Morgunblaðið - 17.03.1960, Qupperneq 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. marz 1960.
— Afvopnunar-
rádstefnan
Framh. af bls. 1
hafa eftirlit með vopnabirgðum,
samkvæmt nánari ákvörðun síð-
ar. — Þá er og gert ráð fyrir af-
námi og eyðileggingu kjarnorku-
vopna.
— 'k —
1 öðrum og þriðja áfanga yrði
Svo byggt á þessum atriðum —
minnkun herstyrks haldið áfram,
fyrst niður í 2,1 millj. manna
hjá hvoru hinna tveggja stór-
velda, og síðan áfram, unz því
marki er náð, að ekki séu
fleiri undir vopnum en nauðsyn-
legt er vegna innanlandsöryggis.
Gert er ráð fyrir stöðvun fram-
leiðslu kjarnkleifra efna til
hernaðarþarfa, auknum öryggis-
ráðstöfunum gegn skyndiárás o.
s. frv. — Loks er svo gert ráð
fyrir stofnun sérstaks ráðs til
þess að „vaka yfir friðinum", ef
svo mætti segja. — Þetta eru að-
eins nokkur atriði úr tillögunum.
HÆTTULEGUK
ÁFANGI
Ormsby-Gore sagði, að þess
«r tillögur mundu leiða til „raun-
verulegrar og víðtækrar afvopn-
unar eins fljótt og unnt væri“.
Taldi hann þeim sérstaklega til
gildis, að gert væri ráð fyrir að
fara hægt af stað, og að þær
væru ekki bundnar við ákveð-
inn tíma.
Hann lagði áherzlu á mikil-
vægi þess aff ná samkomulagi
um, aff eyffileggingarvopn verffi
aldrei send meff eldflaugum á
braut um jörffina. Þetta væri nú
vafalaust hægt, en hins vegar
kynnu menn ekki enn ráff til
þess aff láta slík vopn falla til
jarffar á fyrirfram ákveffnum
staff. Ná yrffi samkomulagi um
þetta atriði, áffur en þeim hættu-
lega áfanga yrffi náff.
— 'k —
Zorin kvaðst ætla að geyma
sér að fjalla um vestrænu tillög-
urnar, unz hann og stjórn hans
hefðu kynnt sér þær náið. Hins
vegar lét hann í Ijós undnm sína
yfir þvi, að Vesturveldin hefðu
ekki sagt álit sitt á sovézku til-
lögunum, þar sem þær hefðu
raunverulega legið fyrir í sex
mánuði. Hann skýrði nánar frá
þeim í dag, eins og fyrr segir, og
eru þær í stuttu máli þannig:
+ SOVÉZKU
TILLÖGURNAR
Fyrsti áfangi: — Bandarík-
fn, Sovétríkin og Kína minnki
herstýrk sinn á einu ári til 18
mánuðum niður í 1,7 millj.
manna undir vopnum — Bret-
Iand og Frakkland niður í 650
þús. Alþjóðleg eftirlitsnefnd
verði stofnuð. — Annar áfangi:
Allir herir verði leystir upp og
herstöðvar á erlendri grund lagð
ar niður. Þetta skal gerast á 18
mánuðum til 2 árum. — Þriðji
áfangi: 511 kjamorkuvopn og ann
ar vopnabúnaður verði eyðilagð
ur á einu ári.
k „ALÞJÓÐLEGT
NJÓSNAKERFI“
Sú skoðun mun ríkjandi á
vesturlöndum, að tímasetning
sovézku áætlunarinnar sé óraun-
hæf. Tillögurnar eru nú til gaum
gæfilegrar athugunar — ekki
sízt með tilliti til þess, hvort
hægt sé að finna merki þess, að
Sovétríkin vilji nú fallast á eftir
lit með afvopnun, slíkt sem Vest-
urveldin telja nauðsynlegt, en
Zorin hafði við orð, að afvopn-
unarráð það, sem gert er ráð fyr-
ir í vestrænu tillögunum og á að
fá æ víðtækara vald, jafngilti því
Dagskrá Alf>ingis
í DAG er boðaður fundur í sam-
einuðu Alþingi. Þrjú mál eru á
dagskrá:
1. Rannsókn kjörbréfs.
2. Fyrirspurn:
Niðurgreiðsla fóðurbætis og
áburðar. — Hvort leyfð
skuli.
3. Fjárlög 1960, frv. — Frh.
2. umræðu.
Bréfritari einn vakti máls á því um daginn í dálkum Velvak-
anda, aff sólbaðsskýlið í Sundhöllinni væri illa variff augum
nábúanna, og væru þeir ekkert hrifnir af þeirri sjón, sem blasti
viff þeim, er þeir litu út um glugga sína. Þetta er sýnilega ekki
orffum aukiff, því þannig var útsýnið úr einum af gluggum
Heilsuverndarstöðvarinnar fyrir nokkrum dögum, er Ijósmynd-
ari var þar staddur.
að komið væri á fót alþjóðlegu
njósnakerfi.
k EIN HEILD
Á blaðamannafundi, sem
Zorin hélt eftir fundinn í morg-
un sagði hann m.a., að tillögur
Vesturveldanna væru illfram-
kvæmanlegar vegna þess ,að í
þær vantaði allar tímaákvarðan-
ir. — Hann sagði og, að líta yrði
á sovézku tillögurnar sem eina
heild — ekki væri hægt að slíta
þær úr samhengi hverja við aðra.
Þá sagði hann aðspurður, að Kína
styddi sovézku tillögurnar í einu
og öllu — hins vegar yrði afvopn
unarmálunum ekki ráðið endan-
lega til lykta, án samráðs við
kínversku kommúnistastjórnina.
rgir togarar
Mar,
selja í Bretlandi
SÍÐAST liðinn mánudág seldi
togarinn Röðull í Grimsby 137
lestir fyrir 8345 pund. Sama dag
seldi Egill Skallagrímsson í Hull
205 lestir fyrir 12010 pund og
sama dag Fylkir í Grimsby 133
lestir fyrir 7936 pund og á þriðju
dag 76 lestir fyrir 3451 pund,
eða alls 11387 pund. Gylfi seldi
á þriðjudag í Hull 140 lestir fyrir
7096 pund og Ólafur Jóhannesson
seldi í gær 200 lestir fyrir 9283
pund. Brimnes á að selja í Bret-
landi á föstudag.
Góður afli Patreks
fjarðarbáta
Patreksfirði, 16. marz.
STÖÐUGUR og mikill afli hefur
borizt hingað á land frá því bát-
arnir hófu netjaveiðar fyrir 10
dögum siðan. Hefur ailinr. verið
22—52 tonn í róðri hjá hverjum
báti. Andri kom í nótt með 25
tonn og Sigurfari með 36 tonn,
en hann fékk net i skrúíu í gæi-
dag og dró varðtkipið Albert
hann hingað inn. Sæbjörg kom
svo í dag með 34 tonn.
Sl. laugardag var Iðnskólan-
um hér slitið og úUkrifuðust 7
nemendur. Hæsta einkunn þeirra,
sem útskrifuðust, hlaut Árni
Björn Árnason 9,47 i aðaleink-
unn, en hæstu einkunn yfir skól-
ann hlaut Leiknir Jónsson, í öðr-
um bekk, 9,50.
Gott tíðarfar
ÞÚFUM, 16. marz. — Hér hefur
verið gott veðurfar daglega og
snjólaust að kalla. Spáir margt
góðu veðurfari Á 40 riddaradag-
inn 9^ þ.m. var sólskin og blíðu-
veður. Hann á að eiga sér 40
bræður að vorinu. Gvendardag-
ur, sem er á morgun, er einnig
merkisdagur.
Nýlátinn er hér Ágúst Jensson,
Reykjarfirði. Hann var fæddur
30. marz 1883. — P.P.
Alvurlegt óstond í Argentínu
Segja má, að herlög gildi nú í landinu
BUENOS Aires, Argentínu, 16.
marz (Reuter). — Forseti Argent
ínu, Arturo Frondizi, gaf í gær-
kvöldi út tilskipun, þar sem mælt
er fyrir um, aff fariff skuli með
skemmdarverkamenn og affra
óaldarseggi eins og gerist á stríffs
tímum — en þaff þýffir m.a. þaff,
aff dauðarefsing er lögff við ýmiss
konar hermdar- og skemmdar-
verkum, íkveikjum, affild aff fé-
lög'um, sem bönnuff eru o.s.frv.
★
f tilskipuninni er hernaðaryfir-
völdum falið að setja á stofn her-
dómstóla til þess að fjalla um
mál hermdarverkamanna, sem
hafa látið mjög á sér kræla und-
anfarinn mánuð — gert sprengju
árásir á járnbrautir, olíu- og
gasstöðvar og heimili einstakl-
inga. — Lögregla og herlið gerðu
í dag herferð gegn óaldarseggj-
um, og voru margir handteknir
— þar á meðal ýmsir fylgismenn
Perons, fyrrum einræðisherra.
í yfirlýsingu forsetans í gær-
kvöldi sagði, að ástandið í land-
inu væri nú orðið „mjög alvar-
legt“ — en ekki væri þó ástæða
til að hafa afskipti af starfsemi
leyfðra pólitískra samtaka eða
verkalýðsfélaga að svo komnu
máli, og væru hin auknu völd
hernaðaryfirvaldanna við það
miðuð.
Æviágrip allra núlifandi
V - íslendinga skrásett
Fyrsta bindib væntanlegt í sumar
Erfitt verk
UNDANFARIN tvö sumur
hefur Árni Bjarnarson, bóka-
útgefandi á Akureyri, ferðast
um íslendingabyggðirnar í
Vesturheimi og safnað sam-
an æviágripum þeirra manna
vestanhafs, sem af íslenzku
bergi eru brotnir. Er nú í
sumar væntanlegt fyrsta
bindið af. Æviskránum. í til-
efni þess skýrði Árni Bjarn-
arson blaðamönnum frá
undirbúningi og starfi þeirra
manna, sem unnu af ævi-
skráningunum og fórust hon-
um m. a. orð á þessa leið:
Skrásetning hafin fyrir tveimur
árum.
— Árið 1958 skipaði ríkis-
stjórnin nefnd, til áð vinna að
auknu samstarfi við Vestur-ís-
lendinga. Skilaði nefndin alls um
40 tillögum og var ein þeirra
þess efnis, að hafizt yrði skjót-
lega handa um að skrifa stutt
æviágrip allra núlifandi Vestur-
íslendinga.
Sumarið 1958 fóru þrír menn,
auk mín, til Bandaríkjanna, þeir
Steindór Steindórsson, mennta-
skólakennari, séra Benjamín'
Kristjánsson á Laugalandi og
Gísli Ólafsson, yfirlögregluþj. á
Akureyri. Ferðuðumst við um all
margar íslendingabyggðir og
skrásettum alla þá íslenzkættaða
menn, er við hittum. Undirtekt-
irnar voru sæmilegar, nokkuð
bar á því, að menn vildu 'ekki
vera með, og stór hópur manna
vildi ekki láta myndir fylgja,
en Gísli Ólafsson, lögregluþjónn
sá um myndatökurnar.
20 bátar með
237 lestir
AKRANESI, 16. marz. — Allir
bátarnir hér eru á sjó í dag. I
gær lönduðu 20 bátar alls 237
lestum. Aflahæstu bátarnir voru
Sæfari með 27 lestir, Sigurvon
með 25 lestir og Sigurður með
18 lestir. Margir bátanna voru
með fjórar, fimm og sex lestir,
allt ofan í 1200 kg. — Oddur.
Síðan skýrði Árni frá því, að
þegar þeir félagar hefðu komið
heim um haustið, hefði þegar
verið hafizt handa að vinna úr
skrásetningunum, sem væri erf-
itt og vandasamt verk. Sumarið
eftir fór hann aftur vestur um
haf ásamt Gísla Ólafssyni, ferð-
aðist um alla Kyrrahafsströndina
allt suður til San Diego, flutti er-
indi, sýndi kvikmyndir og skrá-
setti. Eftir- heimkomuna unnu
hann og séra Benjamín stanz-
laust að því að búa verkið undir
prentun. Séra Jón Guðnason,
skjalavörður, hefði síðan endur-
skoðað verkið og myndi bókin
koma út næsta sumar. Sagði síð-
an:
Minnzt á um tíu þúsund manns
— Fyrsta heftið af Vestur-ís-
lenzku æviskránum mun verða
rúmar 500 blaðsíður að stærð,
prentað á myndapappír í Prent-
verki Odds Björnssonar á Akur-
eyri, og er vel til útgáfunnar
vandað. í bókinni eru kringum
800 æviskrár, en alls mun vera
minnzt á um 10 þúsund manns.
Bókin mun því kærkomin öllum
þeim, sem ætt- og mannfræði
unna. Aftast í henni er ítarleg
nafnaskrá, ennfremur íslenzk-
enskur orðalykill að helztu orð-
unum, sem fyrir koma í bókinni,
til hagræðis fyrir þá Vestur-ís-
lendinga, sem ekki tala ís-
lenzku. Er ég ekki í vafa um að
þessi bók verður mikið keypt
vestanhafs, engu síður en hér-
lendis, og hafa þegar borizt mörg
hundruð pantanir. . Mun - hún
kosta kr. 350 fyrir áskrifendur,
en kr. 450 í lausasölu. Fjöldi
mynda prýðir bókina.
Ný tengsl endurvakin
Að lokum sagðist Árni mundu
fara aftur til Bandaríkjanna í
sumar og halda áfram starfi sínu.
Væri tiltækt efni hátt upp í ann-
að bindi, en ekki gat hann sagt
með vissu um, hvað þau yrðu
mörg alls. Kvaðs hann vonast til
að þessar æviskrár yrðu til þess
að endurvekja hin gömlu kynni
og skapa ný tengsl milli frænda
báðum megin hafsins.
f NA /5 hnútar f S V 50 hnutar Snjókoma * ÚSi \7 Skúrír IZ Þrumur WSS, KulJaskil Hilaskil H HaS L LaqS
Á KORTINU hér ber mest á
lægðarsvæði yfir vestanverðu
Atlantshafi og Suður-Græn-
landi. Lægðarmiðjan (985 mb)
er um 1800 km. suðvestur af
Reykjanesi. Hitaskil um 800
km. suður af íslandi þokast
norður eftir og er því búizt
við nokkurri rigningu hér
sunnanlands og hlýnandi
veðri.
Yfir Canada er kalt háþrýsti
svæði enda er 18 stiga frost í
Gander. Á Nýfundnalandsmið
um er víða hvass norðan með
5—10 stiga frosti. Hins vegar
er mjög stillt og hlýtt veður
um Bretlandseyjar og Frakk-
land, en 2—8 stiga frost í Sví-
þjóð.
Veffurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi: SV-land, Faxaflói,
SV-mið og Faxaflóamið: Vax-
.andi SA-átt í nótt, allhvass
eða hvass SV og rigning með
morgninum. Breiðafjörður, V-
firðir, Breiðafj arðarmið og V-
fjarðamið: SA-gola í nótt en
SA stinningskaldi og sums
staðar rigning á morgun. Norð
urland til Vestfjarða og N-
mið til A-fjarðamiða: Hæg-
viðri, víðast frostlaust og
þurrt veður. SAland og SA-
mið: Hægviðri í nótt en vax-
andi SA-átt á morgun og rign-
ing vestan til.
v.