Morgunblaðið - 02.03.1960, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.03.1960, Blaðsíða 22
22 MORCVHBLAÐIÐ Miðvikudagur 2. marz 1960 I ÆT i Squaw Valley Olympíueldurinn, sem tendr- aður var í Morgedal í Noregi en fluttur flugleiðis til New York og borinn til Kerlingar- dals, logaði dag og nótt við aðalleikvanginn. Sést hann á myndinni til hægri. Á bak við eldinn sést „turn þjóð- anna“, sem Walt Disney lét reisa, en það var mikil stál- grind, er þar skjaldarmerki allra þátttökuþjóðanna, er voru 31 að tölu. íslenzka merkið með hinum fjórum landvættum sést um miðjan turninn. Til hliðar eru högg- myndir af íþróttafólki. Vetrarleikarnir í Squaw Valley heppnuðust mjög vel og eiga hinir bandarísku stjórendur leikanna þökk skilið fyrir ágæta fram- kvæmd þeirra. •x ; : ■ I»jóðverjinn Georg Thoma „stal“ sigrinum í norrænni tvikeppni frá Norðurlanda- búum. Tvíkeppnin sameinar tvær elztu og rótgrónustu greinar skiðaíþróttarinnar, göngu og stökk og þótti sá mestur fyrr á tímum, sem sýnt gat yfirburði í þessum greinum samanlagt. Lengst- um hafa Norðurlandabúar sýnt yfirburði ,en nú kom hinn 24 ára gamli Thoma og gerði strik í reikninginn. v: ',Wíw £ vV \ ■MHHhHBrINHN Þessi mynd átti að birtast á forsíðu Mbl. í gær en hún féll niður af misgáningi. Hún sýnir hinar broshýru skíðakonur Svía, sem sigruðu rússnesku „amazónurnar" í 3x5 km boð- göngu kvenna. Þær eru talið frá vinstri: Irma Johansson, Sonja Edström og Britt Strandberg. Boðganga karla, 4x10 km, geymir söguna um eitt ofsa- legasta sekúndustríð, sem dæmi eru um á Olympíuleik- um. Eftir 40 km keppni skildi ein sekúnda á milli Finna og Norðmanna og tryggði hinn gamli og trausti göngujöfur Finna, Hakulinen, landi sínu sigur með 500 metra enda- spretti, og tókst honum að komast fram úr Norðmann- inum Brusveen, en norska sveitin hafði -taft forustuna fram að þessu, 39500 metra. Myndin sýnir, þegar Hakul- inen fer yfir marklinuna með Brusveen „á hælunum.“ Nokkrum mínútum áður en þessi mynd var tekin voru þessir tveir menn andstæðingar í harðri keppni. En að keppninni lok- inni og úrslitum tilkynntum geta þeir faðmazt sem beztu Verðlaunaafhending í Squaw Valley fór fram með miklum hátíðleika. Sigurvegarar stilltu sér á háan pall framan við „turn þjóðanna“. Á þessari mynd sjást sigurvegarrar í parakeppni í list- hlaupi á skautum. í miðjunni kanadíska parið sem sigraði, Ba/bara Wagner og Robert Paul, til hægri þýzka parið sem fékk silfurverðlaun, Kilian og Baumler og til hægn bandarísku hjónin Ludington, sem fengu bronz. vinir. Þeir héldu uppi heiðri Norðurlandanna í 15 km. skíða- göngu. T. d. Brusveen frá Noregi, sem sigraði svo óvænt. T. h. Sixten Jernberg frá Svíþjóð, sem margir höfðu talið sigur vísan — en hann varð annar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.