Morgunblaðið - 06.02.1960, Qupperneq 14
14
MORCUTS RLAÐIÐ
Laue'srrlíic'nr R f°Krúar 1960
Verksmiðjuvinna
Stúlka óskast til pökkunarstarfa. Uppl. hjá Ólafi
Hjartarsyni sími 24000.
KAFFIBRENNSLA
Ó. JOHNSON & KAABER H.F.
Endurnýjum
gömlu sœngurnar
Eigum dún og fiðurheld ver. Einnig æðardún og
gæsadún. — Fljót afgreiðsla.
Dún- og fiðurhreinsunin
Kirkjuteig 29 — Sími 33361.
Byggingasamvinnufélag
starfsmanna Reykjavíkurbæjar
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Skúlatúni 2,
mánudaginn 15. þ.m. kl. 17,30.
Dagskrá'
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Afgreiðslustúlku
vantar í sérverzlun hér í bænum, þarf að vera þjálf-
uð í starfinu, og ekki yngri en 20 ára. Mánaðarlaun
kr. 4000. — Umsóknir með nauðsynlegum upplýsing-
um sendist blaðinu merktar: „Sérverzlun — 9564“.
*
Ura- og skartgripaverzlun
á Akranesi til sölu. Verzlunin er á góðum stað
í bænum. Upplýsingar í síma 5 og 165 á Akranesi.
íbúð óskast
til leigu strax, helzt í Kópavogi. Upplýsingar
í síma 12556.
Svefnsófar
Hvílustólar, Sófasett, Sófaborð.
Nýjar gerðir. — Mjög hagstætt verð.
Húsgagnaverzlun ARNAR H. ARNARSSONAR
Laugaveg 42 — Frakkastígsmegin.
Þvottahúsið FÖNN tilkynnir:
Sérstök áherzla lögð á skyrtuþvott, svo sem man-
settskyrtur, sportskyrtur, vinnuskyrtur, kjólskyrt
og kjólvesti. — Festum á tölur. — Plastumbúðir.
Ennfremur allar tegundir sloppa og borðdúka.
Sé komið með skyrtur og sloppa fyrir kl. 11 að
morgni verður það afgreitt samdægurs.
Reynið viðskiptin og sannfærist.
1. flokks þjónusta í hvívettna.
SÆKJUM — SENDUM
FANNHVÍTAR SKYRTUR,
Þvottahiísii \m
Fjólugötu 19B. — Sími 17220.
„Frá heimi íagn
aðarerindisins44
Helgidagaræður. Nýtt safn.
Eftir Ásmund Guðmundsson.
Útgefandi ísafoldarprent-
smiðja. Reykjavík 1959.
„VIÐ birtuna og varmann frá
ljósi heimsins getur ísland orðið
sannnefnd Sólareyja“.
Þannig kemst Ásmundur Guð-
mundsson biskup að orði í helgi-
dagaræðum sínum hinum nýju,
og eru þessi orð táknræn fyrir
ræður hans og rit, og áhrif á ís-
lenzka kristni.
Hann var í kennslustarfi og
biskupsdómi búinn þeim her-
tygjum ljóssins, sem andlegum
forystumönnum hæfir. Því var
hann víðskyggn og sá vel til veg-
arins.
íslendingar hafa löngum kunn
að því illa að láta mata sig á skoð
unum eins og búfé við jötu. Jafn-
vel í kaþólskri tíð var kristni
íslands með sjálfstæðum svip og
tók ekki nema hæfilegt tillit til
fyrirskipana utan lands frá, enda
var þannig kveðið um einn hinn
kaþólskasta biskup, sem á íslandi
hefur lifað: Guðmund Arason:
Ræður Guðs laga greiðir
geðbjartur snöru hjarta,
hræðist himna prýði
hann, en vætki annað.
Það var fyrst eftir að allur
þróttur var skekinn úr þjóðinni,
sem hún lét einvaldskonunga
Dana fara að segja sér fyrir í
sáluhjálparefnum, og varð hald-
in svo mikilli vanmáttarkennd,
að hún taldi vist, að allt vær
réttara sem útlendir menn hug'
uðu en innlendir. Eldi lengi eftir
af þessari andlegu vesöld.
En upp úr siðustu aldamótum
gerðust röskir menn og andlega
vakandi kennarar í Prestaskól-
anum, eins og dr. Jón Helgason,
Haraldur Níelsson og Sigurður P.
Sívertssen, og tók þá heldur að
lifna yfir andlegu lífi í kirkjunni.
Þessir menn voru gæddir vísinda
legum hugsunarhætti og höfðu
næga einurð til að kveða upp úr
með skoðanir sínar. Auk þess
bættist hér við hinn brennandi
áhugi séra Haralds fyrir sálar-
rannsóknum. Tók þá að vora i
íslenzku kirkjulífi, og hlýir
straumar nýrrar sannleiksástar
og þekkingarfýstar sópuðu burt
hinum dauða og stirðnaða rét
trúnaði, sem hangið hafði á van-
anum einum saman.
Ásmundur Guðmundsson var
einn af gáfuðustu lærisveinum
þessara manna, hamhleypa til
náms og starfa. Hann skildi það
j snemma, að andlegt líf getur
| ekki þroskast nema í frelsi, og að
! ekki er unnt að þjóna Guði eftir
fyrirskipunum annarra. Eigi það
að vera gert með einhverjum
myndarskap, verður hver maður
að leggja fram það, sem hann á
dýrast í sál sinni: hollustu sína
við sannleikann, vit sitt og skiln-
ing. Þar sem annað hvort er lítið
til af þessu eða því er vikið til
hliðar af hjátrú, kemur falskur
tónn í guðsþjónustuna. Guði t
eigi annað boðlegt en fyllsta ein-
lægni.
Þessum sjónarmiðum hefur
hann alltaf verið trúr, og því var
hann hið bezta til foringja fallinn
í íslenzku kristnilífi, og áhrif
hans holl og vekjandi.
Ungur gerðist hann snjall og
vandlátur prédikari, eins og
ræðusafn hans hið fyrra: Frá
heimi fagnaðarerindisins, sem út
kom fyrir fjörutíu árum, ber
vitni um. Síðan liðu langir og
annamiklir tímar við háskóla-
kennslu, ritstjórn Kirkjuritsins,
og nú siðast biskupsembætti, þar
sem honum gafst tækifæri til að
gaumgæfa kenningar Krists með
ýtrustu nákvæmni, enda hefur
hann skrifað mörg skýringarrit
í kennslugrein sinni og ritað
merkar bækur, eins og t. d. Ævi
Jesú, sem innan skamms mun
koma út í enskri þýðingu. Er það
ein hin fegursta Krists-ævisaga,
sem ég hefi augum litið, og höf-
undinum til stórsóma. Má nærri
geta, hvílíkur undirbúningur það
er undir prédikunarstarf að hafa
þannig um áratugi rannsakað
helgiritin og brotið kenningar
þeirra til mergjar.
En enda þótt Ásmundur Guð-
mundsson sé orðinn lærður guð-
fræðingur, leggur hann meiri al-
úð við að flytja fagnaðarerindi
Krists en leiða lærisveina sína og
kristni landsins um myrkvan og
villugjarnan við guðfræðilegra
heilabrota. Telur hann það mikil-
vægara að leitast við „að sjá
Jesú einan", hugsa um dýrlega
vizku hans, dæmisögur og for-
dæmi, en setja of mikið traust
á misvitra guðfræðinga liðinna
alda, sem stundum líkjast mest
skýinu, er huldi drottin sjónum
manna.
Ræðurnar í þessu safni munu
flestar vera frá biskupsárum
hans. Þær eru þrungnar hugsun
og mannviti, ritaðar á hreinni og
blæfagurri íslenzku, og segja
þjóðinni hiklaust til vegar á
hættulegum tímum. Höfundur-
inn stendur föstum fótum í jarð-
vegi íslenzkra bókmennta að
fornu og nýju, og grípur iðulega
til dýrgripa tungunnar, fagurra
ljóða, til að gjöra ræðu sína eftir
minnilegri, enda glöggskyggn
Enskur bíll
Ford Zephyr árgangur 1958 ekinn 21 þ. km. með
útvarpi til sölu. Upplýsingar í síma 22235.
NÝTT LEIKHÚS
Söngleikurinn
Rjúkondi láð
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðasala frá kl. 2—6
í dag. — Simi 22643.
Næst síðasta sýning.
NÝTT LEIKHÚS
Ásmundur Guðmundsson.
á fagran skáldskap. En um
fram allt er þó birta
og mildi yfir allri kenningu
hans, eins og jafnan verður hjá
víðsýnum og frjálshuga mönnum.
Kemur þetta hvað skýrast í ljós
í ræðu þeirri, er hann flutti, er
hann vígði eftirmann sinn í bisk-
upsembættinu, en þá kemst hann
þannig að orði:
„Frelsi hefur löngum um ald-
irnar verið höfuðeinkenni á
kirkju íslandk Kom það snemma
fram hjá. íslendingum, að þeir
vildu trúa því og fylgja því, sem
heilagur andi blés þeim í brjóst
að væri satt og rétt, og hafa það
að leiðarstjörnu. En þeir hafa
lítt hirt um, að á þá væri lagt
ánauðarok bókstafs og kennisetn
inga manna. Þeim hefur skilizt,
að Kristur vill ríkja yfir frjálsum
mönnum, og þar sem andi hans
er, þar er frelsi, því að manns-
sálin er þannig stillt af skapara
hennar og föður, að fagnaðar-
erindi Krists megi snerta alla
dýpstu strengi hennar .... Vér
viljum setja sannleikann hátt í
trausti þess, að sannleikurinn
gjöri oss frjálsa."
Hér er talað í anda Oddaverja
og þeirra lærdómsmanna, sem
hæst hafa borið höfuðið með
vorri þjóð. Ræður hins fyrrver-
andi biskups íslands eru góð og
fögur gjöf til íslenzku þjóðarinn-
ar. Megi hún njóta vel og eign
ast sem flesta andlega forystu-
menn honum líka.
Benjamin Kristjánsson.
! Rúðstefnn um
! forgjöld
ALÞJÓÐASAMBAND flugfélaga
(IATA) hefur boðað til ráðstefnu
í París 23. þ.m. í þeim tilgangi
að ná samkomulagi um fargjöld
á þeim flugleiðum, sem IATA-
ráðstefnan í Honolulu gat ekki
leitt til lykta. Hinn 31. marz
rennur út samkomulag félaganna
um fargjöld og ber þrýna nauð-
syn til að gera nýja fargjalda-
skrá til þess að forða beinu far-
gjaldastríði á ýmsum höfuðleið-
um. Hér er m. a. um að ræða
gjöld á Norður og Mið-Atlants-
hafsleiðunum, milli Evrópu og
Afríku, til Austurlanda og A-
Indía. Flugfélag íslands er aðili
að IATA, en ekki er ákveðið
hvort það sendir fulltrúa.
Sigurður Olason
Hæstaréttarlbg.oaóur
Þorvaldur Lúðvíksson
Héraðsdómslögniaður
Málfl utning'sskr i f siof a
I Austurstræti 14. Simi 1-55-35