. c4, Da5; 25. Bc2, Bc8; í krappri stöðu verð ur svörtum á ónákvæmni. Betra er Rf5. 26. Hg3, g6; 27. Rf6t Kg7; 28. b4! Öflugur leikur sem gefur hvítum aukið rými og kreppir að svörtum. Ef 28. — Dxb4; 29. De5 og vinnur 28. — Dc7; 29. De3! Staðan eftir 29. De3 Hvítur hótar 30. Dxh6, Kxh6; 31. Hh3f og mátar! Eftir aðeins 30. leiki er svarta staðan komin í al- gjört öngþveiti. 29. — Rg8. Ef 29. — Rf5. >á einfaldlega 30. Bxf5, exf5; 31. Rh5t Kh8; 32 Dh6, Hg8; 33. Rf6, Hg7; 34. Hh3 og mátar. 30. Rxh7! Kxh7; Svarta staðan er svo „passiv“ að hann hefur ekki um annað að velja en éta það sem að honum er rétt. 31. Dg5!, e5; 32. Dh5t, Kg7; Ef 32. — Rh6 þá fylgir eigi að síður Bxg6. 33 Bxg6 og svartur gaf. Eins og menn geta sjálfir komizt að raun um, þá getur svartur ekki bjargað sér úr mátnetinu. IRJóh. GARÐLÖNÐIN í Kringlumýri, Seljalandsgarðarnir og Grensás- garðlöndin í Reykjavík verða nú að víkja, og þar á að koma nýtt hverfi. Nú eftir áramótin hefur verið sagt upp um 300 garðlönd- um, og þar með eru dagar þessara gömlu garðlanda bæjarbúa taldir. Áður var búið að segja upp garð- afnotum af stórum hluta þessa svæðis_ Á þessum stað hafa verið aðal- garðlönd Reykvíkingá frá því 1934. Síðari árin hefur þó verið smámsaman þrengt að garðrækt- endum og nú er bærinn að leggja löndin undir sig. Frá upphafi HvíOur mátar í 3. leik Höfundur þessarar skákþrautar er Árni Sigurðsson, Háteigsv. 22l Lausn birtist í næsta þættL hefur þeim, sem afnot hafa feng- ið af garðskikum þarna, verið leyft að hafa þar skúra undir garðverkfæri o. fl. En allmikil brögð hafa verið að því að búið hefur verið í skúrunum. Blaðið átti í gær tal um þetta við Hafliða Jónsson garðyrkju- stjóra. Sagði hann að bærinn hefði næg garðlönd fyrir alla þá, sem nú verða að víkja með garða sina, en þó ekki innan við Elliða- ár. Reynt yrði þó að greiða fyrir gömlu fólki, sem erfitt ætti með að stunda garðrækt langt í burtu, en lítið væri nú eftir að garð- löndum innan Elliðaánna. Gömlu garðlöndin víkja fyrir nýju íbúða hverfi Kringlumýrar-, Seljalands- og Grensás- garðar lagðir niður Hafið þér gert yður grein fyrir hversu víðtækar bifreiðatryggingar okkar eru? Ábyrgðartrygging bætir öll tjón eða slys, sem þér valdið á fólki eða eign- um annarra. Kaskótrygging bætir einnig þjófnað á bifreiðinni. Ef bifreið yðar orsakar eld - tjón í eitt ár bá lækkar iðgjaldið um 30%. /ioyrgðartrygging bætir einnig sjúkra- kostnað, sem verða fyrir slysi. Brunatrygging bætir öll brunatjón á bifreið yðar. Kaskótrygging bætir flestar skemmdir á bifreið yðar. Starfsmenn okkar í bifreiðadeild hafa margra ára reynslu í starfi sínu og mundu hafa sérstaka ánægju af að leiðbeina yður um hagkvæma trygg- ingu á bifreiðinni. vn bjbjhjtt nEY(K © Bifreioaaeiid — Simi 17080.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.