Morgunblaðið - 30.04.1960, Síða 1
24 síður
Prentsmiðia Morgunblaðslns
Ný viðhorf hafa skapazt;
Ákvörðun tekin um sakaruppgjöf
vegna landhelgisbrota
Eltingaleikur við að koma fram refs-
ingum engum til góðs
BJARNI BENEDIKTSSON, dómsmálaráð-
herra, flutti eftirfarandi útvarpsávarp í
gærkvöldi:
íslendingar hafa nú þegar fengið svo
ítarlegar fregnir af Genfarráðstefnunni,
sem lauk fyrir skemmstu eftir nær sex
vikur án þess að hafa leyst verkefni það,
sem henni var ætlað, að óþarft er fyrir mig
að gera grein fyrir gangi hennar í einstök-
um atriðum. Rétt er þó að taka það fram,
að enda þótt við íslendingar greiddum
atkvæði gegn tillögu þeirri, sem nær hafði
fengið áskilinn meirihluta, og yrðum henni
þannig að falli, þá var hún samt okkur
ólíkt hagstæðari en tillaga sú, sem mest
var um barizt á ráðstefnunni 1958 og þá
fékk flest atkvæði. Þá var að vísu eins og
nú miðað við 12 mílna fiskveiðilögsögu, en
með þeim fyrirvara, að svokölluð söguleg
fiskveiðiréttindi áttu að haldast um alla
framtíð.
Nú féllst % meirihluti á að opna leið til
forréttinda strandríkis til veiða utan við 12
sjómílur. Sú hugmynd, sem ekki sízt hefur
hlotið fylgi fyrir forystu íslendinga, var að
vísu borin þarna fram í óákveðnara formi
en við hefðum kosið, en er þó greinilegri
leiðarvísir en áður hefur fengizt um það,
hvert haldið skuli. Sovétríkin og fylgiríki
þeirra virtust þó telja of langt gengið í
þessu, því að þau voru ófáanleg til að
styðja nokkra tillögu í þessa átt.
Almenn viðurkenning á sérstöðu
íslands
Nú var miðað við, að kvöðin
um hin svokölluðu sögulegu rétt-
indi héldist ekki lengur en í 10
ár og var vitað, að við mundum
með sérsamningum getað fengið
hana stytta um helming varðandi
okkar lögsögu. Því verður þess
vegna ekki mælt í móti, að þó að
okkur þættu forráðamenn meiri-
hiutans sækja samþykkt tillögu
sinnar meira af kappi en forsjá,
þá höfðu þeir varðandi sjálft
megin-atriðið slakað mjög til.
Lögreglan til taks
jbegar Þorkell Máni kemur til Grimsbyl
Grimsby, 29. apríl. —
FJÓRTÁN brezkir togarar voru
í kvöld á leið til veiða við ísland.
— Samtímis berst mikill fjöldi
símskeyta til Grimsby og Hull
frá brezkum togaraskipstjórum,
með kröfum um að þegar í stað
verði gerðar ráðstafanir til að
hindra fisklandanir ■ erlendra
veiðiskipa í Bretlandi. Sagt er,
að mönnum sé þar mjög þungt í
skapi og óttazt er, að til átaka
kunni að koma í næstu viku,
þegar sjö íslenzk fiskiskip koma
þangað til að landa.
Talsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins neitaði algerlega
að svara spurningum þess efnis,
hvort brezk herskip við íslands-
strendur mundu aðhafast eitt-
hvað, ef íslenzk varðskip gerðu
atlögu að brezkum togurum, sem
Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra.
færu inn fyrir 12 mílna fiskveiði
takmarkalínuna.
Þegar íslenzki togarinn Þorkell
Máni kemur til Grimsby á sunnu
dagskvöldið mun lögregluvörður
verða settur á hafnargarðinn, en
formaður félags yfirmanna á tog-
urum í Grimsby, Dennis Welch,
sagði að ekki yrði gripið til
neinna skipulegra mótaðgerða
fyrr en málið hefði verið rætt
til fullnustu. En ég ber enga á-
byrgð á því sem einstakir menn
kunna að aðhafast, sagði hann.
íslenzki vararæðismaðurinn í
# jrimsby Þórarinn Oligeirsson,
lét þá svo ummælt í dag að brezk
um togurum muni leyft að leita
vars við íslands svo framarlega
sem þeir virði 12 mílna landhelg-
ina.
(Jtgöngubann
í Ankara
Ankara, 29. apríl.
MENDERES, forsætisráð-
herra Tyrklands, hélt í kvöld
útvarpsræðu og varaði lands-
menn við því, sem hann
nefndi glæpsamlegar aðgerð-
ir gegn friði og öryggi lands-
Kveiktu
í lögregluþjóni
VARSJÁ, 29. apríl: — Allt
var með kyrrum kjörum í
Mowa Hunta í dag, en þar
kom til átaka með alraenn-
ingi og lögreglunni í gær
vegna þess, að stjórnarvöld-
in ætluðu að byggja skóla
á stað, sem lofað hafði ver-
ið að byggja á kirkju. 30
manns munu hafa slazast
en einn látizt. Þá mun lög-
regluþjónn vara miilí heims
og heljar í sjúkrahúsi eftir
brunasár, sem hann hlaut
í' viðureigninni. Helltu
menn benzíni yfir lögreglu-
manninn og kveiktu í hon-
um — og gefur það til
kynna af hvíiíkri heift hef-
ur verið barizt.
Skoðun okkar var aftur á móti
sú, að hvað sem liði réttmæti þess
að slík kvöð væri lögð á strand-
þjóðir, sem hlutfallslega eiga
sáralítið undir fiskveiðum, þá
ætti hún með engu móti við þjóð-
ir, sem svo er ástatt um, að efna-
hagur þeirra er að verulegu eða
mestu leyti undir fiskveiðum kom
inn, en Islendingar eru eina sjálf
stæða þjóðin, sem svo er ástatt
um. Okkur virtist staðfesting á
slíkri sérstöðu okkar innan 12
mílna þeim mun sjálfsagðari
einnig frá sjónarmiði þeirra, er
héldu fast í hinn svokallaða sögu
lega rétt, sem það kom ótvírætt
fram á ráðstefnunni, að þar ríkti
almenn viðurkenning á sérstöðu
fslands. Var þá þó í fyrstu einung
is um að ræða fiskveiðiréttinn
utan við 12 sjómílur. Þessu til
viðbótar kom ,að við sýndum
fram á að friðun sú, sem miðin
fengu á stríðsárunum, fyrr og síð
ar, sannaði hvílík áhrif friðunar-
ráðstafanir hafi til góðs, ekki ís-
lendingum einum, heldur öllum,
sem hingað sækja fiskveiðar. 12
mílna fiskveiðilögsaga okkar mið
ar í sömu átt og var því viður-
kenning hennar ekki sérmál ís-
lendinga, heldur hefði átt að
vera keppikefli allra, sem hlut
áttu að. En eins og jafnvel fárra
ára friðun hefur stórbreytt á-
standinu til bóta, þá getur fárra
ára ofveiði gerspillt því um langa
eða alla framtíð.
Framh. á bls. 2
mfl áj ®
a hortir
i Grimsby
Margir togarar á leiðinni út
EINS og skýrt er frá annars
síaðar í blaðinu í frétt frá
Grimsby er í ráði að allmarg-
ir íslenzkir togarar sigli með
afla sinn til Bretlands í næstu
viku. Þó eru horfur ekki sem
allra beztar og er Mbl. kunn-
ugt um, að umboðsmaður ís-
lenzku togaranna í Grimsby,
Þórarinn Olgeirsson, ræðis-
maður, hafi skýrt togaraeig-
cndum hér frá því, að félag
togarayfirmanna þar í borg
hafi æst til löndunarbanns á
islenzkan fisk og telur hann
ófriðlega horfa.
Hallveig Fróðadóttir lagði af
stað með afla sinn á Bretlands-
markað á hádegi í gær. Togarinn
Norðlendingur lagði einnig af
stað með afla sinn til Bretlands
á hádegi í gær, en ekki er blað-
inu frekar kunnugt um ferðir
þessara skipa. Þá er í ráði, að
tveir togarar, Karlsefni og Narfi,
sigli með sinn afla í kvöld.
Góður afli
Af öðrum íslenzkum togurum,
sem hafa siglt með afla sinn á
Bretlandsmarkað er það að segja,
að Þorkell Máni lagði af stað
miðvikudaginn 27. þ.m. og er
ráðgert að hann kpmi til Grims-
by annað kvöld, eins og segir í
fyrrnefndri frétt. Bjarni riddari
mun einnig koma á sama tíma til
Grimsby. Selja þeir afla sinn á
mánudag. Bjarni Ólafsson og Þor
steinn Þorskabítur lögðu af stað
sl. fimmtudag, 28. þ.m., og er
ráðgert að þeir landi báðir þriðju
daginn 3. maí.
Um aflamagn togaranna er
þetta að segja:
Bjarni riddari er með 200 tonn,
Þorkell Máni 250, Bjarni Ólafs-
son 250, Þorsteinn þorskabítur
150, Hallveig Fróðadóttir 250 og
Framh. á bls. 23.
ins, en samtímis fór ástandið
i landinu versnandi. í dag
kom til átaka í Ankara,
fstanbul og Izma, þegar lög-
regla dreifði mannfiölda, sem
safnazt hafði saman til að
sýna stjórnarvöldunum and-
úð sína og mótmæli gegn at-
burðunum á þingi. Óstaðfest-
ar fregnir herma, að þrír
menn hafi fallið í þessum
átökum.
Hvatt til friðar
1 útvarpsræðunni hvatti Mend-
eres fólkið til þess að taica hönd-
um saman við stjórnina og ör-
yggissveitirnar til að binda endi
á ófremdarástandið og þagga nið-
ur í þeim, sem væru að reyna að
kveikja ófriðareld í landinu.
Aðalátökin munu hafa átt sér
stað framan við háskólann í Ank-
ara þegar liðssveitir hersins ætl-
uðu að dreifa stórum hópi stú-
denta Þeir höfðu safnazt þarna
saman til að minnast stúdent-
anna, sem féllu í átökunum í
Istanbul í gær. Grýttu stúdent-
ar lögregluna, sem þá beitti skot-
vopnum með þeim afleiðingum,
Framh. á bls. 23.
Flogið hafið
á Grænlandi
KAUPMANNAHÖFN, 29. apríl.
(Einkask. til Mbl.): — Þrjár flug-
vélar frá Kanadiska flugfélaginu
EPA eru komnar til Syðri-
Straumfjarðar á Grænlandi, og
eiga að hefja innanlandsflug í
dag, samkvæmt áAur gerðum
samningi.