Morgunblaðið - 24.06.1960, Page 15

Morgunblaðið - 24.06.1960, Page 15
Föstudagur 24. júní 1960 MORCVNHT4Ð1Ð 15 Hvað er kona? Að því er forn sögn á sans- krít hermir er konan búin til úr eftirfarandi: „Fyllingu mán ans, bjúglínum höggormsins, hringan vafningsviðarins, skjálfta grassins, grannleika reyrsins, angan blómsins, létt- leika laufsins, leiftrandi augna ráði hindarinnar, kátínu sól- argeislans, tárum skýsins, hviklyndi vindsins, feimni hér ans, hégóma páfuglsins, mýkt tígrisdýrsins, heitri glóð elds- ins, nepju frostsins, tísti skjó- -arins og gaggi gauksins". Sögn þessari lýkur með þeirri spaklegu niðurstöðu að maðurinn geti ,hvorki lifað með henni né án hennar". Skemmtilegasta æviskeiöið. aldursskeið konunnar Hvað er „kvenleiki" eða hvað gerir kvenmann að konu er lendardómur, sem menn af öllum stigum hafa glímt við að ráða frá upphafi. Þeir hafa ort ljóð til hennar og skrifað um hana skáldsögur; þeir hafa búið til heimspekikenn- ingar um hana og skilgreint hana vísindalega. Þó eru leyd- ardómar konunnar enn óráðn- ir. Fyrir no'kkru kom út bók, þar sem ráðizt er í að skýra nokkra þessara leydardóma konunnar. Bókin heitir ,,Sjö aidursskeið konunnar", gefin út af The Hopkins Press í Baltjmore, og höfundurinn er kvenmaður, dr. Elizabeth Parker, sérfræðingur í kven- sjúkdómum í Washington. „Sjö aldursskeið konunnar er rituð á einföldu, alþýðlegu máli og er þar reynt að skýra merkingu sjö helztu aldurs- skeiða í lífi allra kvenna. Þar er rakin sagan af byggingu og starfsemi huga kdnunnar og hvaða breytingar verða hér til þess að mæ-ta þörfum lífsins á hverju skeiði. ,Að þessar breyt ingar eiga sér stað“, segir dr. Parker, „er augljóst og auð- velt að sanna og löngu vitað, en þekkingin á öllum aðstæð- um, som þessum breytingum valda er ný til komin“. Fyrst kemur aldursskeið 'hinna óbornu, þ. e. tímabilið frá getnaði til fæðingar, þegar ein örlitil fruma vex og dafnar og þroskast og verður „að litlum manni“. Annað alduTs- skeið, bernskan, einkennist einkum af vexti- og þroska. Þriðja í röðinni er aldursskeið æskunnar, vöxturinn heldur áfram og kynþroski hefst, „litla stúlkan breytist og verð ur að konu“. Fjórða aldurs- skeið þroska og manndóms, þegar líkaminn nær fullum vexti og kynþroska og býr sig undir fullnægingu fimmta stigs, sem er aldursskeið móð- ur og eiginkonu. Um það ald- ursskeið f arast dr. Parker m. a. þannig orð: „Það er á þessu aldursskeiði, að þess er krafizt af konunni, að hún haldi heppilegu jafnvægi milli þróunar á eigin hæfileikum og fullnægingar á þörfum eigin- manns og barna“. Sjötta er aldursskeið tíðaloka, þegar „dregur úr frjósemistarfsemi konunnar (ekki aðems hvað kynferði snertir). „Það er óþarft að kvíða fynr þessu aldursskeiði; það sem skeður er ekki annað en það, að kon- an hættir að ala börn og ann- ast þau“. Sjöunda og síðasta aldursskeiðið’er kennt við ell- ina. „Það er nær sanni að segja, að hér opnist nýtt tíma- bil í ævi konunnar“, segir dr. Parker, „því að nú 4 dögum geta konur að minnsta kosti í Bandaríkjunum, reiknað með, að þetta adursskeið verði lengra og heilsusamlegra en áður hefur þekkzt í sögunni. Og það getur verið auðugt og reynsluríkt“. í formála að bókinni ræðir dr. Parker um það, að aldrei hafi kvenþjóðin verið ráðandi afl í stjórnum landa eða við- skiptum, í stríði eða leiðöngr- um, í vísindum eða jafnvel listum. Svo virðist sem konur hafi skort áhuga á að spreyta sig á þessum sviðum. í augum allra kvenna veraldarsögunn- ar var „fullnæging lífsins ekki mæld á vegaskálum velgengn innar . . . heldur í hlýju mann- legra samskipta . . . fullkomn- um kvenleika hennar“. „Henni fannst gott að vera kona“. (The Johns Hopkins University Lynn Poole). Cuðlaugur Cuðjónsson frá Stykkishólmi t. 29. ágúst 1922, d. 4. sept. 1959. Kveðja frá eiginkonu. ¥ í bjartri minning býr þú, vinur minn, blítt mér hjá, þó leiðir skilji um sinn. Svo óvænt lokið okkar samfylgd hér, en upp til hæða trúin bendir mér á beinan veg, sem bjó þér Frels- arinn, í bjarta lífs og dýrðar himinn sinn. Þar á ég þig. í ást, sem aldrei dvín, við erum tengd þó héðan hverfir sýn. dauðinn aðeins skilur skamma stund. Skín mér heilög von um endur- fund, sem vermir hjartað, veitir styrk og þor, og vefur birtu harmsár reynslu spor. Tuttugu Akranes- bátar á síld AKRANESI, 22 júní — 1 kvöld fer vélbáturinn Ölafur Magnús- son, skipstjóri Þórður Öskarsson, norður á síld. Höfrungur, skip- stjóri Garðar Finnsson, er þá einn ófarinn af þeim bátum, sem héðan fara á síldveiðar í sumar. Olafur Magnússon er 20. bátur- inn, sem fer norður að sinni. Vél- báturinn Farsæll bíður eftir nýrri vél og fer síðar norður. Verið er að stækka Skipaskaga 1 skipa- smíðastöð Þorgeirs Jósepssonar. Hefur báturinn verið sagaður í sundur um miðju og bætt í hann 3 metra löngum nýjum miðhluta. Sunnan-átt og hálfgerð rosa- tíð hefur haldizt hér samfleytt í 5 daga. Allan þann tíma hafa trillubátarnir hér ekki komizt é sjó. Hér er Júpiter í dag og lestar saltfisk. — Oddur. Um okkar samleið, elsku vinur minn, ást og tryggðir breiddu unað sinn. Mér fannst svo bjart og fagurt þér við hlið, hvar fórum við um gengin ævisvið og lítill sonur lífsins yndi bar, sem ljúfur geisli á brautir gæf- unnar. Þú, honum varst svo hlýr og hjarta kær, og hann þig þráði, er okkur varstu fjær. Ég man, er komst þú heim af hafsins slóð, hve heitur sonar faðmur opinn stóð, að fagna þér, og föður ástin þín var fegurri en orðin lýsa mín. Hver minning um þig mínu hjarta í, frá morgni lífsins, skín mér björt og hlý. Svo blíð og viðkvæm var þín glaða lund, sem vakti mér til heilla hverja stund. Þín gæði öll, sem gull í dýrum sjóð ég geymi þér um mína ævislóð. Þær ástar þakkir, elsku vinur minn, er ég færi þér og sonurinn, þær eru stærri en orðin geta tjáð, en allt það veit og þekkir Drottins náð. Við biðjum guð á ljóss og lífsins strönd, að leiða þig með sinni kærleiks hönd. /óhannes Lárusson héraðsdómslögmaður Iögfræðiskrifstofa-fasteignasala Kirkjuhvoli. Sími 13842. Málflutningsskrifstola JÓN N. SIGURÐSSON hæstaréttarlögmaóur Laugavegi 10. — Sími: 14934. Tilkynning til kaupenda Morgunblaðsins utan Reykjavíkur Póstkröfur voru nýverið sendar til kaupenda blaðsins úti uni land, sein fá blaðið bcint frá aigreiðslu þess í Reykjavík. Athugið að innleysa kröfurnar, sem allra fyrst svo komizt verði lijá að stöðva út- sendingu blaðsins. |KO¥0lltll ISABELLA KVENSOKKAR eru viðurkenndir um allt land, sem einhver vandaðasta tegund af kvensokkum sem komið hefir til landsins. ISABELLA-ANITA saumlausir sokkar, uppfylla kröfur hinna vandlátustu. Þeir eru fallegir, fara vel og endast lengi. ISABELLA-MARIA með saum vanðaðir, fallegir, ódýrir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.