Morgunblaðið - 02.04.1960, Blaðsíða 23
Laugardagur 2. apríl 1960
MORGVTSBLAÐIÐ
23
Önnur kjarnasprengja Frakka
— sprakk á meðon Krúsjeff svaf í höll de Gaulles
París, 1. april.
(Reuter-NTB)
FRAKKAR sprengdu aðra
kjarnorkusprengju sína í til-
raunastöðinni Reggan í Sa-
hara-eyðimörkinni í dögun í
morgun, er Krúsjeff, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
var enn í fastasvefni í höll
de Gaulle forseta, Rambouill-
et, skammt frá París. Þar
gisti hann í nótt og ræðir við
de Gaulle í dag og á morgun,
en Krúsjeff heldur heimleiðis
á sunnudag. — Sprengjan,
sem sprengd var í morgun
Handknattleiks-
mótið í kvöld
FIMM leikir verða leiknir í Hand
knattleiksmótinu í kvöld að Há-
logalandi, og hefst fyrsti leikur-
inn kl. 8.15 e.h. —. Leikirnir eru
þessir: 3. fl. K.A.a FH—ÍBK. 3.
fl. K.B.b. ÍBK—Haukar. í 2. fl.
K.A.a. leika ÍBK og Ármann.
Síðasti leikur kvöldsins verður í
2. deild K. milli SBR og ÍA.
15 milljónir
golfleikara
GALLUPSTOFNUNIN í Banda-
ríkjunum hefur eftir allumfangs-
mikla rannsókn tilkynnt að yfir
8 milljónir manna þar í landi
hafi árið 1958 leikið að minnsta
kosti einn hring á golfvelli.
Golfsamband Bandaríkjanna
segir að árið 1959 hafi yfir 4
milljónir manna þar í landi leik-
ið 10 hringi á golfvelli eða meir.
Sama heimild segir, að samtals
hafi golfmenn og konur í Banda-
ríkjunum leikið 81.250.000 hringi
á golfvöllum, en samsvarandi
tala var fyrir 1958 72.000.000
hringa.
Styttri vinnutími, aukinn
íþróttaáhugi og aukinn fólks-
fjöldi er orsök þessar miklu
aukningar. Og vegna þessarar
öru aukningar hafa fyrrgreindir
aðilar spáð því að yfir 15 millj.
manna muni leika golf í Banda-
ríkjunum árið 1970.
var miklu aflminni en hin
f y r r i kjarnorkusprengja
Frakka, sem þeir sprengdu á
sama stað hinn 13. febrúar sl.
* VIÐ YFIRBORÐ JARÐAR
Samkvæmt opinberri tilkynn-
ingu var sprenging þessi fram-
kvæmd við yfirborð jarðar, en
ekki í háum turni eins og hin
fyrri. Þá segir, að allar hugsan-
legar ráðstafanir hafi verið gerð-
ar til þess að koma í veg fyrir,
að geislavirkt ryk frá sprenging-
unni geti orðið hættulegt íbúum
nálægra landa. í tilkynningunni
■segir og, að allar mælingar, sem
gerðar verði í sambandi við
sprenginguna í athugunarstöðv-
um víða í Afríku, muni birtar
síðar. Talsmaður frönsku kjarn-
orkumálanefndarinnar sagði, að
sprenging þessi væri liður í til-
raunum til að framkvæma „litl-
ar“ kjamasprengjur, sem hand-
hægar væru í hernaði.
* FÁHEYRT TILL.ITSLEYSI
Skörpum skeytum hefur ver-
ið beint að Frökkum í ýmsum
Afríkulöndum í dag vegna
sprengingaiinnar. Þannig sagði
t. d. Búrgíba, forseti Túnis, að
sprengingin bæri vott um mikiö
kæruleysi og fáheyrt tillitsleysi
við íbúa Afríkulandanna. — For-
sætisráðherra Marokkó sagði, að
Frakkar hefðu hér gengið í ber-
högg við almenningsálitið í
heiminum.
* KOM KRÚSJEFF
EKKIÁ ÓVART
Gert er ráð fyrir, að þeir
Krúsjeff og de Gaulle hafi rætt
um kjarnorkusprenginguna á
fundi sínum í dag, en annars hef-
ur lítið sem ekkert af honum
frétzt. — Þá telja fréttamenn, að
Krúsjeff hafi ekki komið þessar
fréttir á óvart — hann muni hafa
fengið að víta fyrir um spreng-
inguna. — Að öðru leyti er talið,
að þeir de Gaulle hafi rætt
almennt um afvopnunarmál,
Þýzkalandsmálið og þá sér í lagi
Berlín, og um sambandið milli
austurs og vesturs almennt.
— o —
Meðan á fundi þeirra stóð,
ræddust einnig við utanríkisráð-
herrarnir de Murville og Gromy-
ko — sennilega til að undirbúa
sameiginlega yfirlýsingu Krús-
jeffs og de Gaulle, sem gefin
verður út á morgun. — Þá mun
Krúsjeff og halda blaðamanna-
fund á morgun og tala í útvarp
og sjónvarp annað kvöld, en
heimleiðis heldur hann á sunnu-
dagsmorgun, sem fyrr segir.
Tryggvi Helgason
Erindi um nýjustu aðferðir
við lífgun úr dauðadái
Flugvél í góðar
þarfir
ÍSAFIRÐI, 30. marz: — Tryggvl
Helgason, sjúkraflugmaður frá
Akureyri, hóf flug til ísafjarðar
laust fyrir síðustu mánaðamót
en þá var Katalínuflugbátur
Flugfélags íslands tekinn í skoð-
un og mun þeirri skoðun ljúka
eftir nokkra daga. Hættir
Tryggvi þá fluginu vestur og
heldur norður til Akureyrar á ný.
Tryggvi hefur flogið til Isa-
fjarðar um 30 ferðir í þessum
máiiuði og einnig hefur hann lent
á Arngerðareyri, Melgraseyri og
Þingeyri.
í einni ferðinni frá ísafirði
lenti hann á Þingeyri og tók þar
3ja ára dreng með sprunginn
botnlanga og flutti hann til
Reykjavíkur, þar sem hann var
skorinn upp.
Menn hafa verið mjög ánægðir
yfir flugferðum Tryggva hingað,
enda liefur það bætt úr brýnni
þörf, því það er ekki einasta
fólk, er flutt hefur verið, heldur
einnig allskonar varningur, sem
legið hefur á, svo sem varahlut-
ir í skip og vélar. — J.P.
RAUÐI KROSS íslands hefur
beitt sér fyrir því, að einn af
upphafsmönnum nýjustu áðferð
ar við lífgun úr dauðadái (blást-
ursaðferðarinnar) dr. Arne Rub
en, kemur hingað til lands n. k.
sunnudag og flytur erindi í
Reykjavík á sunnudag kl. 1,30,
Akureyri á mánudag, Keflavík á
þriðjudag og Akranesi miðviku-
dag.
Skagstrendingor mótmæla
flntningi síldarverksmiðja
SKAGASTRÖND, 1. apríl. —
Byrjað er nú að lima í sundur
síldarpressu þá, sem taka á hér úr
verksmiðjunni. Vegna atburðar
þessa hefir hreppsnefnd Höfða-
hrepps samþykkt eftirfarandi til-
lögu og sent verksmiðjustjórn-
inni:
„Fundur í hreppsnefnd Höfða-
hrepps haldinn 29. marz átelur
harðlega þá fyrirætlun síldar-
verksmiðjustjórnar að flytja
burtu vélar úr verksmiðjunni hér
Víkingui heimsótti Keflavíb
Á SUNNUDAGINN var fór
Knattspyrnufélagið Víkingur í
Iheimsókn til Keflavíkur. Var hér
um að ræða handknattleiksfólk,
konur og karla alls 65 að tölu.
Handknattleikur er nú mjög vin-
sæll meðal Víkinga, í hinum nýju
heimkynnum þeirra. Sama er að
segja um Keflvíkinga, áhugi fyr-
ir íþróttinni er mikill þar í bæ,
þótt tiltölulega stutt sé síðan byrj
að var fyrir alvöru að æfa og
keppa í handknattleik. Keflvík-
ingar eru í ár í fyrsta sinn þátt-
takendur í Handknattleiksmóti
Islands.
Farastjóri Víkinganna var Pét-
ur Bjarnason, formaður félags-
ins (Núverandi Landsliðsþjálfari
kvenna).
Leikirnir fóru fram í leikfimi-
sal barnaskólans í Keflavík, en
stærð hans leyfir ekki nema 6
manna lið.
1 kvennaflokkunum kepptu
þrjú lið, en fimm lið í karla
flokkunum. Víkingar báru sig-
ur úr fimm leikjum, Keflavík
vann einn leik og jafntefli varð
í tveimur leikjum. XJrslit í leikj-
unum urðu sem hér segir:
Keflavík vann 1. fl. kv. 9:5, en
Víkingur vann 2 fl. kv. B 15:2,
3 fl. karla A 21:18, 3 fl. karla
B 11:9. 3 fl. karla D 11:2 og 2 fl.
karla A 21:15. Jafntefli varð í
2 fl. kvenna A 6:6 og 3 fl. karla
C 7:7.
Víkingar róma mjög alla förina
og gestrisni Keflvíkinga, og
vænta þess að þeir geti boðið
Keflvíkingum í bæinn, sem allra
fyrst.
á staðnum og skorar jafnframt
á stjórnina að opna verksmiðj-
una til móttöku strax og síld fer
að veiðast".
Einnig sendi hreppsnefndin
verksmiðj ustj órninni eftirfarandi
tillögu:
„Með tilvísun til þeirrar hug-
myndar að hefja tilraunir með
heymjölsvinnslu hér á landi vill
hreppsnefnd Höfðahrepps vekja
athygli síldarverksmiðjustjórnar
á góðum skilyrðum til þess að
fá hráefni til þeirrar vinnslu hér
í grennd við verksmiðjuna. Tel-
ur hreppsnefndin æskilegt að til-
raun verði gerð með þetta á kom
andi sumri hér í verksmiðjunni,
þar sem Vilhjálmur Guðmunds-
son framkvæmdastjóri telur
möguleika á þessari vinnslu án
verulegra breytinga á verksmiðj
unni“.
Hér leggja upp níu bátar sem
stendur ,en afli þeirra er mjög
tregur. — Fréttaritari.
Jafnframt erindinu verður
sýnd kvikmynd um Hjálp í við-
lögum og einnig flóttamannakvik
mynd, ef þess verður kostur. Að-
gangur að erindaflutningnum og
kvikmydasýningunum verður ó-
keypis, en framlögum til flótta-
mannahjálpar veitt viðtaka við
innganginn.
Heræfinpr
hjá NATO
PARÍS, 1. apríl. (Reuter): —
Lauris Norstad yfirhershöfðingi
Atlantshafsbandalagsins i Evrópu
tilkynnti hér í dag, að allvíðtæk-
ar heræfingar yrðu haldnar með-
al herja bandalagsins í þessum
mánuði. — Ekki skýrði hershöfð-
inginn nánar frá því, hvenær
æfingar þessar myndu fara fram.
Hillir undir bann við
kjarnavopnatilraunum ?
GENF, 1. april. — Bandaríkin og
Bretland hafa lagt fram jákvætt
svar við tillögum Sovétríkjanna
og biðskák. Áttunda umferð
á ráðstefnunni um bann við
kjarnorkuvopnatilraunum, sem
sovézki fulltrúinn Tsarapkin bar
fram fyrir nokkru, en þar i meg-
inatriðum fallizt á fyrri tillögur
Bandaríkjanna í málinu.
Segja fréttamenn, að nú muni
hefjast samningaumleitanir um
ýmis „smærri“ atriði varðandi
eftirlit, sem Vesturveldin leggja
mikla áherzlu á. Er þar t. d. um
að ræða, hve oft eftirlit skuli
framkvæmt, hvernig eftirlits
nefndir skuli skipaðar o. s. frv. —
Ef samningar um þessi efni
ganga greiðlega, segja frétta-
menn, má búast við, að sam-
komulag um bann við hvers
konar tilraunum með kjarna-
vopn verði undirritað, áður en
mjög langt líður.
Hjartanlega þakka ég öllum sem auðsýndu mér vin-
semd með heimsóknum, gjöfum og heillaóskum á 70
ára afmæli mínu 24. marz sl.
Guðbjörg Oliversdóttir,
Arnarhrauni 44, Hafnarfirði.
Hjartanlega þakka ég öllum sem sendu mér heilla-
skeyti og færðu mér gjafir á 80 áfa afmæli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Kristrún Jónsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall
og jarðarför
ÓLAFS Þ. BJARNASONAB
skrifstofustjóra
Ragnheiður Bjarnadóttir og börn,
Helgi Bjarnason og aðrir aðstandendur.
Flóttamaima-
fjársöfnun
DAGANA 6.—13. apríl n.k. munu
deildir Rauða krossins veita við-
töku fjárframlögum til hjálpar
flóttafólki. Fé þessu verður varið
í samráði við alþjóða flóttamanna
stofnunina. I tilefni af þessu mun
Próf. Guðmundur Thoroddsen
flytja erindi í útvarpið 8. apríl
um flóttamannavandamálið.
Útför föður míns og tengdaföður
VILHJÁLMS BENEDIKTSSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjud. 5. apríl kl. 1,30.
Sigríður Vilhjálmsdóttir, Karl Þorfinnsson.
Jarðarför móður njjnnar, tengdamóður, ömmu og
langömmu
JÓNU AgústInu jónsdóttur
Bjargi, Grindavík,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 4. apríl kl. 2
eftir hádegi.
Fyrir hönd aðstandenda.
Gyða Waage, Ragnar Jóhannsson.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
sonar okkar.
ÞÓRIS LOFTS
Steinunn Jónsdóttir, Kjartan Ólafsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og útför
móður okkar og ömmu
SÓLVEIGAR BERGSVEINSDÓTTUR
Börn, tengdabörn og barnabörn.