Morgunblaðið - 29.06.1960, Blaðsíða 1
20 síður
Varðskipsmenn af Þór fóru um borð í brezkan togara en —
brezkir sjdliðar beittu þá valdi
Á þessari mynd, sem tekln l
var úr Rán, flugvél landhelg- 7
isgæzlunnar í gær sést hvar 1
hraðbáturinn Elding liggur i
utan á brezka togaranum 1
Northern Queen. Varðskipið
Þór sést skammt frá. Myndin
er tekin skömmu eftir að varð
skipsmenn fóru um borð í tog
arann.
Sjá fleiri myndir á bls. 2 og 3.
Northern Queen 2 sjdm.
innan fiskveiðitakmark-
anna við Grimsey
í GÆRDAG setti varðskipið Þór menn um borð í
brezka togaranum Northern Queen GY 124, sem var
að veiðum um 2 sjóm. innan við fiskveiðitakmörkin
norðvestur af Grímsey. Skömmu síðar kom brezka
herskipið Duncan á vettvang og setti sjóliða vopnaða
kylfum um borð í togarann áður en hægt væri að
færa hann til hafnar. Skipherrann á herskipinu
neitaði að sleppa togaranum og krafðist þess- að varð-
skipsmenn yrðu sóttir. En þegar því var neitað, fluttu
brezku sjóliðarnir varðskipsmenn um borð í Þór. Þór-
arinn Björnsson skipherra á Þór mótmælti harðlega
þessari valdbeitingu Bretanna.
Tilkynning Bretans
Mbl. er kunnugt um að skip-
herrann á Duncan hafi sagt í til-
kynningu til Þórs, að brezka rík-
isstjórnin viðurkenni ekki 12
mílna fiskveiðilandhelgi. Hins
vegar hefðu togaraeigendur far-
ið fram á að togaraskipstjórarn-
ir héldu sig utan við 12 mílurnar
í 3 mánuði, og hefði þetta verið
ítrekað í yfirlýsingu, sem skip-
stjórinn á ' togaranum Dianos
hefði gefið í fyrrakvöld. I yfirlýs-
ingu sinni hafi skipstjórinn út-
skýrt ástæðurnar fyrir fyrr-
nefndri ákvörðun togaraeigenda.
Leiðinlegt er, hélt brezki skip-
herrann áfram, ef þessi atburð-
ur yrði til þess að eyðileggja það,
sem áunnizt hefir undanfarnar
vikur. Síðan óskaði hann eftir því
að Þórs-menn tækju aftur sína
menn úr brezka togaranum, en
skipherrann á Þór svaraði um
hæl, að hann teldi sér ekki fært
að verða við þeirri beiðni.
Á hraðbáti
Varðskipsmenn fóru út í
brezka togarann á hraðbátnum
Elding, sem gengur 18 sjómílur.
Hann var ó þessum slóðum í hópi
síldveiðibáta, en eins og kunnugt
er, er bátur þessi eign Hafsteins
Jóhannssonar, sem er froskmað-
Framh, á bls. 3.
DrangajökuSI sökk
í Pentlandsfirði
Skozkur togari bjargaði áhöfninni
Morgunblaðinu barst í gær-
kvöidi svohljóðandi einka-
skeyti frá fréttaritara sínum
í Færeyjum:
DRANGAJÖKULL, sem var
staddur í Pentlandsfirði sendi
út neyðarskeyti kl. 19,39 svo-
hljóðandi: Turning over port-
side (Er að hvolfa á bak-
borða). Svo heyrðist ekki
meira til hans.
En kl. 20 kallaði^kozki tog-
arinn Mount Eden frá Aber-
deen til Wick-radíó, og skýrði
loftskeytamaður hans svo frá
að togarinn hefði bjargað öll-
um sem á Drangajökli voru,
samtals 19 manns. Hann er nú
á léið til Aberdeen.
Togarinn kom að Dranga-
jökli þegar hann var að velta
á hliðina. Fór hann alveg yfir
um og stóð botninn upp
nokkra stund, en svo sökk
skipið stuttu síðar.
Samkvæmt þeim fréttum, er
Morgunblaðið gat aflað sér í
gærkvöldi, var Drangjökull á
heimleið frá Ósló, Amsterdam
og fleiri Evrópuhöfnum, full-
hiaðinn kartöflum og öðnum
varningi, og með dráttarvélar
á dekki.
Skipstjóri var Haukur Guð-
mundsson, Nökkvavogi 31 í
Reykjavík, og voru kona hans
og barn með í ferðinni. Hauk-
Framh. á bls. 2.
Drangajökull