Morgunblaðið - 18.05.1960, Qupperneq 23
Miðvikudagur 18. maí 196(>
MORGUNBLAÐIÐ
23
— Krúsjeff mœtti ekki
Framh. af bls. 1.
Framkoma Krúsjeffs á hinum þýðingarmikla toppfundi
veldur hneykslun um gervallan hinn frjálsa heim. Menn
fordæma það, að hann skuli meðhöndla heimsmálin eins og
pókerspil væri. Hins vegar berast fréttir víða að, um að
Eisenhower forseti njóti samúðar og stuðnings. I dag til-
kynntu forustumenn beggja stjórnmálaflokka Bandaríkj-
anna, repúblikana og demókrata, að þeir stæðu örugglega
að baki stefnu forsetans.
Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra í alþjóða-
sambandi
Málamiðlun Macmillans
Á mánudagskvöldið átti Mac-
millan tveggja klst. fund með
Krúsjeff I rússneska sendiráðinu
í París. Var þá talað um að
málamiðlun Macmillans væri
einasta vonin um að ráðstefnan
færi ekki út um þúfur.
Sremma í morgun fór Mac-
millan síðan til fundar með de
Gaulle og Eisenhower og var
sagt að það væri síðasta örvænt-
ingarfulla tilraunin til að bjarga
við ráðstefnunni.
A gangstéttinni
En Krúsjeff lét hann ekki
lengi lifa í voninni. Snemma í
morgun sáust fordyr rússneska
sendiráðsins opnast og út gekk
búlduleitur maður, sem flestir
könnuðust við. Hann var í ágætu
skapi, hló og lék við hvern sinn
fingur. Þegar hann kom út á
gangstéttina setti hann sig í ýms-
ar stellingar, svo ljósmyndarar
gætu tekið rnyndir af honum,
túlkar hans fylgdu á eftir hon-
um og síðan hófst furðulegur
blaðamannafundur á gangstétt-
inni. Með Krúsjeff var Malin-
ovsky marskálkur og stóðu þeir
arm í arm eins og þeir væru
hamingjusöm brúðhjón.
Krúsjeff lýsti því yfir, að Rúss
ar sættu sig við ekkert minna
en að Bandaríkin birtu opinber-
lega afsökunarbeiðni til Rússa.
Hann kvaðst ekki vilja breyta
einu orði í ræðu sinni og fyrri
yfirlýsingum um þetta mál. — Ef
Bandaríkin biðja okkur ekki af-
sökunar, þá flýg ég heimleiðis
á morgun með viðkomu í Aust-
ur-Berlín.
— Hvers vegna Berlín? spurðu
fréttamennirnir.
— Vegna þess, að ég á vini
þar. Þeir Ulbricht og Grotewohl
eru þar. Skömmu síðar sagði
Krúsjeff, að hann vildi með
gleði ræða við Eisenhower um
lausn þessa vandamáls, en að-
eins ef Eisenhower óskaði eftir
slíkri viðræðu. Jafnframt tók
Krúsjeff fram, að eina lausnin
væri enn sem fyrr, að Eisen-
hower bæði hann afsökunar.
Hann sagði, að yfirlýsing Eisen-
howers á fundinum í gær um að
njósnaflugi væri hætt, nægði
ekki. Rússar krefðust afsökunar-
beiðni.
Á vígslóðum
Að þessum óundirbúna
blaðamannafundi loknura ók
Krúsjeff í kynnisferð út úr Par-
ís. Var tilkynnt ,að hann yrði
allan daginn fjarverandi úr borg
inni. Hann og fylgdarlið hans
óku til smábæjarins Sesanne og
nágrennis um 120 km fyrir aust-
an París en sá bær er frægur
fyrir það, að hann var á miðju
bardagasvæði hinnar miklu
Marne-orustu í fyrri heimsstyrj-
öldinni. Ætlaði Krúsjeff að
skoða minnismerki og heim-
sækja sögulega staði. Hann not-
aði samt fljótt tækifærið, þegar
til Sesanne kom, fór inn í gripa-
hús og hélt þar annan blaða-
mannafund. Þar lýsti hann því
yfir sem áður, að hann myndi
ekki koma til leiðtogafundar
nema Eisenhower bæði hann af-
sökunar.
Fundarboð með bifhjólum
Þegar hér var komið sögu,
höfðu hinir þrír leiðtogar Vest-
urveldanna lokið fundi sínum,
þar sem þeir ræddu möguleika
á málamiðlun. Ákvað de Gaulle
Frakklandsforseti að boða til
nýs fundar þjóðaleiðtoganna ki.
þrjú síðdegis.
Sveit franskra lögreglumanna
á bifhjólum var f^ið það hlut-,
verk að koma fundarboðinu til
Krúsjeffs. Þeysti bifhjólasveitin
með 150 km hraða á klst. aust-
ur til Marne-vígstöðvanna og
voru sírenur bifhjólanna ákaft
knúðar. Þeir náðu bílalest Krús-
jeffs skammt fyrir austan Ses-
anne og birtu honum fundar-
boðið.
Þegar Krúsjeff hafði lesið orð-
sendingu de Gaulles, var bíla-
lest hans þegar snúið við og hún
ók á fleygiferð aftur til Parísar.
Fiskisagan flaug brátt. Ut-
varps- og og sjónvarpsstöðvar
hættu venjulegri dagskrá og
birtu tilkynningar um för Krús-
jeffs, hvemig hann nálgaðist
borgina. Blöðin gáfu í skyndi út
aukaútgáfu. „Krúsjeff snýr til
baka á ráðstefnuna". Aftur gerð-
ust menn bjartsýnir og komu
Krúsjeffs til borgarinnar var
beðið með feikilegri eftirvænt-
ingu.
Biðin í Elysée-höll
Hann kom til borgarinnar um
stundarfjórðungi áður en fund-
urinn skyldi hefjast. Þá voru
þeir Macmillan og Eisenhower
að aka til Elyséé-hallarinnar. En
Krúsjeff ók til rússneska sendi-
ráðsins og kom ekki aftur út til
að mæta á fundinum. Leiðtogar
Vesturveldanna sátu um stund í
Elysée-höll og biðu ,en ekki ból-
aði á Krúsjeff. Loks gengu þeir
Macmillan og Eisenhower og
af fundi og menn sögðu, að þar
með væri síðasta vonin úti.
Svar N. S. Krúsjeff
Síðdegis safnaðist mikill
mannfjöldi saman fyrir utan
rússneska sendiráðið og var í
hópnum fjöldi blaðamanna. —
Krúsjeff kallaði á blaðamennina
inn. Las hann fyrir þeim stutla
yfirlýsingu, sem hann kallaði
„Svar N. S. Krúsjeffs við spurn-
ingum blaðamanna.“ Hún hljóð-
aði svo:
— Ég er reiðubúinn að taka
þátt í fundi með de Gaulle, for-
seta Frakklands, Macmillan, for-
sætisráðherra Bretlands og Eis-
enhower, forseta Bandaríkjanna
til að ræða við þá um hvort
kringumstæður hafi breyzt svo
að hægt sé að hefja toppfundinn.
Ef Bandaríkin hafa í raun og
veru fallizt á að fordæma svik-
samlegar árásir bandariskra her-
flugvéla inn yfir Rússland, lýsa
opinberlega yfir afsökunarbeiðni
sinni yfir þessari skerðingu,
refsa þeim sem bera sök á henni
og ábyrgjast að slíkur átroðn-
ingur verði ekki gerður í fram-
tíðinni, þá myndum við verða
reiðubúnir gegn slíkum trygg-
ingum að hefja þátttöku í topp-
fundi.
Lokahnútur
Þegar einum talsmanni Banda
ríkjastjórnar var sýnd þessi
yfirlýing, fórnaði hann höndum
til himins og hrópaði: — Þarna
höfum við það, nú er ráðstefnan
búin að vera.
Með yfirlýsingu Krúsjeffs var
talið að lokahnúturinn væri
bundinn á toppfundinn 1960.
— /Jb róttir
Framh. af bls. 22.
inga 23. febrúar sl. og voru þrek-
æfingar einu sinni í viku frá þeim
tíma til páska. Þessar æfingar
voru ekki teknar alvarlega af
landsliðsmönnunum og harmaði
stjórn HSÍ það. Ástæðuna taldi
stjórnin vera þá, að landsliðs-
mönnunum fyndist of fljótt farið
af stað með æfingarnar, en stjórn
HSÍ er aftur á móti þar alger-
lega á annarri skoðun.
Æft í sumar
Vegna íslandsmótsins í hand-
knattleik hafa landsliðsæfingarn
ar fallið niður um tíma, en nú
nýlega hefir stjórn sambandsins
skrifað öllum þeim er valdir voru
til æfinganna og tilkynnt þeim
að æfingar væru að hefjast að
nýju og yrði æft tvisvar í viku.
Önnur æfingin þrekæfing og hin
æfingar með knött. Jafnframt
hefir verið leitað eftir aðstæð-
um manna til æfinganna í sumar
og þannig reynt að fá strax fram
upplýsingar um ef menn geta
ekki skuldbundið sig til að mæta
á æfingunum. Þrekæfingamar
mun Benedikt Jakobsson sjá um
sem fyrr, en Hallsteinn Hinriks-
son hefir verið ráðinn þjálfari
landsliðsins.
Danir byrjaðir að æfa
Til marks um það er ekki væri
of snemma af stað farið með
æfingarnar upplýsti stjórn HSI
fréttamenn um það að Danir
væru þegar byrjaðir að æfa und-
ir Heimsmeistarakeppnina og
tækju 80 til 90 manns þátt í þeim
æfingum, þó er ekki sú keppnis-
reynsla, sem danskir handknatt-
leiksmenn hafa sambærileg við
þá íslenzku, þar sem leikja og
móta fjöldi er margfallt meiri
hjá Dönum heldur en hér á ís-
landi. ,
STYRKTARFÉLAG lamaðra og
fatlaðra hefir nýlega gerst aðili
að alþjóðasamtökum til styrktar
iömuðu og fötluðu fólki. Félagið
er nú meðlimur International
Soeiety for the Welfare of Crippl
es.
1 samtökum þessum eru ein-
göngu félög áhugamanna í hinum,
ýmsu löndum, en engar stofnanir
eða stjórnardeildir á vegum ríkis
eða bæjarfélaga, sem svipuðum
málum sinna.
Samtökin reka ekki sjálf spít-
ala eða neinar stofnanir aðrar til
lækninga eða annarar hjálpar fyr
ir fatlaða, heldur vinna þau ein-
göngu að söfnun upplýsinga og
útbreiðslu þekkingar á læknis-
fræðilegum, tæknilegum og fé-
lagslegum vandamálum er snerta
lamaða og fatlaða.
Samtökin styðja á þennan híft
eftir mætti starfsemi hinna ein-
stöku félaga í hinum ýmsu lönd-
um. Eitt aðalverkefni samtak-
anna er að efna til alheimsráð-
stefna á 3ja ára fresti um þessi
málefni.
Mót þetta sækja læknar, nudd-
konur, umbúða og skósmiðir til
þess að fylgjast með nýjungum í
sérgreinum sínum og ennfremur
leikmenn er áhuga hafa á mál-
efnum fatlaðra.
Næsta alþjóðamót verður hald
ið í New York í ágúst 1960.
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra hefir nú fengið fná samtök-
unum stutta kvikmynd um starf-
semi eins slíks félags í U.S.A. og
hefur hún þegar verið sýnd hór,
og mun verða sýnd oftar.
Þakka kærlega öllum þeim, sem minntust mín á einn
eða annan hátt í tilefni af 75 ára afmæli mínu 3. maí 1960.
Steindór Björnsson, Sölfhólsgötu 10
Hjartans þakkir til allra þeirra er glöddu mig með
heimsóknum, blómum, gjöfum og skeytum á 70 ára af-
mæli mínu 3. maí. —- Drottinn blessi ykkur öll.
Steinunn Bjamadóttir Bústaðaveg 6.
Innilegustu þakkir til allra þeirra mörgu, f jær og nær,
sem heiðruðu mig og glöddu með heimsóknum, blómum,
skeytum og gjöfum á áttatíu ára afmælisdaginn 4. maí
sl. og gerðu mér hann ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Ingveldur Lárusdóttir, Keykjavíkurvegi 32, Hafnarfirði
Lokað í dag
vegna jarðarfarar
Margrétar Auðunsdóttur.
Volti
^ SJÁLFSIÆÐISFELAG KÓPAVOGS
heldnr fund í félagsheimilinu fimmtudaginn 19. mai
kl. 8,30 e. li.
Fnndarefni:
1. Ólafur Thors forsætisráðherra.
Stjómmálaviðhorfið.
2. Önnur mál.
Stjórain
. Fósturmóðir mín og systir
Agista jónsdóttik
Bakkastíg 4
lézt í Landsspítalanum 17. maí
Guðlaug Sigurðardóttir, Sigurjón Jónsson
Útför
INGIBJARGAR SVEINBJARNARDÓTTUR
Höfðaborg 79
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 20. maí kl. 1,30
Ásta Ólafsdóttir
Páll Ólafsson, Sigurður Ólafsson
Húbert Ólafsson, Jóhannes Ólafsson
Maðurinn minn,
GUÐMUNDUR PÉTURSSON
vélstjóri, Vallartröð 7, Kópavogi
andaðist í Landspítalanum miðvikudaginn 16. maí.
Fyrir hönd vandamanna,
Jóhanna Guðjónsdóttlr
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR EGILSDÓTTUR
fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 19. þ.m. kl. 1,30
e. h. — Jarðað verður í Gamla kirkjugarðinum.
Ásta E. Jónsdóttir, Geir Baldursson,
Sigurður G. Jónsson, Jónfríður Halldórsdóttir,
Hermanníus M. Jónsson, Sigríður Guðmundsdóttir,
Jón G. Hermanníusson, Jónína E. Eiríksdóttir.
Þökkum aðsýnda samúð við fráfall og jarðarför eigin-
konu minnar og móður okkar
SVANFRlÐAR UNU ÞORSTEINSDÓTTUR
Jaðri, Ólafsvík
Þórður Kristjánsson og börn
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför,
GUÐKÚNAR SIGURÐARDÖTTUR
Meðalholti 8
Magnús Guðmundsson
Brigitta og Eyþór Dalberg
María og Hallgrímur Dalberg