Morgunblaðið - 06.04.1960, Side 15

Morgunblaðið - 06.04.1960, Side 15
Miðvikudagur 6. apríl 1960 MOnCVTSBLAÐlÐ 15 I Óli Valur Hanson, garðyrkjuráðunautur ; tofugullsdpur ÓÐUM styttist til vorsins. Þær húsmæður, sem hafa yndi af stofublómum, þurfa nú fljót- iega að hyggja að þeim með umpottun og áburðargjöf hafi þær ekki þegar byrjað á því. Jafnframt þarf einatt að klippa nokkuð og laga til jurt- irnar áður en vöxtur örvast að nýju. Þótt mörgum húsmæðrum lánist yfirleitt vel að halda lífi í innij urtum sinum yfir vetrarmánuðina, þá heggur svartasta skammdegið oft stórt skarð í hópinn hjá sum- um. Sjaldan mun þó gebzt upp þrátt fyrir ýms skakka- föll, aðeins beðið unz sól hækk ar á lofti og hlýna tekur í veðri, og þá strax hafizt handa um að endurnýja það, sem forgörðum hefur farið. Ymist er þá reynt á nýjan leik við sömu tegundir eða einhverjar aðrar, jafnvel áður óþekktar. Af innijurtum vekja blóm- sælar plöntur alla tíð hvað mestan unað á meðan þær , skarta sínu fegursta. Fyrir nokkrum dögum brá ég mér inn í blómaverzlanir höfuð- staðarins tii að kanna hvað væri á boðstólum af blómg- andi innijurtum Ég varð þess fljótlega var, að ekki var um auðugan garð að gresja í þeim efnum. Þó rakst ég víða á eina tegund, er segja má, að sé tiltölulega nýr borgari með- al innijurta hér Vildi ég gjarn an vekja athygli húsmæðra á tegund þessari, sem á garð- yrkjumannamál heitir Cytisus Madeirensis, en á íslenzku mætti kall* stofugullsóp Stofugullsópur er ættaður frá Madeira Hann er einn af þeim fáu inniplöntum, er blómgast síðla vetrar og ber gul blóm Stofugullsópur er runni, sem getur orðið allhávaxinn. Er hann með þéttstæðum, þrí- fingruðum, ljósgrænum og af- ar fíngerðum blöðum. Blómin eru smá og sitja mjög þétt í löngum uppréttum klösum, er sveigjast oft nokkuð niður á við af þunga, ef blómahafið er mikið. Lögun blóma er hin sama og á ilmbaunum, enda tilheyrandi sömu ætt, þ. e. a. s. ertublómaætt. Blómin eru ekki aðeins fög- ur að lit og útliti, heldur einn- ig ilmrík. Algengt er að rækta stofu- gullsóp sem lágvaxinn og marggreindan runna eða láta hann mynda einn stofn um 40—60 cm. á hæð með þétt- skipaðri krónu á endanum líkt og einstofna tré. A margvíslegan annan hátt má forma og laga hann til, því hann þolir vel klippingu og vex ört. Ennfremur má láta hann breiða úr sér á vegg eða grind á björtum stað; með tím anum getur han orðið mjög umfangsmikill, fái hann að vaxa þar að mestu óskertur. Stofugullsópur þrífst bezt við frekar lágan hita. Sé honum valinn staður í glugga, hentar betur staðsetning í austur- eða vesturglugga en í suður- glugga. Blómgunartíminn er aðeins einu sinni á ári. Að af- loknni blómgun er hafizt handa um að klippa hann til og má halda því áfram fram í september byrjun. Stofugullsópur er mjög skemmtileg og góð stofuplanta og sómir sér vel hvort heldur er sem blaðplanta eða blóm- planta. Þó ber eins sérstaklega að gæta, og það er vökvunin. Plantan má aldrei þorna skyndilega, eða verða þurr ella kastar hún blöðunum. Verður því að hafa góða gát á vókvun, en vökvun er sá þátt- ur, sem almennt er erfiðastur viðfangs við hirðingu stofu- blóma. Bændur íái styrk til húsbygtfintja Frumvarp á Alþingi frá Jóni Pálmasyni JÓN PÁLMASON hefur á Al- þingi gert tillögu um stuðning tii íbúðarhúsabygginga við bændur með örðugan f járhag. Var frumvarpi þingmannsins um þetta efni útbýtt á þingi í gær. Þar var kveðið svo á, að nýbýlastjórn verði heimilað „að veita þeim bændum ,er hafa örð- ugan fjárhag, styrk til íbúðar- húsbyggingar á sama veg og ný- býlastofnendum“. í greiargerð að frumvarpinu minnir Jón Pálmason á þá skyldu frá 28. maí 1957, er lögð á herðar nýbýlastjórn ríkisins „að vinna eftir föngum gegn því, að byggð- ar jarðir fari í eyði“. Eitt af því sem miklu máli skipti í því sam- bandi sé sú aðstaða, sem bændum sé sköpuð til þess að búa við sómasamlegan húsakost. Þar sem kostnaður við byggingar hafi vaxið stórkostlega síðustu árin, , en lán oft ekki hrokkið nema fyrir 25—40 byggingarkostnaðar * sé nauðsynlegt að veita aukinn stuðning í þessu efni þeim bænd- um, sem við örðugan fjárhag búa. Lýkur greinargerðinni á þessa leið: „Á mörgum jörðum, sem enn eru í byggð, er allt eins mikil þörf á aðstoð við íbúðarhúsa- byggingar og á nýbýlum. Er því eðlilegt, að nokkuð af því fé, sem ætlað er til þess að varna því, að jarðir fari í eyði, sé not- að til þeirrar aðstoðar". Stórhríðarmót AKUHEYRI, 4 apríl. — Stórhríð- armót Akureyrar fór fram í Hlíð arfjalli við Akureyri sl. sunnu- dag. Skíðaráð Akureyrar sá um mótið. Fyrstur varð Svanberg Þórðarson, Reykjavík, á 76.4 sek., annar varð Hákon Ólafsson, Siglufirði á 81.4 sek., þriðji varð Reynir Pálmason, Akureyri og fjórði ívar Sigmundsson, Akur- eyri á 91.7 sek. Brautin var 280 m löng og 40 hlið. 4 LESBÓK BARNANNA GRETTISSAGA 13. Létu þeir nú í haf, þegar þeir voru búnir og byr gaf. Grettir gerði sér gröf undir bátnum og vildi þaðan hvergi hræra sig. Líkaði skipverjum það illa. Hrepptu þeir veður stór og gaf mjög á skipið. Báðu þeir þá Gretti enn að hjálpa til við austurinn. Fer hann þá niður og sökkvir byttunum og voru fengnir til tveir að ausa til móts við hann. Héldust þeir eigi lengi við, áður“~þeir voru yfirkomn- ir af mæði. Þá gengu til fjór ir og fór allt á sömu leið. Svo segja sumir menn, að átta jusu þeir við hann áður en lauk. Var þá og upp ausið skipið. • 14. Ber þá nú austur í haf. Fundu þeir eigi fyrr eina nótt, en þeir sigldu upp á sker skipinu, svo að undan gekk undir hlutinn. Var þá hrund- ið bátum, og fluttar af konur og allt það, er laust var. Þar var hólmur lítill skammt frá þeim og færðu þeir þangað föng sín. En er lýsa tók áttu þeir um ið tala, hvar þeir voru komn- ir. Þar var ey ein skammt frá þeim til meginlands, er heit- ir Háramarsey. Þar var byggð mikil í eyjunni. Hún liggur skammt frá Sunnmæri í Noregi. is. mrnwmimmmmw^ 15. Þorfinnur hét lendur maður, sá er þar átti bú í eyjunni. Hann var sonur Kárs hins gamla, er þar hafði lengi búið. Þorfinnur var höfðingi mikill. Þorfinnur flutti alla menn af skipinu heim til sín. Grettir varð eftir hjá Þor- finni, þá er kaupmenn fóru. Hann var fátalaður lengstum og lét lítið um sig. Þorfinnur lét gefa honum mat. Grettftr var honum ófylgjusamur og vildi eigi ganga með honum úti á daginn. Það líkaði illa Þorfinni, en nennti þó eigi ið kviðja honum mat. 16. Auðunn hét maður, er bjó þar, sem heitir á Vind- rieimi. Þangað fór Grettir daglega Það var eitt kvöld, er Grett ir bjóst heim að ganga, að hann sá eld mikinn gjósa upp á nesi einu — Grettir spurði eftir, hvað nýunga það væri. „Þar á nesinu stendur haugur“, segir Auðunn, en þar var í lagður Kárr hinn gamli, faðir Þorfinns. Hefur hann svo aftur gengið, að hann hefur eytt brott öllum bóndum þeim, er hér áttu jarðir, svo nú á Þorfinnur einn alla eyna“. Grettir kvað hann vel hafa sagt. „Mun ég hér koma á morgun, og lát til reiðu graf- tól“. Bangsi fer til rakarans BANGSI, — hann var bara ósköp lítill tusku- bangsi, — leit í kringum í barnaherberginu og sagði: „Ég geri það, þó ég verði í allan dag. Ég geri það samt. Hvað sem hver segir!“ Bangsi hlustaði, en það sagði enginn neitt. Eng- inn virtist taka eftir hon- um. Hljóðlega læddist hann út úr herberginu og niður stigann. Fimm mínútum síðar, sáu Kalli og Maja, hvar lítill, brúnn bangsi þrammaði út úr húsinu og niður eftir götunni. „Bangsi“, kallaði Maja, „hvert ertu að fara?“. En Bangsi svaraði ekki. Hann hélt hiklaust áfram með Kalla og Maju í hum átt á eftir sér. Hvert skyldi hann ætla? Um leið og hann beygði fyrir hornið rakst hann á gamla konu, sem hélt á körfu fullri af kartöflum í hendinni. „Æ,æ, sagði gamla kon- an, þegar hún missti körf una, svo að kartöflurnar ullu í allar áttir. Bangsi gaf sér ekki tima til að stanza. Það kom í hlut Kalla og Maju að hjálpa gömlu konunni við að tína saman kartöfl urnar. „Það rakst éinhver á mig“, sagði gamla konan, „mér sýndist það helzt vera venjulegur leik- fangabangsi, en það getu: auðvitað ekki verið. Varla fara þeir að hlaupa um“. Kalli og Maja tóku nú sprettinn á eftir Bangsa og náðu rétt að sjá hann skjótast inn um dyrnar hjá rakaranum. Þegar þau litu inn um gluggann stóð hann bísperrtur á miðju gólfi og talaði við rakarann. „Klipping", sagði Bangsi. „Nei, nei“, sagði rakar- inn, „það get ég ekki gert. Mér er það alveg ómögu- legt“. í sömu svipan komu Kalli og Maja inn. „Halló, Bangsi", sögðu þau. „Er hann kunningi ykk ar þessi?“, spurði rakar- inn. „Þá ættuð þið að taka hann með ykkur. Hann heimtar klippingu, eli ég klippi ekki leik- fangabangsa. „Af hverju ekki?", spurði Bangsi móðgaður. „Ég þori ekki að byrja á því“, sagði rakarinn, „það er ekki að vita nema allir bangsarnir í bænum færu að streyma til mín og heimta klippingu. Og hver ætti þá að klippa borgarstjórann og alla hina?“ „Þetta er rétt hjá rak- aranum", sagði Maja, „hann hefur ekki tíma til að klippa oangsa. „Hver á þá að gera

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.