Morgunblaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.02.1960, Blaðsíða 15
Laugardae;ur 6. febrúar 1960 McntcTiNTiT4niÐ 15 UNDANFARIÐ hafa komið fram í dagblöðum allmikil skrif um þörf Matsveina- og veitingaþjónaskólans fyrir auk- ið húsnæði, og langar mig a aðleggja þar orð í belg. Þetta virðist eiga rót sína að rekja til þarfar eins ágæts veit- ingamanns hér í bæ til að losna við veitingastað, sem að vísu er nýbyggður, en þó í húsnæði, sem byggt var sem verzlunarhús. — Áður en lengra er farið vil ég taka fram, að ég hefi hans orð fyrir þörfinni, sbr. Mbl. 31. jan. þ. á., og að ég er þeirrar skoðunar, að þörf sé aukins gisti rýmis hér, en að því kem ég síðar. Matsveina- og veitingaþjóna- skólinn er stofnaður samkvæmt lögum nr. 82/1947, en reglugerð fyrir skólann var sett 1956. Skal hann starfa aðallega í tveimur deildum, það er 1) til sveinsprófs í matreiðslu, og 2) til sveinsprófs í framreiðslu. Skulu þessar deild ir vera þriggja ára og starfa fjóra mánuði á ári að bóklegri og verklegri kennslu, en að öðru leyti fer námið fram hjá meist- urum í iðninni á veitingahúsum eða farþegaskipum. Auk þess skal skólinn starfa í tveimur námskeiðadeildum, þ. e. 1) tvö fjögurra mánaða námskeið til prófs fyrir matreiðslumenn á fiskiskipum, og 2) námskeiða- deild fyrir þá, sem lokið hafa prófi frá skólanum í matreiðslu og framreiðslu, svo og aðra, sem starfa við gistihús eða veitingahús. Það er tekið fram, að í verklegum námsgrein- um mega að jafnaði ekki vera fleiri en 20 í hverri deild. Lög um skólann eru sniðin eft- ir norrænni löggjöf um iðn- fræðslu, eins og yfirleitt öll okk- ar iðnfræðsla, þ. e..verklegt nám undir stjórn meistara, en bóklegt og verklegt nám í skóla nokkra mánuði á ári yfir námstímabilið, sem venjulega er þrjú til fjögur ár. Þó að Matsveina- og veitinga- þjónaskóli okkar sé ekki gamall. eis og sjá má af framangreindu, hefir hann getið sér góðan orðs- tír undir stjórn hins dugmikla skólastjóra, sem er ágætlega menntaður í sinni grein auk þess að vera á réttri hillu. Skólinn á að geta útskrifað 40 matsveina og þjóna árlega. Hvort þetta verður nægileg aukning í þess- um iðngreinum í framtíðinni fer eftir þróun veitingamálanna í landinu, en eins og er, ætti þetta að nægja. í viðtali við skólastjórann í Mbl. kemur fram, að hann álítur þörf fyrir skólann að starfrækja veitingahús svo að nemendur öðl ist meiri verklega þjálfun en nú gerist í skólanum, og, að mér skilst, að allt iðnnámið fari fram í skólanum. Víða um lönd eru viðurkenndir skólar, þar sem menn geta lært þessar iðngrein- ar að öllu leyti, en það eru oftast dýrir einkaskólar. Ef ríkisvaldið ætti að hafa frekari afskipti af þessum málum en gert er ri fyrir í skólalögunum, væri það helzt á þann hátt að gera ný- sveinum kleift, með lánum og styrkjum, að fara utan og starfa á fyrsta flokks veitingahúsum um einhvern tíma. Persónulega álít ég, að skólastjór„r opinberra skóla ættu ekki að vasast of mikið í viðskiptamálum og alls ekki að gera skólana að áhættusömum viðskiptafyrir- tækjum. Annað mál er, og vel athugandi, að heimila ei staklingum, er áhuga hafa á, að stofna til slíkra skóla. Mér er sagt, að í húsi Sjómannaskólans, en þar er m. a. Matsveina- og veit ingaþjónaskólinn, séu að jafn- aði 260—280 nemendur. Þe eru „hetjur hafsins“, og skyldu þeir ekki mega fá veizludúkuð borð og mat öðru hverju, þeir gætu fengið mislitt vatn í stað víns. Auðvitað allt fyrir lítinn pening. Það er flestra skoðun, að hér sé þörf fleiri gistihúsa, og er ég þeim sammála. Þegar taiað er um gistiherbergjaskort í höfuðborg- inni, miðað Við fyrri tíma, láist flestum að gæta þess, að h. u. b. helmingur landsmanna er fluttur hingað á suð-vesturkjálkann, margir nýlega, með aðstoð for- eldra og annars heimafólks, og er því gjörbreytt viðhorf, hvað snertir þörf fólks annars staðar af landsbyggðinni fyrir gistihús hér í höfúðstaðnum. Undanfarið hefur berbergjanýting í gisti- húsum hér í bænum verið 85— 90% miðað við árið .Er það mjög hár hundraðshluti á „heimsmæli kvarða", en nýtingin er verst yfir sumarmánuðina, þegar sum- argistihúsin eru starfrækt. Þetta sýnir, að sem „ferðamannaland“ erum við illa á vegi staddir. Mér skilst, að Búnaðarfélag fs- lands hafi í stórhýsi sínu við Hagatorg gert ráð fyrir 70—75 gistiherbergjum. Eiga þau að vera með öllum nýtízku þægind- um og húsið að öðru leyti mjög miðað við þarfir hótelgesta. — Þessa bygging er staðreynd, það er búið að steypa hana upp að miklu leyti. Það hefur margur hlegið að framtakssemi okkar íslendinga, en sem betur fer mest við sjálf- ir. Einhver útlendingur sagði nýlega, að það væri ágætt að verzla við menn, sem keyptu togara í tylftum og alla af sömu gerð. Ef gistihúsarekstur á að vera þjóðinni atvinnuvegur á borð . við útflutningsatvinnuveg- ina og flugið, þurfum við að gjör breyta áróðri erlendis bg að- stöðu innanlands. Vonandi rís hið ný-fyrirhugaða gistihús upp í fyllingu tímans. Um staðarvalið má deila, en ég tel, að meðan ekki er aðstaða til að taka á móti erlendum gest- um úti um land á öllum árstím- um, þyrfti þetta gistihús að hafa upp á eitthvað sérstakt að bjóða fyrir útlendinga. Ég hefi oft hugsað um það, þegar ég hefi á fögrum dögum verið staddur á Öskjuhlíðinni, hve dásamlegt gistihússtæði væri vestan við „Beneventum", þar sem sér suð- ur og norður yfir. Þar mætti reisa gistihús, sem hefði þá kosti allt árið um kring, sem erlendir ferða menn kjósa að njóta. 3. febr. 1960. Karl Kristinsson. Biidge-keppni Heimdallar EFTIR 2 umferðir í bridgekeppni Heimdallar er staðan þannig: 1. Gunnlaugur og Jó- hann 173,5 2.—3. Óskar og Halldór 173 2.—3. Asgeir og Hreinn 173 4. Bjarnar og Þröstur 170,5 5. Hámundur og Jónas 164,5 6. Bernharður og Torfi 158,5 7.-8. Sigurður og Ólöf 157 7.—8. Kristján og Friðjón 157 9. Iris og Anna 151 * 10. Magnús og Einar 150,5 11. Gunnar og Gunnar J 148 12. Elías og Gunnar 143,5 13. Ólafur og Grétar 142 14. Skúli og Valur 122 Þriðja og síðasta umferð verð- ur spiluð í Valhöll nk. mánudag, h. 8. febrúar, og hefst kl. 8. Bækur Scotts WASHINGTON, 1. febrúar — Vísindaleiðangur hefur fundið eina af bækistöðvum Scott-Ieið- angursins á Suðurheimskauta- landinu. óÞar fundust m. a. bæk- ur, tóbaksbirgðir o. fl., allt eins og skilið hefði verið við það i gær. Maðurinn á þessum myndum hefur verið mállaus í þrjú ár, en sézt hér vera að þylja brezku barnaþuluna „Mary had a little Iamb“ hárri og skýrri rödd. Maðurinn heitir Alfred Glass og er 63 ára. — Fyrir þrem árum var hann skorinn upp og tekin úr hon- um raddböndin. Bjargaði það lífi hans, en síðan hefur hann ekki getað talað, þar til á mánudaginn. Hina nýju rödd sína á hann að þakka Lionel nokkrum Fothergill, sem hefur fram- leitt tæki sem gerir mönnum, sem áður hafa getað talað, en misst röddina vegna lömunar, uppskurðar eða vegna sálar- sýki, kleift að tala aftur. Fyrsta tilraunin með þetta nýja tæki var gerð á mánu- daginn. Alfreð Glass hélt „vibrator“ að hálsinum og tal- aði í Y-laga pípu, og úr hátal- aranum á borðinu hljómaði hin löngu týnda rödd hans sjálfs, sem ekki hafði heyrzt í þrjú ár. Fothergill uppfingamaður vinnur nú að því að fram- Ieiða smækkaða útgáfu af tal- vél sinni, og verður hún ekki mikið stærri en lítil ljós- myndavél. Ástæðan fyrir því að Alfred Glass þuldi einmitt þessa þekktu brezku barnaþulu er sú, að þulan á merkilega sögu. Edison notaði hana nefnilega til að lesa inn á fyrstu hljóm- plötuna. Karl Kristinsson: Leysir Lido vandann?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.