Morgunblaðið - 24.06.1960, Qupperneq 22
22
MORCVNTtLAÐIÐ
T’östndap'nr 94 iúní 1960
Hary hljdp 100 m
Hafnfirðingar unnu
Breiðahiik 5:0
FYRSTI leikurinn í b-riSli 2.
deildar keppninnar í knattspyrnu
fór fram í Hafnarfirði í fyrra-
tvívegis á
sek
ARMIN Hary frá Þýzkalandi
setti nýtt heimsmet í 100 m.
hlaupi iO.O sek. sl. þriðjudag á
alþjóðlegu íþróttamóti í Zurieh
eins og skýrt hefur verið írá.
Landslið Noregs:
Ein breyting
frn íslands-
v leiknum
EINS og skýrt var frá hér á
síðunni í gær, þá sigraði Aust-
urríki Noreg í landsleik 2:1, en
leikurinn fór fram á Ullevál-
*vellinum í Ósló í fyrrakvöld.
Aðeins tvær breytingar voru
á norska landsliðinu frá því
að það sigraði ísland 4:0 hinn
9. júní sl. Hinn gamalkunni
og frægi landsliðsmarkmaður
Noregs Asbjörn Hansen lék
nú aftur í marki Noregs og
hægri innherji var nýliði, 17
ára unglingur frá Brann,
Roald Jensen að nafni.
Austurríki he'fir í heila öld
verið leiðandi knattspyrnu
þjóð, — þjóð sem jafnvel Eng-
lendingar hafa viðurkennt að
hafa tekið sér til fyrirmyndar
í knattspyrnu. Austurríki hef-
ir þó ekki farið varhluta af því
að vita hvað „öldudalur“ er
því þeir hafa tapað 6:3 fyrir
Spáni, 5:2 fyrir Frakklandi og
4:0 fyrir Tékkóslóvakíu, — en
þá náðu þeir „vínarvalsinum"
aftur og unnu Skotland 4:1. —
Móti KR
frestað
KR mótinu yar frestað vegna
veðurs í gærkvöldi og þar með
var þátttaka heimsmeistarans í
800 metra hlaupi búin, því hann
varð að fara útan í morgun.
; „l’að hefði verið frekar hægt
að haida sundmót á Laugardals-
véllinum í gærkvöldi en keppa
í; frjál.síþróttum“, sagði Einar
Safmundsson form. KR. „Það
híyg'gír okkur mjög að veðráttan
hefir íéikið okkur svo grátt, og
vissulega hefði verið gaman að
sjá Roger Moens hlaupa með
okkar beztu mönnum í 1500
metra hiaupinu, — en við þetta
vár ekki ráðið og við verðum að
bíta í hið súra epli.“
|Vísi.iefði verið gaman að sjá
hinn njikla hlkupara og glæsilega
iþróttátnann taka þátt í 1500 m
thlaupi', Þátttaka hans í fyrra-
kvöld í sérgréin sinni 800 metr-
unum verður, þrátt fyrir hinar
lélegu^1 aðstæður öllum sem á
iiörfðú ógleymanleg, og víst er
að útfærsla hans á hlaupinu, stíb
bans -óg léttleiki verður lærdóms
r|kur fyrir þá sem hlupu með
honuip, sém -og einnig þá hina
y®grí;:m'illivegalengdar hlaupara
okkar: íslendinga, sem á horfðu.
Koma'Roger Moens var stórvið-
burður og mön líða þeim seint
úr rninni, sem sáu hann keppa.
— Hary hljóp vegalengdina
aftur á 10.0 sekúndum eftir að
dómararnir höfðu neitað að við-
urkenna tímann, þar sem það
var sameiginlegt álit hinna sex
þátttakenda, sem hlupu með
Hary, að hann hefði þjóístartað.
Hary lagði því til að hlaupið
yrði aftur, en þá voru aðems
tveir af hlaupurunum samþykkir
að hiaupa með honum. Hary vann
aítur og var þrjá metra. á undan
líeinz Muller frá Sviss.
ir Engin meðvindur
Annin Hary er 21 árs og er
iðnaðarmaður í borginm Lever-
kusen í Þýzkalandi. Af þrem
klukkum sýndu tvær 10.0 og ein
10.1 sek. Meðvindur var sem sagt
enginn, mældist 0,6 sekúntumetri
svo metið mun áreiðanlega fá
staðfestingu, segja fréttastofurn-
ar UPI og AP.
ir Ágreiningur
En allir eru ekki á sama máli
um þetta. — í fyrsta lagi, þá
vildu dómararnir ekki skrifa
undir og þar með viðurkenna ár-
angur Hary i fyrra hlaupinu. 1
öðru lagi er síðara hlaupið fram-
kvæmt eftir ósk Armin Hary, og
þar með ekki hluti af hinu al-
þjóðlega móti, en til þess að
heimsmet séu viðurkend verða
þau að vera sett á opinberum og
alþjóðlegum íþróttamótum.
Red Roys og KR
RED Boys-knattspyrnuliðið frá
Luxemburg kom hingað í gær-
kvöldi og í kvöld leikur liðið
fyrsta leikinn við KR og fer leik-
urinn fram á Laugardalsvellin-
um. —•
KR-ingar ganga ekki heilir til
skógar í kvöld, því víst er að
Garðar Árnason getur ekki verið
með vegna meiðsla og óvíst er
hvort Ellert Schram og Gunnar
Guðmannsson verði með, einnig
vegna meiðsla.
í gærkvöldi var ekki ákveðið
hvernig lið KR yrði skipað í
kvöld, en ákveðið hafði þó verið
að ekki skyldu teknir menn að
láni.
ÞÓTT Moens hafi ekki
dvalizt lengi hér á landi
hefur tekizt góður vinskap-
ur með þeim Svavari Mark
ússyni. Myndin er tekin að
loknu 800 metra hlaupinu í
fyrrakvöld. Moens brosir
þótt kalsi og rok hafi gert
honum hlaupið erfitt og
Svavar er ánægður yfir að
hafa fengið að reyna sig við
heimsmethafann.
Þessi mynd er frá 800 metra
hlaupinu á KR-mótinu í fyrra-
dag og er tekin um það bil sem
hlaupið er hálfnað. Heimsmet-
hafinn Roger Moens hefir tekið
forustuna, en Svavar Markús-
son, KR og Guðmundur Þor-
steinsson, KA fylgja fast á eftir.
Guðjón Guðmundsson, KR, hljóp 400 metra grindahlaupið sér
í lagi skemmtilega. Með vel útfærðu hlaupi sýndi hann yfir-
burði yfir keppinauta sína, Sigurð Björnsson, KR, Inga Þor-
steinsson, KR, og Hjörleif Bergsteinsson, Á. — (Myndirnar á
síðunni tók Sv. Þormóðsson)
„Sjarmör“ frjálsíþróttamótanna
í ár er án efa kvikmyndaleikar-
inn Peter Ronson. Þessi mynd er
tekin af Pétri í kringlukastinu í
fyrrakvöld. Sýnir myndin ótví-
rðett að Ronson kann vel til
verka við aðra hlniti en kvik-
myndaleik.
Mörgum varð ekki um er sleggjan stakkst niður í jörðina, kast
eftir kast og skyldi eftir sig djúpar hoiur í vellinum. En þegar
um slíka íþróttakeppni er að ræða verða menn að hafa í huga
að alþjóðlegur íþróttavöllur verður aldrei skrúðgarður, og því
þýðir lítið að sakast yfir blessuðu sleggjukastini'.
kvöld, en þá kepptu Hafnfirð-
ingar við Breiðablik frá Kópa-
vogi. Hafnarfirðingarnir unnu
leikinn með yfirburðum, skoruðu
5 mörk en Breiðabliksmenn
fengu ekki skorað. — Leikurinn
í heild var frekar daufur og mikil
knattspyrna sázt ekki. Fram-
herjar Breiðabliksliðsins er betri
helmingur þess, ungir leikmenn,
sem sumir hverjir lofa góðu um
framtíðina. Vörn liðsins er aftur
á móti mjög léleg. Lið Hafnfirð-
inganna er augsýnilega ekki í
mikilli þjálfun, en það skipa
margir liðlegir knattspyrnu-
menn, sem sýndu að þeir kunna
margt fyrir sér.hvað knattspyrnu
snertir og eiga efalaust eftir að
sýna betri leik er þeir mæta
meiri mótspyrnu. Virkasti mað-
ur liðsins var Sigurjón Gíslason
og jafnframt skoraði hann bezta
mark leikisins með góðri og
fastri spyrnu af löngu færi, sem
lenti í efra horni marksins upp
við þverslána. Aðrir sem skoruðu
fyrir Hafnarfjörð voru vinstri út
herjinn Gunnar Valdimarsson,
miðframvörðurinn Ragnar Jóns-
son, sem skoraði úr aukaspyrnu,
er tekin var utan vítateigs. Ás-
geir Þorsteinsson miðherji skor-
aði úr vítaspyrnu og Bergþór
Jónsson ,innherji skoraði síðasta
markið af stuttu færi innan víta-
teigsins.
Engin
Cicíi
A MIÐVIKUDAG birtist
hér á síðunni frétt um það
að einhver deila mundi ftpp
risin milli Hafnfirðinga og
Vestmannaeyinga út af því
að ekki byrjaði í lofti til
þess að Hafnfirðingar kæm
ust til Vestmannaeyja um
sl. helgi til leiks í 2. deild.
Var sagt að Vestmannaey-
ingar teldu sér sigur í leikn
um af þeim sökum og þótti
óréttlátt.
Blaðið hefur verið beðið
að draga það til baka að
deila væri upp komin milli
þessara aðila, og í skilaboð-
um sem flutt voru blaðinu
var sagt, að Vestmannaey-
ingum hefði aldrei komið i
hug að ætla sér bæði stig
leiksins.
Íþróttasíðan verður þó að
bæta því við, að upplýsing-
ar þær sem hún hafði fyrir
frétt sinni, eru frá ábyrgum
aðila og verða aldrei vé-
fengdar. Vestmanneyingar
deildu innbyrðis um það
hvort heimta ætti stigin í
leiknum og hluti knatt-
spyrnuráðs þeirra barðist
fyrir því að svo yrði. For-
maður íþróttabandalags
Vestmannaeyja, Valdimar
Kristjánsson sýndi þeim
fram á að þeir færu með
rökleysu í málflutningi sín-
um. Er vonandi að ekki
komi til frekari deilna um
þetta mál og víst er að iBV
vill gera sitt til að svo verði
ekki.
Landsleikur
ÍSLENZka kvennalandsliðið í
handknattleik kepptir í dag við
Svíþjóð á Norðurlandamótinu í
Vesterás.