Morgunblaðið - 17.03.1960, Qupperneq 19
Fimmtudagur 17. marz 1960.
MORCUNBLAÐIÐ
19
Bæjarbíó í Hafnarfirði sýnir nú fransk-ítalska mynd, sem hlotið
hefur góðar undirtektir. Gerist hún í myrkasta hluta Kongós og
er allspennandi á köflum. Aðalhlutverkin eru leikin af þekkt-
um leikurum, svo sem Charles Vanel, Pedro Armendaris og
Marcello Mastroianni.
— Loftleiðir
Framh. áf bls. 1
ferðamanna- og sparifarrými,
sem nú viðgengst.
Lækkun 6—22%
Á betra farrými munu fargjöld
hækka lítillega á ýmsum flug-
leiðum, en á ódýrara farrými
verða lækkanir, sem nema frá
6—22%, misjafnt eftir flugleið-
um, en lægst verða fargjöld, þeg-
ar keyptir eru farmiðar fram og
til baka, eða hin svonefndu „ex-
cursion“-fargjöld — og er þá
ætlazt til, að farþegar noti far-
miðann fram og til baka innan
tiltekins tíma.
Verðmunur verður á fargjöld-
um með þotum og eldri gerðum
flugvéla. Sem fyrr segir, verður
fargjaldið London—New York
og aftur til baka 320 dollarar
með skrúfuvél, en áður var
lægsta fargjald á þessari leið
462,60. Önnur fargjöld milli
borga beggja vegna hafsins eru
miðuð við leiðina London—New
York.
Loftleiðir ekki lengur lægstir
Við þessa fargjaldalækkun
breytist aðstaða Loftleiða veru-
lega. Félagið á ekki aðild að
IATA og hefur sem kunnugt er
boðið lægri fargjöld en IATA-
félögin milli Evrópu og Ameríku.
Að sumrinu hefur Loftleiðafar-
gjald á fyrrgreindri fiugleið ver-
ið 447,20 dollarar, en að vetrin-
um 405,20 dollarar. Fram og til
baka á leiðinni Kaupmannahöfn
—New York hefur lægsta IATA-
fargjaldið verið 538,20 dollarar,
sumarfargjald Loftleiða 464,40
dollarar og vetrarfargjald 422,40
dollarar. Ef að líkum lætur
lækka IATA-fargjöld milli New
York og Kaupmannahafnar og
annarra þeirra staða í Evrópu,
sem Loftleiðir hafa flogið til, í
samræmi við lækkunina á leið-
inni London—New York.
Bjóst ekki við jafnmikilli lækkun
Þegar fréttin barst í gær frá
París voru stjórnarmeðlimir
Loftleiða heima hjá Alfreð Elías-
syni, framkvstj. félagsins, því að
Alfreð hélt þá upp á fertugsaf-
mæli sitt. Fréttamaður Mbl.
hringdi þangað heim og náði
sambandi við Sigurð Magnússon,
blaðafulltrúa Loftleiða.
Hann sagði, að forráðamenn
félagsins mundu að svo komnu
máli ekki geta gefið neina yfir-
lýsingu, málið yrði ekki rannsak-
að til fullnustu fyrr en ýtarlegar
fréttir af samþykkt IATA hefðu
borizt.
Sigurður sagði, að menn hefðu
haft hugboð um að úrslit Parísar-
fundarins mundu verða sú, að
fargjöldin yrðu lækkuð, en ekki
kvaðst hann hafa búizt við að
lækkunin yrði jafnmikil og virt-
ist af fyrstu fréttum.
Að svo stöddu væri því ekki
hægt að svara neinu um við-
brögð Loftleiða.
Spurningunni er því ósvarað:
— Geta Loftleiðir lækkað far-
gjöld sin enn svo mjög, að þeir
geti framvegis boðið lægstu far-
gjöld?
— Gaitskell
Frh. af bls. 1.
stefnu hans — og tala sumir
fréttaritarar um, að aðstaða hans
sem foringja flokksins sé nú allt
annað en trygg.
Það vekur athygli, að „sátta-
fundur“ þessi er haldinn daginn
fyrir tvennar aukakosningar, en
á morgun verður kosið um tvö
þingsæti. í öðru kjördæminu er
íhaldsþingmaður talinn öruggur,
en hitt vann Verkamannaflokk-
urinn með aðeins 47 atkvæða
meirihluta í síðustu kosningum.
—- Mun verða fylgzt vel með
þessum kosningum á morgun,
þar sem talið er, að þar muni
koma allvel í Ijós, hvers trausts
stjórnarstefna Macmillans al-
mennt nýtur annars vegar — og
hins vegar, hver áhrif ósamkomu
lagið innan Verkamannaflokks-
ins hefur haft á fylgi hans síðan
í síðustu kosningum.
V öruskipta jöf n uð-
urinn óhagstæður
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN
við útlönd í janúarmánuði sl.
var óhagstæður um 42 millj. og
293 þús. kr. A sama tíma í fyrra
var vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 24 millj. og 623 þús.
kr. Fluttar voru út vörur fyrir
alls 78 millj. og 258 þús. kr., en
á sama tima í fyrra fyrir 63 millj.
og 408 þús. kr. Inn voru fluttar
vörur fyrir 120 millj. 551 þús. kr.,
en á sama tíma í fyrra fyrir 85
millj.
Björn Pálsson
til Neskaupstaðar
— Neskaupstað, 16 .marz.
KLUKKAN 11,30 í morgun kom
Björn Pálsson flugmaður í flug-
vél sinni hingað og lenti á flug-
vellinum, sem er í byggingu.
Með flugvélinni var Geir Óskar
Guðmundsson, vélfræðingur hjá
Héðni hf. Erindið var að athuga
ýmislegt varðandi endurbætur
á síldarverksmiðju Síldarvinnsl-
unnar hf. í Neskaupstað. Aðal-
framkvæmdin, sem fyrir liggur,
er bygging mjölgeymsluhúss.
Þeir félagar fóru aftur suður
um kl. 14, og einn farþegi bætt-
ist í hópinn, Hilmar Haraldsson,
sem ráðinn hefur verið verk-
smiðjustjóri Síldarvinnslunnar
h.f.
Langt er nú síðan lent hefur
verið á flugvellinum hér. Þurfti
að jafna hann með jarðýtu fyrir
lendinguna, og var brautin þá
orðin ágæt, nema nokkuð þung
vegna bleytu.
f sumar mun ráðgert að ganga
frá 5—600 metra langri flugbraut
sem sjúkraflugvél Akureyrar get
ur notað og koma upp öryggis-
búnaði við völlinn.
Kjai nasprenging
neðanjarðar ?
WASHINGTON, 16. marz (Reut-
er): — Kjarnorkunefnd Banda-
ríkjanna tilkynnti í dag, að fyr-
irhugað væri að sprengja kjafna-
sprengju neðanjarðar í Nýju-
Mexíkó á næsta ári, sennilega í
janúar. Er sprengikraftur áætl-
aður sem svarar 1000 lestum af
1NT.
•— ★ —
Talsmaður nefndarinnar sagði,
að hér væri ekki um venjulega
kjarnasprengju að ræða, heldur
sérstaka „kjarnahleðslu", sem
veita myndi ýmsar upplýsingar,
sem að gagni mættu koma við
friðsamlega nýtingu kjarnork-
unnar, enda mundi vísindamönn-
um annarra þjóða veittur aðgang
ur að þeim upplýsingum, sem
þarna kunna að fást.
— ★ —
Eisenhower forseti hefir ekki
enn gefið formlegt samþykki sitt
til þess, að tilraun þessi verði
gerð, en ef af henni verður, mun
hún væntanlega verða fyrsta
kjarnorkusprenging Bandaríkja-
manna, síðan stórveldin þrjú
Bretland, Bandaríkin og Sovét-
ríkin samþykktu að hætta kjarna
vopnatilraunum í októberlok
195'
Keflavik
2ja til 3ja herb. íbúð óskast,
fyrir einhleyp, amerísk hjón.
fbúðin þarf að vera með hús-
gögnum. Tilboð sendist afgr.
Mbl., fyrir föstud., 18. þ. m.,
merkt. „1309“. — Upplýsingar
í síma 1327.
Móðir okkar
MARfA SÆMUNDSDÓTTIR
frá Hvítárvöllum,
lézt í Landakotsspítala 15. þessa mánaðar.
Börnln.
Maðurinn minn
JÓN ÓLAFSSON
bankagjaldkeri,
verður jarðsettur frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugard. 19. marz kl. 2. Blóm afþökkuð, en þeim sem
vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á sjúkra-
sjóð kvenfélags Iúknar.
Þórunn Sigurðardóttir.
Frænka mín Frk. RAGNHILDAR JAKOBSDÓTTIR frá Ögri, andaðist , Bæjarsjúkrahúsi Reykjavíkur 13. þ.m. Kveðju- athöfn fer fram í Dómkirkjunni föstud. 18. þ.m. og hefst kl. 1,30. Kirkjuathöfninni verður útvarpað. BáJ- för verður gerð í Fossvogi. Jón Auðuns.
Konan mín FRIÐGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR andaðist þriðjudaginn 15. þ.m. að heimili sínu Höfða- borg 35. Eiríkur Magnússon, börn, tengdabörn og barnabörn.
Eiginkona mín KRISTfN BÖRNSDÓTTIR Efstasundi 53, andaðist í Vífilsstaðahæli 5. þessa mánaðar. Jarðar- förin hefur farið fram. Fyrir mína hönd og barna hennar. Þórður Guðnason.
JÓHANN HJALTASON vélstjóri, er lézt sunnudaginn 13. þ.m. verður jarðsettur föstu- daginn 18. marz kl. 3 e.h. frá Fossvogskirkju. Guðný Guðjónsdóttir, böm og barnabörn.
Innilega þökkum við auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, fósturmóður, tengda- • móður og ömmu STEINUNNAR JÓNSDÓTTUR frá Gauksstöðum, Sérstaklega viljum við þakka Jósepssystrum Landa- koti fyrir alla umönnun og hlýhug í veikindum'hinnax látnu. Fyrir hönd okkar og fjarstaddrar systur. Rannveig Gísladóttir, Sigurjón Gíslason, Anna Ámadóttir, Magnús Gíslason, Ásta Guðmundsdóttir, Jón Gíslason, Ánna Árnadóttir, Fjóla Gísladóttir, Ingvar Sigfinnsson, Oddur Daníelsson, Bára Sigurjónsdóttir, og barnaböra.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og jarðarför Frú ÖNNU STEFÁNSDÓTTUR frá Stað Súgandafirði. Aðstandendur.
Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður HÖNNU ZOEGA Nanna og Þórarinn Olgeirsson, Svava og Eiric Greenfield, Sigríður og Sveinn Zoega. Þökkum hjartanlega öllum þeim sem auðsýndu okkur vináttu og samúð við andlát og jarðarför föður okkar og tengdaföður SNÆLAUGS STEFÁNSSONAR frá Árbakka. Sérstaklega þökkum við Jóni Jónssyni forstjóra fyrir veitta hjálp. Böm og tengdabörn.
Við þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu hlýhug sinn og samúð við fráfall og útför Frú ÖNNU E. FRIÐRIKSSON F.h. aðstandenda. Dís Atladóttir, Atli Ólafsson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda hluttekningu við jarð- arför, ÁRNA MAGNÚSSONAR frá Iðunnarstöðum Systurnar