Morgunblaðið - 21.04.1960, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Vimmtudagur 21. apríl 1960
'réttir Ittct'phblafoha
LandsliBin í handknaft-
Beik mœta „blaðaliðum
Víðavangshlaup
Í.H. í dag
VÍÐAVÁNGSHLAUP ÍR, ein
elzta íþrottakeppni landsins, fer
fram í dág og hefst kl. 14,00. —
Hlaupin yverður sama leið og sl.
ár, byrjað og endað í Tjarnar-
garðinum, en alls er vegalengd-
in um 3 km.
Að þessu sinni senda 5 aðilar
keppendur í hlaupið og eru
flestir képpendur frá íþróttafé-
lagi Sámvinnuskólans eða 6
keppendýr, en alls eru þátttak-
endur 14 að tölu. Aðrir kepp-
endur í hlaupinu eru frá KR,
Héraðssambandinu Skarphéðni,
íþróttabándalagi Akureyrar og
íþróttabandalagi Keflavíkur.
Af nafnkunnum hlaupurum,
sem taka þátt í Víðavangshlaup-
inu má nefna: Kristleif Guð-
björnsson, KR. Hafstein Sveins-
son, HSK, Guðmund Þorsteins-
son, ÍBA og Guðmund Hall-
grímsson. ÍBK.
Keppendur og starfsmenn
mæta á íþróttavellinum á Mel-
unum kl. 13,15. —
SUNNUDAGINN fara fram
tveir æfingarleikir að Háloga-
landi. Mætast þar „blaðalið“ og
landsliðin í handknattleik kvenna
og karla. Bæði landsliðin hafa
verið valin og karlalið blaða-
manna, en íþróttafréttaritarar
eru ekki alveg sammá'la um
hvernig kvennalið þeirra skuli
skipað.
Landsliðið í karlaflokki
Hjalti Einarsson FH; Sólmund-
ur Jónsson Val; Guðjón Jónsson
Fram; Einar Sigurðsson FH;
Gunnlaugur Hjálmarsson ÍR;
Ragnar. Jónsscm FH; Birgir
Björnsson FH; Pétur Antonsson
FH; Geir Hjartarson Val; Karl
Jóhannsson KR, og Reynir Ólafs-
son KR.
Landsliðið í kvennafiokki
Rut Guðmundsdóttir Á; Sigríður
Lúthersdóttir Á; Katrín Gústafs-
dóttir Þrótti; Sigríður Sigurðar-
dóttir Val; Perla Guðmundsdótt-
ir KR; Gerða Jónsdóttir KR, og
Sigríður Kjartansdóttir Á.
Blaðaliðið i karlaflokki
Guðjón Ólafsson KR; Skúli
Skarphéðinsson Afturelding; Hil-
mar Ólafsson Fram; Hörður
Felixsson KR; Heinz Steinman
KR; Hermann Samúelsson ÍR;
Pétur Sigurðsson ÍR; Matthías
Ásgeirsson ÍR; Stefán Stephensen
KR; Halldór Lárusson Aftureld-
ing, og Kristján Steíámsson FH.
Þeir, sem misstu af ferðinni upp á Skaga. — Knattspyrnu-
mennirnir þrír sem mættu til að fara upp á Skaga: Baldur
Scheving, Fram, Örn Steinsen, KR og Þórólfur Beck, KR —
Á. Á., bílstjórinn og Sæm. Gislason, form. landsliðsnefndar.
œttu ekki á landsliBsœfingu
EINS og kunnugt er hafa
æfingar landsliðsins í
knattspyrnu að undanförnu
farið fram hér í Reykjavík
og hefir verið æft á laugar-
dögum. Knattspyrnumenn-
irnir hafa mætt vel á æf-
ingunum og áhugi er góður
meðal þeirra. 1
Það kom þvi eins og
þruma úr heiðskíru lofti, er
aðeins þrír hinna verðandi
Iandsliðsmanna voru mætt-
sl. mánudag (annan páska-
dag) er halda átti upp á
Skaga og æfa þar til til-
breytingar. ,
, Form. landsliðsnefndar-
innar og þjálfari landsliðs-
ins áttu fá svör við
spurningum fréttamanns
íþróttasíðunnar um ástæður
fyrir fjarvistum knatt-
spyrnumannanna. Vitað var
um að nokkrir voru löglega
forfallaðir vegna veikinda,
en meginþorrinn hafði ekki
boðað lögleg forföll. Það
gefur að skilja að hætta
varð við ferðina og hringja
varð upp á Skaga og til-
kynna Akurnesingunum að
æfingin yrði að falla niður.
Þetta hefir vakið mikla
gremju meðal áhugamanna
knattspyrnunnar. Sannar-
lega hafa Skagamenn átt
það skilið að vera einu sinni
leystir frá því að koma í
bæinn til æfinga. Auk þess
sem slíkt sýnir óvenju litla
virðingu fyrir landsliðinu
og lítinn skilning á því þýð-
ingarmikla hlutverki, sem
landsliðsæfingarnar eiga
að gegna.
Næsta æfing landsliðsins
er ákveðin upp á Skaga
n. k. laugardag, og ákveðið
hefir verið að engin æfing
verði hjá landsliðinu fyrr
en landsliðsæfing hefir far-
ið fram á Akranesi.
póhscalLé
9 Sími 2-33-33. I
PH 3k
Hljómsveit
Guðmundar Finnbjörnssonar
Söngvari: Gunnar Einarsson
Ilansstjóri: Baldur Gunnarsson
Snæiellingor — Hnappdælir
Sumarfagnaður félagsins verður haldinn
í Skátaheimilinu (nýja salnum) laugard.
23. apríl kl. 8,30.
Spilað verður Bingó — Mörg góð verðlaun
Fjörugur dans til kl. 2.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Skemmtinef ndin
<§> MELAVÖLLUR
REYKJAVÍKURMÓT — MEISTARAFLOKKS
hefst í dag kl. 5 e.h.
Þá leika:
VALIJR - VÍKINGIJR
Dómari: Baldur Þórðarson
Línuverðir: Jón Baldvinsson, Haraldur Baldvinsson
Stæði kr. 15.00 — Stúkusæti kr. 20.00 — Barnamiðar kr. 5.00
Mótanefndin
Gömlu
dansarnir
í kvold kl. 21
Bœjarkeppni í
handknattleik
bar lj,ós merki þess að hægt er
að leika góðan handknattleik að
Hálo^ál. og keppni getur verið tví
sýn, þ(ó ekki sé farið út í óþarfa
börku. Leikurinn var allur sér-
staklega skemmtilegur. Mikill
samleikur og glæsilega skoruð
mörk.
FYRRIHLUTI bæjarkeppninnar
Reykjavík — Hafnarfjörður fór
fram að Hálogalandi í fyrra-
kvöld. — Keppt var í þrem
flokkum, Mfl. kvenna, 2. fl.
karla og 1. fl. karla. Reykvík-
ingar báru sigur úr býtum í Mfl.
kvenna og 1. fl. karla, en Hafn-
arfjörður vann 2. fl. karla.
Mfl. kvenna:
Reykjavíkurliðið, sem teflt
var fram á móti hinum ungu FH-
stúlkum, má að mörgu leyti telj-
ast tilraunalandslið, því liðið
skipuðu flestar sterkustu hand-
knattleiksstúlkurnar, sem vald-
ar hafa verið til landsliðs-
æfinga.
Að markatölu var leikurinn
strax nokkuð ójafn, stóð 4 : 1 við
leikhlé. Og í byrjun síðari hálf-
leiks bættu Reykjavíkurstúlk-
urnar enn tveim mörkum við
svo staðan var 6 :1. — En eftir
það sækja FH-stúlkurnar í sig
veðrið, leikurinn jafnast mjög
og oft á tíðum mjög fallegur
samleikur hjá báðum liðum.
Það sem eftir er leiksins skor-
uðu FH-stúlkurnar 4 mörk
gegn 5 mörkum Reykvíkinga og
lauk því leiknum með sigri
Reykjavikur 11:5. —
2. fl. karla:
Þessi leikur var skemmtileg-
asti og bezt leikni leikur kvölds-
ins. Reykjavfkurliðið byrjaði
vel og eftir nokkrar mínútur var
staðan 6 :3 Rvík í vil. Hafn-
firðingarnir fóru nú að sækja á
og er nokkrar mínútur eru eftir
af hálfleiknum er staðan orðin
7:7 og við leikhlé er staðan
orðin 11:9 Hafnfirðingum í vil.
Reykjavík byrjar að skora í
síðari háfleiknum en Hafnfirð-
ingarnir svara með því að skora
þrjú mörk og staðan er 14 : 10.
— Reykvíkingarnir sækja nú á
og síðustu mínútur hálfleiksins
er aðeins eins marks munur, þar
til Hafnfirðingarnir skora síð-
asta markið úr vítakasti og leik-
urinn endar 20 : 18 með sigri
Hafnarfjarðar. —
Þessi leikur 2. fl. mannanna
1. fl. karla:
Leikur 1. fl. var nokkuð jafn
fyrri hálfleikinn og nokkur
hraði í leiknum. Við leikhlé
stóðu leikar 5:5. I síðari hálf-
leiknúm náðu Reykvíkingarnir
betri tökum á leiknum og ógn-
aði Hafnarfjarðarliðið aldrei
sigri þeirra, þó leikurinn endaði
11:8 fyrir Reykjavík.
Á. A.
Reyhjavíkurmótið heist í dug
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í knatt-
spyrnu hefst í dag kl. 5 e. h.
á Melavellinum með leik Vík-
ings og Vals. Þetta verður því
fyrsti opinberi knattspyrnukapp-
leikurinn í ár, og hefir verið
beðið (eftir honum með nokkurri
eftirvæntingu. Vitað er að fé-
lögin hafa æft óvenjulega vel í
vor, og lið þeirra koma því mun
betur undirbúin til byrjunar-
leikjanna en undanfarin ár.
tiiö ýóíandð
við Kolkotnsveg - Simi 18911
Miðstöð allra íúlksilutninna
v _____________________________J
Gamanleikurinn „Gestur til miðdegisverðar“ hefur nu verið
sýndur hjá Leikfélagi Reykjavíkur 26 sinnum við ágæta að-
sókn. — Á myndinni sjáum við Sigríði iiagalín í hlutverki
leikkonunnar Lorraine Sheldon og Brynjólf Jóhannesson sem
Sheridan Whiteside. — Aðeins þrjár sýningar eiu nu eftir
á leikritinu og verður sýning í kvöld kl. 8.