Morgunblaðið - 06.04.1960, Qupperneq 2
<
2
MORGUNRrAfííÐ
Miðviku'dagur 6. aprfl 1960
hagsmuna-
nuveitenda
Reynt ad hindra
árekstra milli vin
og verkalýðs
Tillaga Sjálfstæðismanna á Alþingi
tRÍR þingmenn Sjálfstæöisflokksins, þeir Sigurður Bjarnason,
Magnús Jónsson og Matthias Mathiesen lögðu í gær fram á Alþingi
tillögu til þingsályktunar um hlutdeildar- og arðskiptafyrirkomu-
lag í atvinnurekstri íslendinga. Er tillaga þeirra svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta rannsaka og
gera tillögur um, hvar og hvernig megi bezt koma á hlutdeild-
ar- og arðskiptifyrirkomulagi í atvinnurekstri islendinga og á
hvern hátt þing og stjórn geti stuðlað að eflingu slíks fyrir-
komulags. Skal ríkisstjórnin hafa samráð við fulltrúa frá sam-
tökum atvinnurekenda og Iaunþega um þetta undirbúnings-
starf, er skal lokið eins fljótt og möguleikar eru á“.
I greinargerð segir m. a. á
þessa leið:
Tillaga um þetta efni hefur
verið flutt á Alþingi nokkrum
sinnum áður, en ekki hlotið loka-
afgreiðslu.
Á Alþingi árið 1937 fluttu þeir
Jóhann G. Möller og Thor Thors
tillögu svipaðs efnis og þá, er hér
að ofan greinir. Skyldi samkv.
henni skipuð 5 manna milliþinga
nefnd til þess að rannsaka og
gera tillögur um hlutdeildar- og
arðskiptifyrirkomulag í atvinnu-
rekstri Islendinga.
Tillaga þessi var samþykkt og
nefndin kosin samkvæmt henni.
En við það sat. Nefndin hélt að-
eins einn fund, og engar tillög-
ur komu frá henni.
Hagsmunaárekstrar tíðir
Það er skoðun flutningsmanna
þessarar tillögu, sem nú er flutt,
að hér sé um svo merkilegt mál
að ræða, að gera beri tilraun til
að koma því á frekari rekspöl.
Hagsmunaárekstrar eru tíðir
milli vinnuveitenda og verkalýðs
í hinu íslenzka þjóðfélagi. Efna-
hags- og afkomugruijdvöllur
þjóðarinnar verður vitf þessar
deilur ótraustari. Engra úrræða
má því láta ófreistað til þess að
sætta vinnu og fjármagn, koma
á friði milli þeirra, sem stjórna
atvinnutækjunum, og þeirra, sem
vinna við þau. Mjög líklegt verð-
ur að telja, að stórt spor væri
stigið í þá átt með því að gera
verkamennina, sjómennina eða
iðnaðarmennina að meðeigendum
og meðstjórnendum í atvinnu-
fyrirtækjunum, bar sem því verð
ur við komið.
Hlutdeild í arði og stjórn
1. að verkamennirnir fái auk
hinna föstu launa einhvern
hluta í arðinum;
2. að þeim gefist kostur á að
safna arðhluta sínum, eða
einhverjum hluta hans, til
þess með honum að eignast
hluta í atvinnufyrirtækjun-
um;
3. að þeir fái hlutdeild í stjórn
fyrirtækjanna, annað hvort
með með því: a) að eignast
hlutafé og verða á þann hátt
aðnjótandi réttinda venju-
legra hluthafa, eða með því:
b) að nefnd verkamanna
hvers fyrirtækis hafi íhlutun
um rekstur þess.
Eru þetta þær grundvallar-
seningar, sem sérstaklega hefir
verið byggt á í þessu efni. En
fjölbreytni fyrirkomulagsins er
svo að segja takmarkalaus, enda
hægt að beita því við svo til all-
ar greinar atvinnulífsins. Er
fengin í þessum efnum mikil
reynsla erlenöis.
Geislovirkni
jókst ekki
ó íslondi
AUKINNAR geislavirkni varð
vart nokkuð langt norður eft-
ir, eftir að Frakkar sprengdu
kjarnorkusprengju sína í Sa-
hara eyðimörkinni. Spurðist
rannsóknarstofnun í París fyr
ir um það hjá Eðlfræðistofnun
ríkisins í Reykjavík, hvort
mælzt hefði meiri geislavirkni
hér síðustu vikurnar, en fékk
það svar að svo hefði ekki orð-
ið.
Náðu skýrslur þær yfir
geislamælingar Eðlisfræði-
stofnunarinnar, sem hinni
frönsku rannsóknarstofnun
voru sendar, fram til 20. marz,
og var á þeim að sjá að geisla-
virkni haldi enn áfram að
minnka hér á landi. Síðan
seinni sprengjan var sprengd
heíur heldur ekki orðið vart
aukinnar geislavirkni.
Fyrningarafskriftir
útsvarsskyldar
í HÆSTARÉTTI er genginn dómur í máli Olíustöðvarinnar h.f. í
Hafnarfirði gegn bæjarsjóði Hafnarfjarðar, vegna útsvars, sem
Hafnarfjarðarbær gerði Olíustöðinni h.f. að greiða af fyrningar-
afskriftum. —
Taldi Olíustöðin h.f., að óhcimilt væri að telja fymingarafskriftir
útsvarsgjaldstofn, en bæjarsjóður taldi, að nefnd útsvarsálagning
hefði verið ákveðin innan lögleyfðra marka.
1 héraði tapaði Olíustöðin h.f.
málinu. Hæstiréttur staðfesti þau
úrslit og segir m.a. s. j í for-
sendum:
„Samkvæmt 3. tölulið 4. gr.
laga um útsvör nr. 66/1945 er
málskostnað fyrir Hæstarétti,
sem ákvaðst kr. 8.000.—“.
Kjartan Ragnars, hrl., flutti
málið fyrir Hafnarfjarðarbæ, en
Benedikt Sigurjónsson, hrl., fyrir
Olíustöðina h.f.
niðurjöfnunarnefnd rétt við
álagningu útsvars að taka til
greina sérhvað það, er telja má
máh skipta um gjaldþol útsvars
greiðenda, og eftir 24. gr. sömu
laga er úrskurður ríkisskatta-
nefndar fullnaðarúrskurður um
fjárhæð útsvars.
Við álagningu útsvars þess,
sem hér er deilt um, voru nefnd
skattayfirvöld því eigi bundin
við sömu fyrningu eigna, sem
lögð var til grundvallar við
ákvörðun tekjuskatts, og þar sem
skattayfirvöldin hafa haldið sér
innan valdmarka sinna, eru eigi
slíkir annmarkar á ákvörðun út
svarsins, að dómstólar fái hnekkt
gerðum þeirra. Með þessum at-
hugasemdum ber að staðfesta úr-
skurð fógeta.
Afrýjanda ber að greiða stefnda
Kielland Iseiðurs-
gestur
LISTAMANNAKLÚBBURINN
verður að venju opinn í baðstofu
Naustsins i kvöld, miðvikudags-
kvöld. 1 þetta sinn verður norski
hljómsveitarstjórinn, Olav Kiel-
land heiðursgestur klúbbsins, og
verða umræður um hljómsveitar
uppeidi og önnur hljómsveitar-
^ LÆGÐIN fyrir sunnan land
S er mjög djúp, 965 mb. í lægðar
S miðju, og hefur hún hreyfzt
• norður, en loftvog hefur ekki
^ fallið að sama skapi á Græn-
S landi, svo að norðaustan hvass
) viðri og hríðarveður var kom-
\ ið í gær milli Vestfjarða og
s Grænlands. Á Galtarvita var
^ þá þriggja stiga frost, en 8
^ stiga hiti sunnan lands.
S
i Veðurhorfur kl. 22 í gærkvöldi
; SV-land, Faxafl., SV-mið og
Faxafl.-mið: Hvass austan eða ;
NA, víða dálítil rigning. S
Breiðafj. og Breiðafj.mið: )
Hvass NA, sums staðar dálítið ^
fjúk. s
Vestf., Norðurl., Vestfj.mið )
og norðurmið: Hvass NA, ■
slydda eða snjókoma. i
NA-land, Austf., norðaustur S
mið og Austfj.mið: Austan i
kaldi, þokuloft og rigning með j
köflum. S
SA-land eg suðausturmið: i
Ailhvass SA, rigning. \
„Beðið eftir Godot“ í kvöld
Þau mistök urðu við auglýsingar blaðsins í gær, að birt var röng
auglýsing frá Leikfélagi Reykjavíkur. Var sagt að félagið
myndi sýna sjónleikinn „Gestur til miðdegisverðar“ í kvöld,
miðvikudag. Svo er ekki, en sýndur er sjónleikurinn „Beðið
eftir Godot“. — „Gestur til miðdegisverðar" er hins vegar
sýndur annað kvöld.
Myndin hér að ofan er úr „Beðið eftir Godot“ og sýnir
Brynjólf Jóhannesson og Árna Tryggvason i hlutverkum sínum.
Úr ræðu utanrík-
isráðherra í Genf
GUÐMUNDUR I. Guðmundsson,
utanríkisráðherra, flutti ræðu á
landhelgisráðstefnunni í Genf sl.
fimmtudag og hefur blaðið skýrt
frá meginatriðum hennar, en
þykir rétt að birta lokaorðin í
ræðu ráðherrans. Hann sagði:
„Herra forseti!
Eins og ég hef þegar sagt, er
það skoðun íslenzku nefndarinn-
ar, að styðja beri 12 mílna fisk-
veiðitakmörk sem almenná reglu.
En við teljum einnig að þörf sé
sérstakrar reglu í viðbót, þegar
um sérstöðu er að ræða, þannig
að afkoma þjóðar er að lang-
mestu leyti háð fiskveiðum henn
ar við ströndina.
Þessa sérreglu verður auðvit-
að að orða á þann veg að hún
verði ekki misnotuð. fslenzka
nefndin á fyrri ráðstefnunni um
réttarreglur á hafinu lagði raun-
ar fram tillögu í þessu máli, sem
hlaut talsverðan stuðning. Við
munum leggja fram svipaða til-
lögu á þessari ráðstefnu.
Eg vil í þessu sambandi leggja
áherzlu á það, að þótt því hafi
verið haldið fram að þessu vanda
máli hafi verið gerð fullnægj-
andi skil í samþykktinni um sér-
stakar aðstæður við strandveiðar,
sem gerð var á fyrri ráðstefn-
unni, þá er einn megingalli á
þeirri samþykkt, nefnilega sá, að
samkvæmt ákvæðum hennar
skulu allar ráðstafanir háðar sam
þykki einmitt þeirra ríkja, sem
fiskveiðar stunda á umræddu
svæði og eru því ekki líkleg til að
hafa mikinn áhuga á því að fall-
ast á forgangsrétt strandríkis á
því svæði.
Samþykktin yrði í slíku til-
viki aðeins pappírsgagn. Sendi-
nefnd mín mun því leggja fram
tillögu um þetta efni, er myndi að
minnsta kosti verða viðbót við
umrædda samþykkt, ef hún kæmi
þá ekki í stað hennar.
Þetta, herra forseti, eru meg-
inskoðanir stjórnar minnar, og
með yðar leyfi vildi ég ljúka
máli mínu með því að rifja upp
höfuðatriðin.
1. Húg' ikin frelsi á hafinu og
lögsaga við strönd eru hliðstæð
og hvorugu verður haldið fram
sem röksemd fyrir því að tak-
marka hitt óhæfilega.
2. Skýrt skyldi greint á milli
landhelgi og fiskveiðilögsögu.
3. ísland getur fallist á þrönga
landhelgi að því tilskildu að
fiskveiðilögsagan sé nægilega
víð.
4. Almenna reglan er sú, að
fiskveiðilögsaga geti náð allt að
því 12 mílur.
5. Þegar aðstæður eru sérstak-
ar og íbúarnir eiga afkomu sina
að langmestu leyti undir fisk-
veiðum við ströndina, má fisk-
veiðilögsagan ná lengra, en regl-
an um þetta verður að vera þann-
ig orðuð, að hún verði ekki mis-
notuð.
Sendinefnd mín vill nota þetta
tækifæri til þess að beina því
til allra vina okkar á þessari ráð-
stefnu, að þeir sýni þessum at-
riðum skilning og geri það, sem
þeim er fært til að styðja þau.
Fleira hef ég ekki að segja að
svo stöddu.
Þakka yður, hr. forseti."
Biðskák
Moskvu 5. apríl.
10. SKÁK þeirra Botvinniks og
Tals í keppninni um heimsmeist-
aratitilinn, fór í bið í kvöld og
verður henni haldið áfram á
morgun. Tal er álitinn hafa betri
stöðu. Leikar standa þannig, að
Tal hefur 5 vinninga en Bot-
vinnik 4. — Alls verða tefldar
24 skákir.
i *
Utsprungmir
fíflar
VORIÐ hefcur komið óvenju
snemma í ár, og nú eru fyrstu
fíflarnir sprungnir út í Reykja
vík. Einn lesandi blaðsins
fann í gær sex útsprungna
fífla í hnapp suður hjá Hlíð-
arenda, félagsheimili Vals.