Morgunblaðið - 06.04.1960, Page 22
22
MORCVISBT. AÐIÐ
Miðvikudagur 6. apríl 1960
eru oft hraðar og skemmtilegar
en einhvern veginn finnst manni
að stundum leggi þeir of mikið
' i.ps úr hröðum skiptingum og
missi af taekifærum til að skora
fyrir vikið.
Staðan í hálfleik var 30:21 IR
í hag.
1 byrjun síðari hálfleiks tókst
Armenningum að stytta' forskot
ÍR-inga niður í 31:28, en svo
komu fram veilur í vörn Ar-
manns. Guðmundur Þorsteinsson
skorar tvisvar í röð, síðari körf-
una eftir að hafa hlaupið upp
endilangan völlinn, í gegn um
vörn Ármanns, óáreittur, og lagt
knöttinn í körfuna. Eftir þetta
var sigur ÍR aldrei í verulegri
hæitu.
Sigurvegarar í. R. í 2. fl. karía. Talið frá vinstri: Óli Geirsson, Donald Rader, Einar Hermannsson,
Guðumndur Aðalsteinsson, Guðmundur Þorsteinsson, Einar Bollason, Björn Johannsson og Þor-
steinn Hailgrimsson. Með þeim er þjálfari flokksins Helgi Jóhannesson. Ljósm. Sv. Þormóðsson.
Körfuknattleiksmótið:
ÍR sigraöi í 2. fl.
jr
Armann í kvennafl.
ISLANDSMÓTIÐ í körfuknattleik hélt áfram að Hálogandi sl.
mánudagskvöld. Leiknir voru þrír leikir, þar af tveir úrslitaleikir.
Fyrsti leikurinn var milli KR og Ármann-B í II. flokki karla.
★ Líkir búningar
Liðin mættu til leikg í búning-
um, sem voru svo líkir á litinn að
það ráð var tekið að láta Armenn
inga leika bera að ofan. Slíkt er í
hæsta máta óviðkunnaniegt á ís-
landsmóti og gerir leikritara erf-
iðara fyrir að fylgjast með gangi
móisins. Það kom einnig á daginn
að KR-ingar töldu að leikritarinn
hefði ruglast í ríminu og haft af
sér 4 stig. Þetta kom þó ekki að
sök þar sem KR sigraði örugg-
lega með 40:31, en staðan var
15:12 KR í hag í hálfleik. Bezti
maður á leikvelli var KR-ingur-
inn Guttormur Ólafsson, en
annars voru mörg góð körfu-
knattleiksefni í báðum liðum.
Þjálfari KR er hinn góðkunni
körfuknattleiksmaður Þórir Ól-
afsson, en Ásgeir Guðmundsson
íþróttakennari þjálfar Armenn-
inga.
Dómarar voru Guðmundur Þor
steinsson og Einar Ólafsson.
ÍJrslit í meistaraflokki kvenna
Ármann 36, ÍR 2.
Nýtt heimsmet 2
19,99
Á frjAls-íþróttamöti,
sem haldið var í Austin, Tex-
as s.l. sunnudag, bætti Banda-
ríkjamaðurinn Bill Nieder enn
heimsmetið í kúluvarpi, er
hann varpaði kúlunni 19.99
metra. Þar með endurheimti
hann aftur heimsmeistaratitil-
inn, sem Bandaríkjamaðurinn
Dallas Long tók frá honuin
fyrir viku síðan, er Dallas
varpaði kúlunni 19.61 metra.
Það að met bandaríska
Olympíumeistarans Parry O’
Brien, 19.40 metrar, er enn
hið opinbera heimsmet, er ein-
ungis vegna þess að metið hef
ur verið slegið svo ört á undan
rörnum vikum, að alþjóðasam
bandi frjálsíþróttamanna hef-
ir ekki unnizt tími til að senda
út hinar opinberu tilkynning-
ar'
★ Úrslit í mfl. kvenna
Annar leikurinn var úrslita-
leikur í meistaraflokki kvenna,
en aðeins Ármann og ÍR sendu
lið til keppni í þessum flokki.
Leikur þessi átti samkvæmt leik
skrá að fara fram ásamt úrslita-
ieik í meistaraflokki karla n.k.
miðvikudag 6. þ.m.
Það kom á daginn þegar í upp
hafi leiks þessa að motanefnd
hafði gert rétt er hún ákvað að
færa leik þennan til. Ahorfenda-
hópurinn á mánudagskvöldið var
ekki stór, en það hefði orðið áfail
fyrir körfuknttliksíþróttina í
landinu, ef húsfyllir áhorfenda
hefði séð þessa leiksýningu.
Bæði liðin byrjuðu með fumi
og bægslagangi, sem ekkert átti
skylt við körfuknattleik og 5 mín.
liðu af leiktímanum, þar til Rut
Guðmundsdóttir tók á sig rögg
cg skoraði fyrir Ármann. Fór þá
heldur að lifna yfir Armanns-
stúlkunum og endaði hálfleikur-
inn 12:0.
í síðari hálfleik virtust Ar-
mannsstúlkurnar hafa áttað sig
á að engin hætta stafaði frá ÍR
enda náðu þær nú oft skemmti-
legum samleik, sem gaf góðan
árangur. Leikataflan sýndi 30:0
psgar ÍR-stúlkurnar skoruðu sína
einu körfu við óhemjufögnuð
óhorfenda.
Leiknum lauk með yfirburða-
sigri Armanns 36:2. Þessi sigur
var verðskuldaður. Armanns-
stúlkurnar náðu oft góðum sam-
leik í síðari hálfleik og þær voru
ákveðnar og ágengar við mót-
herja, enda margar þeirra þaul-
vanar handknattleikskeppnum.
ÍR-stúlkurnar virtust tæplga
kunna leikreglurnar og virðist
það vafasamur greiði að senda
slíkt lið til úrslitakeppni í meist-
araflokki.
Stigahæst var Kristín' Jóhanns
dóttir með 17 stig og var hress-
andi frískleiki yfir leik hennar.
Dómarar voru Ólafur Thorla-
cius og Helgi Rafn og virtust
þeir ekki taka þessa leiksýningu
alvarlega.
Örslit II. fl. karla ÍR 54, Ar-
mann43.
★ Beztu liðin?
Körfuknattleiksunnendur biðu
með talsverðri eftirvæntingu eft-
ir úrslitaleiknum í II. flokki
karla, þar sem vitað var að liðin
voru mjög jöfn að styrkleika og
í góðri æfingu. Það varð heldur
enginn fyrir vonbrigðum. Leikur-
mn var fjörlega leikinn frá upp-
hafi til enda og sýndu þessi lið
ólíkt skemmtilegri körfuknatt-
leik heldur en sum meistara-
flokksliðin, sem oft leggja heldur
mikið upp úr kröftunum.
Guðmundur Aðalsteinsson skor
aði fyrstu körfuna fyrir IR og
Einar Bollason bætti annari við
skömmu síðar. Davíð og Árni
svara fyrir Armann og staðan er
4:4, skömmu síðar 6:6 og 10:10.
Leikurinn er hraður og vel leik-
inn og áhorfendur hvetja liðin
óspart. Ármenningarnir virðast
öruggari á löngum skotum, en
ÍR-mgarnir eru hættulegri undir
körfunni. Skiftingar Armenninga
Jón Pétursson
fyrstur ístendinga
yfir 2 metra
Á FRJÁLSÍÞRÓTTA-
ÆFINGU hjá K.R. í
í'yrrakvöld tókst Jóni
Péturssyni K. R. að
stökkva yfir 2 metra í
hástökki. Jón Pétursson
er því fyrsti Islendingur-
inn, sem nær þessum
glæsilega árangri. ■— Slá-
in, sem notuð var við
stökkið var bambusstöng,
og er hæðin var mæld
mældist hæsti púnktur
hennar 2.04 metrar, enn
lægst mældist hún 2.02
metrar. — Þar sem þetta
var aðeins æfing og að-
stæður ekki lögum sam-
kvæmt, verður afrekið
eigi staðfest sem met, —
en eftirtektarvert er það
eigi að síður.
Spjótkast
ALLT bendir til þess að Ingvar
Hallsteinsson, F.H., nái í sumar
þeim árangri að kasta spjóti
70 metra. — Ingvar dvelur sem
kunnugt er við nám í Bandarikj-
unum og á æfingu í sl. viku náði
(hann kasti, er mældist rúmlega
■ 65 metrar. —
s
Evrópubikar
• Á MIÐVIKUDAGINN vann
Glasgow Rangers hollenzka knatt
spyrnuliðið Sparta 3:2 og leika
því undanúrslitaleikinn í keppn-
1 inni um Evrópubikarinn gegn
1 Eintracht, Frankfurt.
Ársþing ÍBK
FJÓRÐA ársþing íþróttabanda-
lags Keflavíkur var haldið
sunnudaginn 28. febrúar sl. —
Þingið sátu fulltrúar UMFK,
KFK og sérráða IBK. Þá sátu
þingið einnig Þorsteinn Einars-
son, íþróttafuiltrúi, og Hermann
Guðmundsson, framkvæmdastj.
ÍSÍ. —
Hafsteinn Guðmundsson, form.
ÍBK, setti þingið með ræðu. Þing
foT-seti var kosinn Gunnar Sveins
son og þingritari Steinþór Júlíus-
son.
Formaður ÍBK flutti ársskýrslu
Stjórnarinnar fyrir sl. starfsár og
gjaldkeri las upp reikninga
bandalagsins. Nokkrar umræður
urðu um skýrsluna og reikning-
ana, en hvorttveggja lá fjölritað
fyrir þinginu.
Stjórn íþróttabandalags Kefla-
víkur var endurkosin en hana I
skipa: Hafsteinn Guðmundsson,
formaður, Hörður Guðmundsson,
varaformaður, Skúli Fjalldal,
gjaldkeri, Þórhallur Guðjónsson,
rivari, og Heimir Stígsson, með-
stjórnandi. Varastjórn: Sigurður
Albertsson, Gunnar Albertsson,
frá KFK, Höskuldur G. Karlsson
og Hólmbert Friðjónsson, frá
UMFK. I héraðsdómstól voru
endurkosnir: Hermann Eiríksson,
Ragnar Friðriksson og Tómas
Tómasson. Endurskoðendur voru
kosnir Guðm. Ingólfsson og Sig.
Eyjólfsson.
Guðm. Þorsteinsson sést hér
skora fyrir Í.R. með sveiflu-
kasti, eítir að hafa leikið
svo á vörn Ármanns að
varnarleiksmaðurinn getur
ekki annað en horft hjálpar-
vana á hann skora.
Stigahæstir ÍR-inga voru Guð-
mundur Aðalsteinsson með 14
stig og Guðmundur Þorsteinsson
með 13 stig. Af Armenningum
var langbeztur í þessum leik,
Davið Helgason, sem skoraði 15
stig.
Dómarar voru Viðar Hjartar-
son og Þórir Arinbjarnarson.
Þern tókst að halda leiknum vel
niöii, enda var hann prúðmann-
iega le'kinn. Stundum fannst
manni þeir taka full hart á smá-
brotum, einkum þegar maður hef
ir í huga hvað oft er leyft í meist
araflokksleikjum. En það er vand
ratað meðalhófið í þessu eins og
cðru.
— BÞ.
Drengjahlaup
r
Armanns
DRENGJAHLAUP Armanns fer
fram sunnudaginn fyrstan í
sumri (24. apríl). Keppt verður i
fimm manna sveitum um bikar, j
sem Eggert Kristjánsson, stór- i
kaupmaður, gaf, handhafi hans j
er Glímufélagið Ármann, þá er ‘
og keppt í þriggja manna sveit- !
um um bikar, sem Jens Guð-
björnsson, form. Ármanns hefir
gefið, handhafi hans er ÍR j
Óllum félögum innan F.R.Í. er
heimil þátttaka og skal tilkynna
hana til form. frjálsíþróttadeild-
ar Armanns, Jóhanns Jóhannes-
sonar, P. O. Box 1086 viku fyrir
hlaupið. I
Úrslit
í kvöld
I KVÖL.D fara fram að Há-
logalamli úrslit Körfuknatt-
leiksmeistaramótsins. Leika
þá í 2. fl. kvenna KR a-lið og
KR b-lið. Þessi lið eru talin
beztu kvennalið landsins, þó
ungar séu stúlkurnar.
Síðari leikurinn er úrslita-
Ieikur m.fl. karla. Mætast ÍR
og KFR. Er ómögulegt að spá
um úrslit. KFR varð Reykja-
víkurmeistari á s.l. hausti en
ÍR er núverandi Íslandsmeist-
ari. Þarna verður hápunktur
motsins.
Myndin sýnir verðlauna-
gripinn í 2. fl. kvenna en hann
gaf Lífstykkjabúðin.
— Ljósm. Sv. Þormóðsson.