Morgunblaðið - 23.04.1960, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.04.1960, Blaðsíða 3
Laugarðagur 23. apríl 1960 MORGVNBLAÐIÐ •i Fyrir nokkru komu sex ís- lenzkir svanir fljúgandi af himnum ofan og settust á Tjörnina meö fögrum söng. En það stóð ekki lengi. Keis- arinn rak þá á flótta úr ný- dvelja á litlu tjörninni — og það virðist vera j !m nóg. Þeir eru friðsemdar fuglar, enda aldir upp í íslenzkri ör- æfakyrrð, þar sem söngurinn á upptök sín, aftnr á móti Einvígi um íslands- meistaratitilinn í skák? Þetta er egg „keisarahjónanna". Það er um 10 cm. á langveg- inn en um 5 cm. á þverveginn, Ijós- og dókkbrúnt. Hreiðrið er allmikið fyrirtæki, barmarnir hlaðnir torfflögum, en að innanverðu er það allt klætt heyi, sem hefur verið flutt út í hólmann. Hólminn er hæstur, þar sem hreiðrið er staðsett, og svanirnir sjá þar vítt of allan sjá. Það verður mikið og fagurt ríki, sem blasir við augum „erfingjans", þegar hann skríður úr egginu. MJÖG miklar líkur eru á því að Freysteinn Þorbergssonar og Guðmundur Pálmason verði að heyja einvígi um skákmeistara- titil íslands. I áttundu umferð, sem tefld var á sumardaginn fyrsta vann Guðmundur Pálma- son Hauk Sveinsson, en skák Freysteins við Jónas Þorvalds- son fór í bið. Biðskákin verður tefld á sunnudaginn og er hún jafnteflisleg. Verði hún jafntefli verða þeir Guðmundur Pálma- son og Freysteinn jafnir að vinningum, með 6 hvor. I 8. umferð fóru leikar sem hér segir: Kári Sólmundarson vann Pál G. Jónsson, Guðmundur Pálma- son vann Hauk Sveinsson. Guð- mundur Lárusson vann Halldór Jónsson og Ólafur Magnússon vann Jón Kristjánsson. Aðrar skákir fóru í bið. í gærkveldi átti að tefla bið- skákir þeirra Ingvars Asmunds- sonar og Benónýs Benediktssonar og Gunnars Gunnarssonar og Braga Þorbergssonar. Skák Freysteins og Jónasar verður tefld á sunnudag eins og fyrr segir. Staðan í landsliðsflokkl 1. Guðmundur Pálmason 6 v., 2. Freysteinn Gunnarsson 5% v. og biðskák, 3 —4. Kari Sólmund- arson 5 v., 3.-4. Guðmundur Lárusson 5 v., 5. Gunnar Gunn- arsson v. og biðsk., 6. Ólafur Magnússon 4% v., 7. Páll G. Jónsson 4 v., 8.—9. Ingvar As- mundsson 3 Vt. v. og biðsk., 8.—9. Jónas Þorvaldsson 3% v. og biðsk., 10. Halldór Jónsson 3% v., 11.—12. Benóný Benediktsson 3 v. og biðsk., 11.—12. Bragi Þor- bergsson 3 v. og biðsk., 13. Hauk- ur Sveinsson 1% v. og 14. Jón Kristjánsson % v. Meistaraflokkur I meistaraflokknum er keppn- in um efstu sætin eigi síður hörð, en þar fóru tvær skákir í bið og getur önnur þeirra haft áhrif á efstu sætin. Hæstir að vinningum eru Magnús Sólmundarson og Sveinn Framh. á bls. 23. UM þessar mundir er ástalifið að vakna meðal íbúa Tjarnar- innar í Reykjavik. Blikarnir rífast um kollurnar, sem láta sem þær hafi engan áhuga og reyna að komast undan þeim. Bráðum verða hólmarnir í tjörnunum krökkir af eggjum og síðar litlum ungum, er eiga fyrir sér að vaxa og verða veraldarvanir. Þýzku svanirnir á stóru tjörninni láta ekki sitt eftir liggja — eitt egg er þegar komið í heiminn og „keisar- inn“ og „keisaraynjan" skipt- ast á að gæta þeirra og halda á þeim yl. Já, það hlýtur að renna keisarablóð í æðum Þesi mynd er tekin af hólmanum, áður en lagt var út í hann. Skömmu áður en myndin var tekin höfðu „keisarahjónin“ skipt um vakt. Frú in Iagði frá landi til að hreyfa sig og fá sér að borða, en „keisarinn“ settist klunnalega en var Iega á eggið. Hjónin halda öudunum í hæfilegri fjarlægð frá hreiðrínu, en skipta sér ekki að öðru leyti af smælingjunum. eiga von á erfingja þýzku svananna, þvl þelr eru lendu sinni — og þeir hurfu syngja þýzku keisarahjónin svo herskáir, að engum öðr- ^ j himinbiámann á ný. Xveir ekki - nema stríðssöngva. En um svonum ervært ínnan landa gaman verður að sja barmð mæra þeirra, sem er öll stóra íslenzkir svanir fá fyrir sér- þeirra, þegar það skríður úr tjörnin — minna dugar ekki. staka náð hans hátignar að eggi. Ljósmyndari og blaðamaður Mbl. fóru í gær út í Tjarnarhólmann undir vernd Kjartans Ólafs- sonar brunavarðar. Báturinn er staddur miðja vega milli hólmans og lands og Kjartan veifar til brunnavarðanna á landi. Það var gott að hafa Kjartan með, því þýzku svanirnir báru svo mikla virðingu fyrir einkennisbúningi hans, að þeir héldu sig hæversklega i fjarlægð sunnan við hólmann, meðan ljósmyndarinn tók mynd af hreiðrinu þeirra og egginu. Frv. um viðskipta- frelsi komið í nefnd INNFLUTNINGS- og gjald- eyrismálafrumvarp ríkis- stiórnarinnar var aftur á dagskrá Neðri deildar Al- þingis í gær. Þegar fundur hafði verið sett- ur kl. 13,30 tók Einar Olgeirsson upp þráðinn, þar sem hann varð niður að falla í fundarlok á mið- vikudaginn. Varð honum einkum tíðrætt um það, að hið aukna frelsi mundi leiða til minnkandi viðskipta við kommúnistaríkin í Austur-Evrópu. Þar með yrði brotið niður aftur það sem hann hefði á liðnum árum barizt fyrir að byggt yrði upp. Lýsti E. Olg. með mörgum orðum áhyggjum sínum og oánægju með þessa stefnu, sem hann kvað ekki tekna með nægilegri forsjá. Þjóðin yrði of háð vestrænum þjóðum. Með stefnu ríkisstjórn- arinnar í þessum málum væri verið að gefa upp sjálfstæði ís- lenzks þjóðavbúskapar og gefast upp við að stjórna honum sem heild. Frjáls verzlun gæfist allt- af ilia. Um þessi atriði og nokkur önnur, skyld og óskyld, talaði E. Olg. viðstöðulaust nær allan fundartíma deildarinnar í gær, eða fram undir kl. 16. Að ræðu hans lokinni var málinu vísað til 2. umræðu og f j árhagsnef ndar. 3 STAKSIEIWU Oftrúin á perrónuníðið Islenzkur almenningur fagna# því áreiðanlega að á hinum sið- ari árum hefur mjög dregið úr persónulegum skömmum og skætingi í blöðum. Blaðamenn- irnir sjálfir hafa gert sér ljóst, að slíkur málflutningur borgar sig ekki og er þeim þar að auki ekki samboðinn. En öðru hverju skýtur hin* gamli draugur persónuniðsins upp kollinum. Hann hefur til dæmis verið á ferli í dálkum Þjóðviljans undanfarið. Þar hef- ur verið haldið uppi látlausum persónulegum rógi um Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóra i Reykjavík. Þessi samvizkusami og regiusami embættismaður hefur verið eltur með alls konar upplognum ásökunum. Einn dag. inn hefur Þjóðviljinn til dæmis haldið því fram, að lögreglu- stjórinn haldi uppi stöðugum símahlerunum gagnvart sam- starfsmönnum sínum. Annan daginn á öll embættisfærsla hans að mótast af hiki og fálmi. Tilgangurinn með þessum skrif um Þjóðviljans er, eins og bent hefur verið á hér í blaðinu, ekki eingöngu sá að sverta einstakan mann, heldur að rýra traust fólks ins á lögreglu höfuðborgarinnar yfirleitt. Það er það sem fyrir kommúnistum vakir. En óhætt er að fullyrða að yfirgnæfandi meirihluti Reykvíkinga gerir sér ljóst að lögreglan í Reykjavík og lögreglustjóri vinna verk sitt af dugnaði og samvizkusemi. Per- sónuníð Þjóðviljans mun engu breyta um þetta almenniugsálit. Áhuginn vaknaður Ungur kommúnisti segir í greill í Þjóðvilanum á sumardaginn fyrsta, að „barátlan fyrir brott- för bandaríska hernámsliðsins og úrsögn íslendinga úr Atlantshafs bandalaginu sé höfuðmál, sem önnur pólitísk verkefni mega aldrei yfirskyggja“. Nú er áhugi kommúnista skyndilega vaknaður fyrir brott- rekstri varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli. En þeir sátu i ríkis- stjórn í hálft þriðja ár án þess að hreyfa legg né lið til þess að framkvæma það stefnuatriði ríkisstjórnar sinnar að láta vam- arliðið fara. Meðan kommúnistar sátu í ráðherrastólum gerði ekk- ert til þótt ísland væri í Atlants- hafsbandalaginu. Svona sjálfir sér samkvæmir eru þá kommúnistar eftir allt saman, einnig í varnarmálunum. Hver skyldi svo taka mark á fleipri þeirra nú, um að brottför varnarliðsins sé „höfuðmál, sem önnur pólitísk verkefni megi aldrei yfirskyggja?“ Of margar ræður Frumsýningargestum í Þjóð- leikhúsinu fannst of mikið um ræðuhöld á hátíðarsýningunni í tilefni af 10 ára afmælis leik- hússins sl. miðvikudagskvöld. Þrjár ræður voru haldnar við þetta tækifæri, og enda þótt þær væru allar ágætar fannst leik- húsgestum að þarna væri um of- rausn að ræða. Forráðamenn leik hússins ættu að athuga þetta i framtíðinni. Löng ræðuhöld á undan leiksýningum eiga ekki við. Eitt örstutt ávarp í tilefni 10 ára afmælis leikhússins hefði nægt, ef nokkra ræðu hefði á annað borð átt að halda. Hátið- leiki hátíðarsýningar í leikhúsi er fyrst og fremst fólginn i sjálfri sýningunni, en ekki ræðuhöldum *á undan henui.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.