Morgunblaðið - 17.03.1960, Síða 5
Fimmtudagur 17. marz 1960.
MORGUNELAÐIÐ
5
30
Elsku, lítlí mömmudrengur
Laugardaginn 12. þ.m. voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Sigrún Magnúsdóttir og Hörður
Isaksson, sjómaður. — Heimili
þeirra er að Sóleyjargötu 23.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Þórunn Haraldsdótt-
ir, Þorvaldsstöðum, Bakkafirði
og Magnús Guðjónsson prentari,
Skólabraut 2, Hafnarfirði.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af sr. Árelíusi Níels-
syni ungfrú Elsa Kristjánsdóttir
frá Litla-Múla í Saurbæ, Dal. og
Aðalsteinn Páll Guðjónsson frá
Harrastöðum, Fellsströnd, Dal. —
Heimili ungu hjónanna er að Álf-
heimum 19. — Ljósm. Studíó.
„Golf, golf, golf — hvæsti
konan að eiginmanninum, sem
var að leggja af stað í golf-
klúbbinn. — Ég er viss um að
ég dytti dauð niður, ef þú vær
ir einu sinni heima á sunnu-
degi.
— Nei, vina mín, svaraði
hann. — Það þýðir ekkert að
segja svona, þú veizt að þú
getur ekki mútað mér.
— Hvernig reynist nýja
vinnukonan?
.— Ágætlega, hún er reglu-
lega dugleg, en alltaf svo ó-
sköp hrædd — hún verður
að hafa hervörð hjá sér í eld-
húsinu á hverju kvöldi.
MENN 06
= MALEFNI=
1
Samkvæmt fréttum frá
NTB hefur eini Þjóðverj
inn, sem gegnir þjónustu
í brezka hernum, Fritz
Öhme, valdið yfirstjórn
brezka hersins miklum
vandræðum.
Öhme krefst þess að
mega festa á hinn brezka
einkennisbúning sinn —
járnkross, sem hann
fékk í heimstyrjöldinni
síðari. Yfirboðari hans
vill ekki fallast á, að
Öhme gangi um með járn
krossinn og styður mál
sitt þeim rökum, að
Þjóðverjinn hafi fengið
heiðursmerkið, þegar
Bretland átti í styrjöld
við Þýzkaland.
Öhme heldur fast við
sitt og segist hafa feng-
ið járnkrossinn fyrir
vasklega framgöngu á
Austurvígstöðvunum, —
þar sem hann tjórnaði
þýzkum hermönnum í
árás á Rússa. Þýzkaland
sé nú í NATO og sjái
hann enga ástæðu til að
bera ekki heiðursmerki
sín.
Málið hefur nú komið
fyrir hermálaráðuneytið
í London, sem styður yf-
irboðara Öhmers. Eng-
inn hermaður, sem gegn
ir þjónustu í brezka hern
um, getur borið erlend
heiðursmerkí án sam-
þykkis drottningar, og
enu lítil líkindi til þess
að undantekning verði
gerð í þessu tilfelli.
Hinn vinsaeli söngleikur
Rjúkandi ráð, sem nýtt
leikhús hefur sýnt í vetur
við miklar vinsældir, verð-
ur sýndur í síðasta sinn í
Austurbæjarbíói kl. 11,30 á
fimmtudagskvöld. Þetta er
50. og jafnframt síðasta
sýning á söngleiknum. —
Lögin í leiknum eru eftir
Jón M. Ámason. Myndin
er af Peeper B. Rackett,
verði laganna, fegurðar-
keppnisstjóranum og nokkr
um þokkadísum.
Eímskipafélag íslands h.f.: — Detti-
foss fór frá Rostock í gær til Hamborg-
ar. — Fjallfoss er í Rvík. — Goðafoss
fór frá Keflavík í gær til Bergen.
Gullfoss fer frá Rvik á morgun til
Hamborgar og Kaupmh. — Lagarfoss
er á leið til Rvíkur. — Reykjafoss fer
frá Hull í dag til Rvíkur. — Selfoss er
á leið til Rostock. — Tröllafoss er á
leið til New York. — Tungufoss er á
leið til Rostock.
H.f. Jöklar: — Drangajökull er í
Keflavík. — Langjökull er á Ieið til
Ventspils. — Vatnajökull er í Rvík.
Skipadeild SXS.: — Hvassaíell er
væntanlegt til Borgarness á morgun.
— Arnarfell er væntanlegt til Sas van
Gent á morgun. — Jökulfell fer frá
Keflavík i dag til New York. — Disar-
fell losar á Austfjörðum. — I.itlafell
losar á Norðurlandshöfnum. — Helga-
fell er á Ieið til Sarpsborg. — Hamra-
fell er á leið til Aruba.
Skipaútgerð rikisins: — Hekla er 1
Reykjavík. — Herðubreið fer frá Rvík
í dag vestur um land i hringferð.
Skjaldbreið er væntanleg til Rvikur í
dag. UyriII er á leið frá Frederiksstað
tii Hjalteyrar. — Herjólfur fer frá
Vestm.eyjum i dag áleiðis til Homafj.
Hafskip: — I.axá er í Reykjavik.
Eimskipafélag Reykjavikur h.f.: —
Katla er í Keflavík. — Askja er á leið
til Reykjayíkur.
Flugfélag íslands h.f.: — Millilanda-
flug: Hrímfaxi er væntanlegur til R-
víkur kl. 16:10 í dag frá Kaupmh. og
Glasgow. — Innanlandsflug: I dag er
áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferð-
ir), Egilsstaða, Kópaskers, Vestmanna-
eyja og Þórshafnar. — A morgun til
Akureyrar, Fagurhólsmýrar, Horna-
fjarðar, Kirkjubæjarldausturs og Vest-
mannaeyja.
Loftleiðir h.f.: — Hekla er væntanleg
kl. 7:15 frá New York. Fer til Osló,
Gautaborgar og Kaupmh. kl. 8:45. —
Saga er væntanleg kl. 19:00 frá Ham-
borg, Kaupmh., Gautaborg og Stav-
anger. Fer til New York kl. 20:00.
Læknar fjarveiandi
Snorri P. Snorrason, fjarv. 3—4 mán-
uði frá 22. febr. — Staðgengill: Jón
Þorsteinsson.
Sigurður S. Magnússon læknir verð-
ur fjarverandi frá 14. marz um óákv.
tíma. Staðg.: Tryggvi Þorsteinsson,
Vesturbæjarapóteki. Viðtalstími 4.30—
5 alla virka daga nema laugardaga.
Sími 1-53.40.
• Gengið •
Sölugengi
1 Sterlingspund ...... kr. 106.84
1 Bandaríkjadollar .... — 38.10
1 Kanadadollar ........_ — 40.07
100 Danskar krónur.........— 551.95
100 Norskar krónur ....... — 533.25
100 Sænskar krónur ....... — 735.75
100 Finnsk mörk .......... — 11.93
100 Franskir Frankar .... — 776.30
100 Belgiskir frankar .... — 76.40
100 Svissneskir frankar .. — 878,65
100 Gyllini ............. — 1010.40
Ungverjaland ......... — 100.14
100 Tékkneskar krónur____— 528.45
100 Vestur-þýzk mörk ........ — 913.65
1000 Lirur _________________— 61,32
vinar^föp
\Jerk. l?r. 3 93
Jfekla
Sími 11687.
Sjómann
vantar strax á netabát frá Reykjavik. Upplýsingar
í síma 10344.
■ Framtíðaratvinna
Maður með vélfræðimenntun eða hliðstæða reynslu
óskast strax til ábyrgðarstarfa. Góð enskukunnátta
nauðsynleg. Til greina kemur t.d. flugvélavirki eða bif-
vélameistari. Skriflegar umsóknir er greini, aldur og
aðrar æskilegar upplýsingar sendist oss fyrir hádegi,
mánudaginn 21. þ.m.
OLÍLFKLAGIÐ SKELJUNGUR H.F.
Trésmiður
óskast til útgerðastöðvar á Suðurnesjum. Smíðar-
réttindi ekki nauðsynleg, en reglusemi skilyrði. Um
framtíðaratvinnu getur verið að ræða. Tilboð merkt:
„Trésmiður — 9354“ leggist á afgr. blaðsins fyrir
25. þ.m.
Laus staða
Opinber stoínun í Reykjavík óskar eftir að ráða
mann með bókhaldsreynzlu eða menntun til forstöðu
skrifstofudeildar. Umsóknir með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu
Morgunblaðsins fyrir mánudaginn 21. marz merktar:
„9893“.
Verksmiðjuvinna
2—3 stúlkur geta fengið vinnu við frá-
gang og saumaskap.
%
Verksmiðjan Kferkules h.f.
Bræðraborgarstíg 7 H hæð.
Dugleg og ábyggileg
stúlka
óskast nú þegar.
Verzlunin |_aufás
Lauíásveg 58.