Morgunblaðið - 02.03.1960, Side 24
V E Ð R 1 Ð
Sjá veðurkort á bls. 2.
Hugsjónir í fjötrum
Sjá bls. 13.
51. tbl. — Miðvikudagur 2. marz 1960
Stórslasaðist er
dekkið sprakk
'SAUÐÁRKRÓKI, 1. marz. —
Bílstjóri frá Akureyri, Páll
Ásgeirsson, liggur nú þungt
haldinn í Varmahlíð, en hann
jdaðaðist á sunnudagskvöldið
(4 Stóra Vatnsskarði.
Páll Ásgeirsson var þá á bíl
þeim er hann ekur, stórum
Volvo flutningabíl á leið til
Akureyrar frá Reykjavík með
vörur. Höfðu sex bílar verið í
samfloti að sunnan. Voru þeir
komnir ofan af svonefndum
Víðivörðuhálsi niður í Vatns-
hlíðarflóa í Stóra Vatnsskarði,
Cóð skemmtun
Fóstbræðra
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ hélt
Karlakórinn Fóstbræður fjöl-
breytta skemmtun í Austurbæj-
arbíói. — Kórinn söng fyrst
nokkur lög undir stjórn söng-
stjóra síns, Ragnars Björnssonar,
en síðan komu ýmiss konar
skemmtiþættir af léttara taginu
— flest allt byggt upp af söng
— samsöng og einsöhg. Meðal
þeirra, sem þarna komu fram,
má nefna Karl Guðmundsson,
sem flutti tvo gamanþætti, Þuríði
Pálsdóttur, Kristin Hallsson,
Eygló Viktorsdóttur, Gest Þor-
grímsson, Gunnar Kristinsson og
Sigfús Halldórsson. Og ekki má
gleyma þeim Ævari Kvaran, sem
hefir haft á hendi leikstjórn —
og var jafnframt kynnir — og
Carl Billich, sem ásamf Ragnari
Björnssyni hefir haft veg og
vanda af músíkhlið skemmtunar-
innar, ef svo mætti segja. — Loks
kom Hljómsveit Björns R. Ein-
arssonar þarna fram, ásamt söng-
vara sínum, Ragnari Bjarnasyni.
Austurbæjarbíó var troðfullt
á þessari fyrstu sýningu, og var
skemmtiatriðum mjög vel fagn-
að. Sömu sögu er að segja af
næstu sýningum. — Fjórða og
næstsíðasta sýningin verður í
kvöld kl. 23,15.
er slysið varð. Þá sprakk
skyndilega á öðru framhjóli
hins stóra bíls. Ekki gat Páll
stöðvað bílinn og missti hann
að nokkru vald á honum.
Rakst afturhjól hans utaní
steinstöpul við ræsi með þeim
afleiðingum að afturhjólið
brotnaði undan bílnum, en
við það valt bíllinn út af veg-
inum. Bíllinn mun hafa farið
heila veltu og brotnaði hann
mjög mikið.
Meðvitundarlaus
Næstu bílar, sem voru skammt
á eftir Páli, voru óðara komnir á
slysstaðinn og þustu bílstjórarn-
ir Páli til hjálpar. Drógu þeir
hann út úr stórskemmdum bíln-
um, meðvitundarlausan. Bjuggu
þeir um hann í einum bílanna og
óku að Varmahlíð. Þangað kom
læknir héðan af Sauðárkróki.
Taldi hann Pál hafa fengið svo
mikið höfuðhögg að óráðlegt
væri um sinn að hreyfa hann
meira en orðið var. Páll var þá
meðvitundarlaus. Enn mun hann
ekki vera kominn fullkomlega
til meðvitundar. — Guðjón.
l»að er heldur óvenjulegt að sjá skriðdreka á hafnarbakkanum hér. En í gær stóðu þeir þar
þessir og biðu þess að vera fluttir um borð í skip. Þeir tilheyra herdeildinni af Keflavíkur-
flugvelli, sem á morgun fer héðan. Skriðdrekar nir hafa oft komið að góðum notun. á vellinum
við að draga bíla og vinnuvélar úr sköflum, þegar snjóþungt hefur verið, því þeir þurfa ekki
vegi, en skríða hiklaust yfir skafla og svell.
Landliðið fer á morgun
Á MORGUN, fimmtudag, fer
landlið Bandaríkjahers, sem stað
sett hefur verið á Keflavíkur-
flugvelli, af landi burt, eins og
áður hefur verið frá skýrt.
Um kl. 8 í fyrramálið er vænt-
anlegt stórt herflutningaskip á
ytri höfnina í Reykjavík og með
því munu fara yfir 1000 manns,
eða það sem eftir er af landliðinu.
Kuldi og hvassviðri
óslifið í 20 daga
FYRIR rúmlega einum mánuði voru mikil hlýindi hér á
landi. Þá spáðu því líka margir að slíkt hlyti að boða versn-
andi veður. Síðan hinn 10. febrúar síðastl. hefur verið ríkj-
andi norðanátt hér á landi. Um norðanvert landið hefur
snjóað töluvert, en um sunnanvert landið er marautt og
má heita að jörðin sé sviðin í hinum langvarandi frostum.
8 stiga frost í Reykjavík
í gærdag var kalt hér í Reykja
vík. Hvassviðri var með tölu-
verðu frosti, sem dró nokkuð úr.
Var t. d. 8 stiga frost í gærmorg-
un en síðdegis var það komið
niður í 5 stig, en enn hvasst. Bát-
ar sem komu inn með afla til
vinnslu voru brynjaðir þykkri
Bæjarstjórn Akureyrar
lýsir stuðningi við
gerðir stjórnarinnar
AKURERI, 2. marz. — Á fundi
sínum í dag samþykkti bæjar-
stjóm Akureyrar eftirfarandi til-
lögu: Bæjarstjórn Akureyrar lýs
ir yfir stuðningi sínum við efna
hagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar
og meirihluta Alþingis og telur
að með þeim hafi óhjákvæmileg
leið verið valin út úr ógöngum.
Bæjarstjórn fagnar sérstaklega
því nýmæli, að hluti af sölu-
Stjórnmála-
námskeið
NÆSTI fundur á stjórnmálanám
skeiðinu um atvinnu- og verka-
lýðsmál verður haldið í Valhöll
í kvöld kl. 8,30.
Einar Pálsson leikari gefur leið
beiningar um framsögn. Þátttak-
endur eru beðnir að mæta stund-
yislega.
skatti renni til sveitarfélaga svo
hægt sé að létta útsvarsálögur.
Ennfremur afnámi tekjuskatts á
almennum launatekjum og stór-
fellda eflingu almanna trygginga
og auknum fjölskyldubótum, elli-
og örorkulífeyri.
Eldur í heyi
BLÖNDUÓSI, 29. febrúar: — Sl.
laugardagskvöld komst eldur í
heyfarm vörubifreiðarinnar H-6.
Bitreiðin var að koma frá Hofi
í Vatnsdal með fullfermi af heyi.
Bifreiðarstjórinn varð eldsins
var, er hann nam staðar við
brúna á Hnausahvísl. Bifreiðar-
stjóranum, bændum og fleirum,
er komu tii hjálpar, tókst að
halda eldinum í skefjum unz
slökkviliðið á Blönduósi kom á
vettvang. Heyfarmurinn eyði-
lagðist, en bifreiðinni tókst að
bjarga. Pallgrindur brunnu mik-
ið, en að öðru leyti er bifreiðin
óskemd. Eldsupptök eru ókunn,
en talið sennilegt að kviknað hafi
út frá rafmagni. — Fréttaritari.
klakabrynju. Særok var á
bhyggjunum. Svo hvasst var að
stórt bandarískt flutningaskip
Mormacpenn komst ekki út úr
höfninni og af þeim sökum komst
Tröllafoss ekki inn, því honum
á að leggja þar sem bandaríska
skipið liggur.
Moldryk
Það sem bæjarbúum hefur
þótt verst í hinni langvarandi
norðanátt er moldrykið um all-
an bæ en mest er það að sjálf-
Sextán bátar á sjó
SANDGEDÐI 1. marz: — Sextán
bátar héðan voru á sjó í dag og
fiskuðu þeir samtals 133 tonn.
Er það nokkru betra en verið hef
ur að undanförnu.
Aflahæstur var Smári með 11,6
tonn, Hamar var með 11,4 og
Víðir II. með 10,5.
Norðanstormur er nú á mið-
unúm, en bátarnir hafa róið þrátt
fyrir það. — Axel.
sögðu í úthverfunum. Það hefur
varla verið hægt að opna glugga
einn einasta dag undanfarnar
vikur. Einlæg ósk bæjarbúa,
virðist það vera, er þeir ræða um
veðrið sín á milli, að „Hann geri
einhverja úrkomu, snjó eða rign-
ingu“.
Brot af því mun vera farið áður.
Eitthvað af farangrinum verð-
ur flutt um borð um morguninn,
en kl. 1.20 er áformað að liðs-
flutningar um borð hefjist. Hef-
ur herinn samið við Sérleyfis-
bifreiðir Keflavíkur um að fyrir-
tækið flytji hermennina í stórum
áætlunarvögnum frá flugvellin-
um til Reykjavíkur, og fara þeir
beint um borð í bát við Ægis-
garð, sem flytur þá um borð. Er
gert ráð fyrir að liðið verði allt
komið um borð kl. 5 síðdegis.
Spilakvöld
HAFNARFIRÐI: — í kvöld kl.
8,30 verður spiluð félagsvist hjá
Sjálfstæðisfélögunum. Veitt
verða verðlaun og síðar heildar-
verðlaun. Spilað er í Sjálfstæð-
ishúsinu og er öllum heimil þátt-
taka.
Stórhríð nyrðra
AJcureyri, 1. mars. —
UNDANFARIÐ hefur verið
hér töluverð snjókoma, en í
nótt gerði stórhríð út með
öllum Eyjafirði og á Dalvík
var alveg iðulaus stórhríð
fram á dag.
Mjólkurbílar frá Dalvík
komust til Akureyrar en voru
fjórar til fimm klst. á leið-
inni. Þeir voru um það hil
heilan sólarhring að safna
mjólkinni í Svarfaðardalnum
sjálfum.
Engir mjólkurbílar hafa
komizt frá Höfðahverfi, Sval-
barðsströnd og Öngulstaða-
hreppi. Úr Fnjóskadal kom
snjóbíll með mjólk og var
tíu klst. á leiðinni, sem venju-
lega er farin á 40—50 mínút-
um. Vaðlaheiðin
öðrum bílum fær.
er engum
Grœnlandsflug
I 40 stiga frosti
í GÆRKVÖLDI fór einn af Föx-
um Flugfélags íslands í leiguflug
til Meistaravíkur á Grænlandi
með farþega og vörur á vegum
námufélagsins þar. Höfðu ferða-
mennirnir, sem voru Danir, kom
ið frá Kaupmannahöfn síðd. í
gær. Var ekki gert ráð fyrir að
flugvélin hefði langa viðdvöl á
Meistaravíkur-velli, en þaðan
voru væntanlegir með henni
nokkrir farþegar í nótt.
í gærdag, þegar Mbl. var að
tala við Veðurstofuna, var verið
að útbúa flugspá fyrir þetta
Grænlands flug, og skýrði veð-
urfræðingurinn blaðinu svo frá,
að í Meistaravík hefði verið 40
stiga frost í gærdag.
14 klst. frá Akureyri til
Hríseyjar
Flóabáturinn Drangur fór kl.
7 í morgun áleiðis til Sauðár-
króks, en kl. 21 í kvöld var hann
aðeins kommn til Hríseyjar og
varð að afgreiða hann þar á ára-
bátum. Skipstjórinn ætlaði að
reyna að halda út um kl. 10 í
kvöld og fara beint til Siglu-
fjarðar. Hafði veðrið aðeins
gengið niður.
Togskipin liggja flest inni á
Akureyri og hafa ekkert getað
veitt. —
Siglufjörður
Á SIGLUFIRÐI hefur verið stór-
hríð og frost og ekki gefið á sjó.
Fréttamaður Mbl. á Siglufirði
sagði í símtali við blaðið í gær,
að veður þar væri óhugnanlegt,
gengi á með norðan og norðaust-
an stórhríð, svo vart sæist milli
húsa. Frost væri um 9—10 stig
og hefði það ásamt rokinu hjálp-
að til við að feykja fönninni í
skafla, svo vegir væru furðu
greiðir. Hefur ýtan hreinsað
jafnóðum burtu þá skafla sem
mynduðust á vegum. Lítið er um
atvinnu nú á Siglufirði, þar sem
ekki hefur gefið á sjó í langan
tíma.
Húsavík
ENGIR bílar hafa komið
úr nærliggjandi sveitum í dag,
enda mjög erfitt að aka vegna
þess hve blindað er og hingað
að sækja á móti vindi og tölu-
verðri snjókomu. Skaflar hafa
ekki verið miklir hér í lágsveit-
um.