Morgunblaðið - 02.03.1960, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.03.1960, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 2. marz 1960 lHORCl’NfíLAÐlÐ 9 burði og þjónustu í dag? b) Hvað leiðir af því, sem álykt- unin frá Evanston segir hér að ofan þegar um er að ræða daglegt starf þitt og þjónustu í þjóðfélaginu? Að hve miklu leyti geta prestar undirbúið leikmenn undir þjónustu og veitt þeim hjálp? Hvað leiðir af þessarri ályktun fyrir hug- myndir vorar um æskulýðs- starfið? c) Er hægt að líta á æskualdur- inn sem gjöf? Hvaða ábyrgð og hætta fylgir þeirri gjöf, þegar um er að ræða endur- nýjun einingu og kristniboð kirkjunnar? Form æskulýðsstarísins Innan safnaðanna eru æskulýðs félögin þýðingarmestu starfstæk- in, sem söfnuðurinn ræður yfir til að hjálpa æskunni. í sumum tilfellum skortir á að þau hafi nægilegt samband út á við, til þeirra æsku, sem einnig þarf að njóta þessarrar þjónustu. Endur- nýjun kirkjunnar fyrir orðið um' þjónustu sáttargerðarinnar þýðir | að athyglinni skyldi beint einnig j að þeirri æsku, sem er utan félag anna. a) Á hvaða breytingum í lífs- venjum og starfsaðferðum í | þínu æskulýðsfélagi er mest þörf, til þess að endurnýja það í þjónustunni? b) Miða starfsaðferðirnar í ung- mennafélögum vorum (í jöfn- uðunum) að því að undirbúa æskulýðinn undir raunveru- legt köljunarstarf í þjóðfélagi voru? Að hve miklu leyti sjá þau æskulýðnum fyrir mögu- leikum til að sleppa við (spill inguna í) heiminum? c) Tæknimótað og andpersónu- legt múg-þjóðfélag býr í hag- inn fyrir umhverfi, sem freist- ar æskunnar til afbrota, bæði á sviði kynferðislífsins og á öðrum sviðum. Hvaða ábyrgð hvílir á söfnuðunum og sér í lagi á ungmennafélögum und- ir slikum kringumstæðum og . hvernig geta þau náð tökum á þessu vandamáli? Hlutverk vort: Að íhuga köllunina í ljósi Guðs orðs, eins og það er opinberað í Kristi, kallar hið sameiginlega líf í söfnuðinum sér hvern kristinn mann til þess að láta endurnýjast og ganga inn i þjónustu til blessunar öðrum, sem hann hefir verið sættur við fyrir friðþægingu Guðs í Jesú Kristi. Þetta felur i sér að starf ast inn í tilgangsríka þjónustu hans og hæfileikar verða að kom- við aðra menn undir handleiðslu Guðs. Að lifa í ljósi Krists, felur i sér að bera allt sitt lif fram fyrir Guð, alla haefileika, náðar- gjafir og gáfur, svo að Guð fái umbreytt þessu öllu í þjónustu sinni meðal manna og notað það þar. Að gefa sjálfan sig Guði á þennan hátt þýðir blátt áfram að gefa sig undir hans vald og hand- leiðslu og ganga inn í það líf, sem hann hefir skapað og endur- nýjað og leitt í ljós í Jesú Kristi, sem er Guðs ljós, sem er hið i*vja lif Guðs, er brýzt inn í myrkur hinnar gömlu aldar. Því hjá þér eru lindir lífsins; í þínu ljósi sjá- um vér ljós (Sálmur 36,9). Þessi fórn og þjónusta eru óaðskiljan- legur hluti af tilbeiðslu vorri innan safnaðarins og rákn um Guðs tilgang að sameina alla hluti í Kristi (Sjá Róm. 12,1—2 og Efes. 1,10). Spurningar: Um köllunairfræðslu vora a) Hvaða kenningu flytjum vér í æskulýðsfélögunum um hin. kristnu hugtök, vinnu og köll- un? Fær unga fólkið hand- leiðslu til þess að velja sér starf og lífsstöðu? Hvaða möguleikar eru fyrir ungt trú- að fólk að ræða saman vanda- mál sín sem vinnandi fólk? b) Hvernig verður þín kxistna trú betur tjáð í atvinnulífi þínu, í fjölskyldunni og í því, sem þú gerir í frítíma þínum? Endumýjað líf: Gjöf til Drottins og til bræðra vorra Þér eruð útvalin kynslóð .... Sjá I. Pét. 2,9. Pétur postuli minn- ir oss á að kirkjan hefir bæði prestlega, spámannlega og kristni boðandi — það er fræðandi — köllun. Þær fórnir, sem vér kristn ir menn eigum að bera fram, eru ekki dýrafórnir, eins og í hinum gamla sáttmála, heldur vér menn irnir sjálfir (Róm. 12,1). Sér- hver kirkjunnar meðlimur er kallaður til að færa slíka fórn. Að vér bjóðum sjálfa oss fram, sál og líkama, til þess að vera skynsamleg, heilög og lifandi fórn, þetta fær sýnilega mynd í kveldmáltíðarþjónustu safnaðar- ins, þar sem bænir vorar sam- tengjast bænum æðstaprests vors, Jesú Krists, sem er til hægri handar Guði og sem bjður fyrir oss (Róm. 8,34, sbr. Hebr. 7,23— 25). I daglegu lífi er vor almenna prestsþjónusta fólgin 'æði í fyr- irbæn, það er í bænum fyrir öðrum, sérstaklega fyrir þeim, sem ekki kunna að biðja eða ekki geta beðið fyrir sjálfum sér, ennfremur í annarri dýrmætri þjónustu og vitnisburði. Sem kristnir menn höfum vér rétt til að gera oss dýrlegar vonir (Róm. 8,14—25) en þetta þýðir ekki að oss sé lofað neinum auð- veldum sigrum. Vér verðum að líða með honum, svo að vér meg- um einnig vegsamlegir verða með honum (Róm. 8,17, sbr. Markús 10,42—45). Heimildir til frekari rann- sókna: „Local Churches come alive“ frá Leikmannadeild Al- heimsráðs kirkna (W.C.C.). J. Hannesson, þýddi. Afgreiðslustarf Stúlka óskast til afgreiðslustarfa hálfan daginn. Aðeins stúlka með einhverja reynzlu í afgreiðslustörf- um eða verziunarskólagengin, tvítug eða eldri kem- ur til greina. . tiUisUaldi, Háteigsveg 2. Stúika óskast til afgreiðslustarfa í Tóbaks- og sælgætis- verzlun í miðbænum. Helzt vön. TÖBAKS- OG SÆLGÆTISVKKZLIMN Lækjargötu 2. Sendiráð B andaríkjanna vill selja nokkur skrifborð. Til sýnis n.k. fimmtud. og föstud. frá kL 1—5 e.h. í skrifstofum sendiráðsins Lauf.ásvegi 21. Unglingspiltur 14—16 ára óskast til sendistarfa hálfan eða allan daginn. Davíð S. Jónsson & Co hf. Þingholtsstræti 18. Fokheldar 2ja herb. íbuðir til sölu á lága verðinu Laugarás s/f, Austurbrún 4, tilkynnir, þar sem nokkrir hafa orðið að hætta við íbúðir sínar vegna íjárskorts, bá er þeim íbúðum óráðstafað enn. Allar upplýsingar á staðnum, og í sima 34471 kl. 13—-17 alla virka daga. Zodiac HEILSUHRAUST og DUGLEG stúlka öskast til aðstoðar við Brauðgerðarhús. Uppl. í 1 övdahls- bakarí Nönnug. 16, sími 19239. Skuldobréi tíl sölu Höfum til sölu nokkur 50 þús. króna skuldabréf, vextir 11%. Nánari upplýsingar gefa TRYGGINGAR & FASTEIGNIR, Austurstræti 10, 5. hæð sími 13428 og eftir kl. 7 sími 33983. Afgreiðslustúlka eða unglingsstúlka óskast í nýlenduvörubúð strax. Upplýsingar í verzluninni Ingólfi Grettisgötu 86 eftir kl. 6 (ekki í síma). Ungur vélstjóri vanur viðgerðum og meðferð véla og sem gengt hefur ábyrgðarmiklu starfi með beztu meðmælum óskar eftir atvinnu í landi. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir laugardag merkt: „Vélstjóri — 9806“. Hafnarfjörður Verkakvennafélagið Framtíðin heldur aðalfund í Al- þýðuhúsinu mánudaginn 7. marz kl. 8,30 e.h. Fundarefní: Venjuleg aðalfundarstörf. STJÖRNIN. Afgreiðslustarf Duglegan og ábyggilegan ungan mann vantar oss nú þegar til afgreiðslustarfa í kjötbúð. VerzL Axel Sigurgeirssonar Barmahlíð 8. Uppl. ekki í síma. Klœðskerameislari Ungur klæðskerameistari óskar eftir framtíðarat- vinnu í vor helzt við fataverksmiðju eða afgreiðslu í klæðaverzlun. Tilboð merkt: „Framtíð — 9805“ send- ist Mbl. íyrir 12. marz. Skrifstofustulku vantar á opinbera skrifstofu um lengri eða skemmri tíma. Laun samkv. launalögum. Uppl. í síma 18340 fyrir hádegi næstu daga. Stúlka óskast til afgreiðslusta’rfa. Borgarhuðin Urðarbraut, Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.