Morgunblaðið - 23.04.1960, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.04.1960, Blaðsíða 10
10 MORGIJNBLAÐIÐ T.auerardagur 23. aprfl tJTGEFANDI: SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐLSMANNA RITSTJÖRI: BJARNI BEINTEINSSON Leikhús Heinidillíir sýiiir: 9Éitt lauf4 Skyggnzt bak við tjöidin í Sjálfstæðishúsinu Múmíuatriðið: Júlíus Cæsar rís upp af 2000 ára svefni á heimili hjónanna Samúels (Har. A.) og konu hans (Þóra Friðriksdóttir). A ÞRIÐ JUDAGSKV ÖLDIÐ var frumsýnd í Sjálfstæðis- húsinu í Reykjavík revían „Eitt lauf“ á vegum Leik- húss Heimdallar. — Þetta eru margir ólíkir þætt- ir, sinn úr hverri áttinni. Þarna er sýndur spænskur dans, hafmeyjan a Tjörninni, Steinunn Bjarnadóttir kastar kveðju á ljósmyndara vorn. — — Hefur þú samið öll atriðin, Haraldur? — Nei, ekki aldeilis. Ég á víst meginhlutann af múmíuatriðinu og svo náttúrlega hafmeyna. — Múmíuatriðinu? — Já, sko vinur minn. Það eru ung hjón, ung kona og gamall maður með grátt skegg. Maður- inn hefur feikna áhuga á forn- leifafræði og hefur keypt múmíu hjá Sölunefndinni. Konan er alveg að ærast og tekur samt út yfir, þegar múmían vaknar aftur til lífsins eftir 2000 ár. Þá koma líka fleiri við sögu, svo sem sjálf Kleópatra, en við skulum ekki fara nánar út í það hérna. — En hafmeyjan? — Ekkert um hana í blöð! Fólk verður að koma og sjá hana með eigin augum. Það er nefnilega eitt merkilegasta atriði eftir sýninguna, svo að við litum inn til þriggja bráðfallegra blómarósa, sem sátu í þröngum klefa og bjuggu sig undir sýn- inguna. Þær sögðust heita Anna María Jóhannsdóttir, Sigrún Ragnarsdóttir og Sigurbjörg Sveinsdóttir og vildu ólmar fá af sér mynd og notuðu spari- brosin á aumingja ljósmyndar- ann, sem sá sitt óvænna og flýtti sér að taka af þeim nokkrar Hún sagði, að ekki kæmi til mála að við tækjum af henni mynd og um leið og hún árétt- aði það kröftuglega náðist þessi ágæta mynd. Næst rákumst við inn á Karl Guðmundsson, þar sem hann var fáklæddur að búast múmíugerv- inu. Karl kemur ennfremur fram í hafmeyjaratriðinu og fjarlægir „hlutinn á Tjörninni". Þóra Friðriksdóttir gekk um gólf í blágrænum setslopp og þuldi „rullurnar“ reiprennandi. I-fún sagðist aldrei tala við blaðasnápa svona rétt fyrir sýn- ingu, en við mættum svo sem taka eina mynd gegn því að birta hana ekki. Þóra leikur „Möggu“ systur „Betu Bretadrottningar", frúna í múmíuatriðinu og kven- lögreglu í „Hvað heitir lagið?“ Nú var ekki lengur til setunn- Því næst birtast þrjú ung pör á sviðinu og syngja söngva frá París, Róm, Berlín, Færeyjum, Ósló og Moskvu, einn söng frá hverju landi. Þar eru á ferðinni þær Anna María, Sigrún og Sig- urbjörg og söngvarinn Sigurdór, Tryggvi Karlsson og Reynir Jón- asson. Þetta er allt ungt fólk og smekklega klætt. Maðurinn, sem býr á þriðju hæð í fjölbýlishúsinu á við meiri erfiðleika að etja, en menn gera sér sennilega almennt grein fyr- ir. Gunnar Eyjólfsson sýnir ljós- lega fram á það í „raunum mannsins á þriðju hæð“. Auk þess er gervi hans með ágætum. Samúel karlinn hefur magn- aðan áhuga á fornleifafræði. Eins og áður er sagt, hefur hann keypt múmíu hjá Sölunefndinni Gunnar Eyjólfsson, leikstjóri (t. h.), og Haraldur A. Sigurðs- son, einn af höfundum revíunnar ar boðið. Við rétt nóðum í Eyþór Þorláksson, gítarleikara, sem kunnur er orðinn fyrir Spánar- vist og frábæran gítarleik. Við ætluðum að spyrja hann út úr, en þá var öllum leikendunum smalað upp á fjalimar og Eyþór þurfti að setjast við gítarinn sinn. Leikstjórinn, Gunnar Eyjólfs- son, flutti fyrst eins konar „pro- logus“. Síðan sást í eldhús „Betu Bretadrottningar“. Drottning sýslar þar við ýsupotta sína og „Magga“ systir hennar skrælir kartöflur. Islandskort hangir þar á vegg. „Beta“ talar við „Pusa“ sinn, sem liggur veikur í sjúkra- húsinu á Patreksfirði og þau koma sér saman um, að dreng- barnið nýfædda skuli heita „Pét- ur Patró“. Síðan skipar „Beta“ forsætisráðherranum „Mac“ í Downingstræti að láta ensku trollarana fara úr islenzku land- helginni um stundarsakir. Margt fleira kátlegt gerist í eldhúsi hennar hátignar. og kona hans er rétt að ærast. Ekki lítur heldur vel út, þegar sjálfur Júlíus Cæsar rís upp úr kistunni, eftir að hafa legið í dvala í 2000 ár. Margvíslegir kát- broslegir atburðir gerast í húsi Samúels, en að lokum næst þó í Kleópötru, sem hafði verið að skemmta sér á Keflavíkurflug- velli og fjölskyldan býður keis- aranum og elskunni hans á 10 ára afmæli Þjóðleikhússins. Eitt bezta atriði revíunnar er án vafa spænskur dans og söng- ur, senioritur og seniorar, dill- andi söngur og dans, skemmti- legir búningar. Margt fleira mætti nefna úr hinni ágætu revíu „Eitt lauf“, sem sýnd verður í Sjálfstæðis- húsinu næstu vikurnar. Þetta verður látið nægja hér, en skylt er að geta þess, að allan undir- leik annast vitanlega hljómsveit Svavars Gests af hinni mestu prýði. B. K. Spænska atriðið: Eyþór Þorláksson, gítarleikari i hópi blómarósanna þriggja og söngvaranna Sigu-uors Sigurdórssonar, Tryggva Karlssonar Of Keynií Jónassonar. eldhús „Betu Bretadrottning- ar“ og ótal margt fleira. — Gunnar Eyjólfsson er leik- stjóri. - • Œ • - Við komum að Haraldi Á. Sigurðssyni, þar sem hann sat með alvöruskegg og reyndi að læra allar rullurnar sínar. Har- aldur kemur fram í mörgum gervum, en alltaf er hann með skeggið. Okkur fannst sjálfsagt að trufla hann og inntum hann því eftir, hvað væri hér á seyði. — Blessaðir verið þið, þetta er allt í lagi, strákar mínir. Ekk- ert að óttast. Við erum að starta með dálitla sýningu til áð bæta skapið í Reykvíkingum og þeim á Búnaðarþinginu eftir viðreisn- ina og söluskattinn. Þetta verð- ur frábær sýning, það megið þið að minnsta kosti hafa eftir mér! Hinar bráðfallegu blómarósir, Sigurbjörg Sveinsdóttir (t. v.), Sigrún Ragnarsdóttir og Anna María Jóhannsdóttir (t. h.) allra sýninganna. Heldurðu að ég sé eitthvert bíóprógramm? — Megum við þa ekki taka mynd af þér tvöföldum, Harald- ur? — Mér tvöföldum! Hvemig ætlarðu eiginlega að koma mér tvöföldum inn á mynd? Svo fáum við Harald til að snúa sér að speglinum og Ijós- myndarinn smellir af í flýti. Gunnar Eyjólfsson, leikstjóri, var á þönum fram og aftur og sagðist engan tíma hafa fyrr en myndir, Þær koma fram í spænska atriðinu og einnig raunum mannsins á þriðju hæð og söngferðinni umhverfis hnöttinn. Steinunn Bjarnadóttir var að grátur og gekk ágætlega. Við báð grát og gekk ágætlega. Við báð- um hana að reyna að gretta sig ofurlítið betur, en hún svaraði heldur snúðugt: — Heldurðu, að ég sé einhver Hallbjörg? (En þær eru systur, eins og kunnugt er).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.