Morgunblaðið - 17.05.1960, Qupperneq 3
Þriðjudagur 17. maí 1960
M ORCUTSBL AÐIÐ
3
ÞESSAR myndir eru af hinum
nýja togara Bæjarútgerðar
Hafnarf jarðar, Maí GK 346, og
voru þær teknar í Bremer-
haven í Þýzkalandi fyrir
nokkrum dögum. Maí, sem er
1000 Iesta og stærsti togati,
sem smíðaður hefir verið fyrir
íslendinga, er væntanlegur
til Hafnarfjarðar klukkan 2
á morgun. Hann er smíðaður
í Seebeck Werft í Bremerhav-
en, og var kjölurinn lagður 17.
des. í fyrra, en af stokkunum
hljóp hann 3. marz sl. Maí er
210 fet á lengd, 34 á breidd og
dýptin er 17 fet. — Hann er
að sjálfsögðu búinn öllum nýj
ustu og fullkomnustu öryggis-
og veiðitækjum og er hinn
glæsilegasti að útliti.
Skipstjóri á Maí verður
Benedikt Ögmundsson og sigl-
ir hann honum heim. — Bene-
dikt, sem er kunnur aflamað-
ur, hefir starfað sem skip-
stjóri hjá Bæjarútgerðinni allt hét cinnig Maí. 1. stýrimaður
frá stofnun hennar, eða í 29 er sonur Benedikts, Svavar,
ár, og var með fyrsta togar- og 1. vélstjóri Hans Linnet.
ann, sem hún eignaðist, en sá — G.E.
Sauöburöur gengur
vel á Ströndum
Lambalát i Skagafirði
Skólabáturinn fer
fyrstu veiðiferðina
HÉR fyrir sunnan hafa ær sézt
með nýfædd lömb sín á hverju
túni um nokkurt skeið, en annars
staðar á landinu er sauðburður
um það bil að hefjast. Blaðið hef-
ur fengið fregnir af sauðburði hjá
þremur fréttariturum sínum, ein
um á Austurlandi, öðrum á Norð
urlandi og þeim þriðía á Vest-
fjörðum.
Kuldakast að undanfömu
Regína á Gjögri símar að
sauðburður hafi byrjað á Strönd-
um fyrir nokkrum' dögum og
gangi ágætlega. A nokkrum bæj-
um hafi ær þó farið að bera fyrir
tveimur vikum. 1 hennar byggð-
arlagi var kalt þangað til s.i.
mánudag, en þá kom 10 stiga hiti.
Hefði kólnað aftur eftir sumar-
daginn fyrsta og eru tún nú aftur
að verða álíka græn og þá. Eng-
inn er farinn að sleppa kúm.
% af ánum létu lömbum
. Björn í Bæ á Höfðaströnd segir
að í Austur-Skagafirði séu ær
farnar að bera víðast hvar, en
sauðburður gengur þar ekki vel,
því nokkuð mikið er ujn lamba-
lát, jafnvel ær látið dauðum
lömbum. Hafði hann haft spurn-
ír af einum bónda, sem á 15 ær
og voru 10 búnar að bera, en
ekkert lamb lifað. Vita menn
ekki af hverju þetta stafar. Sum-
Framlh. á bls. 17.
Á SUNNUDAGINN fór fram
firmakeppni Hestmannafélagsins
Fáks á skeiðvellinum í Reykja-
vík. Voru yfir 130 hestar í keppn
inni. Fylktu knaparnir liði við
Árbæ um kl. 14 e.h. og réðu í
fylkingu niður á skeiðvöllinn, þar
sem keppnin hófst kl. 16. Veður
var ágætt, en nokkuð mikið mold
ryk, þó reynt væri að væta jörð-
ina.
Alls hlutu 11 hestar viðurkenn-
ingu, en dæmt var eftir sjón og
ásetu knapa. Flest stig hlaut
Léttir Jóns Teitssonar, sem
keppti fyrir Byggingarfélagið
I KVÖLD kl. 6.30 e. h. fer
skólabáturinn Auður RS 100
í sína fyrstu ferð með ungl-
inga og fullorðna út á flóann
til handfæraveiða á vegum
sjóvinnunefndar Æskulýðs-
ráðs. Eru fyrst ákveðnar 5
einstakar veiðiferðir, hien
19., 21., 23. og 25. maí. Þetta
hefur verið gert tvö undan-
farin vor og verið mjög vin-
sælt meðal unglinga og kenn-
ara. Báturinn leggur til færi.
Þann 28. fer báturinn svo i
þriggja vikna veiðiferð með lö
drengi og verður fiskað á hanu-
færi og línu og aflinn saltaður
um borð. Má búast við mikiiii
aðsókn, því mikið hefur verið um
ferðina spurt og á að senda um-
sóknir til Ráðningarstofu Reykja
víkurbæjar fyrir 25. maí n. k.
Drengirnir fá kr. 1000,00 í laun
fyrir veiðiferðina, auk kr. 1,50
fyrir kg. af saltfiski sem afl-
að er.
Sjóvinnunefnd tek;;r við
Skólabáturinn Auður er um
margt heppilegur til veiðiferða
fyrir drengi. Skipstjóri verður
Tómas Sæmundsson, en aðalleið-
beinandi drengjanna Hör'öur
Þorsteinsson, sem veitt hefur
sjóvinnunámskeiðunum forsxöðu.
Skólabáturinn hefur undanfa’in
ár verið gerður út, fyrst á veg-
um Vinnuskóla Reykjavíkur, sið-
ar á vegum Vinnuskólans og
Æskulýðsráðs, en nú hefur verið
skipuð sérstök sjóvinnunefnd,
Goða og sat eigandinn á honum.
Annar varð Lýsingur Ásgerðar
Einarsdóttur, sem keppti fyjir
Björgvin Schram. Knapi var
Matthías Matthíasson. Þriðji var
Sveipur Friðjóns Stephensens,
sem keppti fyrir vélsmiðjuna
Héðin, setinn af eigandanum og
fjórði Grána Hjartar Sigurðsson-
ar, sem keppti fyrir trésmiðju
Daða Guðmundssonar. Eigandinn
var knapi. Og fimmti varð Blakk
ur Björgvins Schram, setinn af
Pétri Ingjaldssyni, og keppti
hann fyrir SveinsbakarL
skipuð fulltrúum vinnuskóians
og æskulýðsráðs og hinna ýmsu
sjómanna- og útgerðarsamtaka
og Slysavarnafélag íslands hefur
tekið að sér stjórn og umsión
allrar sjóvinnukennslu á vegum
Æskulýðsráðs.
í vetur fór fram fjölmennt og
vel heppnað sjóvinnunámsKeið
og er útgerð skólaskipsins fratn-
hald á þessu starfi, auk þess sem
nefndin hefur haft milligöt’gu
um ráðningu pilta á fiskisktp í
sumar.
Þátttaka í sjóferðunum til-
kynnist að Lindargötu 50 (sími
15937), en þar er opið kl. 11—12
og 2—5.
Skrifstofustjóri
hjá Landssímanum
BRAGI Kristjánsson, skrifstofu-
stjóri hjá Innflutningsskrifstof-
unni hefur verið skipaður for-
stöðumaður símarekstaardeildar
Landssimaks frá 1. júní n.k.
Þá hefur Jón Kárason, síma-
fulltrúi, verið skipaður aðalbók-
ari landssimans frá 1. júní.
AKRAftESI, 16. maí: — A
sunnudagsmorgun varð fólk á
Suðurgötunni hálf kvumsa við,
er það leit út á götuna. Það var
eins og stráð hefði verið hveiti
yfir hana og allt var þarið hvít-
um smádeplum eða flyksum.
Þetta er sennilega annaðhvort
kísill eða malað gips, sem rokið
hefur út úr vinnsluhúsum Se-
mentsverksmiðjunnar. — Oddur.
Hestamenn riðu í
fylkingu frá Árbæ
S I\ K S1H W !í
Skynsamleg ödd
Sl. fimmtudag ræddu nokkrir
ungir Framsóknarmenn um ár-
angur Genfarráðstefnunnar á
æskulýðssíðu Tímans. Tók þar
meðal annarra til máls ungur
maður að nafni Haukur Harð-
arson. Komst hann þar að orði
á þessa leið:
„Ég tel úrslit sjóréttarráðstefn-
unnar í Genf mjög sæmileg fyr-
ir okkur íslendinga. Tæplega var
hægt að búast við að 12 mílna
fiskveiðilögsagan næði sam-
þykki, og var þá tvímælalaust
bezt fyrir okkur að engin lausn
fengist“.
V ar úðarr áðstöf u n
Um breytingartillögu íslenfk.
inga við bandarísk- kanadísku
tillöguna kemst Haukur Harðar-
son að orði á þessa leið:
„Breytingartiilaga islendinga
við bandarísk-kanadísku tillög-
una mun hafa verið sett fram
sem nokkurs konar varúðarráð-
stöfun ef aðaltillagan næði sam-
þykki. Sýndi atkvæðagreiðslan
um aðaltillöguna að sú varúðar-
ráðstöfun var síður en svo ó-
nauðsynleg, þar sem aðeins mun-
aði einu atkvæði að hún fengi
löglegan meirihluta“.
Sakaruppgjöfin eðlileg
Hinn ungi Framsóknarmaður
segir síðan undir lok greinar
sinnar:
„Sakaruppgjöf íslcnzku stjórn-
arinnar á eldri afbrotum brezkra
togara var skynsamleg. Eins og
flestum mun kunnugt er Bretum
margt betur gefið en að gefa eft-
ir á kostnað hagsmuna sinna,
ef smáþjóð á í hlut. Ætti því sak-
aruppgjöfin að gera þeim undan-
haldið léttara. En væri ekki lika
hægt að minnka fisksölu til Bret-
lands næsta tímann, svo íslenzkir
togarar rífi síður upp illa gróin
sár brezka stoltsins?“
Þessi ungi Framsóknarmaður,
sem ræðir landhelgismáíið af
hófsemi og skynsemi, telur að
breytingartillaga íslands við
bandarísk-kanadísku tillöguna
hafi verið skynsamleg og nauð-
synleg. Hann telur einnig, að sak
aruppgjöf íslenzku stjórnarinnar
á eldri afbrotum brezkra togara
hafi verið eðlileg og gagnleg.
Tíminn gæti ýmislegt lært af
þessum unga manni, sem ræðir
þetta mikilvæga utanríkis- og
sjálfstæðismál þjóðarinnar af
ábyrgðartilfinningu og hófsemL
12 mílur við Noreg
Ríkisstjórn Noregs hefur nú
lýst þvi yfir, að hún hyggist færa
fiskveiðitakmörkin við strendur
landsins út í 12 milur. Er hér
um að ræða þýðingarmikla sönn-
un þess, að fleiri og fleiri þjóðir
taka upp 12 mílna fiskveiðitak-
mörk. Það eru ekki íslendingar
einir, sem telja nauðsynlegt að
vernda grunnmið sín fyrir rán-
yrkju erlendra togara. Um allan
heim ríkir vaxandi skilningur á
nauðsyn þess að vernda grunn-
miðin fyrir stórvirkum veiði-
tækjum.
Fara varlegar en við
Af ummælum Halvard Lange
má hins vegar ráða að Norðmenn
hyggist fara nokkru varlegar i
útfærsluna en við íslendingar
gerðum á sínum tíma. Rætt hef-
ur verið um, að hin nýja Iand-
helgi þeirra tæki gildi um næstu
áramót, þó þannig að þær þjóðir,
sem fiskað hafa á þessum slóðum
fái að stunda fiskveiðar þar nokk
uð næstu árin. Með þessum hætti
þykjast Norðmenn hafa tryggt
sér að lenda ekki í svipuðum á-
rekstrum við Breta og við ís-
lendingar haustið 1958.