Morgunblaðið - 02.03.1960, Qupperneq 17
Miðvikudagur 2. marz 1960
MORCTINPTAÐIÐ
17
JAN ogKJELD
Banjo Boy kvikmyndastjörnur
COLLO
Músik Clown leikur ó 15 hljóðf
Haukur Morthens
Árni Elfar
og hljómsveit aðstoða
Aðgöngumiðar seldir i
Austurbæjarbíói
Þróttur
Jón Jónsson trésmiður
frá Flatey - minning
Leggjum ófæddum arf í mundir
dugnaðar vors og dyggða,
þá munu þylja þakkarkvæði
megir að moldum vorum.
ÞESSI orð Bólu-Hjálmars virðast
mér sönn skírskotun til ævistarfs
Jóns Jónssonar, trésmiðs frá
Flatey, sem nú hefur lokið löng-
um ævidegi, — lokið störfum, er
háru skýlaus einkenni vinnu-
gleði, frábærs dugnaðar, mann-
dóms og trúmennsku. Hann and-
aðist að heimili sínu í Vest-
mannaeyjum 20. desember sl.
Jón var fæddur 9. október 1877
að Lundi 1 Þverárhlíð. í hinni
fögru og kostaríku borgfirzku
byggð ólst hann upp að hætti
sveitapilta, við algeng bústörf, að
heimili foreldra sinna, að Lundi,
Jóns Einarssonar, er ættaður var
úr héraðinu og Jakobínu Sigríð-
ar Jakobssonar, prests; frá
Steinnesi, valinkunnra hjóna, vel
metin af öllum er til þekktu, að
sögn kunnugs samtíðarmanns.
Börn Jóns Einarssonar og
Jakobínu voru: Anna María, er
andaðist síðastliðið sumar, Jón og
Jakob er var þeirra yngstur og
er enn á lífi, búsettur í Reykja-
vik.
Mjög fannst það á Jóni, að
kært var með þeim systkinum
alla tíð, þótt samleiðir þrytu.
Jón hleypti heimdraganum um
þrítugs aldur og hvarf til smíða-
náms í Reykjavik, hjá Pétri Ingi-
mundarsyni, síðar slökkviliðs-
stjóra. í>ar lauk hann hvort-
tveggja, húsasmíðanámi og hús-
gagnasmíða.
í>að var lánleg tilviljun er Jón
snikkari, — en svo var hann tíð-
ast nefndur, fluttist til Flateyjar.
Magnús Snæbjörnsson, þáver-
andi héraðslæknir í Flatey mun
hafa beðið Pétur Ingimundarson
að útvega sér duglegan smið til
húsbyggingar. Jón varð fyrir val-
inu. Engan grunaði þá, er þessi
ungi, vörpulegi maður steig fyrst
á and í Fatey, að 45 ár
af ævi hans ætti eftir að tengj-
ast sögu Vestmannaeyja, örlögum
þeirra, lífi fólksins og athöfnum
á gæfuríkum og eftirminnileg-
an hátt, svo sem raun varð á.
Fyrstu handbrögð Jóns gáfu
óðar til kynna frábæran dugnað,
er jafnframt reyndist helgaður
þeim eðliskostum, að meta meir
afköst en öflum fjár. Það var
því, að heita mátti lagt löghald
á hann þar vestra. Verkefni voru
næg og ný verkefni sköpuðust
beir s með tilkomu hans.
Jón hafði ekki dvalið fullt ár
í Flatey er hann tókst á hendur
byggingu barnaskóla fyrir hrepp-
inn og má segja, að þá hafi ráð-
izt búseta hans í eyjunni. En
verksvið Jóns náði langt út fyrir
takmörk Flateyja einna eða ann-
ara byggðra eyja hreppsins. Allt
frá Gilsfirði og út til Skorar var
hann kvaddur til starfa og mjög
eítirsóttur og eru þau mörg að
tölu, íbúðarhúsin, er risu af
rústum gömlu torfbæjanna und-
an höndum Jóns, út til nesja og
ian til fjarða þessa vogskorna
byggðarlags. Tíðast vann Jón
einn að þessari smíðaiðju sinni
með furðulegum árangri í afköst-
um og tíma.
Mér en hugstæð, enda nærtæk
sönnun um frábæran dugnað og
orku Jóns við smíðastörf. er hann
á unglingsárum mínum byggði
íbúðarhús foreldra minna í Skál-
eyjum, árið 1913. Var hann þá á
bezta skeiði ævi sinnar.
Húsið var reist á steinsteypt-
um kjallara, annars járnvarið
timburhús með stofuhæð og ris-
hæð. Fjögur herbergi á hvorri
hæð og jafnmörg í kjallara.
Aðeins kjallaragrefti var lokið,
en Jón hóf byggingarvinnu sína.
Ég dundaði við að halda dag-
bók á þeim árum, og sé ég, að
Jón byrjaði á byggingunni 27.
maí, en hafði lokið henni 16. okt.
sama ár. Einn var hann að verki.
Ég var honum aðeins til aðstoðar,
sem „handlangari", öðru hvoru,
meðan hann steypti kjallara og
reisti grind hússins.
Allt efni í húsgrindina þurfti
hann að handsaga úr óunnum,
stórum trjáviði. Alla 16 glugga
hússins og 14 hurðir smíðaði
hann þar á staðnum, einnig snú-
inn stiga frá kjallara til efri hæð-
ar, sem er að sögn tímafrekt
verk. Neðri hæð hússins málaði
hann alla, en fullgerði húsið að
öllu öðru leyti.
Húsið stendur enn óhaggað,
sem nýtt væri. Án þess að van-
meta vinnubrögð nútímans, spyr
ég sjálfan mig, hvað marga menn
þyrfti nú til þess að skila slíku
verki á jafnlöngum tíma.
Skömmu eftir að Jón fluttist
til Flateyja, hóf hinn kunni at-
hafnamaður, Guðmundur kaupm.
Bergsteinsson þilskipaútgerð frá
Flatey, þá stærstu, er fyrr og
síðar hefur verið þar. Blómlegt
atvinnulíf skapaðist við það í
eyjunni og þar með margs konar
verkefni fyrir Jón, er bundu
hann æ fastar þessum nýju heim
kynnum.
Jón kvæntist 1913 Guðrúnu
Jakobsdóttur, verzlunarstjóra
Þorsteinssonar í Flatey. Hún
andaðist ári síðar eftir að hafa
alið dóttur, en fékk nafn móður
sinnar. Er þessi dóttir, Guðrún
búsett í Ameríku.
Árið 1919 kvæntist Jón í annað
sinn Rósu Oddsdóttur frá Eski-
holti í Borgarfirði, drengskaps-
konu og ágætri húsmóður. Hún
lifi mann sinn.
Heimilislíf Jóns og Rósu bar
vott ástríkrar sambúðar. Hús
þeirra, Sunnuhvoll, stílfallegt
hús er Jón byggði á fögrum stað
í eyjunni, stóð öllum opið. Hjá
glöðum og gestrisnum húsbænd-
unum undu allir sér vel.
Tvær dætur eignuðust þau
hjónin, Jakobínu, kennara, sem
búsett er og gift i Vestmanna-
eyjum, Þorvaldi Sæmundssyni,
kennara og Áslaugu, sem gift er
Jóni Björnssyni á Akureyri.
Bróðurdóttur Rósu, Þóru Þórð
ardóttur ólu þau upp. En hún bú-
sett og gift í Reykjavík, Sigur-
geir Ásbjörnssyni, tollverði.
Tengdamóðir Jóns, Guðfinna
Þórðardóttir dvaldi seinustu ár
ævinnar á heimili dóttur sinnar
og naut þar góðs ævikvölds.
Þróttmikill persónuleiki Jóns
og þokki í svipmóti duldist eng-
um strax við fyrstu sýn. Hann
var að vexti í hærra lagi, þéttur
um herðar og kraftamaður. Hann
var ljós yfirlitum, sviphreinn og
frá bláum brám hans geislaði
fjör og glettni.
Hreyfing hans var hæglát og
handbrögð fumlaus, eins og hann
þyrfti aldrei að flýta sér. Festina
lénte, — flýttu þér hægt, hið
rómverska orðtak féll vel
að öllum starfsháttum Jóns, er
þó skilaði stærra dagsverki en
flestir aðrir.
Veðurathuganir með eldflaugum
í RÚMLEGA 10 ár hafa vís-
indamenn Sovétríkjanna fram
kvæmt veðurathuganir í há-
loftum með eldflaugum. t
þessum eldflaugum eru ýmis-
konar mælitæki, sem mæla
meðal annars hitastig loft-
þrýsting og þéttleika í háioft-
unum og sendir eldflaugin
upplýsingar til jarffarinn-
ar um útvarpssendistöð.
Fremsti hluti eldflaugar-
innar, sem sést á meðfylgj-
andi mynd, hefur meðal ann-
ars að geyma mælitæki til að
mæla geislun sólarinnar. Á
meðan eldflaugin er á leið um
gufuhvolfið er varnarhlíf um
mælahylkið, sem fleygt er
þegar komið er í rétta hæð.
Þær upplýsingar er fást
með þessum rannsóknum eru
mjög mikilvægar fyrir veður-
spár, tirðtal og flug i háloft-
um.
Jón var góðum gáfum gæddur
og leitaði sér bóklegs fróðleiks
í frístundum og hugleiddi rás við
burða og gátur lífsins. Á yngri
árum hallaðist hann að fríhyggju
og dáði Brandes, en með vaxandi
árum og lífsreynslu þóttist hann
viss um, að bak við mannlífið
lægju stjórntaumar í höndum
æðra valds.
Frá lífsstarfi sínu, smíðunum,
gaf Jón sér ekki tíma til opin-
berra starfa í hreppsfélaginu eða
á öðrum opinberum vettvangi.
En á mannafundum og í sam-
ræðum fór hann ekki dult
með skoðanir sínar. Yndi hans
var að blanda geði við menn.
í samræðugleði sinni var hann
ekki jábróðir og gætti því, af
hans hálfu, nokkurrar glettni og
kímni í kappræðum. Voru and-
mæli hans græskulaus en aldrei
illkvittin, því að þrátt fyrir stór
brotna lund, kunni hann vel að
temja skap sitt.
I öllum mannúðarmálum stóð
hann við hlið þeirra er líknar og
hjálparþurfa voru og sýndi það
þráfaldlega í verkum sínum, með
tilslökun á kaupgreiðslu, ef fá
tækir áttu í hlut.
Jón tók ástfóstri við eyjalífið,
sem þó var gagnólíkt lífsvenjum
þeim, er hann ólst upp við. Heið-
arblærinn borgfirzki og ferskur
andi frá söltum eyjasundunum
aðlöðuðust í sál hans og hafa óef-
að eflt manngildi hans og starfs-
þrótt. Sem góður fóstursonur
eyjanna bar hann hag þessa sér-
kennilega byggðalags fyrir
brjósti og enginn var glaðari en
hann, meðan vel gekk.
En þegar hallaði á ógæfuhlið-
ina og tími atvinnuskorts heltók
litla kauptúnið í Flatey og hver
fjölskyldan af annarri hvarf
brott lét hann bugast, enda aldur
hniginn orðinn og heilsubilaður
eftir þrotlausa erfiðisvinnu
langra lífdaga. Hann kvaddi
eyjabyggðina 1953 og fluttist með
konu sinni til Vestmannaeyja.
Þar lauk hann ævi sinni.
Umótastörf Jóns í eyjum vestra
og breiðfirzkum byggðum eru nú
ofurseld eyðandi tönn tímans,
þau hverfa. En minning Jóns lifir
meðan búið er í Breiðafjarðar-
eyjum — og að líkindum lengur.
G. Jóh.
2ja herb. íbuðir
Til sölu 5 herb. hæð í Hltðunum innréttuð sem tveggja
herbergja íbúðir. Bílskúrsréttur.
MÁLFLUTNINGS- OG FASTEIGNASTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl., Agnar Gústafsson, hdl.,
Björn Pétursson: fasteignaviðskipti.
Austurstræti 14, II. — Símar 2-28-70 og 1-94-78.
HLJÓMLEIKAR
Austurbæjarbíói 4. 5. 6. marz
Aðeins örfáir hljómleikar. — Tryggið ykkur miða í tíma.
Verð aðgöngumiða kr: 45,00.