Morgunblaðið - 24.06.1960, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.06.1960, Qupperneq 12
MORClllSTtL AÐIÐ Föstudagur 24. júní 1960 JltrjpjjiMaMli títg.: H.f. Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480. Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. FÁHEYRÐ FREKJA ■fjAÐ er alkunna að kofnm- " únistar hér á landi sem annarsstaðar liggja á því lúa- lagi að misnota ýmisskonar almenn félagasamtök til framdráttar pólitískum klíku- hagsmunum sínum. Oft varar fólk sig ekki á þessum vinnu- brögðum kommúnista og tekst þeim þess vegna stund- um að beita ópólitískum fé- lagasamtökum fyrir stríðs- vagn sinn. Áróðurstillaga Á landsfundi Kvenréttinda- fél. íslands, sem staðið hefur yfir undanfarna daga, ætluðu kommúnistar að leika þennan leik. Þeir fluttu þar áróðurs- tillögu, sem fól í sér harðorð mótmæli gegn þeirri stefnu, sem ísland hefur fylgt undan- farin ár í utanríkis- og ör- yggismálum. Mál þetta komst til umræðu undir lok fundar- ins og hófust þegar um það mikil átök. Frú Auður Auð- uns, borgarstjóri, vakti at- hygli á, að hér væri um stór- pólitískt deilumál að ræða, sem ekkert erindi ætti inn á fund hinna ópólitísku heild- arsamtaka íslenzkra kvenna. Konur ættu ekki að láta nota þessi samtök sín sem pólitískt áróðurstæki. Það mundi veikja samtökin og rýra traust þeirra og virðingu. Frú Auður Auðuns gekk síðan af fundi í mótmæla- skyni við þessa tilraun komm únista til þess að nota Kven- réttindafélag íslands sem pólitískt áróðurstæki. Fundarkonum hafði nú fækkað svo að fundurinn var ekki lengur ályktunarfær. — Reyndist því ekki mögulegt að bera áróðurstillögu komm- únista undir atkvæði og féll hún þannig niður og lauk fundinum þar með. Siðleysi kommúnista En kommúnistakonurnar, sem fyrir áróðurstillögunni höfðu staðið, létu ekki við það sitja að gera tilraun til lítilmótlegrar misnotkunar á kvennasamtökunum. Bæjar- stjórn Reykjavíkur hafði boð- ið fulltrúum á fundinum til kvöldboðs í Sjálfstæðishúsinu á miðvikudagskvöldið. Tók frú Auður Auðuns, borgar- stjóri, þar á móti gestunum. Þangað geystist nú dálítill hópur kommúnistakvenna, ruddist inn í salinn án þess að taka af sér yfirhafnir og einn af forsprökkum komm- únista flutti þar skammar- ræðu yfir borgarstjóra! Að því afreki loknu þustu komm- únistakonurnar út og kvöddu hvorki kóng né prest. Við íslendingar eigum ýmsu að venjast í stjórnmála- baráttu okkar. En það er áreiðanlega einsdæmi, að ágreiningur á opinberum fundi nái svo langt að hann verði til þess að menn geti ekki borðað saman að honum Ioknum!! Kommúnistakonurnar hafa þannig gerzt berar að einstæðri frekju og skorti á háttvísi. En framkoma þeirra var engum nema þeim sjálfum til skammar. SPARIFÉÐ rplMAMENN hamra mjög á því, að með efnahags- málalöggjöf ríkisstjórnarinn- ar séu „héruðin rænd sparifé sínu“. Það er rétt að athuga þessa fullyrðingu nokkru nánar. Þegar vinstri stjórnin setti lög um Seðlabanka íslands ár ið 1957, var í 16. gr. þeirra laga ákvæði um það, að stjórn Seðlabankans væri heimilt „að ákveða að bank- ar og sparisjóðir skuli eiga ionstæður í Seðlabankanum og þá hve miklar, enda skal stjórn banka og sparisjóða skylt að veita Seðlabankan- um upplýsingar um starfsemi sína,t svo sem um innlán og Útlán“. Það er sem sí’í> :: vinstri stjórnin undir forystu Framsóknarmanna, sem setti það í lög að stjórn Seðlabankans skuli heim- ilt að ákveða að bankar og sparisjóðir um land allt skuli eiga innstæður í Seðlabankanum, og þá hve miklar. Þetta ákvæði frá valda- tímabili vinstri stjórnarinnar stendur ennþá. Við það var aðeins bætt því með efnahags málaráðstöfunum núverandi stjórnar, að ákvæði þau, sem vinstri stjórnin settu um þetta efni, skulu einnig ná til innlánsdeilda kaupfélaga og Söfnunarsjóðs íslands, á sama hátt og til banka og sparisjóða. Þetta er þá sannleikurinn í málinu. Ætli það færi ekki bezt á því að Tíminn hætti hvala- blæstrinum um það, að núver andi ríkisstjórn sé að „ræna sparifé héraðanna"? UTAN UR HEIMI Olympíuþorpið. Eftir að leikjunum er lokið verða íbúðirnar afhentar opinberum starfsmönn- og fjölskyldum þeirra Aðal akvegurinn að Olympíuleikjunum í bygglngu. Myndln til vinstri sýnir undirstöður hans. Verið er að ljúka undirbúningi að Olmpíuleikjunum, sem hefjast í Róm í ágústmánuði. Á svæði því sem leikirnir fara fram hafa nú risið upp íþróttahallir og leikveli- ir. I*ar hefur verið byggt heilt þorp með 1500 smáíbúðum, þar sem 6.000 íþróttamenn munu búa meðan á leikjunum stendur. Nýir vcgir hafa verið lagðir til að ann- ast alla aukaumferð í sambandi við leikina. Palazzo dello Sport heitir stærsta íþróttahöllin. Þar verður aðallega keppt í körfuknattleik og boxi. Er það hringlaga bygg- ing, um 100 metrar í þvermál og tekur 18.000 manns í sæti. Áhorf- endur geta fylgzt með leikjun- um hvar sem þeir sitja, því kúp- ullinn er sjálfbrennandi, svo engar súlur skyggja á útsýnið. f sambandi við Olympíuleikina verður mikil listahátið í Róm með óperusýningum, hljómleik- um og listasýningum. w Pfllfl'*'- ^"ort var vígt 3. júní s.I. með kðrfuknattleikskeppnl mllli ftata og Fr^'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.