Morgunblaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 1
24 síður
mæfti ekki
Hótar að fljúga
tii Berlínar í dag
PARÍS, 17. maí. — (Reuter) — Enn er ekki annað sýnt en
að toppfundurinn ætli að fara algerlega út um þúfur.
í kvöld lýsti Krúsjeff því yfir, að hann myndi yfirgefa
París í fyrramálið, ef Eisenhower hefði ekki heðizt afsök-
unar á njósnafluginu. Kvaðst hann myndi fljúga til Austur-
Berlínar. —
Áður um daginn hafði Krúsjeff þrívegis gefið yfirlýsingar
um að hann myndi ekki sitja toppfundinn nema Eisen-
hower bæðist afsökunar.
Þegar de Gaulle boðaði til fundar síðdegis framfylgdi
Krúsjeff þessu. Leiðtogar vesturveldanna mættu til fundar
og biðu góða stund eftir Krúsjeff, en hann lét ekki sjá sig,
heldur sat um kyrrt í rússneska sendiráðinu.
Segja má, að síðustu vonir manna um málamiðlun hafi
brostið í dag, þegar Krúsjeff virti að vettugi fundarboð
de Gaulles. —
'k
Yfir Parísarborg var fagurt vorveður og sólin hellti
geislum sínum yfir Signubakka, en í þessu fagra umhverfi
var nú leikinn í dag einn hörmulegasti leikur, sem leikinn
hefur verið í alþjóðastjórnmálum. Margir töldu að þetta
væri hinn hættulegasti leikur með eldinn og mönnum finnst
uggvænlegt, hve hin grófa og frekjulega framkoma Krús-
jeffs líkist mikið framkomu Hitlers við Chamberlain, er
hann vildi niðurlægja hann skömmu fyrir hinn örlagaríka
Múnchen-fund. —
Nokkur ótti hefur gripið um sig á Vesturlöndum vegna
framkomu Krúsjeffs og rnenn spyrja hvort stefnubreyting
Krúsjeffs eigi að verða upphafið að þriðju heimsstyrjöldinni.
'k
Það þótti mjög táknrænt, að þegar Eisenhower forseti
kom til hins árangurslausa fundar í Elysée-höllinni í dag,
var hann ákaft hylltur af miklum mannfjölda, sem safnazt
hafði saman utan við höllina.
Framh. á bis. 23.
s ••
Orlagaþung spor í París
s
Arúsjeff gengur út. De Gaulle sést á bak við.
Eisenhower gengur út í þungum þönkum.
Lokatilkynning
SEINT í gærkvöldi barst Mbl. svohljóðandi
hraðskeyti frá Reuters-fréttastofunni:
Hinir þrír leiðtogar Vesturveldanna gáfu í
kvöld út sameiginlega tilkynningu, þar sem
lýsa því yfir að reynzt hafi óframkvæmanlegt
vegna framkomu Krúsjeffs að halda toppfund
um hin alþjóðlegu vandamál. Þrátt fyrir þetta
kveðast hinir vestrænu leiðtogar vera reiðu-
búnir að mæta á nýjum toppfundi á hverjum
þeim tíma, sem heppilegur telst í framtíðinni.
Fulltrúar franska utanríkisráðuneytisins
sem sáu um útgáfu tilkynningarinnar sögðu,
að þetta væri LOKATILKYNNING.
Aðeins ánægdir ef
skilyrðum fullnægt
PARÍS, 17. maí. Einkaskeyti til
Mbl. frá Matthiasi Jóhannessen.
— f morgun var ég viðstaddur
blaðamannafund, sem James Hag
erty blaðafulltrúi Eisenhowers
hélt. Þegar þessi fundur stóð yf-
ir var Krúsjeff kominn upp ísveit
í heimsókn sína um Marne-víg-
völlinn, en þeir Eisenhower og
Macmillan höfðu einnig skroppið
örskammt út fyrir París til að
Framhald á bls. 17.