Morgunblaðið - 28.05.1960, Qupperneq 20
/
Íbróttasíðan
Er á blaSsíðn 18.
Fangi orða sinna
og gerða. Sjá bls. 11.
120. tbl. — Laugardagur 28. maí 1960
Castro býður 3 íslend-
íngum á veiðar
Í GÆR barst bréf til ís-
lenzkra sjóstangaveiðimanna
frá Kúbu, þar sem þremur
íslendingum er boðið á hina
alþjóðlegu sjóstangaveiði-
keppni, sem haldin verður i
Havana 9. til 16. júní. Ætlar
dr. Fidel Castro, einræðis-
herra á Kúbu, að vera vernd-
ari mótsins og taka þátt i
keppninni dagana 15. og 16.
júní.
BoS aS nokkru leyti
Islenzku þátttakendunum er
boðin frí ferð frá Miami á Flor-
ida og viku upphald meðan a
mótinu stendur. Aftur á móti
verða þeir að sjá um ferðakostn-
að til og frá Miami. Er nú í
athugun hvort möguleikar eru á
Féll í lest
AKRANESI, 27. maí: — Um kl.
8 á miðvikudagsmorguninn vildi
það óhapp til, að unglingspiltur,
15 ára gamall, Björn Lárusson,
sem heima á á Heiðarbraut 34,
féll úr stiga niðri í lest á m.s.
Langjökli og brotnaði um öklann
á vinstra fæti. Var hann þegar
fluttur til læknis og síðan heim
til sín, þar sem hann liggurTiú.
—Oddur.
að þiggja boðið, en bréfið barst
ekki hingað fyrr en í gær. Lík-
lega hafa Kúbumenn ekki heyrt
um íslenzka sjóstangaveiðimenn
fyrr en eftir mótið í Vestmanna-
eyjum. En á mótinu á Kúbu
verða fulltrúar frá 50 milljón
sjóstangaveiðimönnum víðsvegar
um heim.
Fidel Castro með stengur þær,
sem hann ætlar að nota á sjó-
stangarveiðimótinu.
Merkjasala
Islands á
I5KKNASJÓÐUR Islands efnir til
merkjasölu til ágóða fyrir starf-
semi sína á morgun, sunnudag.
Sjóðurinn var stofnaður árið 1942
með eitt þúsund krónu framlagi
sjómannskonu, sem gaf þetta fé
af áhættuþóknun manns síns, er
hún hafði heimt heilan heim af
bafinu á stríðsárunum.
Sjóðnum er stjórnað af 5
manna stjórn og er biskupinn
yfir íslandi formaður hennar. t
sjóðnum eru nú um 200 þús. kr.
Hann aflar sér tekna með
Mjög góður
trilluulli
AKRANESI, 27. mai. 15 Trillu-
báar eru á sjó hér í dag. Þrjár
trillur reru hér í gær, Vonin, er
var með handfæri og fiskaði 1900
kg. og tvær trillur með línu, sem
fengu 800 kg. hvor. Trillubátarn-
ir hafa aldrei aflað jafn vel svo
snemma árs sem nú. Togarinn
Bjarni Ólafsson landaði hér í dag
um 170 iestum fiskjar, sem hann
aflaði vestur við Labrador.
Ekknasjóðs
sunnudag
merkjasölu einu sinrd á ári og
sölu minningarspjalda, sem fást
á biskupsskrifstofunni, í Foss-
vogskapellu, Holtsapóteki, hjá
Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grenilis, skólastjóra Mýrarhúsa-
skóla og verzlun Þorvalds
Bjarnasonar, Hafnarfirði.
Sjóðurinn styrkir fátækar og
bammargar ekkjur um land allt.
Foreldrar ættu að leyfa börn-
um sínum að selja merki ekkna-
sjóðsins á sunnudaginn. Verða
þau afhent í Sjálfstæðishúsinu.
Þarf ekki að efa að Reykvíkingar
muni taka börnunum vel og
kaupa af þeim merki í þágu hins
góða málefnis.
Krýsuvíkurferð
FARFUGLAR og Æskulýðsráð
Reykjavíkur efna til ljósmynda-
tókúferðar í Krýsuvík á sunnu-
daginn Leiðbeint verður um með-
ferð ljósmyndavéla. í sambandi
við þessa ferð efna farfugiar til
ferðar á Krýsuvíkurbjarg. Lagt
verður af stað í ferðirnar kl. 10
á sunnudagsmorgun frá Búnað-
arfélagshúsinu.
Gripnir v/ð eggjarán
AKUREYRI, 27. mai: — I gær-
dag var gert aðvart frá Eyrarlandi
að óboðnir gestir væru í hólmun-
um í Eyjafjarðará hér innan við
bæinn. í þessum hólmum er
mikið um fugl og hafði svæðið
verið aigerlega friðlýst lengL
Er lögreglan kom á vettvang,
voru nokkrir unglingar þar að
safna eggjum í fötur. Gerði lög-
reglan eggin upptæk. Hólmar
^þéssir eru eign Akureyrarbæjar
og er þar mikið anda- og kríu-
varp.
Datt af hestbaki
Klukkan að ganga 7 í gær-
kvöldi fannst maður liggjandi á
götunni syðst í Aðalstræti. Lög-
reglan kom á staðinn með lækni
cg var maðurinn fluttur á sjúkra
hús. Hafði hann hlotið skurð á
höfði við að detta af hestbaki.
Hann mun hafa verið ölvaður.
ir Stórfiski
Allir Islendingar kannast
við stórfiskaveiðar gamla manns
ins hans Hemingways við
Kúbu. Þar á hafinu er alls kyns
stórfisk að fá, túnfisk og hámeri
og Kúbumenn áhugasamir veiði-
menn. I maímánuði er sérstök
Hemingway-keppni í stangar-
veiði og keppir sigurvegarinn í
henni m. a. á alþjóðlega mótinu.
ir Sjóstangaveiðifélag í Eyjum
Mikill áhugi er nú um sjó-
stangarveiði hér á landi. — I
fyrradag var undirbúningsfund-
ur að stofnun sjóstangarveiðifé-
lags í Vestmannaeyjum. Var
kjörin undirbúningsnefnd á
fundinum og félagið verður
væntanlega stofnað næstu daga.
Aðalfundi S. H.
lauk í gær
AÐALFUNDUR Sölumiðstöðvar
Hraðfrystihúsanna hélt áfram í
gær og lauk um miðnætti í gær-
kvöldi. Fór fram stjórnarkosning
og voru þessir menn kjörnir í að-
alstjórn samtakanna:
Elías Þorsteinsson, Sigurður
Ágústsson, Einar Sigurðsson, Jón
Gislason og Jón Árnason.
í varastjórn voru kosnir: Ingvar
Vilhjálmsson, Huxley Ölafsson,
Björn T. Björnsson, Jóihann Sig-
fússon og Finnbogi Guðmunds-
son.
Engin skoðun
ó Nurfu
BI.ADIÐ hefir verið beðið um að
leiðrétta þá missögn blaðsins á
fimmtudaginn um að farið hefði
fram athugun á vél togarans
Narfa í söiuferð þess á dögun-
um til Bretlands. Slík athugun
fór ekki fram og hefir skipið
reynzt í alla staði vel, og því um
algera missögn að ræða, sem sjálf
sagt er að biðjast afsökunar á.
Landsbankahúsið við Laugaveginn. — Sjá frétt á bls. 2.
Líður að lokum:
Sameinað þing á
fundi í 5 klst. í gær
— Margar þingsályktanir gerðar
SAMEINAÐ Alþingi sat á fundi tillögur voru samþykktar á fund
frá kl. 13,30 til tæplega 19,30 í
gær, eða að frádregnu kaffihléi
í fimm klukkustundir og voru
36 mál á dagskrá fundarins.
Þótt svo lengi væri setið,
vannst ekki tími til að taka öll
málin fyrir, en 8 þingsáiyktunar-
Mikil sýning á vinnu
skólabarna Austur-
bœjarskólans
30 ár síðan skólinn tók til starfa
AUSTURBÆJARSKÓLINN
minnist þess nú við lok þessa
skólaárs, að liðin eru 30 ár
frá því hann tók til starfa.
Verður í dag opnuð sýning á
vinnu skólabarna, sem stend-
ur yfir í dag og á morgun.
ir VINNUBÆKUR —
MERK SÝNING
Arnfinnur Jónsson, skóla-
stjóri, bauð blaðamönnum í gær
að skoða þessa sýningu. Var þá
verið að leggja síðustu hönd að
henni og unnu við það ásamt
nokkrum kennurum börn úr eldri
bekkjadeildum. Var skemmti-
legt að skoða þessa sýningu, þó
hratt væri farið yfir. Sýnilega
er mikil áherzla lögð á sýningu
handavinnu barnanna og svo-
nefndra vinnubóka. Sagði skóla-
stjórinn að vinnubókagerðin
væri mjög merkilegur þáttur í
skólastarfinu. I þær endursegja
börnin í ritgerð og teikningum
eitthvert ákveðið efni, sem þau
hafa lesið um í kennslu og hand-
bókum, ef þær eru til taks.
Sýningin verður opnuð kl. 3
í dag og er opin til kl. 7 í kvöld,
en á morgun er hún opin frá kl.
10—10.
★ BREYTTAR AÐSTÆÐUR
Þegar Austurbæjarskólinn
tók til starfa var hann meðal
mestu bygginga landsins. Hann
var stórátak á þeim tímum,
sagði Arnfinnur, ætlaður 600
börnum. En hann varð brátt að
taka við fleiri börnum. Eitt
skólaárið voru í honum 1874
börn. Nú eru börnin í skólanum
um 800. I gamla daga áttu öll
börn í bænum, austan Klappar-
stígs, skólasókn í Austurbæjar-
skólann. Nú eru mörkin komin
rétt upp undir skólann.
Arnfinnur Jónsson minntist á
breyttar aðstæður, einkum barn-
anna, sem breytzt hefðu stórlega
til batnaðar, einkum aðbúnaður
heima fyrir. Og það kom fram
að á fyrstu árum skólans voru
um 60% barnanna lúsug, en nú
eru mörg ár síðan að lús hefur
fundizt í nokkru barni í Austur-
bæj arskólanum.
Arnfinnur gat þess og að enn
væru 9 kennarar við skólann,
sem starfað hefðu frá upphafi.
ínum, einni vísað til ríkisstjórn-
arinnar og nokkrum til nefnda.
Þingsályktunartillögurnar, sem
samþykktar voru, hafa ailar ver-
xð teknar til frásagnar hér í blað-
mu, en þær eru um Síldariðnað
á Vestfjörðum, Hagnýtingu síid-
araflans, Tónlistarfræðslu, Sím-
töl og símgjöld bæjarsíma Reykja
víkur og Hafnarfjarðar, Klak-
og eldisstöðvar fyrir lax og sil-
ung, Fiskileit á Breiðafirði, Þjóð-
háttasögu Islendinga og Dvalar-
heimili í heimavistarskólum.
Verður sumra þessara þingsálykt
ana getið að nýju í blaðinu næstu
daga, þvi að nokkrar breytingar
voru samþykktar á þeim.
Á fundinum í gær svöruðu ráð-
herrar einnig 2 fyrirspurnum og
kosnir voru stjórnarmenn og
endurskoðendur . Byggingasjóðs
ríkisins.
Að loknum fundi í Sameinuðu
þingi fóru í gærkvöldi fram fund
ir í báðum þingdeildum.
Níu austur-þýzkir
veiða við Austur-
land
NESKAUPSTAÐ, 27 maí: —
Austur-þýzkur togari kom hér
inn í morgun með tvo veika
menn. Er talið að annar sé með
snert af botnlangabólgu. Einnig
þurfti togarinn að fá hér smá-
viðgerð og taka vatn.
Togari þessi heitir Einheit frá
Rostock 268 rúmlestir að stærð.
Hefur hann verið að veiðum fyr-
ir austan land og er þetta fyrsta
ferðin hans til Islandsmiða. Eig-
andi skipsins er samvinnufélag í
Rostock, sem á 50 skip og eru 9
þeirra að veiðum við Austur-
land.