Morgunblaðið - 02.03.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.03.1960, Blaðsíða 2
2 MORGUN BLAÐIÐ Miðvilcudagur 2. marz 1960 SnUið frá dfærunni Hagnýtum framtakið og aukum framleiðsluna FRAMSÓKNARMENN stagl- ast á því daglega, að Ólafur Thors hafi upplýst í áramóta- ræðu sinni, að ekki þyrfti að afla meira en 250 millj. kr. nýrra tekna til þess að halda atvinnuvegunurn í gangi með uppbótakerfinu enn eitt ár til. • Ennþá lengra út í fenið. Þetta er að vissu leyti rétt. En Ólafur Thors sagði meira. Hann benti á það, að ef þessi leið yrði farin áfram, þá myndi þjóðin vaða enn lengra út í verðbólgufenið og þá yrði ennþá erfiðara að snúa við á rétta braut síðar. Hann benti einnig á það, að 250 millj. kr. nýir skattar á almenning þýða 5—6% kjaraskerðingu. Verst væri þó það, sagði Ólafur Thors, að með framlengingu styrkja- og uppbótakerfisins í eitt ár enn, væri viðreisnin gerð erfiðari og þrautafyllri. • Snúið við Þegar á þetta er litið, þarf það ekki að sæta neinni furðu, þó að ríkisstjórnin veldi ekki áframhaldandi uppbótakerfi og vildi ekki bera ábyrgð á því að leiða þjóðina lengra út í verðbólguöngþveitið. Hún tók þann kost, sem sýndi miklu meiri manndóm og raunsæi, að hverfa frá upp- bótakerfinu, segja þjóðinni sannleikann og snúa inn á nýjar og heillavænlegri braut ir. Og það er athyglisvert, að sú leið, sem ríkisstjórnin hef- ur farið til viðreisnar, þýðir að meðaltali aðeins 3% kjara skerðingu. Þó er gert ráð fyr- ir því, að efnaminnsta fólkið í þjóðfélaginu, aldrað fólk, sjúklingar, öryrkjar og fjöl- mennar barnafjölskyldur beri sama eða svipað úr býtum og áður. Til þess að hindra kjara skerðingu þessa fólks, hefur ríkisstjórnin beitt sér fyrir stórfelldri hækkun á bótum almannatrygginga, auknum f jölskyldubótum og lækkun skatta. * Hlutur sparifjáreigenda réttur. Þá hefur ríkisstjómin gert ráðstafanir til þess að rétta hlut sparif járeigenda og skapa jafnhliða jafnvægi í efna- hagsmálum þjóðarinnar. t stað hafta og uppbótakerfis- ins kemur nú aukið viðskipta frelsi og heilbrigðari viðskipta hættir. Þegar hið nýja efna- hagskerfi er komið í fram- kvæmd eiga íslendingar ekki að þurfa að sækja um leyfi til að lifa til hundrað nefnda og ráða. Þjóðin getur þá hagnýtt framtak sitt, hugkvæmni og dugnað til þess að auka fram ^ leiðsluna og gera rekstur at- vinnutækja sinna hagkvæm- ari og heilbrigðari. UM ÞESSAR mundir stendur yfir í Bogasal Þjóðminjasafnsins málverkasýning bandaríska mál- arahs Ponzi, en hann hefur sezt að hér á landi og er kvæntur Guðrúnu Tómasdóttur söng- konu. Á sýningunni eru 30 málverk og er þeirra á meðal aílmargt landslagsmálverka frá íslandi. Sýningin var opnuð á laugardag- inn og var aðsókn mjög góð yfir helgina. Hafa 7 málverk þegar seizt. Ve: ður sýningin fram yfir næstu helgi og er opin daglega frá kl. 11 árdegis til 10 síðdegis. Á myndinni sem hér fylgir sést málarinn Ponzi hjá málverki sínu frá Dimmuborgum, sem vakið hefur einna mesta athygli á sýningunni. Útsvör og jaröasala Frá Alþingi 1 GÆR voru stuttir fundir í Al- þingi. Eitt mál var á dagskrá efri deildar, frv. til laga um út- svör. Var það til 3. umr. og af- greitt sem lög. Fela lögin í sér að ráðherra getur heimilað Ölafs víkurhreppi að framkvæma fyr- ir febrúarlok 1960 niðurjöfnun útsvara, sem fram átti að fara 1959. Eru lögin samhljóða bráða- birgðalögum, sem fyrr voru út Sir Farndale ter ekki FISHING NEWS segir, að nú sé útilokað, að Sir Farndale Phillips, forseti samhands brezkra togaraeigenda, geti sótt Genfar-ráðstefnuna, vegna veikinda. Hann var skorinn upp í ársbyrjun og hefur ekki náð sér eftir það. Brezku togaraeigendumir fá að tilnefna einn mann í sendi- nefnd Breta á ráðstefnunni og verður hann J. R. Cobley frá Grimsby, varaforseti sambands togaraeigenda. Þá er einnig upplýst að Peter Henderson, ritari fiskimanna- deildar hins hrezka sambands flutningaverkamanna, hafi verið skipaður í brezku sendinefndina. Dagskrá Alþingis í DAG er boðaður fundur í sam- einuðu Alþingi kl. 1,30. Þrettán mál eru á dagskrá. 1. Fyrirsp.: Björgunartæki. Ein umr. 2. Dvalarheimili í heima- vistarskólum, þáltill. — Hvernig ræða skuli. 3. Jarðboranir í Krýsuvik og á Reykjanesi, þál,- till. Ein umr. 4 Hagnýting far- skipaflotans, þáltill. Ein umr. 5. Fiskiveiðasjóður íslands, þáltill. Ein umr. 6. Siglufjarðarvegur, þáltill. Ein umr. 7. Samstarfs- nefndir launþega og vinnuveit- enda, þáltill. Ein umr. 8. Raf- orkumál, þáltill. Ein umr. 9. Þjóð háttasaga Islendinga, þáltill. — Fyrri umr. 10. Bústofnslánadeild þáltill. Fyrri umr. 11. Fjarskipta stöðvar í íslenzkum skipum, þál tiU. Ein umr. 12. Lögreglumenn, þáltill. Ein umr. 13. Rafmagn á 4 bæi í Húnavatnssýslu. þáltill. Fyrri umr. gefin vegna þess, að í Ölafsvík- urhreppi gleymdist að leggja á útsvör á fyrra ári. • Njassamenn látnir lausir BLANTYRE, Njassalandi, 1. marz. — Síöustu tvær vikurnar hefur 51 meðlimur þjóðþingsins í Njassalandi verið leystur úr haldi. Enn eru því 221 I haldi Njassalandi, en um 1.300 Njassa- menn voru fangelsaðir þegar neyðarástandinu var lýst yfir á síðasta ári. Gífurleg kjörsókn við prestskosn- mgar SAUÐARKRÓKUR, 1. marz. — Á sunnudaginn fór fram hér 1 Sauðárkróksprestakalli prest- kosning. Kosið var hér í bæn- um og að Ríp í Hegranesi, sem nú hefur verið sameinað Sauðár- króksprestakalli. Hófst kosning- in klukkan 1 síðdegis á simnu- daginn og varð lokið rétt fyrir klukkan 10 um kvöldið hér í bænum, en hafði skömmu áður verið lokið að Ríp. Tveir prestar voru í kjöri, þeir séra Jónas Gíslason Vík í Mýrdal og Þórir Stephensen Hvoli í Dölum. Kjör sókn var mjög mikil við kosn- ingar þessar og varð hún yfir 80%. I Hegranesi höfðu allir kos- ið, sem það gátu, að einum und- anskildum. Úrslit gætu orðið kunn xnn helgina, en atkvæðin verður að senda alla leið til Reykjavíkur og telja í biskupsstofu. — Guðjón. Villfáhitaveitu í húsið FLUGMÁLASTJÖRI hefur skrif- að bæjaryfirvöldunum bréf út af því að hann vill fá lögn frá hita- veitunni að hinu nýja flugstöðv- arhúsi á Reykjavíkurflugvelli. A fcæjarráðsfundi á föstudaginn var samþybkt að vísa þessu evindt til hitaveitustjóra og hitaveitu nefndar. Eitt mál var tekið til umræðu í neðri deild, frv. um heimild til að selja ábúendum tvær jarðir í Austur-Húnavatnssýslu. Flytur Jón Pálmason frv. þetta og talaði fyrir því, en það var til 1. umr. Auk hans tóku til máls Skúli Guðmundsson og Björn Pálsson, er báðir voru efnislega samþykk- ir frumvarpinu. Sjöturgur er í dag Þórarinn Eyjólfsson trésmiður í Keflavík. Grein um hann bíður vegna rúm- leysis í dag. 13 lögfræðingar voru mættir en uppboðinu var frestað ÞRETTÁN kuldalegir júristar stóðu í norðan bálinu í gær á togarabryggju við Grandagarð, hver með sína skjalatösku fulla af alls konar bréfum upp á það, að þeirra viðskiptavinir ættu kröfu í togaranum Vetti, sem lá bundinn við bryggjuna. Kl. 2,30 skyldi borgarfógetinn, Kristján Kristjánsson, selja togarann á uppboði um Ixirð í sjálfu skipinu. Nokkru áður en uppboðið skyldi hefjast, kom grænn Chevrolet akandi fram bryggjuna óg nam staðar, þar sem togarinn lá bund inn. Þar var kominn Kristján bæjarfógeti. Hann þurfti ekki að stíga út úr bílnum, út í kuldann, þar sem júristarnir norpuðu, og ekki heldur að klifrast um borð í hið niðurnídda skip, því einn hinna 13 júrista bað um frest á því að uppboðið á Vetci færi þá fram. Það var Sigurður Ölason, hrl., er bsð um frestinn í nafni fj ármálaráð uney tisins. Fulltrúi stjórnar Seðlabankans á þessu uppboði ,Björn Ólafsson lögtræðingur, tilkynnti að stjórn banKans hefði fallizt á að veita umbeðinn frest á uppboðinu. Þar með var uppboðinu á Vetti enn frestað til 26. þ.m. En júristarn- ir, umboðsmenn lögveðskröfu- hafa, tilkynntu borgarfógeta, : /' NA IS hnúiar SV 50 hnútor ¥: Snjókoma f 06 i 7 Skúrír K Þrumur Kutíaskil Hifaski! H Hai L Latqi LOFTVOG er nú hægt fall- andi á N-Grænlandi og lítur því út fyrir lygnandi og batn- andi veður hér á landi. Þrátt fyrir djúpa lægð (975 mb) milli íslands og Noregs. Kald- asti staðurinn í dag er Meist- aravík (efst á miðju korti) með 40 stiga frost, en hlýjast í París (neðst til hægri) með 15 stiga hita. Djúp lægð er austan við Nýfundnaland, og mun vindur vera allhvass NA en frostlaust á Nýfundnalands miðum. Veðurhorfur kl. 22 í gær- kvöldi: SV-land til Breiðafj. SV- mið til Breiðafj.miða: Minnk- andi norðaustan átt, víðast úrkomulaust og létt skýjað. — Vestf. til Austfj. Vestfj.mið til Austfj.miða: Minnkandi norð- austan átt. Batnandi veður. SA-Iand og SA-mið: Norðaust an kaldi, skýjað, sums staðar dálítil snjókoma. þar sem hann sat í Chevroletin- um með hlýlega skihnhúfu á höfði, að þeir myndu ekki véita annan frest á uppfc>oðinu á togar- anum. Borgarfógeti lét bóka þetta ásamt öðru, er frestun upp- boðsins skipti. — Júristarriir 13 hurfu síðan hver af öðrum af bryggjunni og hrökktust undan norðan bálinu upp Grandagarð með tár í augum af moldrokinu og kuldagjóstrinum. Hér hafði sannast: Ekki eru allar ferðir til fjár, þótt farnar séu. Skotar stofna 1 fiskimóla- raðuneyti SKOTAR hafa ákveðið aíi stofna sérstakt iáðuneyti landbúnaðar og sjávarút- vegsmála. Hafa mál þessi að undanförnu heyrt und- ir skozka heimaráðherrann. Um tíma heyrðist orðróm- ur, um það, að flytja ætti sjávarútvegsmálin und ir sjávarútvegsmálaráðu- neyti Breta í Lundúnum, en slíkt kemur ekki til greina, hagsmunir Skota í fiskimálum eru allt aðrir en hagsmunir Englendinga. Skotar eru hlynntir út- færslu fiskveiðilandhelg- innar, þar sm fiskiskip frá Englandi og ýmsum öðr- um þjóðum stunda rán- yrkjuveiðar á skozkum fjöðrum. Er búizt við þvi, að stofnun sérstaks land- búnaðar og sjávarútvegs- málaráðuneytis í Edinborg muni verða til þess að styrkja kröfur Skota um víkkaða fiskveiðilandhelgi. — íslenzkir fuglar Framh. af bls. 1. En yfir Saharaeyðimörkina kæmu þeir ekki. Annars taldi Finnur ákaf- lega ósennilegt, að ofannefnd fregn hefði við rök að styðj- ast. Jafnvel þó fuglar frá Ev- rópu fari suður yfir Miðjarð- arhaf og suður í Afríku, þá sneiði þeir yfirleitt hjá aðal eyðimörkinni. Þar gæti aldrei verið um mikla fuglamergð að ræða í einu, því fuglarnir væru á ferðinni yfir langan tíma og stönzuðu ekki í eyði- mörkinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.