Morgunblaðið - 30.04.1960, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.04.1960, Blaðsíða 17
Laugardagur 30. apríl 1960 MORGVTSBLAÐIÐ 17 Hallar á Botvinnikl í viðskiptunum við Tal NÚ ER tekið að síga á seinni hlutann í einvígi þeirra Botvinn- iks og Tals um heimsmeistara- titilinn í skák. Fáum blandast orðið hugur um, að Botvinnik hefur hitt fyrir ofjarl sinn að þessu sinni, þótt hitt megi af skákunum ráða, að Botvinnik teflir nú naumast af þeirri skerpu, sem honum er gefin, þegar hann er upp á sitt bezta. Botvinnik hefur þó teflt flestar skákirnar vel framan af, en hann r.otar mun meiri umhugsunar- tíma en andstæðingurinn, lend- ir svo í tímaþröng og leikur þá oft af sér. Það er einmitt þessi gangur skákanna — góð upp- bygging hjá Botvinnik og afleik- ir í tímaþröng, sem vafalaust munu valda því, að ýmsir skák- menn, sem ekki kunna vel að meta skákstíl Tals, svo sem til dæmis Smysloff, munu ekki vilja viðurkenna yfirburði Tals, þótt hann fari með sigur af hólmi og munu að líkindum hvetja Botvinnik til hefnda að ári, í þeirri von að hann verði þá betur fyrirkallaður. En ein- víginu er nú enn ekki lokið — ennþá getur heimsmeistarinn orðið harður í horn að taka. Fréttir af einvíginu hafa ekki verið eins góðar að undanförnu eins og þær voru í fyrstu. Eink- uir var það skarð fyrir skyldi, þegar aðstoðarmaður Tals, Koblenz, sá sér ekki lengur fært að senda fréttabréf frá einvíg- inu. Alls hafði hann þá sent átta bréf og tekið fyrir jafn i margar skákir. Blaðið mun1 væntanlega geta birt síðustu skákir einvígisins tiltölulega skömmu eftir að þær verða tefldar, en bilið á milli greina eðstoðarmannsins og skáka þeirra, sem birtar verða nýjar, ætla ég að brúa nokkuð með því að rekja gang baráttunnar um miðbik einvigisins. Eins og lesendur minnast, hafði aðstoðarmaðurinn lýst því í síðustu grein sinni, hvernig Tal fékk verri stöðu með svörtu í áttundu skákinni, e*i tókst sem oftar að grugga vatnið með peðs- fórn og ná sterkri gagnsókn. Hefði sú gagnsókn getað orðið Botvinnik skeinuhætt, ef svo hefði ekki brugðið við, að einn- ig Tal komst í ofsalega tíma- þxöng, og þótt hann sé álitinn vera bezti hraðskákmaður heims ins, varð honum þó á að leika röngum hrók um einn reit og réði sú yfirsjón úrslitum skákar- innar, eins og fyrst kom í ljós þegar öll lætin voru um garð gengin, og menn gátu litið yfir baráttuvöllinn í ró og næði. Þannig varð fyrsti sigur Bot- vinniks í einvíginu næsta til- viljunarkenndur, og staðan í ein- viginu hefði næstum alveg eins getað verið 6:2, eins og 5:3, sem hún var í reyndinni. Niunda skákin Þá er að segja lítillega frá niundu skákinni. Að því sinni kom Tal með heimatilbúná sprengju gegn Caro-Kann vörn- inni, sem Botvinnik hafði sett traust sitt á. Nýjung þessi var allglæfraleg mannsfórn í 11. leik, sem þó hefði sennilega verið básúnuð sem nothæf og glæsileg, ef Botvinnik hefði ekki einmitt ratað á réttu vörnina og þannig sýnt fram á, að hér var um púðurskot að ræða. Botvinn- ík hratt sókninni, hélt manni yfir gegn þrem heldur lítilfjör- legum peðum og vann svo endataflið með nákvæmni fag- mannsins í 58. leik. Þetta var mikill móralskur sigur fyrir Botvinnik, en þungt áfall fyrir Tal, sem ekki áttl í bili neinar notthæfar sprengjur í fórum sín- um gegn hinu trausta virki Caro- Kann varnarinnar. Þá var stað- an í einvíginu líka orðin ískyggilega jöfn, 5 : 4 fyrir Tal. Tíunda skákin í 10. skákinni beitti Tal kóngs- mdverskri vörn og með nokkuð óvenjulegri leikjaröð kom upp þekkt staða í 11. leik, sem Bot- vinnik virtist þó ekki vera vel kunnugur. Að minnsta kosti brá liann út af alfaraleið með þeim miður góða árangri, að tapa strax peði án nokkurra teljandi sóknarfæra. Það varð þó heims- meistaranum til happs, að einnig Tal tefldi skákina gloppótt, og þegar báðir höfðu misst af beztu leið nokkrum sinnum til skiptis, endaði skákin friðsamlega í 60. leik ,og staðan var orðin 5%: 4%. — Ellefta skákin I 11. skákinni gerðust þau tíð- indi, að Tal lék í fyrsta skipti ekki kóngspeðinu fram í fyrsta leik, en lét sér nægja hina ró- legu Rétibyrjun: 1. Rf3. Lesend- ur múna ef til vill, að aðstoðar- maður hans hafði látið svo um mælt í einni greina sinna, að ef svo sterkt vopn yrði slegið úr hendi Tals, sem kóngspeðsbyrj- unin er, þá væri einvígið að hálfu unnið fyrir Botvinnik. Svó miklir atburðir höfðu þó ekki gerzt. Eins og síðar kom í ljós, var hinn nýi byrjunarleikur að- eins tímabundin tilraun, ætluð til þess að drepa tímann á með- an nýjum skotfærum var safnað gegn Caro-Kann-virkinu. „Til- raunin“ bar þó óvæntan árang- ur. Ýmsir höfðu búizt við, að' Bolvinnik myndi kunna vel við sig í hinni rólegu Rétibyrjun, en með snilldarlegri tafl- mennsku tókst Tal að ná betra tafli út úr byrjuninni og það var ekki fyrr en í miðtaflinu, sem Botvinnik tókst með viðlíka snilli að rétta hlut sinn. Þá barði hins vegar víðkunnur vágestur — timaþröngin — að dyrum hjá Botvinnik og varð honum þá á að hrasa lítillega út af braut ná- kvæmninnar. Ekkert slíkt fór fram hjá hvössum arnaraugum andstæðingsins. Tal herti sókn- ina að nýju og tókst að ná sigri í 72. leik eftir vel teflda skák af beggja hálfu. Bilið hafði nú aftur aukizt — staðan var orðin 6%:4% Tal í hag. Tólfta skákin í 12. skákinni beitti Tal Tarrasch-vörn og sýndi vel sinn skæða árásarstíl. Þannig tefla aðeins menn, sem þora að gefa nokkurn höggstað á sér. Bot- vinnik tefldi hins vegar traust- lega að vanda — skipti upp á hættulegustu árásarmönnum andstæðingsins og stefndi út í hagstætt endatafl. Hinar djarf- !egu áætlanir Tals höfðu kostað mikinn umhugsunartíma og komust nú báðir keppendur snemma í timaþröng. Missti þá Botvinnik oftar en einu sinni af beztu leiðum, sem hefðu fært honum góðar vinningsvonir og loks rændi hann peði, sem hefði getað kostað hann skák- ina, en þá var röðin komin að Tal að missa af öruggri vinn- ingsleið. Eins og skákin tefldist, tókst Botvinnik ekki einungis að koma fyrir sig vörnum, heldur komst hann út í endatafl með peð yfir. Biðskákina tefldi Tal af mikilli nákvæmni, og varð Botvinnik ekkert ágengt með peð sitt í drottningarendatafl- inu. Jafntefli var samið eftir 72. ieik. Staðan að hálfnuðu einvígi var því 7:5 áskorandanum í hag. Þrettánda skákin 13. skákin varð áhorfendum til vonbrigða. Eftir aðeins stundar- baráttu og 16 leiki sömdu kepp- endur jafntefli. Virtist svo sem báðir væru dasaðir eftir hin löngu endatöfl dagana áður og kysu því heldur að safna kröft- um fyrir lokahríðina. Báðir gátu líka að vissu leyti verið ánægðir með úrslitin, Botvinnik vegna þess að hann náði jöfnu með svörtu mönnunum, en Tal af því að hann hélt hinu góða forskoti sínu. Tal er í síðara helmingi einvígisins kominn i þá Skrifstofuvélasýning í dag klukkan 2 e. h., opnum við kynningarsýningu á skrifstofuvélum f Bröttugötu 3A. — Sýndar verða bókhaldsvélar .reikningsútskriftavélar, rafmagnsritvélar, ferðaritvélar, reiknivélar, búðarkassar o. fl. — Sýn ingin verður opin frá kl. 2 til 7 e.h., laugardag, sunnudag, mánudag, þriðju dag og miðvikudag. — Þarna verða sýndar ýmsar nýjungar í skrifstofu- vélatækni. Bæjarbíó hefur síðan á páskum sýnt ítölsk-frönsku myndina Pabbi okkar allra (Padri e Figli). Hefur hún verið vel sótt og hlotið góðar undirtektir. Myndin, sem er í CinemaScope, hlaut 1. verðlaun á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Berlín. — Hún verður sýnd í Bæjarbíói um helgina. aðstöðu að geta teflt upp á jafn- tefli og látið Botvinnik sækja á. í skákinni urðu skjót uppskipti á drottningum og fleiri mönnum, svo ekki var orðið mikið til að tefla upp á er samið var. Nokkru áður hafði Botvinnik hafnað tækifæri til að flækja taflið sér í hag. Staðan var nú 7!4:5%. Fjórtánda skákin í 14. einvígisskákinni valdi Botvinnik skarpt framhald gegn Nimzo-indverskri vörn Tals, en áskorandinn svaraði með skjótri xiddaraárás, sem nýtur lítins stuðnings skákfræðinnar. Vera ■kann, að Botvinnik hafi óttazt leynivopn hjá Tal í þessu af- brigði, svo mikið er víst, að hann notfærði sér ekki uppskrift skákfræðinnar gegn leiknum, heldur tefldi óvenjulega leið, sem gaf Tal færi á að skipta upp í endatafl. Þrátt fyrir sinn unga aldur sýndi Tal mikla leikni í endataflinu. Botvinnik komst ekkert áleiðis, og var það aðdá- endum hans til vonbrigða, að hann skyldi engu fá áorkað með hvítu mönnunum. Jafntefli var samið eftir 22. leiki, og staðan var orðin 8:6 áskorandanum í hag. Fimmtánda skákin 1 15. skákinni lék Tal aftur kóngspeðinu fram í fyrsta leik. Virðast þeir félagar, hann og Koblenz, aftur hafa verið búnir að safna skotfærum gegn Caro- Kann-vörninni. Með hinni nýju ieið sinni tókst Tal að halda betra tafli allt fram að biðtíma, en Botvinnik afstýrði mestu hættunni með uppskiptum, og þótt hann hefði peði minna í biðstöðunni, var samið um jafn- tefli án frekari baráttu, þegar heimarannsóknir höfðu leitt í liós, að Botvinnik gat haldið skákinni. Staðan að loknum 15 skákum var því sú, að Tal hafði £V2 vinning, en Botvinnik 6!4. Verður nú baráttán ekki rakin lengur að sinni, en lesendum sjálfum leyft að líta á 16. skák- ina, sem birt er nær skýringa- laus rúmsins vegna. 17. skákin verður svo væntanlega birt í blaðinu eftir helgina og síðan þær skákir, sem. eftir eru af ein- viginu. — Freysteinn. ★ sextAnda skákin Hvítt: Botvinnik. Svart: Tal. 1. d4 Rf6, 2. c4 e6, 3. Rc3 Bb4, 4. a3 Bxc3, 5. bxc3 Re4, 6. Dc2 (1 14. skákinni lék Botvinnik hér 6. Rh3, en varð ekkert ágengt eftir 6. — c5, 7. e3 Da5, 8. Bd2 cxd4, 9. cxd4 Rxd2, 10. Dxd2 Dxd2f, 11. Kxd2 b6 o. s. frv. í þessari skák fer Botvinnik meira að ráðum skákfræðinnar). 6. — Í5, 7. Rh3 d6, 8. f3 Rf6, 9. e4 fxe4, 10. fxe4 e5, 11. Rf2 0-0, 12. Be2 c5, 13. dxe5 (Botvinnik stefnir að því að koma riddara sínum á reitinn d5, þar sem hann verð- ur að stórveldi, svartur á ekki samsvarandi reit á d4), 13. —■ dxe5, 14. 0-0 Rc6, 15. Bg5 De8, 16. Rdl Dg6, 17. Bxf6 Hxf6, 18. Re3 Hxflf, 19. Hxfl Be6; 20. Dd3 Hd8, 21. Rd5 Hf8, 22. Rc7 Hxflt, 23. Bxfl Df7, 24. Dd6 Bc8 i Tal verst vel. Ekki mátti leika 24. — Bxc4? sökum 25. Bxc4 Dxc4, 26. Re6 og hvítur mátar eða vinnur drottninguna), 25. Ra6 Df4, 26. Dd5t Kh8, 27. Dxc5 Be6, 28. Rc7 Bg8, 29. Df2 Dxe4, 30. Re8 Dg6, 31. Df8 e4, 32. Rd6 Re5, 33. c5 Rd3, 34. Rf5 Re5, 35. Re7 Df7, 36. Dxf7 Bxf7, 37. Kf2 Bc4, 38. Bxc4 Rxc4, 39. c6 bxc6, 40. Rxc6 a5. Hér fór skákin í bið, en kepp- endur sömdu síðan jafntefli án framhalds, og staðan í einvíginu varð 9:7 áskorandanum í hag. Fjársöfnun breiðfirzku átthagafélaganna BREIÐFIRZKU átthagafélögin ! Reykjavík höfðu fjársöfnun um síðustu mánaðamót fyrir björg- unarskútusjóð Breiðafjarðar. Alls söfnuðust um 40 þús. kr. með kaffisölu, merkjasölu og skemmtisamkomu. Ennfremur bárust sjóðnum gjafir. Pétur Pét ursson, Malarrifi og börn hans gáfu 20 þús. kr. til minningar um Magnús son hans, sem fórst 18. marz 1959 með vitaskipinu Her- móði. Þá sendi Sigurður Jónatan- son frá Rifi 5000 kr. að gjöf. Aðr- ar 5000 kr. bárust frá börnum Eyj ólfs Stefánssonar frá Dröngum, til minningar um hann og eigin- konu hans, Sigríði Friðriksdótt- ur og Jósefínu Jónsdóttur. — Þá hefur Breiðfirðingafélagið ákveð ið á aðalfundi sínum að gefa all- an ársarð sinn af eigninni Breið- firðingabúð hf. og skorar það á alla aðra hluthafa að gera hið sama. Vísitalan 104 stig KAUPLAGSNEFND hefur reikn- að vísitölu framfærslukostnaðar í byrjun apríl 1960 og reyndist hún vera 104 stig eða 3 stigum hærri en hún var í marzbyrjun 1960. Verðhækkanir síðan 1. marz 1960 af völdum gengisbreyt- ingar og vegna hins nýja sölu- skatts námu 6,6 vísitölustigum, en þar á móti kom 2,8 stiga vísi- tölulækkun vegna hækkunar fjölskyldubóta frá 1. apríl 1960. Vísitölulækkun vegna hækkunar fjölskyldubóta nemur alls 8,5 stig um og hefur því í vísitöluna 1. apríl 1960 verið tekinn þriðjung- ur þessarar lækkunar. (Hagstofa íslands 22. apríl ’60).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.