Morgunblaðið - 21.04.1960, Page 3

Morgunblaðið - 21.04.1960, Page 3
Fimmtudagur 21. apríl 1960 MORGVNBLAÐIÐ 3 Kasper maöur, SÝNINGAR á Kardimommu- bænum í Þjóðleikhúsinu eru um margt merkilegar. Eitt er það, að meðan þær standa yfir er ekki síður gaman að horfa út í áhorfendasalinn én upp á sviðið, a. m. k. stutta stund. Þegar ljósmyndari blaðsins koin þangað sl. sunnudag, til að festa á filmuna sína eftir- væntingarsvipinn á börnun- um, komst hann að raun um að um það bil helmingur þeirra var kominn vel af barnsaldri, þó barnsleg eftir- hann fann alltaf upp á að stela öllu Tekst ræningjunum að stela Soffíu frænku? Ungir sem gamlir bíða með eftirvæntingu. vænting skini ekki síður úr andiitum þeirra en þeirra sem yngri eru. Þjóðleikhúsið er búið að sýna Kardimommubæinn 38 sinnum fyrir 25700 áhorfend- ur, þ. e. a. s. í sæti, en óhætt mun að reikna um 100 fram- yfir á hverri sýningu, því full- orðnir halda á litlu krykkun- um og tveir krakkar sitja víða saman í sæti. Til samanburð- ar má geta þess að aldrei hafa fleiri en 18 þús. leikhúsgestir sótt barnaleiksýningar fyrr. Hann Kasper og hann Jesú Kristur Og krakkarnir í Reykjavík þekkja orðið vel ræningjana, þá Kasper, Jesper og Jónatan, hana Soffíu frænku og aðra íbúa þessa skemmtilega bæj- ar. Halli iitli kunningi minn er alltaf að spyrja hann pabba sinn hvort hann Kasper búi nú ekki í vesturbænum, eins og þeir. Og hann Þórður kunn- ingi hans lærði í leikhúsinu að ganga hokinn í hnjánum og læðast eins og rseningi. Stelpurnar kunna einnig að meta þessa skemmtilegu ræn- ingjasögu. Kristín litla, sem er 6 ára, átti langar viðræður við hann pabba sinn, þar sem hann sat yfir blöðunum sínum einn morguninn: — Pabbi, veiztu að það kviknaði í hús- inu hans Tobíasar. — Ha, hvaða Tobíasar? — Hans Tobíasar í turnin- um, sem er alltaf að gá til veðurs. — Þekjtirðu ekki hann Tobías í turninum, pabbi? — Árni litli, vinur minn, er ekki nema fjögurra ára, en hann kann þó að syngja vís- una um „Kasper,.' Jesper, og Jónatan“, en aðeins af bók. Hafi hann sýnlngarskrána, sama hvort hún snýr rétt eða öfugt, þá syngur hann hástöf- um. En hann skildi greinilega leikritið, þó ungur sé. Spurn- ingunni: — Hver fannst þér skemmtilegastur ? svaraði Viötol við leikhúsiiesti Þú þekkir kannski ekki held- ur hann Kasper, eða hann Jesper, eða hann Jónatan? En svo rættist heldur betur úr fyrir Kristínu, því þegar hún fór í brúðleikhúsið að sjá Gosa, sat þá ekki nema Kasp- er rétt hjá henni á áhorfenda- bekknum, kembdur og strok- inn með tvo krakka sér við hlið. Og ekki nóg með það, heldur sá hún annan rétt hjá, sem henni fannst ekki síður mikið til um. — Mamma, sjáðu, alveg eins og Jesú Kristur; Þetta reyndist vera Thor Vilhjálmsson, rithöfund- ur. hann hiklaust: — Kasper, maður, hann fann alltaf upp á að stela öllu. — En Jónatan, fannst þér hann ekki líka sniðugur? — Nei, nei, hann stal bara með Kasper. „Inspirera“ unga Iistamenn En það eru ekki bara yngstu leikhúsgestirnir, sem kunna að meta ræningjana þrjá og Kardimommubæinn. Ólafur Sigurðsson, 9 ára, fór beint heim til sín, þegar hann var búinn að sjá ieikritið og fór að búa til sinn eigin Kardi- mommubæ. Hann fékk gaml- an pappír hjá pabba sínum og túbulím. Meira þurfti hann ekki, engar vinnuteikningar, engar myndir og engin líkön. Svo labbaði hann með listaverkið sitt í skólann og gaf kennaranum, Sveinbirni Magnússyni, það. Við gengum á fund Ólafs til að taka mynd af Kardi- Enginn skipulagsuppdráttur, ekkert iíkan, samt ris upp heill Kardimommubær — á skólaborði í Austurbæjar- barnaskólanum. STAK81EIMAR mommubænum hans, og hitt- um hann í vinnubókarstof- unni í Austurbæjarskólanum, þar sem hann var að lagfæra listaverkið sitt. Þar voru fleiri börn að frjálsu starfi undir forustu Jóns Þórðarsonar, kennara. Þau mega koma þarna þegar þau vilja og velja sér efni að vinna úr, safna upplýsingum um það, og teikna og skrifa bók um efnið. Einn á orðið ljómandi laglega vinnubók um Finnland, annar um íslenzku fjöllin og sá þriðji geysistórt kort með nýju kjördæmunum á íslandi, þar sem þingmennirnir eru merktir inn, alþýðuflokks- mennirnir grænir, framsókn- armennirnir brúnir, alþýðu- bandalagsmennirnir rauðir og sjálfstæðismennirnir bláir. — Þannig mætti lengi telja, við- fangsefnin eru jafnmörg börn- unum og unnin af natni og áhuga. En samtalið við Ólaf um Kardimommubæinn varð held ur lítið — hann er sýnilega meira fyrir að láta verkin tala og grúfði sig bara yfir verkefni sitt. Því miður hafði byggingar- efnið í bænum hans ekki ver- ið sem vandaðast, svo Svein- björn kennari bauðst til að útvega honum góðan pappa og annað sem með þyrfti, og nú í páskafríinu ætlar Ó’afur að reisa annan og varanlegri Kardimommubæ. Kardimommubærinn hefur „inspirerað" fleiri unga lista- menn, því Þjóðleikhúsinu hafa borizt margar teikningar barna af efni úr leikritinu og er ætlunin að veita verðlaun fyrir skemmtilegustu lista- verkin. E. Pá. Grískar heimildir um víkinga í Miklagarði HINGAÐ til lands er kominn Apolostos Dascalakis, prófessor í miðalda- og síðari tíma bók- mentum við háskólann í Aþenu og fyrrverandi rektor Aþenuhá- skóla. Prófessorinn kemur hing- að í boði háskóla íslands á veg- um menningarmálanefndar Ev- rópuráðsins, en íslenzki fulltrú- inn í þeirri nefnd er Ásgeir Pét- ursson, deildarstjóri í mennta- málaráðuneytinu. Prófessor Dascalakis er fædd- ur í Spörtu 1904, lauk háskóla- prófi í lögfræði og heimspeki og síðar í sagnfræði og landafræði, er doktor í sögu frá Sorbonne- háskólanum í París. Árið 1939 var hann skipaður prófessor í sögu miðalda og síðari tíma við heim- spekideild Aþenuháskóla. Árið 1944 var hann menntamálaráð- herra grísku útlagastjórnarinnar (í Egyptlandi). Hann var rektor Aþenuháskóla 1953—55 og er m. a. meðlimur ítölsku vísindaaka- demíunnar. Hann er fastafulltrúi Grikklands í menningarmála- nefnd Evrópuráðsins í Strass- bourg, forseti grísku þjóðnefnd- arinnar hjá UNESCO og hefur verið fulltrúi ríkisstjórnar sinnar á mörgum alþjóðaráðstefnum, enda er hann menningarráðu- nautur gríska utanríkisráðuneyt- isins. Eftir hann liggja nokkrir tug- ir sagnfræðirita, m. a. um upp- runa Evrópuþjóða, frönsku stjórn arbyltinguna, Miðjarðarhafslönd in og sérstaklega um Grikkland að fornu og nýju. Prófessor Dascalakis mun flytja fyrirlestur í hátíðasal há- skólans á morgun um grískar heimildir um víkinga í Mikla- garði. (Frá Menntamálaráðuneytinu) Lítilmeni ska Það hefur mælzt mjög illa fyr* ir meðal íslenzks aimennings, að meðan á Genfarráðstefnunni stendur skuli blað kommúnista hér á landi halda uppi ádeilum og narti í þá tvo ráðherra, sem ráðstefnuna sitja fyrir hönd ís- lands, þá Guðmund í. Guðmunds son, utanríkisráðherra og Bjarna Benediktsson, dómsmálaráð- herra. Öll þjóðin veit þó, að þess- ir menn hafa haldið á málstað tslands af festu og dugnaði. Þeir hafa túlkað hinn íslenzka mál- stað og reynt eftir fremsta megni að vinna honum fylgi. Af hálfu sendinefndar íslands í Genf hefur því afdráttarlaiust verið lýst yfir, að ekkert undanhald komi tii greina frá þeirri stefnu, sem mörkuð hefur verið í barátt- unni fyrir vernd íslenzkra fiski- miða. Lögð hefur verið sérstök áherzla á það, að hnekkja rökum Breta og annarra, sem haldið hafa fram „sögulegum rétti“ .til þess að fiska sem næst ströndum ís- Iands. Þegar á allt þetta er litið, verð- ur ekki annað sagt en að komm- únistum og blaði þeirra hafi far- izt mjög lítilmannlega, þegar þeir hafa haldið uppi árásum á einstaka fulltrúa okkar í sendi- nefndinni á Genfarráðstefnunni. Kommúnistar ættú að géra sér Ijóst, að slík framkoma borgar sig ekki. Fólkið finnur að hún er ódrengileg og getur engum orðið að gagni, allra sízt hinum góða málstað íslendinga í landhelgis- málinu. Mesta óheillasporið Þegar kommúnistar hófu hin pólitísku verkföll sín snemma á árinu 1955 stóð atvinnulíf þjóð- arlnnar með blóma. Atvinna var mikil um allt land, framleiðsla vaxndi og bæði hið opinbera og einkaframtakið stóðu fyrir mikl- um framkvæmdum og uppbygg- ingu í landinu. En kommúnistum var þessi þróun þyrnir í augum. Fylgi þeirra hafði farið minnk- andi i landi og þeir töldu lífsnauð syn bera til þess að hressa upp á það. Þá var það sem gripið var til pólitískra hefndarverka til þess að koma atvinnulífinu á kné og styrkja hina pólitísku vígstöðu kommúnista. Til þess að koma þessum áformum fram fengu þeir stuðning Hermanns Jónasson ar, sem verið hafði mjög óheill í samstarfi Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna um ríkis- stjórn. Árangurinn af þessari iðju þarf ekki að rekja. Stórfelt kapp hlaup milli kaupgjalds og verð- lags hófst á árinu 1955 og stór- feldur hallarekstur skapaðist í atvinnulífinu. Kaldhæðni örlaganna Kommunistar og Framsoknar- menn tóku síðan höndum saman um stjórn landsins, án þess þó að hafa nokkra möguleika til þess að stöðva verðbólgukapp- hlaupið. Það var vissulega kald- hæðni órlaganna að einmitt hin vaxandi verðbólga skyldi verða til þess að leggja vinstri stjórnina að velli á miðju kjörtímabili. Her mann Jónasson og kommúnistar höfðu þó lýst því yfir, að þessi stjórn þeirra skyldi verða langlíf í landinu. En nú hafa kommúnistar áhuga fyrir því að hefja sama leikinn. Nú hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að skapa jafnvægi í is- lenzku efnahagslífi. Þá hyggja kommúnistar sér til hreyfings að nýju. En vill þjóðin að skemmd- arverkamönnunum takist öðru sinni að steypa taumlausu verð- bólguflóði og upplausn yfir þjoð- ina?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.