Morgunblaðið - 06.02.1960, Síða 12
12
MOnCUNRL4ÐlÐ
Laugardagur 6. febrúar 1960
mtfrfðMfr
tícg.: H.f. Arvakur Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Rítstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsin.gar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 40,00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið
HVAÐ TÆKI VIÐ ?
ITM stærstu drættina í efna-
hagsmálaþróuninni á ís-
landi síðustu árin getur menn
ekki greint á. Staðreyndirnar
tala þar ólygnu máli. Og
hvað segja þessar stað-
reyndir?
Þær segja þetta: Með sí-
fellt vaxandi verðbólgu hefur
hallarekstur íslenzkra fram-
leiðslutækja stöðugt orðið
geigvænlegri. Öll útflutnings-
framleiðsla á íslandi er í dag
rekin með stórkostlegum
uppbótum og styrkjum, sem
borgaðir eru af almannafé.
Aðstaðan út á við
Ef aðstaðan út á við er síð-
an athuguð, kemur í ljós, að
hrikaleg skuldasöfnun hefur
átt sér stað síðustu árin. 2—
300 milljón króna greiðslu-
halli hefur orðið á viðskipt-
um þjóðarinnar við útlönd að
meðaltali á ári síðustu 5—6
árin.
Af þessu hefur það síðan
leitt að þjóðin hefur glatað
lánstrausti, þannig að hún
hefur enga m iguleika til þess
að óbreyttri stefnu í efna-
hagsmálum sínum að fá lán
til langs tíma með hagkvæm-
um kjörum til lífsnauðsyn-
legrar uppbyggingar í landi
sínu.
Það er vegna þessa
hörmulega ástands í efna-
hagsmálum þjóðarinnar,
að núverandi ríkisstjórn
hefur orðið að leggja fram
tillögur um víðtækar og
róttækar ráðstafanir til
viðreisnar í þjóðfélaginu.
Tilraun, sem ekki má
mistakast
En hvernig færi, ef þessi
viðreisnartilraun misækist,
hvað tæki þá við?
Ef upplausnaröflum þjóð-
félagsins tækist að brjóta
niður þær viðreisnarráðstaf-
anir, sem nú er verið að gera,
t. d. á komandi sumri, hlyti
af því að leiða nýja, stór-
fellda gengisfellingu og
hreint þjóðargjaldþrot.
Það er að þessu, sem komm-
únistar stefna, þegar þeir
lýsa yfir „einróma vilja“ sín-
um til að hrinda viðreisnar-
ráðstöfununum.
En vilja íslendingar að
þeir komi þessum „ein-
róma vilja“ sínum fram?
Vilja t. d. íslenzkir bændur
taka þátt í því glæfraspili
með Hermanni Jónassyni og
Eysteini Jónssyni að styðja
kommúnista til þessara þjóð-
hættulegu skemmdarverka?
HITAVEITAN
í R Æ Ð U, sem Geir Hall-
-*■ grímsson, borgarstjóri,
hélt sl. mánudag, benti hann
á það að með hinum stór-
virka gufubor, sem nú er not-
aður við jarðhitaleit í Reykja-
vík og víðar, hafi orðið þátta-
skil í hitaveituframkvæmd-
um í bænum. Tekizt hefur að
fá stóraukið magn af sjóðandi
heitu vatni í bæjarlandinu.
Er hér um að ræða 70—80
sekúndulítra af 137 stiga
heitu vatni. Samsvarar það
170—190 sekúndulítrum af
heitu vatni frá Reykjum og
umreiknað í rafmagnseining-
ar samsvarar það 25—28 þús.
kw. —
Er því afl hinna tveggja
nýju borhola svipað og
nýju virkjunarinnar við
Efra-Fall, sagði Geir Hall-
grímsson í ræðu sinni.
Hitaveita
fyrir alla Reykjavík
Síðar í ræðu sinni komst
borgarstjóri m. a. að orði á
þessa leið:
„4300 hús í bænum eru nú
tengd hitaveitunni. 42—43
þúsund. manns af 70 þús.
íbúum Reykjavíkur eru tald-
ir vera hennar aðnjótandi,
eða um 60% bæjarbúa. Þó
mikið hafi áunnizt í hita-
veituframkvæmdum upp á
síðkastið, þarf mikið átak og
fjármagn til þess að allir
Reykvíkingar verði sem fyrst
aðnjótandi hitaveitunnar. Að
þessu er markvisst unnið.“
Reykvíkingar fagna áreið-
anlega þessum ummælum
borgarstjórans. Hitaveitan
hefur allt frá upphafi verið
glæsilegasta fyrirtæki Reykja
víkurborgar. Undir forystu
Sjálfstæðismanna hefur verið
unnið að því af framsýni og
dugnaði að skapa stöðugt
fleiri bæjarbúum þau lífs-
þægindi, sem hitáveitan veit-
ir. —
Takmarkið í hitaveitu-
málunum er, eins og Geir
Hallgrímsson sagði í ræðu
sinni, að allir Reykvíking-
ar verði sem fyrst aðnjót-
andi hitaveitunnar.
Hvað vitum v/ð um inflúensu?
INFLÚEN SUF AR ALDUR-
INN, sem nú geisar í Evrópu,
hefir ekki borizt hingað enn-
þá. Þó er varla úr vegi að
ræða ofurlítið um þennan
sjúkdóm hér í þættinum nú,
því að hann er mjög á dag-
skrá úti í heimi — og hver
veit nema hann eigi eftir að
Dr. Preben von Magnus
„heimsækja" okkur bráðlega
— þó.t við munum ekki bjóða
hann velkominn.
— ★ —
Yfirleitt þykir inflúensan, sem
nú gengur, væg. Þó hefir fólk
látizt hundruðum saman af völd
um hennar, t.d. í Frakklandi —
en einkum er það gamalt fólk og
lasburða, og munu það fremur
vera fylgikvillar inflúensunnar
en hún sjálf, sem orðið hefir
þessu fólki að aldurtila. — Lækn
ar telja yfirleitt, að veira sú,
sem veikinni veldur nú, sé sömu
tegundar og sú, er olli hinni
margumtöluðu Asíu-inflúensu
árið 1957 — aðeins er veikin
miklum mun vægari nú en þá.
• A, B og C veirur
En hvað vita menn raunveru-
lega um þennan sjúkdóm? munu
sjálfsagt ýmsir spyrja. — Danska
blaðið Berlingske Tidende beindi
einmitt þessari spurningu til
sérfróðs manns um daginn, dr.
Preben von Magnus, forstöðu-
manns hinnar svonefndu
„Serum-stofnunar rikisins" í
Danmörku. — Birtum við hér í
lauslegri þýðingu nokkuð af því,
sem blaðið hafði eftir dr. Magn-
us sem svar við spurningunni.
— Menn vita svo mikið um
inflúensuna, sagði dr. von Magn-
us, að við verðum að láta okkur
nægja að dvelja hér við fáein
atriði. Ekki af því, að neinu sé
að leyna, heldur vegna þess, að
hitt er varla fyrir aðra en sér-
fræðinga. —
.InSlúensu-sóttkveikjan fannst
í Englandi fyrir 25 árum, og er
nú ein þeirra veira sem mest er
um vitað. Miklar rannsóknir hafa
farið fram, enda auðvelt að
„rækta“ inflúensu-sóttkveikj una,
eða einangra hana, eins við einn-
ig tölum um. — Til eru allmarg-
ar mismunandi tegundir (typur)
af inflúensu-veirum, og oftast er
greint á milli sex, en þar af eru
þrjár — nefndar A, B og C —
sem eru hinar eiginlegu inflú-
ensuveirur.
• Spánska veikin
I ágætri samvinnu við WHO,
Heilbrigðisstofunu Sameinuðu
þjóðanna, hafa vísindamenn
smám saman öðlazt örugga þekk-
ingu á útbreyðslumöguleikum
sjúkdómsins. — Það er nú ljóst,
að sóttkveikjurnar geta borizt
' um heim allan, jafnvel sama veir
I an, án þess að um sé að ræða
I nokkrar verulega breytingu á
i eiginleikum og „uppbyggingu"
‘ sóttkveikjanna. Þetta kom skýrt
í ljós, er Asíu-inflúensan geisaði,
en hún hófst, eins og kunnugt er,
í Mongólíu og barst þaðan svo að
segja um allan heim.
Þegar veruleg inflúensa geisar,
spyr ávallt fjöldi manna, hvort
um sé að ræða sams konar far-
sótt eins og þær, sem gengu milli
1918 og 1920 og fólk nefndi
„Spánsku veikina". — Við vitum
í rauninni ekki, hvað gerðist 1918
því að þá voru inflúensusótt-
kveikjurnar ekki þekktar. Og
það er ekki til neins að vera að
deila um það, hvort það var sama
veiran, sem olli fyrri og síðari
faraldrinum 1918, eða hvort þar
var um að ræða tvær mismun-
andi „typur“. Já, eða hvort það
var í raun og veru inflúensu-
veira, sem olli þessum farsóttum.
— Og jafnlítið vitum við um
farsóttina árið 1920.
0 Þetta vitum við
Síðan ræddi dr. von Magnus
um þrjá síðustu inflúensufar-
aldra sem gengið hafa í Dan-
mörku, og sagði: — Ef við lítum
til áranna 1957—’59, þá vitum
við:
-m \ Að fyrra faraldrinum,
I | voriö 1957, otti veira,
/ sem var náskyld inflú-
ensuveirum, sem við
könnumst við frá árunum 1952
og 195 lf.
Hinn viðurkenndi,
danskj vísinda-
mabur, dr. Preben
von Magnus,
svarar spurningu
„Berlingske
Tidende"
\ Að pað var Asíuveiran
J svonefnda, sem olli síö-
/ ari faraldrinum, um
haustið 1957. Sú farsótt
rénaði smám saman í byrjun
árs 1958.
íJ \ Að inflúensan, sem kom
J I upp í febrúar 1959, var
/ ósícyld pessum tveim
fyrrnefndu farsóttum,
par sem pað var veira af
TEGUND B, sem olli henni, en
veirur pcer, sem ollu hinum
tveim, voru af TEGUND A.
Með öðrum orðum: Við vitum
með vissu, að hinar þrjár síðustu
inflúensufarsóttir hér í Dan-
mörku hafa verið af mismunandi
uppruna, og að Asíu-inflúensan
— ef hún á eftir að koma aftur
— hefir ekki sýnt sig á ný, enn
sem komið er a.m.k.
• Ein vörn — bóluefnl
Því næst ræðir dr. von Magnus
um það, að áður fyrr hafi oft
verið mjög erfitt að ákvarða,
hvort sjúklingur væri raunveru
lega með inflúensu eða ekki. Nú
sé tiltölulega auðvelt að ganga úr
skugga um slíkt með rannsókn.
Raunar sé þvílík rannsókn nokk
uð seinleg — en auðvelt að fram
kvæma hana, ef þörf gerist. —
— Þá minnist hann á það, að hin
svonefndu „antibiotisku1 lyf
(penicillin o.s.frv.) séu óvirk
gagnvart veirusjúkdómum. Aft-
ur á móti séu til efni, sem nefnd
séu „anti-virale“, og með þeim sé
hægt að hafa áhrif á vöxt og við
komu veiranna. Þetta hafi verið
gert í ýmsum tilraunum. En áður
en þessi efni fái raunhæfa þýð-
ingu, verði menn að fullvissa
sig um, að þau hafi engar óæski-
legar verkanir. Hvort svo sé,
hafi menn ekki enn getað gengið
úr skugga um. — Sem stendur
höfum við aðeins einn mögu-
leika til að berjast gegn inflú-
ensu og öðrum veiru-sjúkdóm-
um —- bóluefni, sagði hann. —■
Kvað hann nú vera til bóluefini,
sem veittu góða vörn gegn ýms-
um tegundum inflúensu.
• Vægur sjúkdómur
Það sé þó vafamál, hvort bólu-
setning við þessum sjúkdómi
borgi sig. í fyrsta lagi vegna
þess, að framleiðsla bóluefnisins
sé dýr. 1 öðru lagi sé erfitt að
framleiða það í svo miklu magni,
að hægt sé að bólusetja heilar
þjóðir, eða mikinn hluta lands
manna, í tæka tíð, þegar inflú-
ensufaraldur gýs upp. I þriðja
lagi sé því sem betur fer svo
varið, að inflúensa sé langoftast
vægur sjúkdómur, sem mönnum
batni yfirleitt af sjálfu sér við
það að liggja nokkra daga í rúm
inu.
• Ekki á morgun ....
— Ef ég ætti að draga saman i
fá orð, það sem ég hefi hér verið
að reyna að skýra frá, gæti ég
e.t.v. gert það þannig, sagði dr.
von Magnus:
-g \ Á síöari árum hafa orðið
I 1 verulegar framfarir i
/ veirurannsóknum, og má
segja, að pað eigi ekki
hvað sizt við um inflúensuna.
Cþ \ Öll skilyrði til pess að
J pekkja og greina sjúk-
/ dóminn eru nú miklu
betri en fyrrum, og
pekkingin á „byggingu“ sótt-
kveikjanna eykst stöðugt.
ty \ Menn hafa allvel rök-
Tþ J studdar vonir um, að
/ með tímanum verði fram
leidd kemisk efni til
LÆKNINGAR á inflúensu og
öðrum veirusjúkdómum.
Þannig lítur Asíu-inflúensu-
veiran út í rafeindasmásjá
— En, bætti dr. von Magnus
við, þar sem enginn skyldi vona,
að við getum veitt þeim, sem
sýkjast í næsta faraldri, aðra eða
betri læknismeðferð en hingað
til, virðist mér rétt að ég taki
það fram að lokum, að ég tel
ekki, að þetta framfaraskref, sem
ég minnist síðast á, verði stigið
á morgun ....