Morgunblaðið - 29.06.1960, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.06.1960, Blaðsíða 4
4 MORCUWBLAÐIÐ Miðvikudagur 29. júní 1960 Vönduð kona óskar eftir atvínnu 1-2 mán Helzt hjá vinnuflokki eða veiðimönnum. M. fl. hugs- anlegt. Tilb. sendist Mbl., fyrir 4. júlí, merkt: „örugg — 3640“. Kona, sem þráir vor og vinskap, óskar eftir réðs- konustöðu hjá manni, nál. 60 ára. Gott húsnæði áskil- ið. Svar sendist Mbl., fyrir 4. júlí, merkt: „Félagar — 3641“. „Sumarbústaður“ Málari og trésmiður óska eftir sumarbústað í strætis- vagnaleið. Einhver stand- setning kæmi til greina. — Uppl. í símum 32383 eða 35582. — Kjólar sniðnir og mátaðir og hálfsaumaðir, einnig teknar breytingar á kven- fatnaði. Sími 15094. Á sama stað til sölu Rafha-eldavél. Sænskt fatahengi og hilla. Óska eftir atvinnu í 2 mánuði, hef verzlunar- skólapróf. — Tilboð send- ist Morgunbl., fyrir föstud., merkt: „1. júlí — 3807“. Trilla til sölu, 3ja tonna Báturinn er 5 ára gamall. Verð 20—25 þús., ef samið er strax. Tilb. sendist afgr. Mbl., merkt: „3808“. Matsvein, karl eða konu vantar á m/b Björn, sem fer á lúðuveiðar. Uppl. um borð í bátnum, sem liggur við Grandagarð. Verkamenn og smiði vantar nú þegar í vinnu úti á landi. Upplýsingar í síma 32850. — Uppgerð reiðhjól til sölu Ungiingastærðir. — Einnig sendisveinshjól. Reiðhjóla- verk.stædið, Sigluvogi 15. Vantar 2ja-3ja herb. íbúð Má vera í góðum kjallara. Tilboð sendist Mbi., merkt „Reglusemi — 3609“. Trésmiður óskar eftir 2—3 herb. íbúð. Einhver standsetrting kæmi til greina. Uppl. í síma 36057. Til leigu nú þegar 2 herb. og eldhús í 2—3 mánuði. Uppl. í símt 32230. Ýtuskófla til leigu Upplýsingar í síma 16194 og 12299. Telpa óskar eftir vist helzt í Smáíbúða- eða Bú- staðahverfi. — Sími 32562. Stúlka óskar eftir atvinnu í sumar. — Stúdentspróf. Upr' ‘69. í dag er 180. dagur árstns. Miðvikudagur 29. júní. Árdegisflæði kl. 09:37. Síðdegisflæði kl. 21:52. Slysavarðstofan er opin allan sólar- hriHgmn. — Laæknavörður L.R (fyrir vitjanir). er á sama stað kL 18—8. — Símí 15030. Næturvarzla er í Reykjavíkur apó- teki vikuna 25. júní til 1. júlí. Næturlæknir í Hafnarfirði vikuna 25. júní til 1. júlí er Kristján Jóhanns- son, sími 50050. Holtsapótek og Garðsapótek eru opin alla virka daga kl. 9—7 og á sunnudög- um kl. 1—4. Hjúkrunarfélag íslands tilkynnir: — Guðsþjónusta fyrir norrænar hjúkrun arkonur verður í Dómkirkjunni þ. 7. júlí kl. 9:30 árd. Fundahöld og annað verður auglýst í sjúkrahúsum Reykja- víkur og Hafnarfjarðar. Bygffingarmenn! — Munið að ganga þrifalega um vinnustaði og sjáið um að umbúðir f júki ekki á næstu götur, lóðir eða opin svæði. Listamannaklúbburinn ræðir listahá- tíðina: — I kvöld verða í Listamanna- klúbbnum í Baðstofu Naustsins um- ræður um hina nýafstöðnu listahátíð Þjóðleikhússins. Málshefjandi er Guð- laugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri. Gagnrýnendum og fulltrúum Ferða- málafélagsins er boðið á fundinn. Þetta verður seinasta klúbbkvöld fyrir sum- arleyfið, en síðan verður Listamanna- klúbbnum lokað til hausts. Mæðrafélagið fer skemmtiferð sunnu daginn 3. júlí um Borgarfjörð. Nánari upplýsingar í símum 32783 og 32382. Mánudagar eru hátíðisdagar prestanna. — Jonathana Swi.ft. Sendiráðherra er heiðarlegur mað*v”, sem er sendur til útlanda til að Ijúga í þágu föðurlandsins. — Sir Henry Wotton. ÁHEIT og CJAFIR Áheit á Strandakirkju afh. Mbl.: — IH 100 kr., AP 200, Sigurveig 100, SM 50, NN 100, KK 100, Rúna 20, GG og OH 1000, Anna 20, ómerkt 50, vegna prófs 100, VD 25, Þórir 30, ónefnd 50, SS 50, BO 50, ónefndur 50, GG 100, GG 100, SC 25, NN 100, II 150, Guðbjörg 50, Guðrún G 100, NN 200, SC 50, AO 100, Guðm. Jónsson 500, ASB 120, SS 100, AP 200, ÞRE 500, IG 100, Lúlli 100, SO 50, MA 25, NN 100, AG 25, Sigurbj. Guðlaugsd. 40, KG 100, OK 300, kona í Keflavík 300, EJ 50, GB 100, NN 100, GJ 50, hjón 500, áheit 300, BH 100, áheit 200, S 20, KLP 50, JHj 130, EE og GE 100, NN 25, AJ 50, ES 300, GG 100, Steinþór 55, HÞ 15, EB 30, GÞ 100, JG 20, GZ 100, NN 100, Guðrún 25, B 45, áh. í bréfi 30, Sigrún 60, áh. í bréfi 50, áheit 50, Ingibjörg 100, MM 200 kr. Lárétt: — 1 iðnaðarmenn — 6 fugl — 7 auðnuleysingjanum — 10 straumkast — 11 slæm — 12 frumefni — 14 tónn — 15 hafi gagn af — 18 hnúinn. Lóðrétt: — 1 stúlkan — 2 á fíl (þf) -— 3 mann — 4 gripdeild — 5 riða — 8 guð — 9 hárin — 13 veizla — 16 fangamark — 17 ó- samstæðir . BREZKIR lögxegluþjónar eru kunnir að árvekni og skyldu- rækni, en eitt fyrsta boðorð þeirra er þó að sýna ávallt kurteisi. Því mundi líka lög- reglumaðurinn eftir, sem sá vel klæddan herramann standa hreyfingarlausan upp Eg el í rænu rúmi svo ramman harmaspreng; eg sit í svörtu húmi við sætan hörpustreng; af þessu styttist stundin hjá stúlku jafnt sem dreng; við þetta léttist lundin; eg leik á hörpustreng. Sveinbjörn Egilsson. MENN 06 = miEFNI == við vegg í símaklefa. Honum sýndist maðurinn væri stjarf- ur af drykkjuskap, en áræddi þó ekki að handtaka hann fyrst um sinn, þar sem hann sá ekki betur en hér væri kominn maður Margrétar drottningarsystur, Anthony Armstrong-Jones. I.ógreglu- maðurinn minntist nú alls þess, sem hann hafði lesið í slúðurdálkum dagblaðanna um svalllifnað og óregla Tona tjósmyndara, áður en hann gekk í það heilaga með Grétu. ,,Hann er semsagt dottinn í það aftur“, hugsaði hann og vissi ekki, hvernig ætti að handtaka svo tiginn mann. Að lokum ltiannaði hann sig þó til þess að opna klefadyrnar og hugðist vekja hinn dauða til lífsins, en uppgötvaði þá, að hér var komin vaxmynd af Anthony. Vaxstyttu þessari hafði verið stolið úr hinu heimsþekkta safni frú Tuss- auds skömmu áður. Myndin hér að ofan sýnir, er „Ant- hony“ var borinn inn á lög- reglustöð í Bow Street, en sá flutningur vakti mikla athygli meðai vegfarenda. Talið er lík legt, að gamlir svallbræður Anthonys og systur hafi stol- ið styttunni af skömmum sín- um til þess að minna hann á tilveru sína, en hann ku oft hafa tekið þátt í svipuðum prakkarastrikum á fyrri ár- um. Hrifning brezka kvenfólks ins á Anthony er sögð fara sí- minnkandi enda keppast blöð- in við að rif ja upp alls konar sögur af fyrri lifnaðarháttum hans, segja hann hafa svikið kínverska hjákonu sína, og að hann sé bæði halitur og heimsk ur, heyrnarlaus og hugmynda- laus. JÚMBÖ — Á ævintýraeyjunni — Teikningar eftir J. Mora — Við ættum ekki að þurfa að svelta á eyjunni okkar, Júmbó! hróp- aði Mikkí, þegar hún kom aftur heim, — sjáðu bara, hvað vex á trjánum hérna! — Ha? — Ja, þetta er svei mér álitlegt! anzaði Júmbó, glaður og undrandi. Júmbó starði á svínslærið. — Segðu mér, hvers konar tré var það eigin- lega, sem þetta óx á? spurði hann. — Ja, anzaði Mikkí hugsandi, — ég held það hafi verið einhvers konar birkitré.... Heyrðu, Júmbó, það vantar eitthvað á húsið.... ....Ó, nú veit ég, hvað það er! Þú hefur gleymt dyrunum og gluggun- um) Júmbó hló og greip sögina, — Þú hefur rétt fyrir þér, Mikkí, sagði hann, því hef ég gleymt í öllu ann- ríkinu. Jakob blaðamaður Eftir Peter Hoffman — Finnst þér skrifstofan of lítil, Jóna? — Guð minn góður, nei! Hún er agalega stór! — Jæja, ég hef stór áform varð- andi.... a.... Hver er þetta? Get ég hjálpað yður? — Nei, dásamlegi maður! Ég er hér til að hjálpa þér!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.