Morgunblaðið - 17.03.1960, Blaðsíða 20
V E D R I Ð
Sjá veðurkort á bls. 2.
F járlögin
Sjá bls. 11.
64. tbl. — Fimmtudagur 17. marz 196C
Verður mjólkiri hér
vítamínbætt ?
í FEBRÚAR — marz hefti bún-
aðarritsins Freys er skýrt frá
tilraunum, sem fram fóru á til-
raunabúi danska ríkisins í Hille-
röd með að setja c-vítamín í
mjólk (ascorbinsýru). Var dags-
birtan látin verka á ascorbinsýru
mjólkurinnar til að mynda bragð
galla. Tilraunir þessar leiddu í
Ijós, að ascorbinsýrumagnið
þverr mjög snögglega í dagsbirtu
og um leið koma fram bragðgall-
ar, svipaðir og sólbragð og tólg-
arbragð. Við geymslu mjólkur í
myrkri minnkaði ascorbinsýru-
magnið mjög hægt, en því lægri
sem geymsluhitinn er þeim mun
minna verður tapið.
Rannsóknir á verkan dags-
birtunnar á ascorbinsýruna, og
við bragðgalla, sem myndast við
ljósverkanir, sýndu, að eyðingu
ascorbinsýrunnar og nefnda
bragðgalla er hægt að forðast
með því að vernda mjólkina gegn
öllu ljósi með bylgjulengd neðan
við ca. 500 mu: þ.e.a.s. útblátt og
blátt Ijós. Mjólkurflaska, sem
ætti að uppfylla þessar kröfur,
yrði að hafa sterkan gulan lit.
Rauðar eða brúnar flöskur má
jafnvel nota, þar sem slíkar flösk
ur taka til sín enn meira af hinu
«ýnilega ljósi.
Tilraunir héríendis
Mbl. hafði í gær tal af >ór-
lialli Halldórssyni, fulltrúa borg
arlæknis, og spurðist fyrir um,
hvort tilraunir með að setja c-
vítamín í mjólk hefðu átt sér
stað hérlendis. Kvað fulltrúinn
það ekki vera, hinsvegar hefðu
athuganir og tilraunir með að
eetja d-vítamín í mjólk átt sér
sta ðhérlendis, en ekki væri tíma
bært að ræða um það á núver-
andi stigi málsins, m.a. kæmu til
greina tekniskir erfiðleikar hjá
mjólkursamsölunni og einnig
væri þarna um kostnaðaratriði
að ræða, sem ekki hefði verið
leyst ennþá, en það væri skoðun
eín, að æskilegt væri að vítamín-
bæta mjólk hérlendis með d-víta
míni og einnig c-vítamíni yfir
vetrarmánuðina.
Hefur Þórhallur lagt áherzlu
á þetta áður í greinum í blöðuxn
og tímaritum.
Dularfullur
togari
Seyðisfirði, 16. marz: —
Á HÁDEGI í gær kom er-
Iendur togari hingað inn til
að fá vatn. Togarinn lagðist
að bryggju milli klukkan
5 og 6 og varð mönnum
starsýnt á hann, því hann
virtist veiðafæralaus með
öllu og voru hvorki málaðir
á hann einkennisstafir eða
nafn, að séð væri.
Skipstjórinn, sem er
Belgi, sagði að togarinn
væri eign gríska skipakóngs
ins Onassis, og voru skips-
menn belgískir og grískir.
Spurði skipstjórinn heima-
menn, hvar helzt væri að
kaupa fisk á íslandi og var
honum bent á Vestmanna-
eyjar. Togarinn fór héðan
um kl. 10 í morgun og
kvaðst skipstjórinn þá ætla
að halda til Vestmannaeyja
til að kaupa fisk. — K.H.
Olafsvíkur-bátar með
5177 tonn frá áramótum
ÓLAFSVÍK, 16. marz: — Oslitið
fiskirí hefir verið hér frá mán-
aðamótum og unnið hvíldarlítið
í frystihúsunum og á söltunar-
slöðinni.
Heildarafli bátanna *rá áramót
um er orðinn 5177 tonn í 594 róðr
um, og hefir hæsti báturinn, sem
er Jón Jónsson, fengið 615 tonn
í 59 róðrum. Með hann er Jón-
steinn Halldórsson, sonur Hall-
dórs Jónssonar útgerðarmanns,
Koma við í Fœreyjum
EINS og áður hefur verið skýrt
frá hefur Fiskimannafélag Fær-
eyja aflétt banni því, sem sett var
við því að Færeyingar réðu sig á
íslenzk skip.
Margir íslenzkir togarar, sem
sigla með afla sinn til útlanda,
koma nú við í Færeyjum á heim-
} Norðurlandaþjóðir
leggi niður sendiráð
hver hjá annarri
Úr þingræðu Magnúsar Jónssonar
í ÍTARLEGRI framsögu
ræðu um fjárlagafrum-
varp 1960 á Alþingi í gær
ræddi formaður fjárveit-
inganefndar, Magnús
Jónsson, um möguleika
til sparnaðar í ríkis-
rekstrinum. Um sparnað
í utanríkisþjónustunni
fórust honum orð á þessa
leið:
— Utanríkisþjónustan og
þátttaka í öllum greinum
alþjóðlegs samstarfs er að
verða of þungur baggi.
Sendiráðin eru óþarflega
mörg og má ekki lengur
dragast að endurskipu-
Ieggja utanríkisþjónustuna
með fækkun sendiráða fyr
ir augum. Jafnvel meðal
stórþjóða er tekið að kvarta
yfir útgjöldum til utanrík-
isþjónustu. Ég vil í þessu
sambandi varpa fram þeirri
hugmynd hvort ekki geti
komið til greina að leita
samstarfs við aðrar Norð-
urlandaþjóðir um það að
Ieggja niður öll sendiráð
landanna innbyrðis, en fela
í þess stað skrifstofum Norð
urlandaráðs í hverju ríki
þau störf, sem ekki eru
hægt að vinna í hinum
föstu samstarfsnefndum og
ráðherrafundum. Mál sem
þessi þurfa auðvitað ítar-
lega athugun áður en hægt
er að flytja um það form-
legar tillögur.
leið til þess að leita fyrir sér um
ráðningu færeyskra sjómanna.
Togarinn Keilir kom við í Fær-
eyjim sl. þriðjudag og tók þar
16 iæreyska sjómenn. Röðull var
í Færeyjum í gærkvöldi sömu
erinda og Gylfi og Ólafur Jó-
hannesson verða þar í dag. Þá
sig’di togarinn Sólborg frá ísa-
firði til Færeyja í gær þeirra er-
inda að ráða þar 35 færeyska sjó-
• * v jvS-:
Bergsteinn Guðjónsson
og eiga þeir bátinn. Næsti bátur
er Stapafell með 603 tonn í 58
róðrum. Skipstjóri er Tryggvi
Jónsson og á hann bátinn ásamt
Víglundi Jónssyni, sem rekur
söltunarstöðina. j Hásetahlutur á
Stapafelli er orðinn yfir 40 þús.
kr. — Þriðji hæsti báturinn frá
áramótum er Bjarni Ólafsson
(36 tonn), með tæp 500 tonn.
í gær voru bátar héðan frá
Ólafsvík með frá 11 tonnum og
upp í 26, sem Bjarni Ólafsson
hafði. Höfðu margir um 20 tonn.
— Fréttaritari ..
Skellinöðru stolið
A MÁNUDAGSKVÖLD eða
þriðjudag ar stolið skellinöðru
frá Grundarstíg 3. Var hjólið
inni í geymslu inni á lóðinni.
Þetta var græn NSU skelli-
naðra, og númer hennar R—396.
Þeir sem kynnu að geta gefið
einhverjar upplýsingar um þetta,
eru beðnir um að hafa samband
við rannsóknarlögregluna.
HÉRNA eru þau, Háskóla-
frimerkin frá 1940, sem
samkvæmt upplýsingum er-
lendis frá, áttu að hafa
týnzt með skipi á stríðsár-
unum. Þau lágu innpökkuð
og óhreyfð í geymslu póst-
stjórnarinnar hér, og höfðu
af einhverjum ástæðum
aldrei verið gefin út. —
Hér sést Oddr Bjarnason,
starfsmaður hjá póstinum,
við þessa umræddu pakka.
Geir Hallgrímsson
tekur sæti
á Alþingi
GEIR HALLGRÍMSSON, borgar-
stjóri, tók sæti á Alþingi í
gær sem varamaður Bjarna
Benediktssonar, dómsmálaráð-
herra, sem farinn er til landhelg-
isráðstefnunnar í Genf.
Var kjörbréf Geirs Hallgríms-
onar tekið fyrir og samþykkt á
fundi sameinaðs þings í gær.
Geir er 2. varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík. Fyrsti varaþingmaður
flokksins, Davíð Ólafsson, situr
landhelgisráðstefnuna í Genf.
Bæjarráð leyfir
umferðarmiðstöð
A FUNDI bæjarráðs er haldinn
var á þriðjudaginn ákvað bæjar-
ráð, að heimila fyrir sitt leyti, að
framkvæmdir verði hafnar við
byggingu hinnar miklu umferð-
armiðstöðvar fyrir Reykjavík.
Stöðin verður þar sem kallað er
Aldamótagarðarnir, en þeir eru
fyrir neðan Hringbraut á móts
við Kennaraskólann eða þar um
bil.
Umferðarmiðstöð þessi verður
Lýðræðissinnor unnu í Frumu
í GÆR og fyrrádag fór fram
stjórnarkjör í Bifreiðastjórafélag
inu Frama.
Úrslit urðu þau, að Alisti lýð-
ræðissinna hlaut 217 atkv. og alla
menn kjörna. B-listinn hlaut 159
atkvæði.
Stjórn Frama er þannig skip-
uð: Bergsteinn Guðjónsson, for-
maður, Andrés Sverrisson, vara-
formaður, Sófus Bender, ritari
og meðstjórnendur Jóhann V.
Jónsson og Grímur Runólfsson.
aðalbækistöð fyrir fólksflutninga
með bílum til og frá bænum. Það
verður rikið, sem lætur reisa
þessa byggingu. Hefur fyrir
nokkru verið kjörin sérstök bygg
ingarnefnd og er formaður henn-
ar Jón Sigurðsson forstöðumaður
Innflutningsskrifstofunnar.
KÓPAVOGUR
KÓPAVOGSBÚAR! — Munið
skemmtikvöld Sjálfstæðisfélag-
anna í Félagsheimilinu annað
kvöld kl. 9.
KEFLAVÍK
HEIMIR, félag ungra Sjálfstæð-
ismanna, Keflavík heldur spila-
kvöld kl. 9 að Vík uppi.
Aðgangur ókeypis. Góðir vinn-
ingar.