Morgunblaðið - 06.02.1960, Side 20

Morgunblaðið - 06.02.1960, Side 20
20 M O R C TJ 1\ tt L A Ð1Ð Laugardagur 6. febrúar 1960 augnabliki heyrði ég suðið í henni á leið niður og ég stóð einn eftir innan um brotna bolla og aðra hluti, sem lágu dreifðir út um allar svalirnar, líkast þvi sem eldingu hefði skyndilega slegið niður úr heiðskíru loft- 'nu og tvístrað þeim í allar áttir. Ég veit ekki hve lengi ég stóð þama gersamlega úrræðalaus og furðu lostinn eftir það sem gerzt hafði. Hvað hafði ég sagt sem var svona heimskulegt? Hvernig hafði ég vakið þessa óskiljanlegu oísareiði stúlkunnar? En nú heyrði ég sama suðið í fjarska. Lyftan var að koma upp aftur. Josef kom aftur í Ijós með undarlegan sorgarsvip á nauð- rökuðu andlitinu. Ég þóttist vita að hann kæmi einungis til að hreinsa til og fjarlægja það sem brotnað hafði. En hann gekk beint til mín, hljóðlega og niður- lútur, eins og hann vildi ekki eða þyrði ekki að horfa á mig. „Afsakið, hr. liðsforingi", sagði hann í hálfum hljóðum og hneigði sig lítillega. — „Leyfið mér að þurrka af fötunum yð- ar“. Nú fyrst veitti ég því athygli að það voru stórir, blautir flekk- ir bæði á frakkanum mínum og Ijósu sumarbuxunum. Þegar ég laut niður, til þess að verja Edith falli, hafði bersýnilega innihald eins tebollans, sem hún velti um koll í fallinu, skvetzt á mig. Meðan Josef lá á hnjánum og nuddaði flekkina með hvítu þurrkunni sinni, horfði ég nið- ur á hið gamla, gráhærða höfuð hans og sá grunur læddist að mér, að gamli maðurinn væri svona niðurlútur af ásettu ráði, til þess að ég sæi ekki óttasvip- inn á andliti hans og áhyggju- fullt augnaráðið. „Nei, þetta dugir ekki“, sagði hann loks, döprum rómi og án þess að lita upp. — „Ég ætti lík- lega heldur að senda bifreiðar- stjórann til herbúðanna að sækja frakka handa hr. liðsforingjan- um. Hr. liðsforinginn getur ekki farið út í þessum frakka. En hr. liðsforingjanum er alveg óhætt að treysta því, að þetta verður allt orðið þurrt eftir eina klukku stund og buxurnar skal ég pressa vel og vandlega". Hann sagði þetta eins og ekkert væri sjálfsagðara eða eðlilegra, en það var einhver hluttekning- arhreimur í rómnum, sem kom upp um samúð hans og ótta. Og þegar ég fullyrti, að slíkt væri alger óþarfi og að ég vildi miklu heldur að hann hringdi eftir bifreið fyrir mig, þar sem ég ætl aði hvort sem væri beint heim, ræskti hann sig snögglega og leit á mig, góðlegum og örlítið þreytulegum bænaraugum. „Vill ekki hr. liðsforinginn vera svo góður að dvelja hér ör- lítið lengur? Það væri hræðilegt ef hr. liðsforinginn færi núna undir eins. Ég veit fyrir víst að náðug ungfrúin yrði voðalega æst, ef hr. liðsforinginn biði ekki svolítið lengur. Ungfrú Ilona er hjá henni núna .. og .. er bú- in að koma henni í rúmið. En ungfrú Ilona bað mig að segja, að hún myndi koma rétt strax og að henni þætti mjög vænt um ef hr. liðsforinginn vildi bíða eftir sér“. Ég gat ekki annað en komizt við. En hvað þau elskuðu öll þessa veiku stúlku. Hvað þau hlúðu öll að henni og afsökuðu hana. Ég fann allt í einu sterka löngun hjá mér til að segja eitt- hvað vingjarnlegt, eitt hvað hug hreystandi, við þennan gamla, góða mann, og þess vegna klapp- aði ég honum létt á öxlina: „Látið þér þetta bara vera, kæri Josef. Þetta gerir hvorki til né frá. Það þornar strax í sól- skininu og við skulum vona, að teið yðar sé ekki svo sterkt, að það skilji eftir sig bletti. Látið þér það bara vera Josef og hreins ið heldur brotin af gólfinu. Ég skal bíða þangað til ungfrú Ilona kemur". „Oh, það er sannarlega fallega gert af hr. liðsforingjanum að bíða“. Gamli maðurinn andvarp aði beinlínis af hugarlétti. „Og hr. von Kekesfalva kemur líka bráðlega og honum þykir áreið- anlega vænt um að sjá hr. liðs- foringjann. Hann bað mig alveg sérstaklega að.... “ Hann lauk ekki við setninguna því að nú heyrðist Xétt fótatak í stiganum. Það var Ilona. — Hún horfði líka niður fyrir sig, alveg eins og Josef hafði gert, þegar hún kom til mín. „Edith bað mig að spyrja, hvort þér vilduð vera svo góður að koma niður í svefnhejrbergið hennar sem snöggvast. Bara sem allra snöggvast. Hún sagði að þér mynduð gera sér mjög mik- inn greiða með því“. Við gengum saman niður snúna stigann, í gegnum viðhafn arstofuna og litlu setustofuna og inn á langan gang, sem bersýni- lega lá að svefnherbergi Ediths. Öðru hverju snertust axlir okk- ar í dimma, þrönga ganginum, kannske af tilviljun, eða vegna þess hvað ég var æstur og eft- irvæntingarfullur. Loks stað- næmdist Ilona fyrir framan her- bergisdyr innst í ganginum. „Þér megið til með að vera góð ur við hana og nærgætinn“, hvíslaði hún með ákafa. „Ég veit ekki hvað kom fyrir þarna uppi áðan, en ég þekki þessi skyndilegu ofsaköst hennar. Við þekkjum þau öll. En þér megið ekki dæma hana hart fyrir þau. Það er ekki hægt fyrir heilbrigt fólk, eins og okkur, að gera sér í hugarlund hvað það þýðir, að verða að liggja svona frá morgni til kvölds, dag eftir dag og ár eft ir ár, eins og hún. Hún byrgir þetta allt inni, en stundum verð ur það að fá útrás, án þess acl hún viti af því, eða ætlist til þess. Þér megið trúa því, að eng in er óhamingjusamari en hún sjálf á eftir. Það er einmitt þá þegar hún kvelst svo af blygð- un og iðrun, sem maður verður að vera henni enn betri og nær- gætnari en endranær“. Ég svaraði ekki, Það var held ur ekki nauðsynlegt. Ilona hlýt- ur að hafa veitt því athygli, hvað ég var miður mín og vandræða- legur. Hún drap hægt og varlega á dyrnar og hvíslaði um leið: — „Þér skulið ekki stanza lengi. Bara andartak". Ég ýtti á hurðina, sem opnað- ist hægt og alveg hljóðlaust. I fyrstu gat ég ekki greint neitt í hinu stóra herbergi, nema rauð- leitt rökkrið, því að ljósrauðu tjöldin voru alveg dregin fyrir gluggana og það var ekki fyrr en eftir nokkra stund sem ég sá móta fyrir útlínum rúmsins. „Komið þér hérna og fáið yð- ur sæti. Á stólnum þarna. Ég skal ekki tefja yður nema eitt andartak". Ég gekk inn að rúminu. Það rétt aðeins glitti í lítið andlit á koddanum, í dökkri umgerð af hári. Útsaumuðu blómin á ljósa sængurverinu náðu alveg upp að granna, barnslega hálsinum. — Edith beið með eftirvæntingu, næstum ótta, eftir því að ég sett- ist. Þá fyrst þorði hún að tala. „Þér verðið að fyrirgefa, að ég skuli taka á móti yður hérna“, sagði hún feimnislega — „en ég var eitthvað svo máttfarin...... Ég hefði ekki átt að liggja svona lengi úti í þessu sterka sólskini .. það hefur alltaf slæm áhrif á höfuðið á mér. .. Ég held næst- um að ég hafi ekki verið alveg með sjálfri mér, þegar ég .. en .. þér ætlið að gleyma því öllu, er það ekki? Þér ætlið ekki að vera móðgaður við mig, þó að .. þó að ég léti svona áðan, er það? “ Það var svo átakanlegur bæn- arhreimur í röddinni, að ég flýtti mér að grípa fram í fyrir henni: „Hvað eruð þér eiginlega að hugsa? .. Það var ég sem átti alla sökina. .. Ég hefði auðvitað ekki átt að leyfa yður að vera svona lengi úti í hitanum.. “ . „Þér eruð þá raunverulega ekki .. raunverulega ekki neitt móðgaður við mig?“ „Ekki vitund“. „Og þér ætlið að koma aftur .. alveg eins og áður?“ „Já, alveg eins. En þó með einu skilyrði". „Hvaða skilyrði?" spurði hún áhyggjufull. „Að þér treystið mér betur eft irleiðis og hættið þessum sífellda ótta um, að þér hafið þreytt eða móðgað mig. Hver hefur heyrt slíka vitleysu milli vina? Ef þér vissuð bara hvað þér lítið betur út, þegar þér eruð glöð og ókvíð- in og hvað þér gerið okkur öll hamingjusöm með því, föður yð- ar, Ilonu, mig sjálfan og allt heimilisfóíkið. Ég vildi bara að þér hefðuð getað séð sjálfa yður um daginn, í ferðalaginu. — Þér voruð svo kát og við vorum öll svo ánægð. — Ég gat ekki um annað hugsað allt kvöldið". „Hugsuðuð þér um mig allt kvöldið?“ Hún leit til mín dálít- ið efandi. — „Er það nú alveg satt?“ „Já, allt kvöldið. Það var skemmtilegur dagur. Ég mun aldrei gleyma honum. Ferðin var alveg dásamleg, dásamleg“. „Já“, sagði hún dreymandi. — „Hún var dásamleg .. dásamleg. Fyrst ökuferðin um sveitina og svo brúðkaupsveizslan í þorpinu .. það var allt dásamlegt frá upphafi til enda. Oh, það væri gaman að fara oftar slíkar öku- ferðir. Það er kannske þessarri heimskulegu inniveru, þessari fangavist minni að kenna, hvað ég er alltaf niðurdregin. Én þér hafið alveg rétt fyrir yður, ég er alltaf of tortryggin .. það er að segja, ég hef verið það siðan veikindi mín byrjuðu. Áður man ég ekki eftir því að ég væri hrædd við neinn eða neitt. Það er bara síðan ég veiktist sem ég hef verið svona hræðilega óviss og óörugg með sjálfa mig. .. Ég ímynda mér alltaf að allir séu að stara á hækjurnar mínar, að allir aumki mig og vorkenni mér. .. Ég veit hvað þetta er bjánalegt. Ég veit auðvitað að þetta er bara heimskulegt og barnalegt stolt. En hvernig get- ur maður verið annað en tor- tryggin, þegar allt er eins og það er? Og bara að þetta gæti tekið einhvern enda, svo að ég þyrfti ekki lengur að vera svona vond, svona andstyggileg og geð- ill“. „En nú fer það líka að taka enda, innan skamms. Þér verðið bara að sýna hugrekki, hugrekki og þolinmæði, svolítið lengur“. Hún reisti sig hægt upp á oln- bogann: „Haldið þér, haldið þér í hreinskilni, að þessi nýja aðferð muni raunverulega lækna mig? .. I fyrradag, þegar pabbi kom upp í herbergi til mín, var ég alveg viss um það. .. En í gær- kveldi, ég veit ekki hvers vegna, varð ég skyndilega hrædd um að dr. Condor hefði skjátlast og, að hann hefði sagt mér eitthvað, sem ekki væri satt. .. Einu sinni treysti ég dr. Condor, eins og guði sjálfum. En það er alltaf sama sagan. .. Fyrst athugar læknirinn sjúklinginn, en þegar tímar líða, fer sjúklingurinn að athuga lækninn og í gær — en ég myndi engum segja það öðr- um en yður — í gær, þegar hann var að skoða mig, virtist mér, einu sinni eða tvisvar, eins og hann væri að reyna að kasta ryki í augun á mér .. að allt þetta væru tóm látalæti og ekkert ann að. .. Mér virtist hann vera svo ......gparió yður hlaup & taÍUi maj-grn verzlcuia! dÓftUÚÖL ÁWIUM HííXJM! - Ausfcurstræti 3|tltvarpiö Laugardagur 6. febrúar 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik- ar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón- leikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50 Oskalög sjúklinga (Bryndís Sig- urjónsdóttir). 14.00 Laugardagslögin. — (16.00 Frétt- ir og veðurfregnir. 17.00 Bridgeþáttur (Eiríkur Baldvins- son). 17.20 Skákþáttur (Baldur Möller). 18.00 Tómstundaþáttur barna og ung- linga (Jón Pálsson). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Utvarpssaga barnanna: „Mamma skilur allt“ eftir Stefán Jónsson; IV. (Höfundur les). 18.55 Frægir söngvarar: Heinrich Schlusnus syngur. 19.35 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Leikrit: „Erindi herra Pim“ eftir Alan Alexander Milne, í þýð- ingu Maríu Thorsteinson. — Leik- stjóri: Valur Gíslason. Leikendur: Þorsteinn O. Stephensen, Guð- björg Þorbjarnardóttir, Bryndís Pétursdóttir, Steindór Hjörleifs- son, Indriði Waage, l>óra Borg og Nína Sveinsdóttir. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög. — 24.00 Dagskrárlok. Skáldið oc| mamma litla 1) Rúna mín, halló elskan! Upp- skriftin, sem þú gafst mér var dá- samleg .... ég fór nákvæmlega eftir 3) .... og nú hefur maðurinn minn boðið mér út að borða! Líf Baldurs er í hættu Sús-1 En líf okkar allra er í hættu ef anna. Við verðum að nota þennan þið notið þetta merkjaflagg. gula klút í umbúðir. I Merkjaflagg! Hvað áttu við? Það er eina leið okkar út úr þessum ógöngum. Ég ber ábyrgð á öllum þei mvandræðum er við höfum lent í, Markús.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.