Morgunblaðið - 24.06.1960, Side 24
Við höfum sofið
Sjá bls. 13.
Íbróttasíðan
er á bls. 22.
140. tbl. — Föstudagur 24. júní 1960
16000 mál við
Kolbeinsey
Síldin djúpt ocj margir
misstu af kostum
" Siglufirði, 23. júní.
LÖNDIJN hefur verið svo til
óslitin hér í dag og hafa kom-
ið hingað eða eru á leiðinni
um 16 þúsund mál síldar. —
Síldin hefur veiðzt fyrir norð-
an Kolbeinsey og eru bátar
enn að kasta þar í kvöld, en
ekki er vitað um aflamagn.
Síldin stendur djúpt og hafa
margir bátar kastað án þess
að fá nokkuð í aðra hönd, en
aðrir hafa fengið góð köst.
Þessir hafa komið með afla
í dag, eða eru á leiðinni:
Björn Jónsson 800 mál, Hag-
barður 300, Böðvar AK 500,
Vísir KE 350, Hrafn Svein-
bjarnarson 350, Kópur KE
450, Gunnhildur ÍS 500, Pétur
Jónsson 180, Heimir SU 300,
Helguvík KE 550, Ásgeir RE
400, Heiðrún ÍS 700, Helga RE
800, Arnfirðingur 300, Stíg-
andi VE 500, Þórkatla GK 400,
Guðbjörg ÓF 800, Ársæll Sig-
urðsson 800, Freyja ís 550,
Gullfaxi NK 650.
Auk þessara báta er vitað
um að allmargir bátar hafa
fengið einhvern afla nú í
kvöld við Kolbeinsey. Heyrzt
hefur að Sigurður Bjarnason
hafi fengið 800 mál og Fram
GK fullfermi, 700 til 800 mál,
og mun hafa látið annan bát
hafa afganginn úr nótinni.
í kvöld er meiri kaldi úti á
miðunum og rigning. Hér á
Siglufirði er milt og gott veð-
ur, dálítið úrfelli. Bræðsla er
í fullum gangi hjá SR, en
söltun er ekki hafin.
Til Hjalteyrar komu tveir bát-
ar í gær, Gylfi með um 500 mál
og Gylfi II með 400. Þá hafa bor-
izt um 3000 mál til Hjalteyrar og
mun bræðsla hefjast þar í dag.
Fegurðardrottning
og heimsmethafi
ÞAÐ hefur ekki farið fram
hjá neinum, sem til þekkir,
að forráðamenn KR í frjáls
íþróttum, höfðu sem himin
höndum tekið, er heimsmet
hafinn Roger Moens varð
við beiðni þeirra að koma
hingað til lands og keppa.
Og KR-ingar sýndu vel hug
sinn í þessu tilfelli við setn-
ingu mótsins. Eftir að for-
maður KR, Einar Sæmunds
son, hafði kynnt heimsmet-
hafann fyrir áhorfendum,
gekk hin nýkjörna fegurð-
ardrottning Islands, ungfrú
Sigrún Ragnarsdóttir, fram
á vöilinn og færði hinum
góða gesti fagran blómvönd
að gjöf. Meiri virðingu var
vart hægt að sýna heims-
methafanum.
Ljósm.: Sv. Þormóðss.
Hausf-
veður
ÞETTA er óvenjulegt veður
svona um sólstöður segja veður-
fróðir menn hér í Reykjavík.
Hvassviðri eins og var í gær, var
miklu líkara októberveðri, en því
sem vænta má um sólstöður á
Suðurlandi.
1 gærdag var hvasst hér í bæn-
um og mun veðurhæðin hafa
komizt upp í 8 vindstig. Rignt
hefur látlaust í rúman sólarhring
en úrkoman var ekki mikil, í
gær ringdi hér í bænum frá
kl. 9 árd. til 6 í gærkvöldi 5
millimetra. Mikil rjgning var í
Vestmannaeyjum og þar var enn-
þá verra veður, því veðurhæðin
mældist þar 10- vindstig síðdeg-
is í gær. I gærdag ringdi lang-
samiega mest á Reykjanesvita, 38
millimetra. Rigningarsvæðið sem
náði yfir allt Suður og Vestur-
land teygði sig austur fyrir
Skagafjörð. Á Hvallátrum rigndi
í gær 27 millimetra.
A Norðurlandi er annars áfram
haldandi góðviðri, 14 stiga hiti
var á Akureyri, en sólarlaust í
gær. Austur á Héraði var bjart-
viðri með 17 stigá hita.
Sunnanrosinn átti að ganga
niður í nótt er leið og verða sæmi
lega skaplegt veður hér sunnan-
lands í dag, —• en áframhaldandi
úrkoma, með suðlægri átt.
Víðtœk leit að donsku selveiðiskipi
Allir vonast eft
ir flaffiskinum
— en of fáir til að taka á mióti honum
VESTMANNAEYJUM, 23. júní:
Dragnótaveiði hefur nú verið
leyfð frá Vestmannaeyjum, en
undanfarið hafa nokkrir bátar
undirbúið sig til að stunda þess-
ar veiðar. Höfðu þeir hagað und-
irbúningi sínum með tilliti til
þess, að leyfð yrði óbreytt
möskvastærð.
Nú var möskvastærðin stækk-
uð og verður það til þess, að
bátarnir þurfa að útvega ser ný
veiðarfæri. Tefur þetta nokkuð
að þeir geti hafið veiðarnar, en
það mun verða í byrjun næsta
mánaðar.
• Mannekla háir verkun
Alit er enn í óvissu hvernig
aflinn verður nýttur. Frystihús-
in her geta ekki tekið á móti
flatfisknum vegna manneklu.
Er uppi hreyíing að koma afl-
anum ferskum, xsuðum, á erlend-
an markað og hafa útgerðarmenn
smærri báta, sem hér eiga Fisk-
ver h.f., haft forgöngu um þetta.
Hafa þeir leigt danskt skip til
þessara flutninga og gert samn-
ing við fiskkaupafyrirtæki í Dan-
mörku um kaup á flatfiskinum.
Kom skipið hingað fyrir tveimur
dögum og liggur nú hér og bíður
þess að flatfiskurinn veiðist.
— Bj. Guðm .
Mennirnir fundnir
UM 11-leytið í gærkvöldi
barst flugumferðarstjórninni
skeyti um að norski selfang-
arinn Signalhorn hefði komið
auga á danska selveiðarann
Kiki inni í ísnum — og var
staðarákvörðun gefin 66'25'
n.br. 33'10' v.lengd. — Taldi
skipstjórinn á Signalhorn, að
hann mundi komast að Kiki
eftir 2—3 stundir. Ekki var
getið um að sézt hefði til
mannaferða. — Hálfri stundu
síðar heyrðist hér í Reykja-
vík er Signalhorn hafði sam-
band við Angmagsalik og
höfðu Norðmennirnir þá kom
ið auga á áhöfn danska sel-
veiðiskipsins. Tveir danskir
Katalínubátar voru þá á
sveimi á þessum slóðum. —
Þessi björgunarsaga hófst í
gærmorgun:
FRÁ veðurathugunarstöðinni í
Aputiteq, sem er alllangt fyrir
norðan Angmagssalik á austur-
strönd Grænlands bárust þær
fregnir snemma í gærmorgun, að
danskur selveiðari „Kiki“ væri
að farast þar skammt frá. Hafði
skipstjórinn á selveiðaranum
Framhald á bls. 23.
Vestmannaeyingar
leita fiskmarkaðar
Vestmannaeyjum, 23. júní.
BÆJARSTJÓRN Vestmanna
eyja samþykkti á fundi sínum
fyrir nokkru, að senda tvo
menn utan til markaðsleitar
fyrir fisk, aðallega flatfisk. —
Var það gert með hliðsjón af
þeim erfiðleikum, sem eru á
að selja og verka þessa vöru.
Var jafnvel fyrirhugað að
reyna að senda eitthvað af
aflanum úr landi með flug-
vélum.
Til fararinnar völdust Guðlaug
ur Stefánsson, forstjóri og Gísli
Gíslason, stórkaupmaður Munu
þeir einkum leita fyrir sér í
Frakklandi og Sviss. Leggja þeir
í för sína í kvöld, áleiðis til
Reykjavíkur með Herjóifi.
— Bj. Guðm.
Winnufridur á Siglufirði
SIGLUFIRÐI, 23. júní. — Verka-
kvennafélagið Brynja hér á Siglu
firði, samþykkti á fundi sínum
í gærkvöldi gagntilboð vinnu-
veitenda um laun síldarstúlkna
við söltun. Hefur verkakvenna-
félagið fallið frá fyrri tilmælum
sínum um 25 prósent hækkun
ákvæðislauna við síldarsöltun.
í gagntilboðinu er gert ráð fyr-
ir nýjum lið í kaup og kjara
og vinnuveitenda. Eru það á-
kvæði um laun pr. tunnu þegar
um er að ræða söltun misstórrar
síldar með miklu úrkasti. Verða
greiddar kr. 32,10 að viðbæltu
orlofi pr. tunnu í stað kr. 29,03
pr. tunnu að viðbættu orlofi, sem
greidd var fyrir söltun þessarar
síldar í fyrrasumar. Óbreytt
verða því ákvæðislaunin fyrir
söltun jafnstórar síldar, sem eru
kr. 24,71 pr. tunnu að viðbættum
kr. 1,48 í orlofsfé.
samningi verkakvennafélagsins<é> Þá er gert ráð fyrir í gagntil-
boði vinnuveitenda, að stúlkurn-
ar fái karlmannskaup fyrir ýmsa
vinnu við síldina, eftir söltun,
t. d. ápökkun og pönnun síldar.
Áður höfðu stúlkurnar karl-
mannskaup fyrir flesta þætti
þeirrar vinnu sem hér um ræðir.
Nýir kaup- og kjarasamningar
byggðir á þessum ákvæðum,
hafa ekki verið undirritaðir og
því ekki að fullu lokið, en hér
er ekki búizt við neinum breyt-
ingum frá því sem nú er.
— Stefán.
Ný framhalds-
saga í dag
í DAG hefst hér í blaðinu ný
framhaldssaga, „Gamlar synd-
ir“, eftir Patricia Wentworth,
sem margir telja fullkominn
jafnoka Agötu Christie og hin-
ir sömu vilja halda því fram,
að Maud Silver, gamla konan,
sem situr oftast með prjónana
sína og lætur lítið á sér bera
standi sízt að baki Hercule
Poirot, þó að hún láti kannski
minna yfir sér.
Sviðið er stórt og fornlegt
hús, þar sem margir gestir
eru samankomnir. Þangað
kemur aðvífandi ungur maður,
sem veit óþarflega mikið um
fortíð sumra gestanna og
hyggst nota sér þá vitneskju í
ábataskyni, en fer að lokum
sömu leiðina og margir stétt-
arbræður hans.