Morgunblaðið - 30.04.1960, Qupperneq 2
2
MORGVNTtlAÐIÐ
Laugardagur 30. apríl 1960
Loftbrú til
Grænlands
Flugfélagíð semur um 38 Grœnlandsferðir
FLUGFÉLAG íslands færir
nú út kvíarnar í Grænlands-
fluginu. Það hefur gert tvo
nýja samninga við danska að-
ila um að fljúga 38 ferðir til
Grænlands til viðbótar "við
þær ferðir, sem áður hafði
verið samið um. Seinnihluta
maí-mánaðar mun því verða
„Ioftbrú“ milli íslands og
Grænlands, því þá verður
flogið dag og nótt eftir því
sem veður leyfir. Er Flugfé-
iagið nú búið að ná heildar-
samningum við þrjá stærstu
aðilana í Grænlandsviðskipt-
unum.
170 tonn af járni
Sveinn Sæmundsson, blaðafull-
trúi Flugfélagsins, tjáði Mbl. í
gærkvöldi, að þarna væri um
tvenns konar verkefni að ræða.
í fyrsta lagi mun félagið flytja
170 tonn af járni til Kulusuk á
austurströnd Grænlands og í
öðru lagi verða farnar 12 ferðir
milli Narssarssuak á vestur-
strönd Grænlands og Kaupmanna
hafnar með vörur og farþega.
Járnflutningarnir eru á vegum
danskra heimskautaverktaka.
Verður járnið flutt sjóleiðina til
Reykjavíkur, 125 tonn frá Banda
ríkjunum og 45 tonn frá Kaup-
mannahöfn. Stærri farmurinn er
væntanlegur til Reykjavíkur 12.
nie;
r'riár ferSir á sólarhring
Si. jaster-flugvélin Sólfaxi
verður notaður til þessara flutn-
inga sem annarra Grænlands-
ferða. Til Kulusuk, sem er í vest-
ur frá Reykjavík, er hálfrar
þriðju stundar flug og er áætlað
að hver ferð taki 8 stundir með
hleðslu og affermingu. Verður
því hægt að fara þrjár ferðir á
sólarhring þegar skilyrði leyfa,
því hinir dönsku aðilar leggja
mikla áherzlu á að verkinu verði
lokið sem fyrst. Sólfaxi tekur sex
og hálft tonn í hverri ferð, en
sennilega verður að styrkja gólf
vélarinnar fyrir þessa erfiðu
flutninga.
Annar samningurinn við verk-
takana
Hér mun vera um að ræða
jámbita til byggingafram-
kvæmda, því danskir heim-
skautaverktakar annast nú smíði
ratsjárstöðvar fyrir Bandaríkja-
menn við Kulusuk — og eru öll
mannvirki þar úr járngrindum.
Flugfélag íslands hefur að
undanförnu farið margar ferðir
fyrir hina dönsku heimskauta-
verktaka. Sólfaxi var í fyrra í
vikulegum ferðum á þeirra veg-
um til Kulusuk og Straumfjarð-
ar. í vetur var þessi samningur
endurnýjaður og hefur Sólfaxi
þegar farið nokkrar ferðir í vor.
Stærsti samningurinn
Hinn samningurinn, sem er við
Konunglegu Grænlandsverzlun-
ina, er hinn stærsti, sem félagið
hefur gert við þann aðila og hef-
ur það þó lengi annazt
flutninga fyrir Grænlandsverzl-
unina. Verða famar 12 ferðir
með farþega og varning til
Narssarssuak frá Kaupmanna-
höfn og aftur til baka, en frá
Reykjavík til Narssarssuak er
um fjögurra stunda flug. Var
fyrsta ferðin farin í gær, en
vegna óhagstæðs veðurs í Nars-
sarssuak varð Sólfaxi að fara
norður til Syðri-Straumfjarðar
og bíða þar til morguns
I*rír stærstu aðilarnir
Fyrir skemmstu gerði Flug-
félagið heildarsamninga við Nor-
ræria Námufélagið um alla
loftflutninga þess milli Kaup-
mannahafnar og Meistara-
víkur, sem er á vesturströnd
Grænlands, tæplega þriggja
stunda flugferð frá Reykjavík.
Verða farnar 15 ferðir þangað á
þessu ári.
Flugfélag íslands hefur því náð
heildarsamningum við þá þrjá
aðila, sem einna umfangsmestan
rekstur hafa á Grænlandi og
mesta hafa flutningaþörfina.
UM kl. 9 í gærmorgun
varð harður árekstur á
gatnamótum Álfheima og
Suðurlandsbrautar. Sendi-
ferðabifreiðin R-487 ók
suður Álfheima og beygði
inn á Suðurlandsbraut, sem
er aðalbraut. i sama bili
bar þar að vörubifreiðina
R-7296, sem Ienti aftan til
á hlið sendiferðabílsins, .<
með þeim afleiðingum að
hann valt út af veginum.
Sendibifreiðin skemmdist
allmikið, en vörubíllinn
C lítilsháttar. Engin slys urðii 1 m á mönnum. 9
Þingmannaskipti HELGI BERGS, verkfræðingur, hefur á ný tekið sæti á Alþingi í fjarveru Ágústs Þorvaldssonar, 2. þingmanns Suðurlands.
|. PM Stjórnarkreppu
lokið á Ítalíu
fMpm RÖM, 29. apríl: — Stjórnar- kreppan á ftalíu leystist í dag, er Tambroli hlaut traust þingsins fyrir sig og ráðuneyti sitt, minni hlutastjórn kristilegra demo- krata. » ——
Lárus Jóhannesson
hœstaréttardómari
LÁRUS JÓHANNESSON, hæstaréttarlögmaður, var í gær skipaður
í embætti hæstaréttardómara I stað Jóns Ásbjörnssonar, sem fyrir
skömmu lét af því embætti fyrir aldurs sakir.
Lárus Jóhannesson er fæddur
21. okt. 1898 á Seyðisfirði, sonur
Jóhannesar Jóhannessonar, bæj-
arfógeta og konu hans Jósefínu
Lárusdóttur, Blöndal.
Hann varð stúdent 1917 og
lauk lögfræðiprófi tæpum þrem
árum síðar, aðeins 21 árs að aldri,
með hæsta prófi, sem þá hafði
verið tekið eftir þágildandi reglu
gerð.
Að afloknu prófi sigldi hann
til Kaupmannahafnar til fram-
haldsnáms.
Árið 1921 varð hann fulltrúi
bæjarfógetans í Reykjavlk og
jafnframt einkaritari Jóns Magn
ússonar, forsætisráðherra.
Hann opnaði málfærsluskrifstofu
í Reykjavik í október 1924 og
varð hæstaréttarlögmaður 19.
desember 1924. Er hann því eftir
brottför Jóns Asbjörnssonar,
hæstaréttardómara, elzti starf-
andi maður við réttinn að frá-
skildum Lárusi Fjeldsted hrl.
Hefur Lárus rekið málflutn-
ingsskrifstofu síðan 1924, stund-
um í félagi við aðra. Hann hefur
flutt fjölda mála fyrir hæstarétti
og nokkrum sinnum tekið þátt í
□---------------------n
VARÐARKAFFl
í Valhöll í dag
kl. 3—5 síðd.
Síðasta Varðarkaffi á þessu vori.
□------------------------□
dómsstörfum þar sem varadóm-
ari. *
Lárus sat á Alþingi sem þing-
maður Seyðfirðinga frá því haust
ið 1942 þar til í júní 1956. Hefur
hann í sambandi við þingmennsk
una setið fundi Evrópuráðsins og
Norðurlandaráðsins.
Hann er formaður Lögmanna-
félags íslands og hefur verið það
síðan 1947.
Bollaleggingar
Breta
LONDON, 29. apríl: — Stjórn-
málafréttaritarar líta margir á
ákvörðun Islendinga um að gefa
brezkum togurum, sem veitt hafa
innan 12 mílna landhelginnar við
ísland, upp sakir sem sé það gert
í friðmælingarskyni. Er talið
sennilegt, að það bæti sambúð
landanna og ennfremur segja
sömu aðilar, að e. t. v. sé hægt
að taka þetta sem vísbendingu
um að viðræður verði teknar upp
að nýju Utanríkisráðuneytið vill
hins vegar ekkert segja um mál-
ið fyrr en nánari upplýsingar
verða fyrir hendi frá Reykjavík.
Meðal togaramanna í Grimsby
var fréttinni tekið með gleði og
einstöku menn telja nú að leiðin
til tvíhliða samkomulags sé
að opnast.
Z' NA /5 hnútar 5“)/ 50 hnútar ¥: Snjókoma y Úði \7 Skúrir K Þrumur H Hcti L Laq%
— Landhelgin
Frh. af bls. 1.
Því miður fékk þessi skoðun
ekki nægan stuðning og er þó ör-
ugg sannfæring mín, að hún
hefði náð áskildum meirihluta,
ef menn hefðu ekki með samtök-
um verið knúðir til að greiða at-
kvæði á annan veg, en efni stóðu
til.
Nýtt viðhorf skapað
Auðvitað eru margar ástæður
til þess, að ráðstefnan fór út um
þúfur, og sá möguleiki er vissu-
lega fyrir hendi, að ef menn
hefðu fengið að greiða svo at-
kvæði um tillögur íslands eins
og hugur þeirra stóð til, þá hefðu
aðrir, þótt fáir væru, skorist úr
leik ,svo að nægur meirihluti
hefði engu að síður ekki fengist
með samkomulagstillögu Kan-
ada og Bandaríkjanna svo
breyttri. En ekki ætti að þurfa
um það að deila, að hagsmuni
fslands hefði ekki verið hægt að
tryggja betur á annan veg en
þann, en ef tekzt hefði að fá al-
þj óðasamþykkt, þar sem 12 mílna
fiskveiðilögsaga var skilyrðis-
laust viðurkennd fyrir ísland,
hvað sem var um aðra, svo sem
Dani og Norðmenn, er eftir at-
vikum vildu sjálfir sætta sig við
10 eða að nokkru 5 ára kvöð.
Tillögur íslands voru sem sagt
felldar. Þær gerðu okkur þó mik
ið gagn, vegna þess að þær urðu
til þess, — og þá ekki síður til-
lagan um undanþágu íslands frá
hinni sögulegu fiskveiðikvöð —
að miklu fleiri og sterkari yfir-
lýsingar um sérstöðu íslands
voru gefnar en ella hefðu fengizt
eða verið tilefni til. Samúð
manna með okkar málstað var
sem sagt miklu meiri og náði
lengra en ætla mætti eftir at-
kvæðatölum, jafnvel þegar þær
gengu okkur mest í vil.
Til endanlegrar viðurkenning-
ar fyrir okkur dugði þetta hins-
vegar ekki og því fór sem fór. Við
tökum því.
En við, jafnt sem aðrir, hljót-
um að gera okkur grein fyrir því,
að nú er nýtt viðhorf skapað. All-
ir þurfa að vonum nokkurn tíma
til að átta sig, enda skaðar ekki,
að nokkur tími líði svo að beiskja
hverfi úr hugum manna. Blóð-
nætur eru bráðastar.
Fyrir okkur fslendinga er um
að gera að halda þeirri samúð,
sem við höfum aflað og gera ekki
neitt það, sem kann að verða til
þess, að aðrir geri í fljótræði eitt-
hvað, sem skapi óleysanleg vanda
mál.
Eitt af því, sem helzt hefur
verið notað í áróðri á móti okk-
ur, þótt ekki heyrðist þess getið
á ráðstefnunni, er að við meinum
erlendum fiskimönnum að leita
skjóls við strendur íslands og
sækja hingað læknishjálp. Við
vitum, að þetta er rangtúlkun,
sem styðst þó við það, að þeir er
brotið hafa fiskveiðireglur okkar
eftir 1. sept. 1958 óttast, að verða
sóttir til sakar, ef þeir eru á
siglingu án herskipaverndar inn-
an fiskveiðilögsögu okkar.
Við vitum ekki, hvað framtíð-
in ber í skauti sínu. En hvað sem
aðrir gera hirðum við ekki um
að eltast við gamlar sakir úr þvi,
sem komið er. Eltingaleikur til
að koma fram refsingum vegna
þess, sem framið var þegar atvik
voru öll önnur, yrði nú engum
til góðs Við viljum byggja lausn
á máli okkar, í sátt og samlyndi
við alla ,einungis ef lífshagsmun
um okkar er ekki ógnað.
Þess vegna hefur forseti ís-
lands í dag ákveðið eftir tillögu
minni, sem gerð var með einróma
samþykki ríkisstjórnarinnar að
gefa upp sakir fyrir öll brot gegn
reglugerð um fiskveiðilandhelgi
íslands, sbr. lög um bann gegn
botnvörpuveiðum, sem framin
hafa verið frá 1. sept. 1958 þang-
að til í dag.
Með þessu er auðvitað ekki
felldur niður skaðabótaréttur
gegn þeim, sem gert hafa tjón á
veiðarfærum eða skipum á þess-
um tíma. Hins er óþarft að geta,
að hér eftir sem hingað til mun
haldið uppi gæzlu innan alls 12
mílna svæðisins og allir þeir sótt
ir til saka, er gerast brotlegir
héðan í frá.
Ég veit, að íslenzka þjóðin mun
skilja og fagna þessari ákvörðun,
sem er enn ein sönnun þess, að
við viljum í hvívetna sýna hóf-
semi og sáttfýsi og þótt við berj-
umst af brýnni þörf einbeittir og
óhvikulir fyrir lífshagsmunum
þjóðarinnar, þá gerum við það
ekki með hefnd í huga, heldur til
að gera fslandi það gagn, sem við
megnum.
Hlýindi
á Grænlandi
E N N er lægðarsvæði suð-
vestur í hafi, en hæð frá N-
Grænlandi yfir íslandi til
Bretlandseyja. Vindur er A-
stæður hér á landi og hiti um
frostmark norðan lands, en
6—8 stiga hiti suðvestan
lands. — Eftirtektarvert er,
hversu hlýtt er á Suðvestur-
Grænlandi, 7 stig í Godthaab
(Vestribyggð) og 10 stig
voru í Brattahlíð (Eystri-
byggð) um hádegi í dag.
Þegar rætt er um hita hér
á landi um þessar mundir, er
rétt að hafa í huga, að meðal-
hiti í Reykjavík í apríl 1931—
1950 reyndist aðeins 2—3
stig C.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi:
SV-mið: Allhvass A og síð-
an NA, skýjað.
SV-land til Breiðafjarðar,
Faxaflóamið og Breiðafjarð-
armið: A-kaldi í nótt, en all-
hvass NA á morgun og kald-
ara.